Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1988, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 16. MAÍ 1988.
Fréttir_______________________________________________________________________________ pv
Ríkisstjómin:
Gífúrlegur ágreiningur
um frekari aðgerðir
IVær vikur til að móta stefnuna úr kröfum sem stangast heiftariega á
Stjórnarflokkarnir voru í raun eins
fjarri samkomulagi um ráöstafanir í
efnahagsmálum um helgina og hugs-
ast getur. Deilurnar um stærö geng-
isfellingarinnar og hvort afnema ætti
rauðu strikin í samningunum voru
þaö haröar að aðrar aðgeröir fengust
vart ræddar. En af þeim sem settar
voru fram má sjá aö mikið þarf að
gerast á næstu tveimur vikum ef
flokkarnir eiga aö þokast nær sam-
komulagi.
Ágreiningurinn um stærö gengis-
fellingarinnar er nú úr sögunni.
Hann hefur reyndar veriö fluttur
upp í Seðlabanka en i bankastjórn
hans voru misjafnar meiningar um
gengisfellinguna fyrir helgi. Tómas
Árnason var talsmaður gengisfell-
ingar allt aö 15 prósentum.
Tillögur flokkanna, og þá einkum
Alþýöuflokks og Framsóknar, varö-
andi peningamál og vexti, ríkisfjár-
mál og launamál eru þaö ólíkar aö
búast má við höröum deilum í stjórn-
inni þær tvær vikur sem hún gefur
sér til aö móta efnahagsaðgeröir.
Alþýðuflokkurinn lagði fram til-
lögur í 17 liðum. Þær snerust um 9%
gengisfelhngu. Ekki yröi hróflaö viö
þeim samningum sem þegar hafa
veriö gerðir. Lög yrðu sett á þau
verkalýðsfélög sem ósamið er við og
miöaö viö Akureyrarsamningana.
Hækkun persónuafsláttar yröi flýtt
um einn mánuð. Bætur Trygginga-
stofnunar yröu hækkaðar. Bann yröi
sett á hækkun opinberrar þjónustu.
Veröalagi á landbúnaöarafuröum og
annarri innlendri framleiölsu yröi
haldiö niðri. í ríkisfjármálum yröu
alhr þættir fjárlaga utan launaliða
frystir og eftirht meö því aö ríkis-
stofnanir héldu sig innan fjárlaga
Um helgina kom í Ijós djúpstæður ágreiningur í rikisstjorninni um stefnuna í efnahagsmálum. Hér er ráðherra-
nefndin á einum af mörgum fundum
fellingarinnar og rauðu strikin. Aðrar
yröi hert. í peningamálum yröi
bindiskylda bankanna hækkuö úr 13
í 15 prósent. Verðbréfasjóðum yröi
gert að k^upa ríkisvLxla fyrir 30 pró-
sent af nýju fé frá 15. mai. Krafa um
innlenda fjármögnun samhliöa er-
lendum lánum yröi hækkuö þannig
aö miðað yröi við fobverð vörunnar
í stað þess að miöa viö verö vörunn-
ar hér heima. Skattaleg meðferð á
kaupleigusamningum yrði breytt th
að gera þá óhagstæðari. Þá var flokk-
urinn meö tihögur um tímabundið
gjald á framkvæmdir fyrirtækja og
sveitarfélaga. Alþýðuflokkurinn
lagði auk þess til að fiskverð yröi
ekki hækkað um meira en 4 prósent.
Th þess að hindra aukinn útflutning
á ferskfiski í kjölfar hærri gengis-
felhngar en fiskveröshækkunar yröi
helgarinnar ásamt ráðgjöfum sinum.
aðgerðir sem stjórnin þarf nú að ák'
sett tímabundiö gjald á þann útflutn-
ing. Varöandi vanda sjávarútvegsins
lagöi flokkurinn til aö fyrirtæki yröu
aðstoðuö við fjárhagslega endur-
skipulagningu en þó einungis þau
sem sýnt gætu fram á góöa arðsemi
í framtíðinni.
Auk þessara aðgeröa sem fram-
kvæma átti strax vildi Alþýöuflokk-
urinn heíja viöræöur um atvinnu-
stefnuna og sölu á veiöikvóta, endur-
skoöa búvörusamningana og afnema
sjálfvirkni í fjárlögum. Ákvaröanir
um þessi atriði skyldu liggja fyrir í
sumar.
Tihögur Framsóknarflokksins
voru flestar af öörum toga. Fram-
sóknaiflokkurinn setti fram kröfu
um 15 prósent gengisfehingu. Hann
vildi afnema rauðu strikin í samn-
sir fundir snerust um stærð gengis-
ða fengust vart ræddar.
DV-mynd BG
ingunum og setja lög á þá sem ósam-
ið er viö. Eins og Alþýðuflokkurinn
vildi hann hækkun tryggingabóta og
flýta hækkun skattleysismarka.
Hann vildi frysta álagningu til ára-
móta. Framsókn var með tihögur
sem ætlaöar voru landsbyggöinni.
Hún vhdi að dreifbýlisverslunin
fengi styrk úr Byggðasjóði. Jöfnun-
arsjóður skyldi nota 50 prósent af
ráðstöfunarfé sínu til jöfnunar á að-
stöðumun. Af 22 liöum snerust tiu
um vexti og lánskjaravísitölu. Flokk-
urinn vhdi afnema vísitöluna af lán-
um sem eru til allt aö fjögurra ára
og afnema frjálsa vaxtaákvörðun. Þá
vildi hann hækka vexti á húsnæöis-
stjórnarlánum í 5 prósent og lánum
úr Byggingasjóði verkamanna í 3
prósent. Lánskjaravísitala yröi ekki
reiknuð af þessum lánum og yrðu
þetta því nafnvextir lánanna. Flokk-
urinn vildi lækka bindiskyldu ban-
kanna og nota aukið ráöstöfunarfé
þeirra til lána til sjávarútvegsins. Þá
vhdi flokkurinn setja gjald á mann-
virkjagerð og bann á innflutningi
skipa. Framsókn vildi aö fiskverð
hækkaði um 8 prósent svo laun sjó-
manna hækkuöu 'í takt viö aðrar
stéttir.
Miölunarthlaga forsætisráöherra
hljóðaöi upp á 12 prósent gengisfell-
ingu. í henni voru ráöstafanir til aö
hamla gegn víxlverkun verðlags og
launa eftir samkomulagi við aðha
vinnumarkaðarins. í því samráöi
skyldi einnig reynt að samræma
launaþróun varöandi þá sem ósamið
er viö. Þessi atriöi voru samþykkt
að því breyttu aö gengisfellingin varö
10 prósent en Seðlabankanum var
veitt heimild th aö hækka eöa lækka
gengið um 3 prósent. Þau atriði í th-
lögunni sem felld voru út voru hækk-
un bindiskyldu bankanna, kaup
veröbréfasjóöanna á ríkisvíxlum fyr-
ir 15 prósent ráðstöfunarfjárins, að
allir liöir fjárlaga yröu bundnir og
eftirlit hert, ákvæöi um aö ríkis-
stjórnin skyldi beita sér fyrir aö
skapa skhyröi fyrir lækkandi vöxt-
um aö hert yrði á verðlagseftirliti og
aö dregiö yrði úr lánum fjárfesting-
arsjóða. Þessum atriöum var skotiö
á frest.
Þaö verður vandi ríkisstjórnarinn-
ar á næstu tveimur vikum aö sam-
ræma þau ólíku viðhorf sem lesa má
af þessum tillögum. í raun eru þessar
tillögur enn í gildi. Þetta er sá grund-
völlur sem viðræðurnar veröa
byggðar á.
-gse
Asmundur Stefánsson:
Það þarf að grípa til
frekari aðgerða
„Þaö er ljóst að hér er aðeins um
afinarkaöa aögerö aö ræöa og þaö
þarf að grípa th frekarí aðgerða til
aö tryggja varanlega afkomu fisk-
vinnslunnár og taka á þeirri þenslu
sem verið hefur hér aö undan-
fómu,“' sagöi Ásmundur Stefáns-
son, forseti ASÍ, um efnahagsaö-
gerðirnar í samtah viö DV í morg-
un.
Ásmundur sagðist jafnframt
fagna þvi sérstaklega aö horfiö
heföi verið frá áformum um aö lög-
binda laun og væri ljóst aö Al-
þýðuflokkurinn hefði unniö nokk-
urn sigur i þeim slag sem stóð um
helgina.
- En hvað um viðræður rikisstjórn-
arinnar og aðha vinnumarkaöar-
ins?
„Það er rétt aö taka fram að
verkalýöshreyfingin er ekki tilbúin
th að fara í viðræður um hvernig
eigi aö skerða kjörin en hún hlýtur
aö vera reiðubúin að taka þátt í
viðræðum um hvemig eigi að taka
á þeim vandamálum sem viö
blasa,“ sagöi Ásmundur. . -JBj
Albert Guðmundsson:
Minnir á stjómar-
myndunarviðræður
Olafur Ragnar Grímsson:
Meiri manndómur
að fara frá strax
Kristín Einarsdottir:
Sýnir ráðaleysi
stjórnarinnar
„Þaö er ekkert aö marka eina geng-
isfelhngu heldur eru þaö aörar ráö-
stafanir sem segja th um áhrif henn-
ar," sagöi Kristín Einarsdóttir hjá
Kvennalistanum. Kristín sagði aö
gengið heföi veriö feht hér áöur og
þaö heföi varla verið hægt aö sjá
hvaö annað mætti taka th ráöa úr
því sem komið var.
„Það sem skiptir máli í sambandi
viö þessa gengisfelhngu er hvernig
tekiö veröur á kjörum þeirra lægst
launuöu. Annars er ekki séö fyrir
endan á því hver gengisfehingin
raunverulega er og er undarlegt aö
Seðlabankinn skuh ráða því. Auðvit-
að á ríkisstjórnin aö ráöa því en þetta
sýnir líklega betur en margt annaö
ráöaleysi ríkisstjórnarinnar." -SMJ
Guðmundur J.:
Hliðarráð*
stafanirskipta
ollu máli
„Þaö er búiö .aö halda svo lengi
þannig á málum aö það getur enginn
horfið frá gengisfehingu. Það skiptir
hins vegar öhu máli hvaöa hliöarráð-
stafanir þeir gera,“ sagði Guðmund-
ur J. Guömundsson, formaöur Dags-
brúnar, í samtali viö DV í morgun
þegar hann var spuröur aö því
hvemig gengisfelhngin horföi við
hoiium, _____________rJBj
„Ríkisstjórnin hefur veriö aö gera
rangar ráðstafanir frá því hún tók
til starfá enda hefur þessi ríkisstjórn
aldrei verið starfhæf og veröur það
aldrei. Flokkarnir sem að henni
standa hafa það ólík sjónarmið,“
sagði Albert Guömundsson, formað-
ur Borgaraflokksins, og bætti því við
að þessar viöræður um helgina í rík-
isstjórninni minntu helst á stjómar-
myndunarviöræður. „Þeir vita ekki
hvaö á aö gera, þaö tók þá marga
mánuöi að mynd stjórn og þeir em
enn að því.
Þessi gengisfelling núna, sem er
aht of mikil, er ekkert annaö en af-
leiðing af rangri stjórnarstefnu. Fjár-
málaráöherra hefur hækkaö útgjöld
ríkisins um 20 milljarða og þarf því
aö ná 20 milljöröum meirá í skatta á
árinu. Þá er skrítiö aö sjá hvernig
Alþýðuflokkurinn teymir hina flokk-
ana áfram út í kviksyndi. Ég segi því
enn og aftur, stjórnin er fallin og á
aö fara frá. Borgaraflokkurinn er
reiðubúinn í samstarf til aö finna
lausnir án þess að gera kröfu um
stjórnarþátttöku,"_______ -SMJ
„Það sem nú hefur gerst sýnir vel
þaö sem ég hef veriö aö segja um
hagsljómarkreppu hér. Þessi gengis-
felling ein pg sér bætir ástandið ht-
iö,“ sagöi Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalagsins.
Sagði Ólafur að ef svo bættist viö
kjaraskeröingarákvæði síöar í mán-
uðinum þá væri greinilegt aö ríkis-
stjórnin væri búin aö gefast upp.
„Þá er ljóst aö Seðlabankanum er
heimilað aö halda áfram á þessari
gengisfellingarleiö og á meöan er
ekki tekiö á neinu öðru. Ég nefni til
vaxtamál, fjárfestingar, skatta og
ríkisfjármál en ég hef lagt til víö-
tækar aðgeröir á þessum sviöum til
aö losna út úr þessari hagstjórnar-
kreppu. Nú sitjum viö uppi með gam-
aldags gengisfelhngu og beiöni um
kjaraskerðingu.
Þaö yæri meiri manndómur í því
fyrir ríkisstjórnina að fara frá strax
því aö ríkisstjórn, sem skilur ekki
aö hún er búin að vera, er hættuleg."
-SMJ
Olafur G. Einarsson:
Kosningastefnuskrár og
stjómarsáttmálar
- þvælast fýrir raunverulega verkefninu
„Það er enn meiningarmunur
um stærð gengisfehingarinnar. Um
þaö snýst ágreiningurinn. Menn
virðast hins vegar eiga erfitt með
aö halda sig við meginmálið; aö
leiðrétta gengiö. Ýmsir virðast
halda að nú sé tími til þess að semja
kosningastefnuskrá eöa setjast aö
nýju viö að gera sljómarsáttmála.
Það er einfaldlega ekki á dagskrá,“
sagði Ólafur G. Einarsson, þing-
flokksformaður Sjálfstæöismanna,
um miöjan dag í gær.
- Hliöarráðstafanir hafa þá ekki
verið til meðferðar hjá þingflokk-
unum?
„ Jú, en viö íslendingar höfum það
mikla reynslu af gengisbreytingum
að þaö sem þarf er flest vel þekkt.“
- Eru það „gömlu íhaidsúrræðin"
sem em á borðinu hjá ykkur?
„Ekki einu sinni öh,“ sagði Ólaf-
ur.
-gse