Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1988.
7
dv___________________________________________________Stjómmál
Umhveifismálaráðuneyti tekur til starfa um næstu áramót:
Störf átta ráðuneyta
færð undir einn hatt
- líklegt að deilt verði um hvar hinu nýja ráðuneyti verður komið fyrir
Matthias Á. Mathiesen, væntanlegur umhveríismálaráóherra, í réttu um
hverfi með hestum sinum.
Forsætisráðherra hefur boðað
stofnun nýs ráðuneytis í upphafi
næsta'árs - umhverfisráðuneyti sem
verður sameinaö samgönguráðu-
neytinu. Mun það heita samgöngu-
og umhverfismálaráðuneytið eftir
breytinguna. Frumvarp um þetta
Uggur nú fyrir hjá þingflokkunum
eftir að hafa verið samþykkt í ríkis-
stjórninni. Þingflokkur sjálfstæðis-
manna hefur veitt samþykki sitt og
búist er við að hinir þingflokkamir
gefi upp afstöðu sýna gagnvart frum-
varpinu áður en langt um líður.
Þorsteinn Pálsson sagði í samtali
viö DV að hann vonaðist til að geta
sýnt frumvarpið á þessu þingi þótt
það yrði ekki lagt fram fyrr en á
næsta hausti. Stefnt er að gildistöku
þess um næstu áramót.
Af hverju
samgönguráðuneytið?
Það er viðbúið að töluverðar deilur
verði um þetta frumvarp enda ekki
á hverjum degi sem nýtt ráðuneyti
er stofnað. Það sem líklega mun
valda mestum deilum er staðsetning
ráðuneytisins en í þeim drögum, sem
forsætisráðherra hefur nú kynnt, er
gert ráð fyrir því að það verði sam-
einað samgönguráðuneytinu. Af
hverju sú leið er valin er ekki vel
ljóst og er öruggt að hinir stjórnar-
flokkarnir og stjórnarandstaðan
munu gera athugasemdir við það.
Einn stjórnarandstæðingur orðaði
það svo að eina ástæðan, sem hann
sæi fyrir því að hafa umhverfismálin
hjá samgönguráðherra, væri sú að
líklega þætti mönnum Matthías hafa
það svo rólegt í sínu ráðuneyti að
hann gæti vel bætt þessum nýja
málaflokki á sig.
Þeir stjórnarandstæðingar, sem við
var rætt, töldu hugmyndina um að
vista umhverfismálin í samgöngu-
ráðuneytinu út í hött og sagði t.d.
Hjörleifur Guttórmsson að líklega
væri það sísta ráðuneytið til að sjá
um þessi mál.
„Ég hefði auðvitað helst viljað fá
sérráðuneyti en samgönguráðuneyt-
ið hefur hingað til ákaflega lítið sinnt
þessum málum. Ef á að setja þessi
mál í annað ráðuneyti hefði verið
eðlilegast aö félagsmálaráðuneytið
fengi þessa málaflokka," sagði Krist-
ín Einarsdóttir hjá Kvennalistanum.
Kristín sagði að þetta væri það stór
og mikilvægur málaflokkur að það
hefði þurft sérráðuneyti fyrir hann.
„Reynsla erlendis frá ætti að sýna
okkur að helst dugar ekkert annað
en sérráðuneyti fyrir umhverfis-
mál.“ Kristín sagðist ekki sjá hvernig
starfsmenn samgönguráðuneytisins
ættu að bæta á sig þeim störfum sem
óhjákvæmilega fylgdu hinu nýja
ráðuneyti.
Eiður Guðnason, þingflokksfor-
maður Alþýðuflokksins, sagði að
samgönguráðuneytið. væri slæmur
kostur og eöhlegast hefði verið að
vista þessi mál í félagsmálaráðuneyt-
inu. Þingflokksformaður framsókn-
armanna, Páll Pétursson, tók undir
það en nefndi til menntamálaráðu-
neytið.
Það er því ljóst að langt er enn í
land að umhverfismálunum verði
fundinn staður sem öllum líkar.
Einnig verður örugglega erfitt að fá
menn til að gefa eftir málaflokka sem
þeir hafa fengið með sínum ráðu-
neytum en gert er ráð fyrir því aö
mál, sem dreifst hafa á átta ráöu-
neyti, hverfi til hins nýja ráðuneytis.
Sérlega skemmtilegt er að skoða
niðurstöðu fundar nefndarinnar með
embættismönnum. Þar kemur fram:
...að þeir embættismenn, sem
vildu breýtingar, virtust almennt
sammála um að mikilvægt væri að
færa saman í eitt ráðuneyti hina
ýmsu þætti umhverfismála þótt það
ætti ekki við um þá starfsemi sem
þeir stæðu fyrir.“ Já, embættis-
mannakerfið lætur ekki að sér hæða.
Það sem menn einu sinni hafa náð
undir sig láta þeir ekki svo auöveld-
lega frá sér.
„Eitt ráðuneyti gert ábyrgt“
Matthías Á. Mathiesen, samgöngu-
ráðherra og tilvonandi umhverfis-
málaráðherra, sagði í samtali við DV
að það væri margt sem benti til þess
að umhverfismálin væru best komin
Fréttaljós
Sigurður Már Jónsson
í samgönguráðuneytinu. Margt tengt
umhverfismálum væri nú þegar i
ráöuneytinu og í raun væri ekkert
ráðuneyti tengdara umhverfismál-
um. Má þar nefna mengun í sjó, sem
Siglingamálastofnun hefur með að
gera, og umhverfi við hafnir og ferða-
mál er allt í samgönguráðuneytinu.
„Þama er um það að ræða að eitt
ráðuneyti er gert ábyrgt fyrir þessum
málaflokki, ábyrgt fyrir því að sam-
starf milli ráðuneyta gangi upp. Það
er nefnilega ljóst að þessi mál munu
alltaf byggjast á samstarfi á milli
ráðuneyta, enda þótt eitt ráðuneyti
verði með þessi mál á sinni könnu,“
sagði Matthías. Hann vildi ekki taka
undir þær skoðanir að þessi mál
væru best komin í félagsmálaráðu-
neytinu þó að skipulagsmálin væru
þar nú.
Það verður umhverfismálaskrif-
stofa innan samgönguráðuneytisins
sem á að sjá um þessi mál og verður
sérstakur skrifstofustjóri skipaður
til þess að veita henni forstöðu. Starf-
semi skrifstofunnar skal vera fjár-
hagslega óháð annarri starfsemi
samgönguráðuneytisins.
Gamlar hugmyndir
Það frumvarp, sem nú liggur fyrir,
er afrakstur nefndar sem Þorsteinn
Pálsson skipaði 3. september 1987 til
aö gera drög að lagafrumvarpi um
samræmda yfirstjóm umhverfis-
mála. Er það í samræmi við stefnu-
yfirlýsingu og starfsáætlun ríkis-
stjómarinnar. í nefndinni störfuðu
Sigurður M. Magnússon forstööu-
maður, formaður, Alda Möller mat-
vælafræöingur og Hermann Svein-
björnsson, aðstoðarmaður sjávarút-
vegsráðherra. Ritari nefndarinnar
og starfsmaður var Ingimar Sigurðs-
son yfirlögfræðingur.
Þaö var fyrir hartnær áratug sem
hafist var handa um könnun á ný-
skipan og yfirstjórn umhverfismála
í Stjórnarráði íslands þannig að hér
er um nokkuð gamlar hugmyndir að
ræða og ekki í fyrsta skipti sem farið
er af stað. Er eiginlega varla seinna
vænna að koma einhverju skikki á
þessi mál.
1975 skipaði Geir Hallgrímsson,
þáverandi forsætisráðherra, nefnd
sem samdi lagafrumvarp sem lagt
var fyrir Alþingi vorið 1978. Ríkis-
stjórnin ákvað í apríl 1978 að félags-
málaráðuneytið skyldi fara með
þennan málaflokk innan Stjórnar-
ráðs íslands. Félagsmálaráðherra
lagði síðan fram frumvarpið, sem
áður er sagt frá, en það fékk ekki
afgreiðslu á þingi. Annað frumvarp
var lagt fram veturinn 1980-81 en
hlaut ekki afgreiðslu. í ráðherratíð
Svavars Gestssonar, 1980-1983, voru
samin tvö frumvörp um yfirstjóm
umhverfismála en hvorugt lagt fram
á þingi.
Enn einu sinni var farið af stað í
upphafi starfstíma ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar og átti
málið þá að fá fullnaðarafgreiðslu á
Alþingi. Alexander Stefánsson, þá-
verandi félagsmálaráðherra, skipaði
fimm manna nefnd undir for-
mennsku Hermanns Sveinbjöms-
sonar sem átti að semja frumvarps-
drög. Ekki náðist samstaða í nefnd-
inni. í ársbyijun 1985 ákvað ríkis-
stjórnin aö tillögur Alexanders
skyldu fá frekari umfiöllun í viðkom-
andi ráðuneytum. Hjá ráöuneytun-
um kom fram greinileg andstaða við
tillögurnar og þær breytingar sem
þar vom lagðar til á skipan um-
hverfismála hér.
Sú nefnd, sem nú hefur skilaö af
sér þessum hugmyndum, kemst að
eftirfarandi niöurstöðu: (Til skýring-
ar má kenna nefndina við formann
hennar, Sigurð M. Magnússon.)
„Það er áht nefndarinnar að með
hliðsjón af því hve umhverfismál eru
víðtækur málaflokkur sé á þessu
stigi ekki hægt að ganga lengra í átt
til samræmingar og tilfærslu mála-
flokka milli ráðuneyta, miðað við
núverandi skipan mála í Stjórnar-
ráði íslands. Nefndin litur svo á að
með frumvarpi því, sem hér er lagt
fram, sé stigið fyrsta skrefið í þá átt
að flytja málaflokkinn í heild sinni í
eitt ráðuneyti. Slík tilfærsla tengist
óhjákvæmilega endurskoðun laga
um Stjómarráð íslands og nýrri
verkaskiptingu ráðuneyta."
Endurskoðað eftir fjögur ár
Með frumvarpinu fylgja bráða-
birgðaákvæði sem kveða á um að
lögin skuli endurskoða innan Qög-
urra ára frá gildistöku þannig að
greinilegt er að ekki er verið að stíga
skrefið til fulls eins og kemur fram
hér að framan.
Nefndin, sem nú hefur skilaö nið-
urstöðu, segir það vera sitt álit að
ekki sé unnt að ganga lengra núna
við samræmingu og tilfærslu mála-
flokka á milli ráðuneyta. Nefndin
segist líta svo á að hér sé aðeins um
að ræða fyrsta skref í þá átt að flytja
málaflokkinn í heild sinni í eitt ráðu-
neyti. Slík tilfærsla myndi tengjast
endurskoðun laga um Stjómarráð
íslands og nýrri verkaskiptingu
ráðuneyta.
Samkvæmt lögum þeim, sem nú
liggja fyrir, er gert ráð fyrir því að
umhverfismál heyri undir þrjú ráðu-
neyti: félagsmálaráðuneyti, sem fari
með skipulagsmál, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneyti, sem fari
með málefni sem snerta mengunar-
varnir, aðrar en vamir gégn mengun
sjávar, og samgönguráöuneyti sem
fari með málefni er snerta varnir
gegn mengun sjávar, náttúruvernd,
þ.m.t. landvernd, verndun náttúru-
legs skóglendis og friðun dýra.
Starfssviö umhverfis-
ráðuneytisins
Eftirhtshlutverk verður stór þáttur
í starfssviði hins nýja ráöuneytis.
Meðal annars má nefna aö ráðuneyt-
inu verður heimilt að setja gjaldskrá
vegna einnota umbúða, véla og tækja
og þvílíks, í formi fasts gjalds, eða
árlegs gjalds, til að stuöla að fórgun
og endurvinnslu.
Sérstaklega er kveðið á um að
draga eigi úr notkun efna og efna-
sambanda sem valdið geta eyðingu á
ósonlaginu. Segir 1 bráðabirgða-
ákvæðum með frumvarpinu að
stefnt skuli að því að notkur. minnki
um 25% fyrir 1991 og um 5C% fyrir
1999. -SMJ