Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988. Útlönd Stríð á dönskum síð- degisblaðamarkaði Sumarliði ísleifeson, DV, Árósurn; Undanfama áratugi hefur Ekstra- bladet, sem er gefið út af Politikens hus, verið stærsta blað Danmerkur. BT hefur verið næststærst. Fyrir rúmu ári var fyrrnefnda blaðið gefið út í tæplega 240 þúsund eintökum en hið síðara í 208 þúsund. Síðan þá hefur orðið mikil breyt- ing. Niðurstöður upplagskönnunar, sem var gerö í maí síöastliðnum, leiddu í ljós að salan á Ekstrabladet hafði dregist saman um 13 þúsund eintök en upplag BT var komið upp ,í 235 þúsund. BT var þar með orðið stærsta blað Danmerkur, heiðurs- sess sem Ekstrabladet hafði lengi gumað af. En hvemig stendur á uppgangi BT? Forsvarsmenn blaðsins halda því fram að breytt ritstjórnarstefna sé orsök hans. Blaðið hafi lagt áherslu á að auka sérstöðu sína, útliti blaðs- ins hafi verið breytt mikiö og nýjar efnisáherslur hafi fallið lesendum í geð. Flestir telja þó að orsakirnar séu aðrar, aö minnsta kosti að hluta. Á síðastliðnu ári fór Ekstrabladet í áskrifendaherferð. Hún fólst aöal- lega í því að lesendum var boðið að taka þátt í lottóspili sem fylgdi blað- inu. Þessi nýbreytni gaf góðan árang- ur fyrst í stað en keppinauturinn sat ekki auðum höndum. BT byrjaöi með bingóspil og vinsældir þess urðu brátt mun meiri en lottó Extrablad- ets. Forsvarsmenn þess halda því fram að aukinn áskrifendafjöldi BT sé að- eins stundarfyrirbrigði og sala blað- anna komist brátt í fyrra horf er áhugi á bingói og lottói hefur dvínað en það á tíminn eftir að leiða í ljós. Askrifendur! Léttið blaðberunum störfin og sparið þeim sporin. Notið þjónustu DV og kortafyrirtækjanna. Greiðið áskriftargjaldið með greiðslukorti. Með þessum boðgreiðslum vinnstmargt: t Þærlosaáskrifendur viðónæðivegnainn- heimtu. greiðslumátisem tryggir skilvísar greiðslur þráttfyrir annir eða fjamstir. # Þærléttablaðberan- umstorfinenhann heldurþóóskertum tekjum. e Þæraukaötyggi. Blaðberarerutil dæmisoftmeðtölu- verðarfjárhæðirsem geta glatast. Hafið samband við afgreiðslu DV kl. 9-20 virka daga, laugardaga kl. 9-14 í síma 27022 eða við umboðsmenn okkar ef óskað er nánari upplýsinga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.