Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988. 11 Utlönd Stríðið tekur sinn toll Átta ára styrjöld írana og íraka hefur haft töluverð áhrif á efnahags- líf írans. Matarskortur er í landinu og eru matvæli eingöngu afhent gegn matarmiðum. Að sögn fréttaskýrenda lætur lág- launafólk sér nægja brýnustu nauð- synjar í mat, s.s. brauð, grænmeti og hrísgijón. Verðbólgan er um 50 pró- sent á ári og fer meginhluti tekna stjómarinnar í Teheran í stríösrekst- urinn og innflutning á matvælum. Þriðjungur tekna í stríðið Tekjur Irans af olíuframleiðslu eru áætlaðar um 9,6 milljarðar dollara þetta ár. Auk þess hefur stjórnin tekjur, sem nema um einum milljarði dollara, af öðrum útflutningi, s.s. teppum, kavíar og hnetum. Áf þessum rúmlega 10 milljörðum dollara fara milli þrír og fjórir millj- arðar í innflutning á hveiti, kjöti og iðnaðarnauðsynjum, svipað fer í stríðsrekstur og það sem afgangs er fer í endurgreiðslur vegna erlendra viðskipta, sem eru að sögn frétta- skýrenda dulbúin erlend skuld. Khomeini, trúarlegur leiðtogi írana, hefur lagt teiknaranum Lurie efni í skopmynd. Khomeini hefur lagt áherslu á að byggja upp landbúnað landsins og að sögn fréttaskýrenda hefur það gefist vel. Landbúnaður byggðurupp Margir bændur í íran hafa flutt sig um set úr sveitum landsins nær stærri iðnaðarborgum því jstaöa bændastéttarinnar hefur versnað mikið. Skortur á erlendum gjald- miðlum hefur í fór með sér að nauð- synjahlutir, s.s. varahlutir í land- búnaðarvélar, eru illfáanlegir.. íran hefur yfir að ráða rúmlega 17 milijón hekturum ræktanlegs lands og er þriðjungur þess með áveitum. Þessi þriðjungur sér 75 prósentum landsbúa, sem eru um 50 milljónir, fyrir mat. Sérfræðingar telja að ekki sé veru- leg hætta á hungursneyð í landinu þrátt fyrir að margar nauðsynjar séu af skornum skammti. Stjórn írans hefur undanfarið lagt æ meiri áherslu á að efla matvælaframleiðslu og ræktun og uppbýggingu lands. Þegar Ayatollah Khomeini, andlegur leiðtogi írana, tók við völdum árið 1979 var landbúnaöurinn í slæmu ástandi þar eð Mohammed Reza Pa- hlavi keisari, sem flúði land árið 1979, hafði lagt mikla áherslu á upp- byggingu stóriðnaðar. Þvi var aukin áhersla lögð á að brauðfæða lands- búa. Að sögn fréttaskýrenda hefur þaö gefist vel og líða íbúar írans ekki skort á sama hátt og margir í þróun- arlöndunum Miðstéttin óánægð Miðstéttin, og sérstaklega stór- kaupmennirnir í Teheran, er valda- mikill hópur innan íran. Miðstéttin lifði gnægtarlífi áður en íslamska byltingin varð en lífskjör hennar hafa versnað mikið. Skortur á er- lendum gjaldmiðlum hefur einnig gert erlendum kaupsýslumönnum erfitt fyrir og víða þrífst mikil spill- ing hjá hinu opinbera sem ekki bæt- ir úr skák. Að sögn margra erlendra kaupsýslumanna er t.d. erfitt leita eftir lánsviðskiptum við banka án þess að bregða á það ráð að múta starfsmönnum hjá hinu opinbera. Að sögn eins stjómarerindreka verður grunnskipulag efnahagslífs- ins í íran orðið úrelt eftir tvö ár og ekki er víst að stjómin geti risiö und- ir þeim kostnaði sem endurskipu- lagning og aukafjárfestingar hefðu í fór með sér. Reuter Ovinsælar breytingar á sógukennslu í Frakklandi Bjami Hinnksson, DV, Bordeaux: í Frakklandi tala menn mikið um úrelt skólakerfi og þær endurbæt- ur sem gera þurfi svo nemendur fái þá menntun sem nauösynleg er í Evrópu morgundagsins. Er þá haft í huga að nemendur geti staðist samkeppnina sem allir tengja 1992, árinu þegar lönd Evrópubanda- lagsins verða einn markaður. En breytingum yfirvalda er ekki alltaf tekið opnum örmum og er nægjanlegt að benda á mótmæli nemenda sem enduðu með fjölda- fundum og árekstrum við lögregl- una, bæði þegar sósíahstar voru í stjórn 1981 til 1986 og ætluðu sér að draga úr áhrifum einkaskóla og eins hjá hægri stjórninni 1986 til 1988 sem vildi þrengja inntökuskil- yrði í háskóla og hækka skólagjöld. Gömul slagorð í þessum tilvikum var sem gömul slagorð um frelsi, jafnrétti og bræðralag fengju aftur einhverja merkingu og Frakkar sýndu að byltingin, sem bráðum verður tvö hundruð ára, var ekki nein tilvilj- un né að hún skyldi eiga sér stað hér í landi. Endalaus stjórnarskipti og ráð- herrabreytingar auðvelda ekki þróun skólakerfisins. Nýlega birti menntamálaráðuneytið lista yfir námsefni og kennslutilhögun í sögu á menntaskólastigi. Óvinsælar breytingar Breytingarnar, sem þar eru fyrir- hugaðar, eru kennurum ekki að skapi né heldur fyrrverandi and- spyrnuhreyfingarmönnum, göml- um hermönnum og þeim sem kom- ust lífs af úr útrýmingarbúðum nasista. í nýju námsskránni er nefnilega gert ráð fyrir áð seinni heimsstyrjöldin verði ekki kennd á síðasta ári menntaskólans heldur fyrr sem þýðir aö uppgangur nas- ista, leppstjómin franska í Vichy eða andspyrnuhreyfingin verða ekki lengur viðfangsefni í stúdents- prófunum. Að auki telja kennarar að fyrir- hugað námsefni varðandi sögu síð- ustu áratuga sé svo sem aðlaðandi, vel unniö og gott fyrir andann en of metnaðarfullt og sértækt til þess að meöaljóninn meðal nemenda geti nýtt sér kennsluna. Of lítil áhersla sé lögð á atburðasöguna en þeim mun meiri á heimsstjórn- málin og þjóðfélagsaðstæður í breiðari skilningi. Flest endurskoðað Þessar breytingar koma ekki á óvart því síðustu árin hafa ráð- herrar bæði til hægri og vinstri keppst við að leggja fram tillögur um endurbætur og eftir aðgerðir nemenda, sem minnst er á hér að ofan, var svo komið fiestar náms- greinar voru teknar til endurskoð- unar. Talsverðan tíma þarf til að rann- saka mögulegar breytingar og þeim hefur verið komið í framkvæmd hægt og rólega svo að skólakerfið riðlist ekki. Þetta gerir það að verk- um að menntamálaráðuneytið er núna að hrinda í framkvæmd breytingum sem núverandi menntamálaráðherra, sósíalistinn Lionel Jospin, er ekki sammála en getur illmögulega afturkallað. Breytingartillögur Varðandi seinni heimsstyrjöld- ina hefur verið ákveðið að bæta við námsefni útskriftarársins eins konar uppriíjun á þessum hluta sögunnar sem þýðir að hægt er að prófa úr því á stúdentsprófi. Varð- andi aðrar breytingar á námsefn- inu hefur ráðuneytið enn þá eitt ár upp á að hlaupa og innan þess telja menn að síðbúnar breyting- artillögur við ákveðnar breytingar séu ekki útilokaðar. Frakkar hafa ekki alltaf tekið breytingum á skólakerfinu opnum örmum og hafa mótmælin stundum endað með fjöldafundum og árekstrum við lögreglu. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.