Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Side 5
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988.
5
Fréttir
Islendingur hjúkraði særðum Afgönum:
Hryllingur-
inn venst
„Það eru auövitað viðbrigði að
koma þarna út og sjá þann dauða og
djöfulskap sem fylgir stríði. Maður
hafði ekki í sínu starfi áður séð af-
leiðingar stríðá en forsmekkurinn
kemur kannski í fréttum, þannig að
ég var ekki alveg grænn,“ sagði Jón
Karlsson, 35 ára hjúkrunarfræðing-
ur sem nýkominn er heim frá störf-
um í Pakistan.
Jón Karlsson hjúkrunarfræöingur er
nýkominn frá Pakistan, þar sem
hann hjúkraði særðum stríðsmönn-
um frelsissveita Afgana.
DV-mynd KAE
Jón kom heim í byijun júlí eftir að
hafa starfað í 6 mánuði á sjúkrahúsi
í bænum Quetta sem er í 100 kíló-
metra fjarlægð frá suöur-landamær-
um Afganistan. Þar tók hann á móti
þeim er særst höfðu í stríðinu í Afg-
anistan og sá margt ófagurt. En hvað
rak hann út í þetta starf?
„Ætli það hafi ekki mest verið
ævintýralöngun, sjá heiminn og
kynnast öðrum þjóöum. Ég hafði
samband við Rauða krossinn og fór
síðan á námskeið árið 1985 til undir-
búnings. Þaö eru margir íslendingar
í svipuöum störfum eða hafa áhuga
á þeim.“
Jón hefur áður dvalist í Pakistan í
6 mánuði en fyrstu ferð sína á vegum
Rauöa krossins fór hann 1985 og þá
til Thailands við landamæri
Kambódíu, þar sem hann hjúkraði
særðum Khmerum. Jón segir aö
Thailand og Pakistan séu ólík lönd,
hins vegar séu stríðsáverkar ávallt
svipaðir en hryllingurinn venjist
Fór með 12 stunda fyrirvara
Jón hélt út til Pakistan með aðeins
12 stunda fyrirvara. „Þetta var stutt-
ur fyrirvari en ég hafði farið áöur
og vissi að hverju ég væri að ganga.
Þess vegna var þetta ekki annað en
að grípa tannburstann og fara.
Reyndar þurfti ég að fá frí í vinnu á
Borgarspítalanum og naut þar skiln-
Jón hefur séð margt ófagurt í störfum sínum meðal striðsþjáðs fólks og myndir hans tala sínu máli. Þessi maður
steig á jarðsprengju og ber þess aldrei bætur.
ings. Þetta er svokölluð veraldarvakt
sem er úti um allan heim, en á henni
eru einstaklingar sem eru tilbúnir
að fara með litlum fyrirvara og bún-
ir með undirstöðunámskeiðið.
Ástæða þess að ég fór svona í hasti
var sú að frá því að ég var úti áður
hefur stríðið harðnað og innlagnir á
spítalann nánast tvöfaldast, “ sagði
Jón.
Jón segist aldrei hafa lent í neinum
hættum og segist ekki muna eftir
neinu einu eftirminnilegu atviki en
auðvitað sitji hryllingurinn eftir.
Hann hafi séð í báðum löndunum
fólk sem var illa sært og bæklað og
gæti aldrei náð sér aftur. „Rauði
krossinn sér mjög vel um sitt fólk,
bæði hvað varðar öryggi og trygging-
ar. Launin eru hins vegar þau sömu
og hér heima og við fáum engan
áhættubónus."
Flóttamenn í Pakistan eru nú hátt
í þrjár og hálfa milljón vegna stríðs-
ins í Afganistan en Jón sagöist lítið
hafa orðið var við þá í sínu staríi,
enda væru flóttamannabúðirnar að-
skUdar frá spítalanum. Hins vegar
hafi hann orðiö að gera að sárum
almennra borgara sem höfðu særst.
Áfengiskvóti
Starfsfólkið á spítalanum kom frá
hinum ýmsu löndum heimsins, en
aðallega voru það þó Pakistanar og
Afganir. Segist Jón vera á þessum
ferðum sínum vera búinn að eignast
kunningja úti um allan heim enda
hafi andinn í hópnum veriö mjög
góður. „Vinnumálið er enska en
samskipti við sjúklingana fara oft
fram með aðstoð túlks sem er einn
úr hjúkrunarliðinu. Hinn hefð-
bundni dagur var ekki ósvipaður og
hér heima. Vinna hófst klukkan hálf
átta og stóð til fimm eða átta á kvöld-
in. Síðan var skipst á bakvöktum á
næturnar. Yfirleitt komu ekki nýir
sjúklingar fyrr en eftir hádegi, því
erfitt er að keyra frá landamærunum
í myrkri. Eftir vinnu var mest setið
og spjallað eða farið í matarboð til
hvers annars. Það er ekki mikið
hægt að gera þarna, þó að þetta sé
borg með 200-400 þúsund íbúum (það
fer eftir árstíma). Þarna eru engir
pöbbar og engin diskótek og útlend-
ingum er úthlutað áfengiskvóta enda
er landið íslamskt. Það var því helsta
skemmtunin að fara á markaðinn
sem var fjölskrúðugur eins og þeir
eru í austurlöndum," sagði Jón.
- Myndir þú vera tilbúinn aö fara
aftur út í svona störf?
„Ég væri alveg til í þaö og hef mik-
inn áhuga, þó að ekki séu nein áform
uppi um það ennþá,“ sagði Jón
Karlsson hjúkrunarfræðingur. JFJ
VOLVO
SALU RI N N
Skeifunni 15
120 - 200 ÞUS. AFSLATTUR
Nýr VOLVO á ótrúlegu verði!
Útborgun 25%, eftirstöðvar á allt að 30 mán.
Volvo 240 GL, 5 gíra, m/vökvast.
Kr. 1.083.000,-
Afsláttur 126.000,-
Verð m/ryðvörn kr. 957.000,-
Komdu með gamla
bílinn og farðu
á nýjum VOL VO í
sumarfríið.
Umboósaóilar Veltis:
Bilás sf., Þjóöbraut 1, 300 Akranesi.
Bílasala Vesturlands, Borgarbraut 56, 310 Borgarnesi.
Vélsmiöjan Þór h<„ Suöurgötu 9, 400 ísafirði.
Vélsmiðja Bolungarvíkur hf., Hafnargötu 53-61,
415 Bolungarvík.
Bókabúö Brynjars, Suöurgötu 1, 550 Sauðárkróki.
Þórshamar hf., bifreiðaverkstæði, 600 Akureyri.
Jón Þorgrímsson, Garðarsbraut 11, 640 Húsavik.
Volvo 340 DL 5 dyra
Kr. 710.000,-
Afsláttur 121.000,-
Verð m/ryðvörn kr. 589.000,-
Notið þetta einstæða tækifæri á meðan birgðir endast
Gteltir
Skeifunni 15 - Sími 691600 - 691610
5VOLVOS
* ORYGGI 5
Opið alla daga frá kl. 9.00 til 18.00.
Laugardaga frá kl. 10.00 til 16.00.