Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1988.
Viðskipti
i>v
Hafbeitarstöðvamar:
Menn sjá laxa
alls staðar
Laxinn er aö skila sér í hafbeitar-
stöðvarnar þessa dagana. „Þetta er
nýög gott, menn sjá laxa alls staðar.
Menn búast við að um 300 tonn skili
sér í allar haíbeitarstöðvar landsins
í sumar. Það er eftir miklu að slægj-
ast, þessa dagana er verið að selja
frosinn haíbeitarlax í Sviss á 400
króna skilaverði. En í arðsemisút-
reikningum fyrir haíbeitarstöðvar
gera menn ráð fyrir 200 króna skila-
verði,“ segir Friðrik Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Landssambands
fiskeldis- og hafbeitarstöðva.
Vogalax í Vogum, suður með sjó,
er stærsta hafbeitarstöð landsins.
Þar fengust 15 prósent endurheimtur
í fyrra sem að sögn Friðriks er hreint
ótrúlega gott. „Þeir slepptu 400 þús-
und seiðum í fyrra sem þýöir, miðað
við 10 til 15 prósent endurheimtu-
hlutfall, að á milli 40 og 50 þúsund
laxar skili sér í sumar.“
Stöðin í Kollafirði hafði 8 prósent
endurheimtur í fyrra. Þar var 200
þúsund seiðum sleppt og miðað viö
endurheimtuhlutfallið í fyrra eiga 16
þúsund laxar eftir að skila sér í
Kollafjörðinn.
Þá er útlitið mjög gott hjá Pólarlaxi
í Straumsvík og Lárósi á Snæfells-
nesi. „Það eru vænar torfur fyrir
utan Pólarlax og 500 laxar höfðu
gengið í Lárósstöðina í fyrrakvöld.
Þar ber nokkuð á stórlöxum, 2ja til
3ja vetra, en það eru laxar á bilinu
12 til 30 pund.“
Friðrik segir ennfremur að endur-
heimtur hafi aukist um 1 prósent á
ári frá árinu 1984. „Viö gerum okkur
þess vegna vonir um að meðalendur-
heimtur á öllu landinu verði 8 tíl 9
prósent."
-JGH
Peningamarkaöur
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 18-20 Ab
Sparireikningar
3jamán uppsógn 18-23 Ab
6mán. uppsögn 19-25 Ab
12mán. uppsógn 21-28 Ab
18mán. uppsogn 28 Ib
Tékkareikningar, alm. 8-10 Ab.Sb
Sértékkareikningar 9-23 Ab
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsógn 4 Allir
Innlán með sérkjörum 20-30 Vb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 6-6,50 Vb.Sb
Sterlingspund 6,75-8 Úb
Vestur-þýskmörk 2,25-3 Ab
Danskarkrónur 8-8,50 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 30-32 Bb.Lb
Viöskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 31-34 Bb.Lb
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 33-35 Sp
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 9,5 Allir
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 29,5-34 Lb
SDR 7,75-6,50 Lb
Bandaríkjadalir 9,00-9,75 Úb
Sterlingspund 9,75-10,50 Lb.Bb,-
Vestur-þýsk mörk 5,25-6,00 Sb.Sp Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 44,4 3,7 á
mán.
MEÐALVEXTIR
överðtr. júní 88 32
Verötr. júní 88 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala júní 2051 stig
Byggingavísitalajúní 357,5 stig
Byggingavísitala júní 111,9 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 6% . aprii.
VERÐBRÉFASJÖÐIR
Gengi bréfa veróbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1,15733
Einingabréf 1 2,888
Einingabréf 2 1.669
Einingabréf 3 1,851
Fjölþjóöabróf 1,268
Gengisbréf 1,340
Kjarabréf 2,893
Lifeyrisbréf 1.452
Markbréf 1,507
Sjóðsbréf 1 1,399
Sjóösbréf 2 1,246
Tekjubréf 1,428
Rekstrarbréf 1,1412
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 115 kr.
Eimskip 234 kr.
Flugleiðir 212 kr.
Hampiðjan 112 kr.
Iðnaðarbankinn 148 kr.
Skagstrendingur hf. 220 kr.
Verslunarbankinn 114 kr.
Útgeröarf. Akure. hf. 121 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aöila, er miöaö viö sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viöskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaöar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Llb = Otvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nðnarl upplýslngar um peningamarkað-
inn birtast i DV á flmmtudögum.
Hreyfíll tapaði
8 milljónum
Rekstur Hreyfils gekk illa á síðasta
ári. Félagið sat uppi með 8 milljóna
króna tap, að sögn formanns stjórn-
arinnar. DV-mynd JAK
Leigubfiastöðin Hreyfill tapaði 8
milljónum króna á síðasta ári. Árið
áður, 1986, var hagnaðurinn 4 millj-
ónir. Meginástæðurnar fyrir tapinu
eru kaup á stjórntölvu fyrir leigu-
bílastöðina og of lágt stöðvargjald,
að sögn Ólafs Magnússonar, for-
manns stjómar Hreyfils.
„Þetta tap kemur á sama tíma og
meira er að gera hjá stöðinni. Ég hef
ekki tölur um það, en viðskiptin hafa
aukist, það voru fleiri túrar á síðasta
ári miðaö við árið áður,“ sagði Ólaf-
ur.
Hreyfúl er samvinnufélag en ekki
hlutafélag. Það hefur auglýst mikið
að undanfórnu. Á stöðinni vinna 240
bUstjórar. HreyfUl er stærsta leigu-
bílastöð landsins.
„Við erum með stóra kaffistofu fyr-
ir bUstjórana og hvorki meira né
minna en um 800 fermetra bíla-
þvottahús. Þetta er meira en hinar
stöðvamar hafa en það segir sig sjálft
að þetta kostar sitt,“ segir Ólafur.
-JGH
Óvenjuleg auglýsing:
.. .auðvitað
Ovenjuleg auglýsing er nú á vögn-
um Strætisvagna Reykjavíkur. Hún
er aðeins eitt orð sem er.. .auðvitað.
Margir hafa velt því fyrir sér hvað
sé eiginlega veriö að auglýsa. Að
sögn Harðar Gíslasonar, skrifstofu-
stjóra SVR, er það Sól hf., Davíð
Scheving Thorsteinsson, sem er að
auglýsa.
Hvað þetta .. .auðvitað er segir
Hörður að muni skýrast í næstu viku
þegar Sól hf. birtir aöra auglýsingu
á vögnunum.
-JGH
Með tilkomu sjálfvirkninnar breytist vinnan úr erfiðisvinnu yfir í létta
stjórnunar- og eftirlitsvinnu. DV-mynd JAK
Laxinn er farinn að skila sér i hafbeitarstöðvarnar. Hér er Jón Kr. Sveins-
son, eigandi Lárósstöðvarinnar á Snæfellsnesi. í þá stöð höfðu i fyrrakvöld
gengið 500 laxar. Óvenjumikið bar á 2ja og 3ja vetra löxum, en það eru
laxar á bilinu 12 til 30 pund.
Ný framkvæmdastjóm
Hlutabréfámaikaðarins
Verðbréfamarkaður Iðnaðarbank-
ans hf. tók við framkvæmdastjórn
Hlutabréfamarkaðarins hf. í byrjun
júní. Skrifstofa og afgreiðsla félags-
ins er í húsnæði Verðbréfamarkaðar
Iönaðarbankans að Ármúla 7 en fyrri
afgreiösla félagsins að Skólavöröu-
stíg 12 verður jafnframt opin í um-
sjón Þorsteins HaraldSsonar, löggilts
endurskoöanda, sem verið hefur
framkvæmdastjóri félagsins til
þessa.
Hlutabréfamarkaðurinn hf. tók til
starfa árið 1985 og hóf þá nýbreytni
að skrá kaup- og sölugengi hluta-
bréfa. Lýsir Hlutabréfamarkaðurinn
sig reiöubúinn að kaupa eða selja
hlutabréf á því gengi sem auglýst er.
Öll viðskipti eru staögreiðsluviö-
skipti. -JGH
Fleiri mannabreyt-
ingar hjá Olís
Það er ekki aðeins að Óli Kr. Sig-
urösson, eigandi Olís, sé að taka við
af Jóni Atla Kristjánssyni sem for-
stjóri Ohs heldur eru stöðubreyting-
ar fleiri. Þannig er Ríkharð Ottó Rík-
harösson viðskiptafræðingur, sem
unnið hefur hjá Olís um nokkurt
skeið, oröinn íjármálastjóri.
Ari Sigurðsson viðskiptafræðingur
er oröinn forstöðumaöur hagdeildar.
Ari hefur verið sumarmaður hjá Olís
undanfarin ár. Loks er Ólafur Bjarki
Ragnarsson orðinn fulltrúi forstjór-
ans.
Stöðubreytingarnar, utan for-
stjóraskiptin, eru hður í skipulags-
breytingum hjá Olís sem unnið hefur
verið að í nokkum tíma.
„Ástæöan fyrir því aö ég hætti er
sú að við Óli Kr. Sigurðsson, eigandi
fyrirtækisins, höfum ekki getað
komið okkur saman. Þess vegna varð
það að samkomulagi að ég hætti og
mun Óli setjast í forstjórastólinn,"
segir Jón Atli Kristjánsson.
-JGH
BYKO hf. með sjálf-
virka verksmiðju til
timburvinnslu
BYKO hf. í Kópavogi hefur tekið í
notkun nýja og mjög sjálfvirka verk-
smiðju th timburvinnslu. Að sögn
BYKO-manna er verksmiðjan fylli-
lega samkeppnisfær við sambærheg-
ar verksmiðjur í nágrannalöndun-
um. Verksmiðjan leysir af hólmi
timburvinnslu sem til þessa hefur
verið framkvæmd á þjónustuverk-
stæði BYKO.
Aðeins fióra starfsmenn þarf við
framleiðsluna. „Hér á landi hafa
vinnubrögð við timburvinnslu verið
nær óbreytt allt frá stríðslokum en
með tilkomu sjálfvirkninnar breytist
vinnan nú úr erfiðisvinnu yfir í létta
stjómunar- og eftirlitsvinnu," segir
í tilkynningu frá BYKO.
Fyrirtækiö er það eina í heiminum
sem notar jarðvarma til þurrkunar
á timbri. Sem dæmi um sjálfvirknina
í nýju verksmiðjunni tók það einn
mann heila viku að stafla timbri í
þurrkklefann. Nú tekur það hann
aðeins einn dag.
-JGH