Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Síða 10
10 FOSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1988. SÖLUSKATTUR Viðurlög falla á söluskatt fyrir maímánuð 1988 hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 27. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20% en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. júlí. Fjármálaráðuneytið FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU: Lausar stöður við framhaldsskóla Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennarastöður við Fjölbrautaskóla Suðurnesja framlengist til 27. júní næstkomandi, þ.e. í faggreinum rafiðna, tölvu- fræði, íþróttum og íslensku, stundakennarastöður í faggreinum málmiðna og myndmennt. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 27. júní nk. Umsóknir um stundakennslu sendist skólameistara ^Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Menntamálaráðuneytið 5 Aí /U poL tLle{ní að fimm át em liðin fa þoi ab oLi kja /lAaqna hiýum solu a toiouleLkjum, hb^um oLÍ ákoeiii atI hjbða alÍA le'tkL á kassettu á aðeLns: SttOe -bLýéi /\A.aqna. £~euACjcuyeqL 43 94 - 23044 £endum L pöstktiýu um allt lanb. FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU: Lausar stöður við framhaldsskóla Við Menntaskólann í Kópavogi er laus til umsóknar hálf kennarastaða í tölvufræði og hálf staða í bók- færslu. Við Sjómannaskólann í Reykjavík er laus til umsókn- ar staða umsjónarmanns. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 8. júlí næstkomandi. Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennarstöóur við eftirtalda skóla framlengist til 1. júlí næstkomandi: Við Framhaldsskólann að Laugum vantar kennara í stærðfræði og ensku. Þá er laust hlutastarf í viðskipa- greinum. Við Menntaskólann og Iðnskólann á ísafirði eru lausar kennarastöður í eftirtöldum greinum: ein staða í þjóðhagfræði, rekstrarhagfræði og öðrum við- skiptagreinum, hlutastöður í félagsfræði, ensku og staða námsráðgjafa. Þá vantar stundakennara í sálar- fræði, heimspeki og lögfræði. Þá er laus til umsóknar staða kennara í tölvufræði og stundakennarastaða í íslensku við Menntaskólann við Hamrahiíð. Umsóknir um stundakennslu sendist skólameisturum viðkomandi skóla. Menntamálaráðuneytið Utlönd Dýrir skór Þaö hefur löngum tíðkast aö selja svonefndar Hollywood-minjar dýrum dómum, einkum klæðnaö og annan búnað sem stórstjömur hafa notað í kvik- myndum. Nýlega var sett nýtt met í þessum efnum. Skópar nokkurt, sem Judy Garland notaði þegar hún lék í kvikmyndinni um galdrakarlinn í Oz, var þá selt á uppboði og fengust fyrir það einir hundrað sextíu og fimm þúsund dollarar, eða sem nemur hðlega sjö milljónum íslenskra króna. Einmana Orangútapinn Jóseflna, sem býr í dýragarðinum í San Francisco, er einmana. Hún er ein sinnar teg- undar í dýragarðinum og hefur þvi engan til að njóta með ástar og yndis. Hugsanlega verður Jósefína þó ekki jafndapurleg í framtíðinni, því hugmyndir eru á lofti um að flytja hana til Fíladelfíu, þar búa nokkrir órangútapar fyr- ir og sumir þeirra eru strákar. Akveðin Victoria Williams er ákveðin kona sem ekki lætur deigan síga þótt um hana gusti ofurlítiö. Hún rekur lítið hótel við rætur Himalayafjalla, í bænum Kalimpong. Hótehð var upphaflega í eigu fóður hennar en eftir dauða hans ráku Victoria og tvær systur hennar staöinn og nú síðast Victoria ein, því hinar systurnar eru horfnar á vit feðra sinna. Hótelið er htið, aðeins níu gestaherbergi. Ferða- mönnum hefur fækkaö verulega, bæði af efnahags- legum ástæðum og vegna íjölgunar annarra ferða- möguleika sem nútíminn býður upp á, en ekki þó síst vegna hermdarverka Gurkha í héraðinu um- hverfis Kalimpong. Victoria heldur þó rekstrinum ótrauð áfram, ákveöin í að sjá gestum sínum fyrir þægilegu, frið- sælu og áhugaverðu umhverfi, innan um minjar úr sögu Tíbet. Hún heldur í gamlar hefðir og gamla tíma og nýtur þess að umgangast gesti sína og segja þeim frá því sem liðið er. Og á meðan hún hefur enn gaman að sér hún ekki ástæðu til að láta efnahagsmál, hermdarverkamenn né elh hindra sig neitt. Mótmæli Öh getum við þurft að bera fram mótmæli við ein- hverju, einhvem tíma á ævinni. Þá er eins gott að gera það á þann veg að eftir verði tekið. Sehak Noonim, thailenskur verkamaður í tóbaks- iðnaði, hefur sínar eigin aöferðir við mótmæli. í hvert sinn, sem stéttarfélag hans grípur th verkfalls- aðgerða, leggur hann áherslu á kröfurnar á sinn eig- in máta. Hann sest á stól á götu úti, með höfuö sitt nýrakað, vefur um sig kyrkislöngu og dreypir á vökva úr barnapela. Hvort Sehak fær einhveiju áorkað með þessari mótmælaaðferð skal ósagt látið. Aðferðin er þó frum- leg og greinilega ekki öpuð eftir öðrum. Sem slík gæti hún orðið okkur hinum til eftirbreytni í því að bijóta okkur út úr viðjum vanans. Þumaljám Tæki og tól flestra starfsstétta hafa farið smækk- andi ár frá ári undanfama áratugi, eftir því sem smásæmi tækni hefur fleygt fram. Þetta hefur verið einna mest áberandi í öllu því sem lýtur að rafeinda- fræðum, en hví skyldi það ekki ná til annarra sviða, þar á meðal útbúnaðar lögreglumanna? Hugvitsmenn í Singapore hafa nú komið auga á að búnaður lögreglumanna þarf ekki endilega að vera klossaður. í framhaldi af þessari hugljómun hófust þeir handa við hönnun smásæs lögreglubún- aðar og afraksturinn er sýndur á meðfylgjandi ljós- mynd. í stað fyrirferðarmikilla handjárna, sem bless- aðir mennirnir hafa þurft að hengja utan á sig, eru nú komin hentug þumaljám sem fara ágætlega í hvaða vasa sem er. Ef til vill eigum viö von á frekari þróun í þessum efnum. í sumum tilvikum þarf ekki að hanna þessa hluti sérstaklega. Til dæmis mætti setja lögreglu- þjóna á barnareiðhjól í stað Harley-Davidson og fá þeim tannstöngla í stað kylfunnar. Það væri mikill sparnaður og myndi stuðla verulega að „mýkri“ lög- gæslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.