Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Side 8
8 Útlönd Frá slysstaö í Crotton. Simamynd Heuter Um flmmtán þúsund manns urðu aö flýja heiraili sín í bænura Crofton í Kentucky í Bandaríkjunum í gær. Flutningalest hafði fariö út af spori sínu við bæinn, með þeim afleiðingum að eldur kviknaði í tankvagni sem var hlaðinn fosfór. Alls voru það þrjátíu og sex jámbrautarvagnar sem lentu út af brautar- sporinu í þessu óhappi. Engan mun hafa sakað vegna óhappsins og fólkið hélt aftur til heimila sinna í gærkvöldi, eftir að slökkvilið hafði yfirbugað eldinn. Bjóða sjáHstjóm liflML«"SM •NTCRí-ArONAt COPYRiGHT BY CARTOOHCWS INC. NY Michel Rocard, meö augum skopmyndateiknarans LURIE. Forsætisráö- herrann reynir nú aö iægja ófriöaröldurnar í Nýju-Kaledóniu. Hin nýja rikissljóm sósíalista í Frakklandi hefur boðið kanökum, frum- byggjura Nýju-Kaledóníu, sjálfsfjóm til bráöabirgða í tilraunaskyni, í von um aö það megi lægja óróaöldumar í landinu. Michel Rocard, forsætisráðherra Frakklands, átti í gær fúnd með fulltrú- um fmmbyggja og franskra landnema í Nýju-Kaledóníu, þar sem hann lagöi fram tillögur um sjálfstjóm sem stæði ákveðinn tíma, Með þessu viU ríkisstjómin reyna að mæta óróa meðal kanaka. Hertóku helgidóm Kína Rangoon Bengal flói Hofiö er í miðborg Rangoon, höf- uöborgar Burma. Hópur róttækra stúdenta hefiu- tekið herskildi helgasta hof Burma og fjölmermar sveitir hermanna hafa veriö sendar til Rangoon, höf- uðborgar landsins, til þess að reyna aö koma í veg fyrir útbreiðslu óróa. Vopnaðar sveitir óeiröalögreglu hafa lokaö algerlega Shwedagon hofinu í miöborg Rangoon, þar sem um eitt hundrað stúdentar halda nú bænafundi. Lögreglan fjariægöi hóp stúdenta úr hofinu í gærdag, en félagar þeirra halda enn velli og gera sig ekki liklega til að láta undan og hverfa á braut. Hofiö er tvö þúsund og fimm hundmð ára gamalt búddahof og það var þar sem þjóðemissinnar í Burma söfnuðust saman gegn Bret- um í frelsisbarátttu sinni í kjölfar síðari heimsstyrjaldar. Flúðu heimili sín FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1988. Jákvæðar frið- arviðræður Pik Botha, utanríkisráðherra Suöur-Afríku, gaf sér tima frá viðræðunum í Kaíró um frið í Angóla og brá sér i skoðunarferð á kameldýri. Þótti honum viðeigandi að setja á sig arabískan höfuðbúnað af þvi tilefni. Simamynd Reuter Angóla, Kúba, Suður-Afríka og Bandaríkin hófu í gær á ný viðræður í Kaíró um hvernig koma megi á friði í Angóla og leysa málefni Namibíu. Síðasti fundur þessara ríkja var haldinn í London fyrir nær tveimur mánuðum. Þær viðræöur fóru næst- um út um þúfur vegna deilna um næsta fundarstað og staösetningu fjölda kúbanskra hermanna í suður- hluta Angóla. í gær komu hins vegar fulltrúar Suður-Afríku og Angóla, sem eru helstu andstæðingarnir í deilumál- inu, með friðarvilja til Kaíró. Utan- ríkisráðherra Angóla, Afonso Van- Dunem, lagði áherslu á ósk stjórnar sinnar um að friður verði tryggður í Angóla og að ályktun Sameinuðu þjóðanna um sjálfstæði Namibíu komist til framkvæmdar hiö fyrsta. Utanríkisráðherra Suður-Afríku, Pik Botha, undirstrikaöi kröfur suður- afrískra stjórnvalda um að kúban- skir hermenn hverfi á brott frá An- góla. Einnig kvað hann mikilvægt að Suður-Afríka kallaði heim sína eigin hermenn sem berjast meö skærulið- um gegn stjórninni í Angóla en hún nýtur stuðnings Sovétríkjanna og Kúbu. Talið er að nú séu um fimmtíu þúsund kúbanskir hermenn í Ang- óla. Bandaríkin eru, þrátt fyrir hemað- arlega aðstoð við unitaskæruliða, milligönguaöili í friðarviðræðunum í Kaíró. Dukakis undinitar skattaiög Hvatning Michaels Dukakis til að sendiráö Bandaríkjanna í ísrael verði flutt frá Jerúsalem til Tel Aviv getur oröið til þess aö hann missi atkvæði í forsetakosningunum í nóv- ember. Þetta segir í leiðara í New York Times í morgun. Jerúsalem hefur valdið deilum alla tíð frá striðinu 1967 þegar ísraels- menn sameinuðu með vopnavaldi borgina en arabar höföu áður haft yfirráð yfir austurhluta hennar. Að flytja sendiráðið núna væri óþörf ögrun, segir í leiðaranum. Dukakis, sem er ríkisstjóri Massa- chusetts, berst nú heima fyrir við vaxandi fjárlagahalla. Hann undir- ritaði í gær skatt á vindlinga. Frek- ari skatta er að vænta í næstu viku. Dukakis hefur oft lofað því í barátt- unni um útnefningu til forsetafram- bjóðanda að sem forseti myndi hann aðeins grípa til skattahækkunar sem neyðarúrræöis. Óttast að um þrjú hundruð hafi farist Óttast er að um þrjú hundruð manns hafi farist í þorpi einu í Tyrk- landi, sem í gær grófst undir skriðu. Talið er að um hálf miljón tonna af aur og grjóti hafi fallið á þorpiö. Björgunarmenn óttast aö frekari skriöuföll kunni að verða við þorpið Catak, um þrjátíu kílómetra suður af Trabzon, stærstu hafnarborg Tyrklands viö Svarta hafið. Hættan á frekari skriðum varð til þess að björgunarmenn hættu störf- um í gærkvöldi og gátu þau ekki hafist að nýju fyrr en með birtingu í morgun. Aðalskriöan í Catak féli nokkrum klukkustundum eftir að smærri skriða lokaði þjóðveginum að þorp- inu. Þrjú hundruö manns er saknað í þorpinu og er óttast aö þeir séu allir látnir. Skriðan tók með sér mikinn flölda bifreiða af þjóövegi við þorpið, gróf veitingahús og nokkrar aðrar bygg- ingar og olli miklu tjóni á umhverfi. Veitingastaðurinn var fullur af fólki þegar skriðan féll og voru þar margir ferðamenn sem höfðu neyðst til að dvelja í Catak um hríö vegna lokunar þjóðvegarins. Vitaö er að fjörutíu manna hópur var í veitingastaönum til að fylgjast með sýningu á myndbandi. Jafn- framt er vitað aö nokkrir þýskir feröamenn voru á þessum slóðum og hafa þeir ekki komið fram. Talið er að það taki að minnsta kosti tvær vikur að flarlægja aurinn og endanlegar tölur um flölda látinna veröa ekki staðfestar fyrr en að því verki loknu. Stórvirk vinnutæki vinna nú að því að ryðja skriðunni á brott. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.