Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988. 15 Hvað er „grínmarkaður“ með lax í Bandaríkjunum? Markaðsmálin eru flestum þjóð- um mjög mikilsverð, ekki síst þeirri íslensku sem byggir nánast alla sína afkomu á viðskiptum við aðrar þjóðir. Frá þeim sjónarhóli séð er það undrunarefni hversu rughngsleg og óskýr skrif um þessi mál eru. Hér er þó um að ræða málaflokk sem beint eða óbeint getur páöiö þjóðarhag. Samt hafa ekki nema einstöku fjölmiðlar reynt að sérhæfa einhvern blaða- manna sinna á þessu sviði og hafi það verið gert hefur það þótt meira en nóg aö hafa einn slíkan „sér- fræðing" á hverri ritstjórn þó markaðsmálin spanni vitt svið. Margir íslendingar hafa farið flatt á því að gleyma að athuga markaðsmálin áður en lagt er í framkvæmdir og framleiðslu. í al- vörulöndum er markaðurinn fyrst rannskaður ofan í kjölinn og fram- leiðslan sniðin að þörfum hans. Hvað er „grínmarkaður“? Tilefni greinar minnar er „fisk- markaðagrein“ Ingólfs Stefánsson- ar í DV 23. júní undir fimm dálka fyrirsögn: „Stórkaup Japana á Kyrrahafslaxi vaida skorti á laxi í New York“. Ekki verður annað ráöið af þeim kafla greinarinnar, sem fjaliar um New York, en að hann sé byggður á ummælum Norðmanna og þó helst á ummælum „fréttaritara Fiskaren". Þar er t.d. varpað fram þeirri spurningu hvort Fulton markaöurinn í New York sé „grín- markaður" og sú skýring fylgir að: „eftirspum eftir laxi hefur verið lítil að undanförnu en nú bregður svo við að htið framboð er á laxi og telja menn að nú sannist að Fuiton sé grínmarkaður. Innflutn- ingur á norskum laxi hefur verið KjaLariim Atli Steinarsson blaðamaður mjög lítill að undanförnu og fram- boð annars staðar frá er einnig mjög lítið.“ Hversu oft sem ég les þessi orð skil ég ekki af þeim hvers vegna eða yfirleitt hvort Fulton sé „grín- markaður". Eftir hálfs árs veru 1 Bandaríkj- unum hefi ég komist á þá skoðun að engir markaöir þar í landi, og allra síst þeir sem byggja á sölu til neytenda, séu „grínmarkaðir". Á þeim ræðst allt verð af framboði og eftirspurn, magni og ýmsum ytri aðstæðum, t.d. hita og þurrki ef um viðkvæma vöra er aö ræða. En það er skiljanlegt aö orðið „grínmarkaöur" sé ofarlega í huga Islendinga sem búa við sama mark- aðsskipulag og austantjaldslöndin, þar sem allt verð á neytendamörk- uðum er ákveðið af stjórnvöldum eða ráðum og nefndum sem stjórn- völd hafa viðurkennt. Laxinn rennur hér út á lágu verði Ingólfur birtir í áðurnefndri grein sinni verðsýnishorn á laxi í Bandaríkjunum. Þeim fylgir engin dagsetning og liggur í orðanna hljóðan að þetta sé verðið fyrir ein- hvern ákveðinn tíma, t.d. sumarið eða jafnvel árið. Svona einfalt er þetta nú ekki hér vestan við Atlantshafið. Verö á laxi eins og flestu öðru er verð sem gild- ir þann daginn og ekki er á það að treysta að það haldist lengi óbreytt. 30. júní - viku eftir að grein Ing- ólfs birtist - er í gangi gífurleg aug- lýsingaherferð frá King Soopers, stærstu stórmarkaöakeðjunni á Klettaíjallasvæöinu, um nýjan lax frá Alaska sem hingaö er fluttur spriklandi nýr, flugleiðis, á hverj- um degi. Verðið í neytendaumbúðum, þ.e. tvö, þrjú eða fjögur stykki á plast- bakka í sellófanumbúðum, er 2,99 dollarar pundið eða 297,50 krónur hvert kíló miðað viö sölugengi 45,07 sem var skráð gengi dollarans dag- inn sem greinin birtist. í auglýsing- unum var tekið fram aö þetta væri í raun hálfvirði á laxi en það er þó enn í fuhu gildi þegar þessi grein er póstlögð, 5. júlí. Kaupendur geta valið sér miðju- stykki, framstykki eða sporðstykki að eigin vild. Stærðarmunur var á stykkjunum svo að sá sem til þekkti gat valið sér stykki úr laxi í ýmsum þyngdarflokkum. (Mis- munandi þyngdarflokka kallar Ingólfur mismunandi „tegundir" af laxi!). Viö hjónin féllum fyrir 'auglýs- ingunum um ódýra, nýja laxinn frá Alaska. Vel valin stykki fóru í pott- inn sama dag. Ilmurinn lofaði strax góðu og bragðiö reyndist eftir því. Laxinn var stinnur og gaf þeim ís- lenska að engu leyti eftir, hvort sem var á diskinum, gafflinum eða í munni manns. Þetta var konung- leg máltíð. Ég er þess fuhviss að þessi „útsala" á laxi á eftir að auka hér sölu á laxi í framtíðinni því að menn gleyma ekki þessu ljúffenga bragði alveg á næstunni. Fyrr á þessu ári, líklega í mars, keyptum við falleg stykki úr 5-6 kg eldislaxi frá Chile. Þau voru afar bragðgóð, ný og stinn, en þau voru meira en helmingi dýrari, kostuðu tæpa 7 dollara pundið eða um 600 kr. kílóið á þágildandi dollara- verði. íslenskt verð og salan sára- lítil. Verðsýnishornin, sem birt voru í grein Ingólfs, voru frá 392 krónum upp í 560 kr. khóið, sem jafngildir 8,7 til 12,4 dollurum, eða í samræmi viö verð til neytenda á laxinum frá Chile. En núna er raunverð á úr- valslaxi hér í miðjum Bandaríkjun- um meira en helmingi lægra og fráleitt er að ætla að verulega mik- ið dýrara sé að flytja laxinn flug- leiðis til New York-svæðisins held- ur en til Denver þegar hann er kominn í flugvél á annað borð. Kjarni málsins er því enn og aftur sá að greinar um bandarískan neytendamarkað, eins og birtist í DV 23. júní, eru afar villandi og nauðsynlegt að þar sé betur vandað til vals á upplýsingum. Af hveiju skyldu íslenskir blaðalesendur láta sér nægja upplýsingar úr gömlum norksum blöðum? Betri umfjöllun um markaös- málin nauðsynleg Aðrir kaflar í grein Ingólfs vekja einnig spurningar. Af hverju er aðeins fjallað um það fiskverð í Englandi, Þýskalandi, Frakklandi og víðar sem fæst á fiskmörkuðum sem aðeins kaupa óunna vöru eða hráefni? Af hverju leitast ekki íslenskir fjölmiðlar við aö fræða lesendur sína um það hve mikið verðið á íslenskum fiski hækkar í einstök- um löndum við vinnslu þar? Sagt er að íslenskir sjómenn (og þá væntanlega einnig útgerðar- menn) fái hærra verð í sinn hlut fyrir að.selja hráefnið óunniö út og það ráði breyttri stefnu. En hvaða upphæðum tapar þjóðar- búið? Þessar hhöar fisksölumálanna væri fróölegt að sjá ræddar á við- skiptasíðum íslenskra blaða því að auðvitað eru það þessar hhðar markaðsmálanna sem skipta okk- ur mestu í nútíð og framtíö. Atli Steinarsson „Margir íslendingar hafa fariö flatt á því að gleyma að athuga markaðsmálin áður en lagt er í framkvæmdir og fram- leiðslu.“ Peningamálin eru stjómlaus Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra er skv. verkaskiptingu ríkis- stjórnar æðsti maður bankamála hérlendis. í oröum og athöfnum minnir hann hins vegar meira á blaðafulltrúa Jóhannesar Nordals. Svo fmnst mörgum að minnsta kosti. En það ætti að vera á hans valdi öðrum fremur að leysa þjóð- ina úr klafa vaxtaokursins með því að taka úr sambandi aðalógnvald- inn, lánskjaravísitöluna, og bjóða upp á aðstæður, sem sæma sið- menntuöu þjóðfélagi. Við áttum orðaskipti í sjónvarpi sl. vetur, þeg- ar ég hafði lagt fram frumvarp á Alþingi um afnám lánskjaravísi- tölu og gengistryggingu 12 mánaða spariinnlána. Hann var argur mjög, kvað ekki unnt að „hrópa vextina niður“, bíða yrði eftir „markaðslögmálunum", láns- kjaravísitölu mætti ekki afnema, fyrr en „veröbólgunni væri náð niöur“. Þannig hljóða upphrópanir frjálshyggjumanna úr öllum flokk- um. En þeir trúa ekki sjálfir á það, sem þeir eru að boða. Hvaö hefir Jón Sigurðsson gert, síðan ég lagði fram frumvarpið? Nákvæmlega það sama og í frumvarpinu fólst. Hann hefir lækkað vexti með beinni tilskipun, þar með hrópað þá niður. Það var hluti efnahags- málapakkans í vetur. Hann hefir heimilað gengistengingu spariinn- lána. Og hann hefir með bráða- birgðalögunum í maí afnumið láns- kjaravísitölu af skammtíma inn- og útlánum. Þetta var viðleitni, sem því miður dugir skammt. Afnám lánskjaravísitölu Eitthvað stóð þetta nú samt í hálsinum á þeim kumpánum, Jóni og Jóhannesi. Seðlabankinn á skv. seinni bráðabirgðalögum að geta veitt undanþágur frá lagaákvæð- Kjallarinn Eggert Haukdal alþingismaður unum. Þeir skilja nefnilega ekki tíðrædd „markaðslögmál" sín sjálf- ir. Þegar vextir íbúðarlána hækka samkvæmt verðbólguvísitölu, get- ur lágtekjufólk ekki staðið í skilum, nema það fái tilsvarandi kaup- hækkun. Svipað gerist hjá útflutn- ingsfyrirtækjum, sem ráða ekki verðlagi framleiðsluvara sinna á erlendum mörkuöum. Þegar íjár- magnskostnaður þeirra vex skv. verðbólguvísitölunni, eru þau ekki lengur samkeppnisfær. Þau eru rekin meö tapi, nema gengið sé lækkaö. Það leiðir aftur til verð- hækkana á innfluttum vörum, til kaupþrýstings - og svo koll af kolli. Verðbólga næst aldrei niður nema lánskjaravísitala sé afnumin fyrst. Þetta hafa sérfræðingar Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins bent á. Þeir hafa sent Jóhannesi og Jóni aðvörun, lánskjaravísitalan er veröbólgu- myndandi. Seðlabankinn hefir legið á skýrslu sérfræðinganna og þver- skallast enn. Væri nokkuö úr vegi að skýrslan yröi dregin fram í dags- ljósiö og lesin gaumgæfllega nú, þegar vextirnir æða upp meir en nokkru sinni fyrr? Hefðum átt að fara að dæmi Finna Mér þótti leitt að lesa eftir Ólaf Björnsson, fv. prófessor, í Morgun- blaðsgrein, að Finnar hefðu afnum- ið verðtryggingu fjárskuldbindinga eftir að þeir hefðu „náð verðbólg- unni niður“. Þetta er nefnilega ekki rétt. Ég hefi áreiðanlegar heimildir fyrir því, að verðbólgan var á hraðri uppleið, viðskiptahalli ær- inn og atvinnuleysi í vexti, þegar Finnar neyddust til að lækka gengi marksins 1967, eins og við fyrir stuttu. Þeir afnámu um leið alla verðtryggingu. Það hefðum við einnig átt að gera. Það var hins vegar fróðlegt að lesa frásögn Ólafs Björnssonar í nefndri Morgunblaðsgrein, þar sem hann segir frá þingsályktun- artillögu sinni, sem samþykkt var á þinginu 1961-62 um athugun á að koma á verðtryggingu fjárskuld- bindinga. í þessu sambandi segir Ólafur orðrétt: „Innan Sjálfstæðis- flokksins voru mjög skiptar skoð- anir um réttmæti verötryggingar. Formaður flokksins, Ólafur Thors, var einn þeirra, sem var henni andvígur, þar sem hann geröi sér ljóst, að af henni myndi leiða vaxta- hækkun, en hana taldi hann at- vinnuvegina ekki þola.“ Þessa at- hyglisveröu frásögn er vert að hafa í huga í dag. Viðreisnarstjórnin innleiddi ekki „ófreskjuna". sem við búum við í dag. Það var gert með Ólafslögum 1979, og síöan auk- ið upp með ómanneskjulegri fram- kvæmd allar götur síðan. Enginn flokkur, sem stóð fyrir þessu kerfi, hefur hreyft hönd né fót til að breyta og bæta, hvað þá afnema, svo heilagt er þetta. Þaö liggur við, að allir flokkar, þar með þeir sem stóðu ekki að þessu í upphafi, vildu „Lilju kveðið hafa". Og þetta gerist' þrátt fyrir þá aúgljósu ágalla, sem margir sjá, að þetta kerfi er að ganga frá fjölda heimila og fyrir- tækja og það styttist í allsherjar þjóðargjaldþrot, ef svo heldur fram. Þeir fáu, sem andmæla kerfinu, eru taldir hinir verstu óvinir spari- fjáreigenda. Ég vil kerfi, sem verndar hina raunverulegu spariíj- áreigendur, en ekki kerfi sem fyrst og fremst verndar og heldur uppi okri og færir fjármagnið á fáar hendur, elur verðbólguna, sem er skæðasti óvinur sparifjáreigenda og þeirra, sem minna mega sín. En svo ég víki aftur að frásögn Ólafs Björnssonar um Ólaf Thors. Væri „ófreskjan" í dag við lýði, ef Ólafs Thors og Bjarna Benedikts- sonar nyti viö? Myndi Ingólfur Jónsson telja hana lausn alls vanda fyrir landsbyggöina? Ég held ekki. Ög það mætti nefna til fleiri látna forystumenn úr öðrum flokkum. Myndu Jónas Jónsson og Her- mannn Jónasson hafa þetta merki við hún í dag? Eða Jón Baldvins- son, Stefán Jóhann og Emil Jóns- son? Það er erfltt að vera fæddur í Alþýðuhúsinu á ísafirði og heita í höfuðið á Jóni Baldvinssyni og reka þessa stefnu. Reyndar heyrði ég fyrir nokkru útvarpað frá fundi í Múlakafii, þar sem Jón Baldvin, aðspuröur úr sal, dró í efa verð- tryggingu fjárskuldbindinga, úr því að kaup væri ekki verðtryggt. Því mætti vænta frá honum að „Ey- jólfur hresstist". Seðlabankinn ber ábyrgð Við höfum haft Seðlabanka í lið- lega aldaríjórðung, en hins vegar ekki neina stjórn peningaframboðs utan vaxtabreytinga. Við slíkar aðstæður, þegar peningaframboði er ekki stýrt gegnum verðbréfa- markað, er fásinna að hafa vextina frjálsa. Vextir hafa fengið aö leika lausum hala með lánskjaravísi- tölunni og til viöbótar stöðugum beinum vaxtahækkunum af hálfu viðskiptabankanna. Seölabankan- um er gert að hafa stjórn á þessum málum og hlýtur því að bera tals- verða ábyrgð. Honum eru tryggð tök á viðskiptabönkunum, en auö- vitað á Alþingi og ríkisstjórn að ráða ferðinni. Jóhannes Nordal og Jón Sigurðs- son hafa stýrt hrunadansi verð- bólgunnar í áratugi, enda verið aðalráðgjafar allra ríkisstjórna samkvæmt eigin sögn (sbr. nýlegt viðtal Alþýðublaösins við Nordal). Bezta efnahagsaðgerðin, sem við íslendingar gætum gert, væri lík- lega að koma þessum tveim mönn- um á eftirlaun. Eggert Haukdal „Verðbólga næst aldrei niður, nema lánskjaravísitala sé afnumin fyrst. Þetta hafa sérfræðingar Alþjóðagjald- eyrissjóðsins bent á.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.