Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Blaðsíða 32
62 • 25 • 25 FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- þá í slma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstiórn - Auglýsíngar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 15. JÚLl 1988. Sátu teppt á Öræfajökli Ungur piltur og stúlka af Reykja- m víkursvæöinu, sem unniö hafa í tengslum við flugferðir upp á Öræfa- jökul, tepptust þar uppi í vikunni. Hafa þau hafst við í hjólhýsi við ræt- ur Hvannadalshnjúks til skiptis við þau er reka þessa þjónustu. Vegna bilunar flugvélarinnar, sem flytur fólk upp á jökul, voru þau sam- bandslaus í á annan sólarhring. Þar sem þau eru kunnug þama ákváðu þau að leggja af stað fótgangandi nið- ur af jökhnum og náðu til byggða í fyrradag. Faðir stúlkunnar haföi miklar áhyggjur og kom austur og fóru pilt- urinn og stúlkaa ásamt fóðurnum til Reykjavíkur. Ekki er vitað hvort máhð mun hafa einhvem eftirleik en lögregla mun hafa haft afskipti af þvi. -hlh Lögregla hindruð í staifi Til átaka kom milh lögreglu og fóð- ur og sonar við Shehstöðina á Vest- urlandsvegi í gær. Reyndi faðirinn *að hindra lögreglu í starfi, einnig starfsfólk bensínstöðvarinnar sem kom í veg fyrir að kahað yrði á frek- ari lögregluaðstoð í gegnum síma. Máhð hófst á því að lögreglan sá 16 ára dreng keyra réttindalausan á mótorhjóh rétt ofan við Höfðabakka. Náðist í strák við Shehstöðina en hann hefur ítrekað verið tekinn á hjóhnu eftir eltingarleik um holt og hæðir. Var hringt í fóður drengsins sem kom á staðinn. Vildi lögreglan taka hjóhö og kom þá til átaka þar sem faðirinn hafði sig aðallega í frammi. Voru feögarnir færðir til yfir- heyrslu og mótorhjóhð tekið. Var þeim síðan sleppt og er máhð í rann- sókn. ' Mun framkoma starfsfólks á Sheh- stöðinni, þar sem drengurinn hefur unnið, hafa frekari rannsók í fbr með sér þar sem fólki ber að aðstoða lög- reglu ef hún óskar þess. -hlh LOKt Tími gömlu landpóstanna virðist genginn í garð á Vestfjörðum. Þorsteinn Pálsson forsætisráðhena: Þolinmæði mín á þrotum vegna upp hlaupa ráðherra - eram samt skyldugir til að gera úrslitatilraun „Satt aö segja er þolinmæði min á þrotum hvað varðar þessi upp- hlaup einstaka ráðherra," sagði Þorsteinn Pálsson forsætisráö- herra í samtah við DV í gær. „En mér finnst sjálfsagt að viö gerum úrslitatilraun í þessu ríkis- stjórnarsamstarfi, við erum skyld- ugir til þess. Ég vona sannarlega aö það takist að ná sáttum og aö samstaða innan þessarar stjómar náist Annars er ekki til neins aö standa í þessu samstarfi. Aö minnsta kosti hef ég ekki áhuga á því.“ Þorsteinn segir mikið í húfi fyrir þjóöina að takist að koma á sam- stöðu innan ríkisstjómarinnar. En er vandi ríkisstjórnarinnar þá fyrst og fremst af póhtískum toga, ekki efnahagslegur? Sagði hann ríkisstjómina vissu- lega eiga við mikinn efnahagslegan vanda að glíma sem þyrfti að fást við og væri skylda hennar að halda áfram að reyna að draga ur þenslu í þjóöarbúskapnum. En hann við- urkenndi þó að þetta fyrsta ár rík- isstjórnarinnar hefði verið róstu* samt og innbyrðis deilur alltof margar. Kvaöst hann í fyrstu hafa reynt að leiða hjá sér innbyrðis átök og leiöindi innan stjómarinnar í þeim tilgangi að með því væri unnt aö ná sarastöðu sem væii skilyrði þess að unnt væri að fást við alvarlegu málin. En þegar ekkert linnti yfir- lýsingum einstakra ráðherra þá gafst hann upp og fannst hann verða aö taka í með þeim hætti sem birst hefur í fjölmiölum að undan- fórnu. Eins og komiö hefur fram í fjölmiölum hefur Þorsteinn þótt hvassyrtari í garð samstarfsráð- herra sinna en nokkru sinni áður. „Ég bara varð að bregðast svona við. Aö reyna aö leiöa þessar uppá- komur hjá sér bar ekki árangur og svo kom að því að þolinmæðin brast.“ Meira um ríkisstjómina á ársaf- mæh í helgarblaöinu á raorgun en þá verður viötal viö Þorstein Páls- son um stöðuna í dag, ríkisstjórn- aráriö og framtíðarhorfur stjórnar- innar. -RóG. Hljómsveitin Status Quo er kominn til landsins og með henni 5 tonn af búnaði sem sagt er met. Hljómsveitarmenn þykja geysilega líflegir á sviði en héðan halda þeir til tónleikahalds í Moskvu. DV-mynd KAE Veðrið á morgun: Rigning á Austfjörðum Austan- og suðaustanátt verður um mestaht land á morgim, víö- ast kaldi eða stinningskaldi. Rigning eöa súld verður á Aust- fjöröum og á annesjum fyrir norðan en skúrir í öðrum lands- hlutum. Hiti verður 10 tíl 15 stig. ^ Bensínleysi: ísfirðingar komast ekki í sumarfrí Síðan á þriðjudag hefur ekki verið unnt að kaupa súperbensín á ísafirði. Reyndar er það hka búið á Bolungar- vík, Flateyri, Þingeyri og í Súðavík. Þetta hefur komið sér mjög illa fyrir íbúa staðanna því varasamt er að nota blýlaust bensín á margar gerðir bíla enda kaupir nú helmingur bif- reiðastjóra súperbensín. A einu bensínstöð bæjarins er nú búið að breiða yfir tvær dælur af þrem. „ísfirðingar hafa orðið að ganga mikið að undanfórnu og þá veit ég aö margir hafa ekki komist burtu í sumarfrí,“ sagði einn ísfirðingur sem við var rætt. Þá. finnst ísfirðingum olíufélögin ekki hafa verið nógu fljót að bregðast við en hægt hefði verið að ná í bensín á sunnanverðum Vest- íjörðum. Hjá Ohufélaginu hf. fengust þær upplýsingar aö olíuskipið Kyndih væri nú á leið vestur og yrði skipið líklega komið þangað í kvöld. Skýr- ingin á því að súperbensínið hefði klárast væri einfaldlega sú að hin mikla ásókn i bensínið hefði slegið menn út af laginu. Því þyrfti að fara að breyta birgðasamsetningu um land allt. -SMJ Þýfi finnst í yfiigefnu húsi Örbylgjuofnar, talstöðvar, út- varpstæki og fleira var meðal þess þýfis er lögregla fann í yfirgefnu húsi á Vesturgötu í gær. Varð vart við mannaferðir í húsinu og við at- hugun fann lögreglan tvo unga menn á efri hæðinni sem sögðust eiga heima þar. Húsiö er óíbúðarhæft og hefur staðið til að rífa það. -hlh Status Quo á íslandi: Getum spilað í möig ár „Það er alltaf gaman að koma til nýrra staða í heiminum og það htla sem við höfum séð af landinu er mjög áhugavert, þetta er öðruvísi. Þaö sem við vitum um ísland er að það var tólf stiga hiti í gær, Hard Rock Café- staður, síðasti staður áður en farið er norður fyrir heimskautsbaug." - Hvers geta áhorfendur vænst af ykkur á tónleikunum? „Þeir geta vænst fjári góörar sýn- ingar, en meira færðu ekki að vita,“ sögðu hljómsveitarmenn Status Quo við komuna til landsins í nótt. Hljómsveitin er í tónleikaferðalagi um Evrópu, sem hófst í maí, og mun leika í Reiöhölhnni í kvöld og annað kvöld. „Tónleikarnir hefjast klukkan átta og standa til klukkan eitt en boöið veröur upp á strætisvagnaferðir frá Hlemmi og til baka. Við þurfum 2.500 manns til að þetta beri sig og ef svo verður þá munum við ef til vill fljót- lega ráðast í annað svona fyrirtæki,“ sagði Gylfi Geirsson, forstöðumaður Reiöhallarinnar. Miðaverð á tónleikana er 1.650 krónur en hölhnn rúmar 5.500 manns. - Status Quo hefur starfað í aldar- íjórðung, finna menn þar aldrei fyrir efnisskorti? „Nei við eigum enn mikið af ónot- uðu efni svo þaö hefur aldrei veriö vandamálið. Við getum spilað í mörg ár í viðbót," sagði Francis Rossi, söngvari. JFJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.