Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1988. 21 Iþróttir ilbjarnarvelli er útleikin. Stór göt og hólar og hæðir eru viðs vegar um brautina. Haf- i FRÍ, viröir hér skemmdirnar fyrir sér í gær. DV-mynd Brynjar Gauti Belgíska knattspyman: indur missir af leik Winterslag iðmundar Torfasonar tognuðu á versta tíma mundsson varð belgískur bikarmeistari með fyrir nokkrum árum og Ragnar Margeirsson lék með í fyrra, má muna sinn fífil fegri. Um síðustu helgi féll það niður í 3. deild eftir tveggja vetra setu í annarri. Ekkert virðist úr þessu koma í veg fyrir að Winterslag og Waterschei verði sameinuð í sumar. Frammistaða Wint- erslag í næstu tveimur leikjum ræður því í hvaða deild nýja félagið leikur næsta vetur, 1. eöa 2. deild. Nafn nýja félagsins hefur ekki verið opinberað en ekki er ólíklegt að það tengist Genk, stærstu borg héraðsins, en Waterschei og Winterslag eru útborgir hennar. Gár- ungarnir tala hins vegar ýmist um Wat- erslag eða Winterschei! Ófremdarástand í Laugardalnum: „Brautin er handónýt' ‘ - nöturiegt ástand aðstöðu frjálsíþrötta- og knattspymumanna Enn einu sinni hefur það gerst aö hlaupabrautin á Valbjarnarvelli í Laugardal hefur eyðilagst vegna vatns sem safnast hefur undir „tartan- efnið“ sem lagt var á völlinn á sínum tíma. Til að koma í veg fyrir mein- ið þarf að taka alla brautina upp en það er ekki á dagskránni. Tildrög þessara sífelldu skemmda eru þau að fyrst þegar gerviefni var lagt á hlaupabrautina voru gerð afdrifarík mistök. Gervi- efnið hleypir í gegnum sig bleytu og því þurfti undirlagið að gera það hka. En þar liggur hundurinn graf- inn. Undirlagið hleypir engri bleytu í gegnum sig og því gúlpast gerviefnið upp og mjög erfitt verö- ur að hlaupa á brautinni. „Brautin er handónýt. Það er varla að hægt sé aö hlaupa eftir fyrstu og innstu brautinni. í raun er hún handó- nýt,“ sagði íþróttamaöur, sem æfir reglulega á Valbjarnarvelli, í sam- tali við DV í gær. ítalir á leiðinni Um miðjan þennan mánuð eru væntanlegir ítahr sem munu reyna aö gera við verstu kaflana á hlaupabrautinni í Laugardal. Þaö veröur þó aðeins tíl bráðabirgða því til að fullnaðarviögerð geti fariö fram þarf að rífa upp alla brautina og einnig undirlagið og skipta um hvort tveggja. Þetta er gífurlega dýrt verk og myndi jafnvel kosta einhvetja milljónatugi. Hafsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri FRÍ, sagðist í gær fagna því að viö- gerð stæði fyrir dyrum. Sagðist han vonast eftir góðu veðri á meðan viðgerð stæði yfir þannig að móta- skrá raskaðist ekki. Grasvellirnir í mjög slæmu standi Eins og fram kom í DV í síðustu viku er ástand grasvallanna tveggja, aðalleikvangsins og Val- bjamarvallar, mjög slæmt. I raun verður ekki séð hvernig á aö vera hægt að leika ólympíulandsleikinn gegn Portúgal 24. maí, hvað þá deildarleik Fram og Vals 16. maí, næsta mánudag. Algera byltingu þarf til aö hægt verði að leika í Laugardalnum í þessum mánuði. Útlitiö í upphafi keppnistímabila frjálsiþróttafólks og knattspyrnu- manna er því ekki glæsilegt sé litið á aðstöðuna. Og svo eru menn að tala um að lengja keppnistímabilið í knattspyrnunni. -SK .......■■■— ..... :3—:■* íl II i ■■■■, --- . ' • Þessi mynd var tekin af Laugardalsvelli i gær en þar er ástandið ekki gott þessa dagana og alls óvist hvenær verður hægt að leika á vellinum. DV-mynd Brynjar Gauti Atii Eðvaldsson til Valsmanna - verður löglegur seinni hlutann í júní • Atli Eðvaldsson hjá Bayer Uerd- ingen er á leiðinni heim til íslands og leikur með Valsmönnum í 1. deildinni í sumar. Ath Eðvaldsson, sem leikur með Bayer Uerdingen í Vestur-Þýska- landi, hefur ákveðið að leika með Val í 1. deildinni í sumar. Tvær umferðir eru eftir í vestur-þýsku deildinni og verður Ath löglegur með Val seinni hluta júnímánaðar. Engum blöðum er um það að fletta að koma Atla til Vals er hðinu gífur- legur styrkur. Ath Eðvaldsson hefur leikið í Vestur-Þýskalandi mörg und- anfarin ár, hóf atvinnumannsferil- inn með Borussia Dortmund en síðan lá leiðin til Fortuna Dusseldorf og loks til Bayer Uerdingen. Ákvörðun Atla að leika meö Val í sumar kemur eins og þruma úr heið- skíru lofti því fyrir nokkrum dögum var Ath ákveðinn í að vera í þijú ár til viðbótar sem atvinnuknatt- spyrnumaður. Samningur Atla við Bayer Uerdingen rennur út að loknu þessu keppnistímabih og hafði hann hug á að breyta th og skipta um félag. Ath hefur átt erfitt uppdráttar með Uerdingen á keppnistímabilinu og ekki unnið sér fast sæti í höinu en um helgina lék hann hins vegar allan leikinn á móti Bayem Miinchen og átti mjög góðan leik. -JKS þar sem smáauglýsingarnar veróa STÓRAR! Síminn er 27022

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.