Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988.
Fréttir
Olíufélögin fengu
umbeðna hækkun
í dag hækkar blýlaust bensín upp
í 36,60 kr. btrinn eöa um 6,7%. í gær
kostaði þessi sami lítri 34,30 kr. Þetta
er mjög nálægt því verði sem olíufé-
lögin fóru fram á en þau báðu um
7% hækkun á bensíni.
Gasolía hækkar um 3,4% eöa úr
8,90 kr í 9,20 kr. Svartolíutonnið
hækkar um 6,8%. Tonnið fór úr 6.600
kr. í 7.050 kr.
Súperbensín hækkar hins vegar
ekkert og sagði Georg Ólafsson verð-
lagsstjóri að það væri einfaldlega
vegna þess að frjáls verðlagning væri
á súperbensíni og ekkert hámarks-
verð í gangi. Þó veröur að tilkynna
verðlagsráði frá hækkunum á því.
Súperbensín er nú selt á 38 kr. lítr-
inn. Fyrir stuttu, 16. júni, hækkaði
súperbensín síöast. Sala á súper-
bensíni nemur nú 50% af bensínsölu
þannig að jafnmikið selst af því og
blýlausu bensíni. Áður en blýlausa
bensínið kom til nam sala á súper-
bensíni aðeins 20%. Þar eð súper-
bensín hefur ávallt verið dýrara en
annað bensín má segja að þarna hafi
súperbensín hefur náð 50% markaðarins
neytendur orðið fyrir verulegum
hækkunum þótt hljótt hafi farið.
Hækkunin á bensíni nú skiptist
þannig: 0,60 kr. stafa af hækkun á
innkaupsverði, 1 kr. fer í ríkissjóð,
0,24 kr. stafa af hækkun álagningar
og 0,40 kr. fara í sjóð til að jafna verð
á milli farma en staðan í þeim sjóði
er nú þannig að það vantar 10 mUlj-
ónir.
Skiptingin á þeim 36,60 kr., sem
bensínlítrinn kostar nú, er þannig:
23 kr. fara í ríkissjóð, innkaupsverð
er 6 kr., dreifmgarkostnaður er 5,5
kr., flutningsjööiunargjald 0,74 kr.
og jöfnunarsjóður tekur 0,40 kr.
Verðlagsstjóri sagði aö verð hefði
lækkað á gasoliu og svartolíu á
heimsmarkaðnum enda hækkanir á
þeim vörum eingöngu heimilaðar
vegna innlendra kostnaðarhækkana.
Hann sagði hins vegar að verð á
bensíni hefði hækkað lítillega á
heimsmarkaði og skýrði það aö
nokkru þá hækkun sem nú yrði.
-SMJ
Flutnings-
jöfnunargjald
74 aurar
Innkaupaverð
6 krónur
Innkaupa-
jöfnunargjald
40 aurar
Dreyfingar-
kostnaður
5,50 krónur
Kr. 36,60
öensín
Annað
1,40 kr.
Ríkið
23 krónur
20% hækkun á
flugvaliargjaidi
Samgönguráðuneytið hefur
heimilaö 20% hækkun á flugvall-
argjaidi. Verður það nú 900 kr.
fyrir hvem farþega sem ferðast
frá íslandi til annarra landa. Áð-
ur var gjaldiö 750 kr.
Flugvallargjald í innanlands-
flugi verður 120 kr. en var 100 kr.
Samkvæmt upplýsingum sam-
gönguráöuneytisins eru hækkan-
ir þessar til að mæta forsendum
fjárlaga ársins 1988 um fram-
kvæmdir í flugmálum. Böm á
aldrinum tveggja til tólf ára
greiöa hálft gjald. -SMJ
á Djúpuvík
- þráttlyrir kaK sumar
Regina Thotaxensen, DV:
Að söp Evu, hótelstým á Hótel
Djúpuvík á Ströndum, hefur ver-
ið mikill gestagangur þar í sum-
ar, sérstaklega um helgar. í hótel-
inu em átta 2ja manna herbergi
en oft hafa gist þar 36 manns, þá
margir í svefnpokum og hótel-
stýran á mikið af góðum dýnum.
Veöráttan hefur verið köld í
allt sumar á Ströndum nema síð-
ustu viku. Þá var frábært veður,
8-14 stiga hiti að deginum til. Það
þykir gott á Ströndum en nú er
komin noröanátt og kalt, lágt
hitastig.
Björgunarsveitin Ingólfur fékk á miðvikudag afhentan mótorbát frá Lionsklúbbnum Frey, sem er 250.000 krónur
að verðgildi. Mótorinn var hins vegar horfinn við afhendinguna og er hans nú leitað ákaft af rannsóknarlögreglunni.
DV-mynd JAK
Gjöfin til Björgunarsveitarinnar Ingótfs:
Mótorinn hoifinn
við afhendinguna
Þegar afhenda átti Björgunarsveit-
inni Ingólfi mótorbát að gjöf frá Li-
onsklúbbnum Frey, brá mönnum
heldur betur í brún - mótor bátsins
var horfinn.
Að sögn Böðvars Ásgeirssonair, fé-
laga í Björgunarsveitinni Ingólfi, er
talið víst að tveir menn hafi staðið
að stuldinum vegna þess aö mótorinn
vegur 100 kíló. Síðast sást til mótors-
ins á sunnudag klukkan sex síðdegis,
en þegar Lionsmenn ætluðu að af-
henda Ingólfi bátinn ásamt mótorn-
um í sjóbúð björgunarsveitarinnar
við Grandagarð á miðvikudag, var
mótorinn horfinn.
„Það má vera að hurðin hafi ekki
hrokkiö í lás síðast enda er hún oft
erfið viðureignar vegna skemmdar
af völdum seltu,“ sagði Böðvar.
Mótorinn er af gerðinni Yamaha
og er 35 hestöfl og kostaði 150.000
krónur. Að sögn Böðvars eru til fjór-
ir slíkir mótorar hér á landi. Málið
er 1 höndum Rannsókarlögreglu rík-
isins.
-GKr
Ekki orðið varir við skjálfta
- segir Birkir Fanndal, yfirvélstjóri hjá Kröfluvirkjun
Gyffi Kristjánason, DV, Akureyii
„Viö höfum ekki orðið varir við
neina skjálfta hér upp við Kröflu,
þetta hafa verið skjálftar sem koma
fram á mælum og svo skjálftar hjá
mannfólkinu,“ sagði Birkir Fanndal,
yfirvélstjóri í Kröfluvirkjim, er DV
ræddi viö hann.
Birkir sagði að raforkuframleiðsla
lægi niðri í Kröfluvirkjun frá því um
miðjan maí og fram í miðjan ágúst
eins og verið hefði á hverju ári þar
sem raforkuframboð er þá meira en
nóg.
Þess í stað er unnið að viðhaldi á
vélum. Þá hefur jarðborinn Dofri
unnið að hreinsun á holu númer 9
að undanfómu og er því verki nú aö
ljúka. Síðar í sumar er svo áætlað
aö bora eina nýja holu á svæðinu.
Þegar raforkuframleiðsla er í gangi
nemur hún 28 megavöttum og eru
þá alls 10 holur nýttar.
Uppblásturinn við Mývatn:
Það versta sem ég
hef séð fra 1974
- segir Stefán Sigfússon landgræðslufulltmi
Gyifi Kristjánsson, DV, Akmeyri:
„Ástandið á svæðinu við Mývatn
og sérstaklega austan vatnsins er það
versta sem ég hef séö og hef ég þó
starfað við þetta síðan 1974,“ segir
Stefán Sigfússon landgræðslufulltrúi
í samtali við DV.
Mikið sandfok í langan tíma, geysi-
legir þurrkar og það hversu lítið hef-
ur verið um snjóalög á þessu svæði
undanfarin ár hefur gert það að
verkum að gróðureyöing er mjög
mikil víöa á Mývatnssvæöinu og
sagði Stefán að á nokkmm stöðum
sæjust merki um stórauknar
skemmdir, auk skemmda af völdum
sandfoksins að undanfómu á nýjum
stöðum.
„Hins vegar erum við mjög ánægð-
ir með viss svæði eins og t.d. út af
Krákárbotnum suður af Mývatni.
Það svæði hefur verið friðað í nokkur
ár og borið á það árlega. Þetta svæöi
hafði oft valdið erfiðleikum enda
fauk sandur þaðan niður í Laxárdal
og eyðilagði bæði hrygningarstaði í
ánni og olli skemmdum á hverflum
í vélum virkjunarinnar."
Stefán sagði um svæöin austan
Mývatns að ekki þýddi að heíja bar-
áttu á þeim án þess að girða þau og
friða fyrir beit. í gær var viðgerð að
ljúka á landgræðsluvéhnni Páli
Sveinssyni og á áburðardreifingu að
ljúka í Þingeyjarsýslu á morgun en
alls er dreift þar 250 tonnum að þessu
sinni.
Athugasemd við leiðara DV
í leiðara í DV miðvikudaginn 13.
júlí 1988 um nýja þjóðhagsspá, sem
Ellert B. Schram skdfar undir, er því
haldið fram aö útgáfa þjóðhagsspár
hafi tafist vegna pólitískra afskipta.
Þetta er alrangt. Þjóðhagsspáin var
ekki fullgerð fyrr en þriðjudaginn 12.
júlí er hún var kynnt ríkisstjórn og
fjölmiðlum. Spáin fékk enga pólitíska
umfjöllun fyrir þann tíma enda hafði
enginn póhtískur aöili aðgang aö
henni. Forsætisráðherra haföi þó
fengið stutt yfirlit yfir horfur um
helstu niðurstöður fóstudaginn 8.
júlí. Forsætisráðherra reyndi að
sjálfsögöu á engan hátt að hafa áhrif
á niðurstöður spárinnar.
Á hinn bóginn er ekki óalgengt að
ýmsir hagsmunaaöilar veiti upplýs-
ingar og haldi fram skoðunum sínum
viö Þjóðhagsstofnun um einstök mál
er þá varða. Slík skoðanaskipti eru
gagnleg enda eru þau yfirleitt á fag-
legum grundvelli. Ef menn hafa rök
að mæla tekur Þjóðhagsstofnun aö
sjálfsögðu tillit til þeirra. Hins vegar
er það grundvallaratriði, sem stofn-
un víkur aldrei frá, aö hafa eingöngu
þau sjónarmið að leiðarljósi sem hún
getur gert að sínum með það fyrir
augum aö gefa sem sannasta mynd
af því sem fjallað er um hveiju sinni.
Þórður Friðjónsson
Öspin að ná sér
Regína Thoiarensen, DV, Selfossi:
Um miðjan júní gerði aftakaveöur
hér á Selfossi eins og víðast hér sunn-
an- og vestanlands. Skemmdist trjá-
gróður þá mikið í görðum, einkum
öspin sem er svo viðkvæm. En sem
betur fer er öspin nú að ná sér vel
aftur en þó sjást víða brotnar grein-
ar, sem hanga niður og erfitt er að
klippa burt á hávöxnum trjám. Sel-
fyssingar sem aörir landsmenn halda
mikið upp á öspina og vonast til að
fræ hennar þroskist og fijúgi eins og
hvítur dúnn um langa vegu.