Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1988, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1988, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 16. MAÍ 1988. Lausar stöður I viöskiptadeild Háskóla íslands eru lausar til um- sóknar eftirgreindar tvær tímabundnar lektorsstöður. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðurnar til þriggja ára. 1) Hálft starf lektors í rekstrarhagfræði með sérstöku tilliti til stjórnunar. 2) Hálft starf lektors í rekstrarhagfræði með sérstöku tilliti til upplýsingatækni. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og náms- feril og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 10. júní nk. Menntamálaráðuneytið, 10. maí 1988. SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. Tugir tegunda __•!_•_ r~ Hvoriisgölu 33, slmi: 62-37-37 __ Þjónustumiðstöð skrifstofunnar. eykjavíkur. bílastæði við Klapparstíg. (J ARKLAmmaifiD© GASGRILL m/kút og yfirbreiðslu Verð kr. 14.500,- TIL SÝNIS OG SÖLU Dalshrauni 13, Hafnarfirði P Sím Sími 652575 Viðtalið Tómstundimar snúast mikið um sónginn V -< 1 Nafn: Þóroddur F. Þóroddson Aldur: 38 ár Staða: Verkefnastjóri hjá Náttúruverndarráði Þóroddur F. Þóroddson hefur verið ráðirrn framkvæmdastjóri Náttúruverndarráðs frá og með 1. júní. Hann starfar nú sem verk- efnastjóri hjá Náttúravemdar- ráði. Jarðfræðingur að mennt Þóroddur er fæddur í Reykjavík 1950. Hann er alinn upp í höfuð- borginni, tók stúdentspróf frá MH og síðan lauk hann jarð- flræðinámi frá Háskóla íslands 1975. Að þvl loknu hélt hann til Uppsala í Svíþjóð þar sem hann lagöi stund á vatnafræði í há- skóla. Hann starfaði hjá Orku- stofhun á ámnum 1975 til 1981 en fluttist þá til Akureyrar og vann á náttúrugripasafninu þar í bæ. Á þeim tíma vann Þóroddur að ýmsum verkefnum fyrir Náttúr- vemdarráð. Síöastliðin tvö ár hefur Þóroddur verið fastur starfsraaður hjá Náttúruvemd- arráði. Söng á dráttarvélinni „Tómstundirnar snúast mikið um söngina Ég syng ásamt kon- unni minni í kór Langholtskirkju en þar áður var ég í Háskólakóm- um og kór Menntaskólans við Hamrahlið," segir Þóroddur. Hann segir mikinn tíma fara í sönginn þar sem æfingar eru tvi- svar í viku, auk þess sem kórinn syngur viö messur og heldur tón- leika. „Égsöngmikiðsemkrakki, til dæmis á dráttarvélinni í sveit- inni. Auk þess hef ég aöeins farið í söngtíma, bæði í Reykjavík og á Akureyri þegar ég bjó þar.“ í Lyons Eiginkona Þórodds er Sigríður Friðgeirsdóttir skrifstofumaöur sem er ættuð fr á Raufarhöfn. Þau eiga tvær litlar dætur, Huldu Björk, 7 ára, og Hörpu Kristínu, 3 ára. Þóroddur hefur fleiri áhugamál en söngirm. Hann hefur starfaö í Lyonsklúbbi undanfarin ár og er hann nú félagi í Lyonsklúbbnum Vála í Reykjavík. „Þetta er mjög góður félagsskapur. Maður eign- ast vini og kunningja og þetta er sérstaklega gott fyrir menn eins og mig sem hafa flust milli byggö- arlaga. Ég byijaði í Lyons þegar ég fluttist til Akureyrar og komst þannig í kynni við margt fólk.“ Á gönauskíði með dæturnar „Útivist hef ég einnig gaman af en geri þó of lítið af slíku. Þó skrepp ég á gönguskíði viö og við. Þaö hefúr þó veriö misjafnlega mikið í gegnum árin. Stelpumar hafa verið á erfiðum aldri til þess aö fara meö þær á gönguskíði en áöur setti ég þær á snjóþotu og dró þær á eftir mér. En þær fara nú bráðum að geta stigiö á skíöi sjálfar.“ -JBj Fréttir Húsavík: ByggtyfirHöfða því bankinn fjármagnaði byggingima að mestu. Netagerðin í netagerðinni vinna sex manns og eru næg verkefni fyrirliggjandi. Þor- steinn Benediktsson netagerðar- meistari sagði í samtali viö DV að frá upphafi hefði verið tekin sú stefna að útgerðarmenn þyrftu ekki að greiða meira fyrir þjónustuna hjá Höfða en þeir þyrftu að greiða fyrir sambærilega þjónustu til dæmis í Reykjavík. Netagerð Höfða tók til starfa árið 1981 og hefur lengst af verið á hrakhólum með húsnæði. Jóhannes Sigurjónsson, DV, Húsavflc Nýlega tók útgerðarfyrirtækið Höfði hf. í notkun húsnæði á hafnar- svæðinu sem byggt var yfir starfsemi fyrirtækisins. Höfði hf. gerir út rækjutogarann Júlíus Havsteen og gerði áður út togarann Kolbeinsey. Einnig rekur Höfði netagerð og er hún til húsa á neðri hæð nýbygging- arinnar. Á efri hæð eru hins vegar skrifstofur fyrirtækisins. Húsvískir verktakar unnu alfarið við bygginguna en fram kom við formlega opnun hússins að í raun væri Landsbankinn aðalverktakinn Þorsteinn Benediktsson netagerðarmeistari við vinnu í nýju byggingunni. DV-mynd Jóhannes Jóhannas Sigurjónæon, DV, Húsavífc Eitt af því sem tilfinnanlega hef- ur skort á bæjarbraginn á Húsavík er útimarkaður yfir suraarið. Slíkir eru gerðir út víða á menningar- stöðum, svo sem í Reykjavík suður og Mývatnssveit uppl En nú kann að verða breyting á þessu. Sveinn Hauksson, tónhstarmað- ur með meiru, hefur sem sé lagt fram umsókn til bæjaryfirvalda á Húsavík um starfrækslu útimark- aðar í sumar. Bæjaryfirvöld haía tekið vel í þessa beiðni, með fyrir- vara um samþykki bygginganefiid- ar og annarra hlutaöeigandi aðila. ísafjörður: Nýr bátur sjósettur Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði Nýr bátur var sjósettur frá Skipa- smíðastöð Marsellíusar hf. á ísafirði nýlega. Báturinn, Jón Helgason ÁR, er einn af þessum svokölluðu 9,9 tonna bátum og er hann að öllu leyti hannaður og smíðaður hjá Skipa- smíðastöð Marsellíusar hf. Jón Helgason ÁR er 12,40 m á lengd og 3,80 m á breidd, búinn 200 hestaíla vél. Eiginleg smíði á bátnum hófst ekki fyrr en um áramótin og hefur smíðihans því tekið um fimm mán- uði. Áður en bátnum var hleypt af stokkunum gaf dóttir eigandans, Sig- urðar Jónssonar frá Þorlákshöfn, bátnum nafn. Jón Helgason ÁR mun fyrst um sinn verða gerður út á línu og net. Jón Helgason ÁR rennur af stokkunum. DV-mynd BB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.