Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1988, Síða 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1988.
Erlend myndsjá
'v; 1'
■
Tonn af
kókaíni
Lögreglan á Spáni geröi á sunnu-
daginn tonn af fíkniefninu kókaíni
upptækt í kjallara byggingar
skammt frá landamærum Spánar
og Frakklands. Meðfylgjandi
myndir sýna fulltrúa lögreglunnar
með fenginn sem var geymdur í
pappakössum.
Regan
ver rit-
smíð sína
Donald Regan, fyrrum starfs-
mannastjóri Hvíta hússins í Wash-
ington, hefur sætt nokkurri gagnrýni
vegna bókar sinnar, For The Record,
sem nýkomin er út í Bandaríkjunum.
í bókinni þykir Regan fara óvægnum
orðum um forsetahjónin, Ronaid og
Nancy Reagan, einkum þó frúna.
Sjálfur segist Regan ekki hafa viljað
vera neinum slæmur og telur gagn-
rýnina óverðskuldaða.
Vill komast í heimsmetabókina
Fimmtán ára unglingur frá Indlandi hefur sótt um að sín verði getið í heims-
metabók Guinness, fyrir safn sitt af eldspýtustokkum. Drengurinn, sem heit-
ir Vinay Khandelwal, á yfir sautján hundruð tegundir eldspýtustokka og
meðal annars á hann einn af fyrstu stokkunum sem framleiddir voru, en sá
mun vera frá árinu 1855.
Páfií
S-Ameríku
Jóhannes Páll páfi II. kom í opin-
bera heimsókn til Uruguay um síð-
ustu helgi og var honum þar vel fagn-
að, eins og meðfylgjandi myndir bera
með sér. Heimsóknin til Uruguay er
upphaf ferðar páfa um Suður-Amer-
íku en hann mun einnig heimsækja
Bólivíu, Perú og Paraguay.
Þegar páfl kom til Montevideo í
Uruguay á laugardag söfnuðust tug-
þúsundir íbúa borgarinnar saman á
íþróttavelli þar til að fagna honum.
Páfi ávarpaði mannfjöldann og baöst
fyrir.
Við komuna til Montevideo kann-
aði páfi heiðursvörð, í fylgd með
Julio Maria Sanquinetti, forseta Ur-
uguay.