Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1988, Síða 17
FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1988.
33
íu hjá Golfklúbbnum Keili. Frá vinstri: Anna Sigurbergsdóttir, GK, Þórdís
C, Alda Sigurðardóttir, GK og Ágústa Guðmundsdóttir, GR.
mót hjá Gotfklúbbnum Keili:
It hjá tveimur
m Sigfússon, GK, fór holu í höggi
vann einnig í keppni án forgjafar og
lék á 66 höggum. Agústa Guðmunds-
dóttir, GR, varð önnur á 66 höggum
og Anna J. Sigurbergsdóttir, GK,
þriðja á 68 höggum.
• Keppt var um Ó.G.-bikarinn í
öldungafiokki á opnu móti hjá Keili
á þjóöhátíðardaginn. Karl Hólm, GK,
sigraði án forgjafar á 74 höggum,
Gísh Sigurðsson, GK, varð annar á
81 höggi og Henning Bjarnason, GK,
þriðji á 81 höggi. í keppni með forgjöf
sigraöi Karl einnig, lék á 67 höggum,
Henning Bjamason varð annar á 69
höggum og þriöji Sverrir Einarsson,
NK, á 70 höggum.
• Sigurbjöm Sigfússon, GK, vann
það frábæra afrek á dögunum að fara
holu í höggi á 11. braut vallarins á
Hvaleyrarholti. Sigurbjörn vann af-
rekið á innanfélagsmóti Keilis.
-SK
»igur Þróttara
ÍR-inga, 3-2, á Valbjamaivelli
Þróttur jafnaði á 16. mínútu en þá
skoraði Sigurður Hallvarðsson sem
var margsinnis ágengur við mark
ÍR-inga. Hann kom Þrótti síðan yfir
undir lok fyrri hálfleiks, rak þá tána
í knöttinn eftir aukaspyrnu og afleit
mistök markvarðar Breiðhyltinga.
Sigurður var nærri því að skora
skömmu síðar en fast skot hans
hrökk þá af stönginni og langt út á
völlinn.
ÍR-ingar vora öflugri í seinni hálf-
leiknum og fengu þá nokkur færi
sem nýttust illa. Guðmundur Erl-
ingsson varði enda mark Þróttar með
mnars félagsins
Niðurröðun eins og þessi er tii þess
eins fallin að bjóða hættunni heim.
Nú em menn almennt sammála um
að Fram hafi unnið mjög verðskuld-
aðan sigur á KA og það hver eftirlits-
dómarinn var hafi engin áhrif haft
þar á. En ef „krítísk" atvik koma upp
er ófært að eftirlitsdómari, sem um
leið gefur skýrslu um framkvæmd
leiksins að öðru leyti, sé úr röðum
annars félagsins sem í hlut á. Væri
fróðlegt að fá á því skýringar hvað
ræður slíkri niðurröðun.
prýði og bjargaði hann í tvígang úr
opnum færum.
Þriðja mark Þróttar kom gegn
gangi leiksins á 85. minútu en þá
skoraði Björgvin Björgvinsson beint
úr aukaspymu. Hallur Eiríksson
minnkaði síðan muninn, 3-2, á 91.
mínútu eftir darraðardans í vítateig
Þróttar. Litlu munaði að ÍR næði aö
jafna en Guðmundur Erlingsson
bjargaði með góðu úthiaupi á síðustu
sekúndum leiksins.
Maður leiksins: Sigurður Hall-
varðsson.
-JÖG
■ t 2. C leild
FH 5 5 0 0 12-2 m
Fylkir S 3 ||| 0 12-8 u
Vlðir 5 2 lll 2 10-6 !l;
KS .......4 2 lil i ío-a 7
ÍR 6 2 ILI 3 10-13 m
ÍBV .5 2 0 3 10-12 6
TindastóU, 5 2 0 3 10-14 6
Þróttur.R. 6 1 1 4 10-14 ||
UBK 5 1 1 3 9-13 4
Selfoss 4 0 3 17-« 3
Markahæstir:
Guðmundur Magnússon, Self.....5
Pálmi Jónsson, FH.............5
Sigurður Hallvarðsson, Þrótti.5
FrestaÖ í Kópavogí
Leik UBK og ÍBV, sem fram átti
að fara í Kópavogi í gærkvöldi, var
frestaö vegna veöurs. Ekki var
hægt að fliúga frá Eyjum.
li eftir-
nara í
olagi
~íþróttii
Úrslitaleikur Evrópukeppninnar í knattspymu:
Hugsa mest um Rijkaard
- jákvætt hvað við lékum fyrri leikinn illa, segir Oleg Protasov
„Sigur okkar á Hollendingum í
riðlakeppninni mun enga þýðingu
hafa í sjálfum úrshtaleiknum á
laugardag," sagði sovéski lands-
liðsmaðurinn Oleg Protasov í gær.
Hann sat þá blaðamannafund með
félögum sínum í sovéska höinu og
svaraði spumingum sem fulltrúar
heimspressunnar bám fram.
„Eitt í þeim leik kann þó að hafa
jákvæða merkingu hvað okkur
varðar, við lékum virkilega illa
þetta kvöld og Hollendingar hafa
því ekki fulla vitneskju um styrk-
leika okkar núna,“ sagði Protasov.
Protasov kvaðst virða leikmenn
hollenska liðsins og vera vel kunn-
ugt um styrkleika þeirra ohvaö
tækni og skipulag varðar.
„Síðustu mótheijar okkar, ítalir,
em ekki eins sterkir og Hollending-
ar. Þeir veröa hins vegar til alls
vísir árið 1990 en þá verða þeir gest-
gjafar heimsmeistaramótsins. Það
er mín skoðun að bæði Hollending-
ar og ítalir verði þar í undanúrslit-
um.
Á fundinum kvaðst Protasov
hlakka mikið til að ghma við Hol-
lendinga í úrslitumun. Hann sagð-
ist þó sífellt hugsa um með hvaða
hætti hann geti leikið betur gegn
Frank Rijkaard, en sá leikmaður
var settur honum til höfuðs í fyrri
viöureign þjóðanna.
Aðspurður um framtíðina sagðist
Protasov hafa hug á að leika í Evr-
ópu er hann yrði 28 ára gamall:
„Ég neita því ekki að mig langar
til að leika á Ítalíu, þá ef til vill
með félögum eins og Napoli, AC
Mílanó eða Juventus," vom síð-
ustu orð Protasov á fundinum.
JÖG
Betra hér en í Mexíkó
- segir Igor Belanov sem er orðinn heill fyrir úrslítaleikinn
Igor Belanov, knattspymumaður
Evrópu áriö 1986, er orðinn heill
og reiðubúinn til að mæta Hollend-
ingum í úrslitum Evrópumótsins.
Hann meiddist í riðlakeppninni í
Vestur-Þýskalandi og missti af sig-
urleiknum gegn Ítalíu í undanúr-
slitum keppninnar sl. miðvikudag.
Þaö virtist þó ekki koma niður á
sóknarleik Sovétmanna sem ætti
að verða enn beittari á morgun með
hann innanborðs.
í spjalli við tíðindamann Reuters
sagðist hann ánægður með heilsu
sína og jafnframt þá knattspymu
sem hefði verið leikin í keppninni.
Kvað hann boltann betri nú en á
HM í Mexíkó:
„Það hefur verið mun meiri bar-
átta í leikjunum hér í Þýskalandi,
þeir hafa verið áhugaverðari fyrir
þær sakir og einnig vegna hins að
liöin hafa meiri breidd en í Mexíkó.
• Igor Belanov er tvimælalaust i
hópi bestu knattspyrnumanna heims
um þessar mundir.
Hér em miklu fleiri snillingar en
þar. í Mexíkó var aðeins einn Diego
Maradona en hér lítum við fjöl-
marga í hverju liði,“ sagði Belanov.
Aðspurður um dómara kvað sov-
éski framherjinn það ekki vana
sinn að ræða framgöngu þeirra
opinberlega. Hann vildi þó ræða
um þau fjölmörgu spjöld er fóru á
loft í leik ítala og Sovétmanna í
undanúrslitunum:
„Ef allir dómarar keppninnar
hefðu beitt sömu aðferöum og dóm-
arinn geröi í leik okkar gegn Itölum
er ég hræddur um að þeir hefðu
fljótt orðið uppiskroppa meö gulu
spjöldin,“ sagði Belanov. Var hann
óhress með að missa,vamaijaxlinn
Kúznetsov úr hðinu fyrir hhin erf-
iða og mikilvæga úrslitaleik. Kúz-
netsov fékk einmitt gult spjald í
áðurnefndri viðureign og leikbann
í kjölfarið. -JÖG
Anægður að fa Sovétmenn
- ítalir myndu ekki fyrirgefa mér, segir Marco Van Basten
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Marco Van Basten, markakóng-
ur hollenska landsliðsins og Evr-
ópukeppni landsliða til þessa, er
ipjög ánægður með að það eru Sov-
étmenn en ekki ítalir sem Hollend-
ingar mæta í úrslitaleik keppninn-
ar á morgun.
„Ég er dauðfeginn því að fá Sovét-
mennina. Ég átti erfitt tímabil í ít-
ölsku knattspyrnunni sl. vetur og
ætla mér stóra hluti með AC
Milano á næsta keppnistímabili.
Ég er ansi hræddur um að ítalska
þjóðin myndi ekki fyrirgefa mér ef
við hefðum mætt ítölum í úrslita-
leik og ég hefði skorað sigurmark-
ið. Þá þyrfti ég ekki að hugsa um
að koma aftur til Ítalíu!" sagði Van
Basten í blaðaviötali í gær.
Sævar löglegur
- fyvsti leikur Atia á Hlíðarenda
Sævar Jónsson, landshðsmiðvörð-
ur í knattspyrnu, mun leika sinn
fyrsta leik með Val á þessu keppnis-
tímabih á mánudagskvöld er Valur
mætir Keflavík í 1. deild íslands-
mótsins í knattspymu. Leikur Vals
og ÍBK verður lokaleikur 7. umferð-
ar.
Sævar hefur sem kunnugt er leikið
í Sviss en er nú kominn heim að
nýju og hann mun örugglega styrkja
Kristmn Hreinsson, DV, Akureyri:
KA vann öruggan sigur á BÍ, 5-1,
á KA-vellinum í 1. deild kvenna í
knattspymu í gærkvöldi. Hjördís
Úlfarsdóttir skoraði 2 mörk í fyrri
hálfleik og Eydís Marinósdóttir kom
hð Vals mikið. Þá verður leikur Vals
og ÍBK sögulegur fyrir þær sakir að
Ath Eðvaldsson, sem lék sinn fyrsta
leik.með Val gegn Víkingi í Fossvog-
inum í vikunni, mun leika sinn fyrsta
heimaleik með Val í átta ár. Það
verður jafnframt fyrsti leikur hans á
Hlíðarendavellinum því Valsmenn
voru ekki farnir að leika heimaleiki
sína þar þegar hann hélt utan.
-SK
KA í 3-0. Sigurlín Pétursdóttir
minnkaði muninn fyrir ísafjarðar-
stúlkurnar en það dugði skammt því
Linda Hersteinsdóttir og íris Thor-
valdsdóttir bættu við mörkum fyrir
KA.
Hughestil
Man. Utd
- gerði 5 ára samning
Velski landsliðsmaðurinn
Mark Hughes, sem leikið hefur
knattspyrnu á Spáni og í Vestur-
Þýskalandi undanfarin tvö ár,
hefur veriö seldur frá Barcelona
til enska stóriiðsins Manchester
United fyrir eina og hálfa milljón
punda.
Mestan hluta keppnistímabils-
ins í fyrra lék Hughes með Bay-
em Munchen og stóð sig mjög
veL Hughes skrifaði undir fimm
ára samning við Manchester Un-
ited í gær og sagði að þvi loknu
að hann væri mjög ánægöur með
að vera aftur kominn til United
og að hann hlakkaði heil ósköp
til að leika viö Skotaim Brian
McClair í fremstu víglínu þjá
United á næsta keppnistímabili.
Öruggur sigur KA
- sigraði BÍ, 5-1, í 1. deild kvenna