Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988. Fréttir Gagnabanki getur bylt ferskfisksölu erlendis Breskur gagnabanki, sem geymir upplýsingar um sölu á öllum helstu fiskmörkuðum í Evrópu, getur gjör- breytt möguleikiun íslendinga til að selja ferskan fisk erlendis. íslenskur ferskfiskur fer núna svo til eingöngu á 4-5 markaði í Englandi og Þýska- landi og einhæfnin hefur oft valdið verðhruni. Meö þvi að fylgjast betur með verðsveiflum og dreifa útflutn- ingnum á fleiri markaði gætu íslend- ingar fengið mun hærra verð fyrir ferskfiskinn og ekki þyrfti að grípa til útflutningstakmarkana eins og nú er gert. Gagnabankinn, Fishnet, gerir fisk- sölum kleift að fylgjast með upp- boðsverði á yfir tuttugu fiskmörkuð- um í Evrópu og nokkrum mörkuðum annars staðar í heiminum. Aðeins eru sjö íslenskir aðilar tengdir kerf- inu að sögn Karls Pálssonar hjá Gagnaveri sem er umboðsaðili fyrir Fishnet. Lítið flölskyldufyrirtæki i Kópa- vogi, Skanfisk, hefur með hjálp gagnabankans leitaö nýrra markaða fyrir íslenskan ferskfisk í Evrópu og lofar byijunin góðu að sögn eigenda. íslenskur ferskfiskur er aðallega sendur til Hull og Grimsby í Eng- landi og til Bremerhaven og Cux- haven í Þýskalandi. Það kemur oft fyrir að á mörkuðum á þessum stöð- um er offramboð á íslenskum fiski og þá verður verðfall með tilheyrandi tapi fyrir útgerðina. Samtímis getur fengist hærra verð á fiskmörkuðum annars staðar í Evrópu vegna skorts á fiski. í síðustu viku fékkst til dæm- is töluvert hærra verð fyrir ýsu og að markaðnun og dreifa útflutningn- um þannig að ekki verði offramboð á einstökum mörkuöum. Útflutn- ingskvótinn leiöir aðeins til þess að við töpum viðskiptum. Marteinn, faðir hans, Hendrik Tausen, og Bjöm Á. Jónsson stofn- uðu fyrirtækið Skanfisk 1. apríl síð- astliðinn og hafa flutt 300-400 tonn af fiski á markað í Danmörku og Frakklandi. Gagnanetið Fishnet ger- ir fyrirtækinu mögulegt að fylgjast með uppboðsveröi og verðsveiflum á ferskfiski og ekki síður hvað mikið berst á einstaka markaði. Þannig getur Skanfisk einbeitt sér að fisk- mörkuðum sem gefa hæst verð hveiju sinni. Hendrik og Bjöm eru nýkomnir úr tíu daga vettvangsferð á helstu ferskfiskmarkaði í Evrópu og segir Hendrik aö skortur sé á ferskfiski á mörkuðum á meðan nóg framboð sé af frystum fiski. - Samgöngur eru orðnar það góðar að neytendur á meginlandi Evrópu geta gert þá kröfu að fá keyptan ferskan fisk í matinn. Við veröum að muna að frysting er fyrst og fremst geymsluaðferð á fiski og þessi geymsluaðferð er að verða úrelt. Við hittum fiskkaupmann í París sem var meö fulla geymslu af frystum karfa sem hann gat ekki losnað við. Hann bauð okkur aftur á móti topp- verð fyrir ferskan karfa, segir Hend- rik. Þeir þremenningar sögðu að enn væri lítil reynsla komin á starfsem- ina en voru bjartsýnir á að fyrirtæk- iö myndi dafna. pv - hægt að komast hjá verðfalli á fiskmörkuðum Vinna nýja markaði fyrir íslenskan ferskfisk. Frá vinstri: Marteinn Hendriksson, Björn A. Jónsson og HendrikTausen. þorsk á mörkuðunum í Aberdeen á Skotlandi og Peterhead á Norður- Englandi en á mörkuðunum í Hull og Grimsby þar sem þijú íslensk skip seldu afla sinn. - íslendingar eru of íhaldssamir í fiskútflutningi og skortir oft upplýs- ingar sem gætu leitt til meiri skyn- semi í fisksölu, segir Marteinn Hend- riksson, einn þriggja eigenda Skan- fisks. Hann bætir því viö að lítið vit sé í þeirri stefnu stjórnvalda að tak- marka ferskfiskútflutning eins og nú sé gert. - Við eigum heldur að laga okkur Ferskfiskkvótinn er að springa - stjómvöld undir þiýstingi Þrýstingur er kominn á stjóm- sflóm á þessum málum. Enn er lít- framboði á fiski á næstunni þar Vilhjálmur Vilhjálmsson hjá LÍÚ ur yrði leyfður en sagði að fregnir völd að hækka útflutningskvótann fl reynsla komin á útflutningstak- sem ekki megi flyfla út nema tak- sagöist ekki taka 600 tonna kvótann þess efnis að 1000-1200 tonn af á ferskum þorski og ýsu. Stefiit er markanir en í dag verður í annað markaö magn. Einnig er bent á að mjög hátíölegan. - Það á fyrst og þorski og ýsu heföu verið flutt út í að því aö halda útflutningi á þess- sinn úthlutað leyfum til sölu á fiskvinnslan sé núna að stórum fremst að taka tillit tfl ástands þessari viku ættu ekki við nein rök um tegundum innan viö 600 tonn ferskum þorski og ýsu erlendis. hluta mönnuð óvönu sumarafleys- markaða erlendis og fáist gott verð aö styðjast. vikulega á næstu tíu vikum. Stefan Verðiö á fiskmörkuðum hérlend- ingafólki og skili því ekki fullum fyrir ýsu og þorsk er sjálfsagt aö Gunnlaugsson hjá utanríkisráðu- is hefiir lækkað í þessari viku og afköstum. Ennfremur að verslun- veita útflutningsleyfi fyrir meiru. neytinu sagöi að þrátt fyrir byrj- tefla sumir það stafa af því að fisk- armannahelgin sé í nánd og þá liggj Stefán Gunnlaugsson vildi ekkert unaröröugleika heföu sflómvöld kaupendur geri ráð fyrir auknu vinna niðri í flestum húsum. segja um hvort aukinn útflutning- Hjólabraut krakka í Fellahverfi rifin Hreinsunardeild borgarinnar reif í nótt hjólabraut sem krakkar efst í Fellahverfi höfðu byggt með aðstoð fúllorðinna. Krakkamir hafa lengi óskað eftir leiksvæði og þá verið bent á nærliggj- andi svæði. Vom þau alltaf hrakin þaðan og því orðin leið á ástandinu. Var þá reist hjólabraut en hún rifin af hreinsunardefld borgarinnar. Var brautin byggð enn á ný og ætlaði hreinsunardeildin að rífa hana í gær- dag. Veittu krakkamir harða mót- spymu og var ekkert aðhafst þó lög- regla mætti á staðinn. Hreinsunardeildarmenn komu svo í skjóli nætur og fengu sínu fram- gengt. -hlh Foreldrar eru óánægðir með aðgerðir hreinsunardeildarinnar gegn frumkvæði krakkanna f eigin málum en Kvartanir þeirra, er næst brautinni búa vegna ónæðis fram eftir kvöldi, virðast hafa haft úrslitaáhrif. DV-mynd S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.