Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Side 7
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988.
7
Fréttir
Laxinum slátrað á planinu.
DV-mynd Stefán
Laxinn að
sprengja gildr-
ur hjá Dalalaxi
- fluttur lífandi til Borgamess til slátrunar
Stefin Haraldsson, DV, Borgamesi;
Sá óvenjulegi atburður gerðist í
Borgamesi nýlega að laxi var ekið
hingað lifandi í stórum kerum frá
hafbeitarstööinni Dalalaxi til slátr-
unar. Það var Eðalfiskur sem tók
ílskinn til vinnslu og var laxinum
slátraö á planinu fyrir utan fyrirtæk-
ið.
Dalalax er í eigu bænda í Saurbæ
í Dalasýslu og er fyrirtækið rekið í
samvinnu við Laxalón hf. Fyrirtækið
var stofnað 1982 en frekar litlar
heimtur hafa verið þar til nú. Á ör-
fáum dögum gengu 1240 laxar í stöð-
ina og var alls ekki reiknað með slík-
um heimtum. Stöðin ekki að fullu
frágengin og alls ekki tilbúin til að
takast á við slíkt magn. Gildrur sem
taka á móti laxinum yfirfylltust og
fiskurinn tók að skemmast.
Þá höfðu Dalamenn samband við
Eðalfisk í Borgamesi til að athuga
hvort hægt væri að taka á móti laxin-
um þar sem fyrst til að létta á gildr-
unum svo hægt væri að hleypa meiri
fiski í þær. Mikið af fiski er fyrir
utan gildmrnar.
Bmgðið var á það ráð að flytja lax-
inn lifandi í Borgarnes og tóku þeir
hjá Eðalfiski að sér að sjá um slátrun
og alla vinnslu á Ronum. Gekk það
verk vonum framar.
Mikil veiði í Borgarfjarðarám
Gríðarmikil veiði er í öllum veiðiám
í Borgarfirði og að sögn Jóns Gests,
framkvæmdastjóra Eðalfisks, hefur
fyrirtækið tekið mjög mikið magn af
þeim laxi til reykingar og annarrar
vinnslu. Mikil sala hefur verið í
reyktum og gröfnum laxi hjá Eðal-
fiski.
Menn í veiðihópum, sem verið hafa
að veiðum í ánum í nágrenni Borgar-
ness, hafa keypt mikiö af unnum laxi
og geta því að minnsta kosti gætt sér
á reyktum eða gröfnum laxi að veiði-
túr loknum þegar heim kemur.
ísafjörður:
Flutt í stjóm-
sýsluhúsið í dag
Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði:
Gert er ráð fyrir að eigendur í nýja
stjórnsýsluhúsinu hér á ísafirði flytji
inn í húsið í dag, fostudaginn 15. júlí,
og verður það eflaust mikil hátíð fyr-
ir marga. Hins vegar verður húsiö
ekki formlega opnað fyrr en í sept-
ember.
Framkvæmd við lóð hússins var
nýlega boðin út. Tilboð voru opnuð
í síðustu viku og hefur verið sam-
þykkt að Rörverk hf. hreppi hnossið.
Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á
6.028.640 kr. en kostnaðaráætlun var
aðeins hærri, 6.090.023 kr.
Langur vinnudagur verslunarmanna:
Enginn kvartaðvið okkur
segir Pétur Maack
„Það hefur engin kvörtun borist til
okkar og það er ekki ástæða til að
skoða mál ef viðkomandi talar við
blöð en snýr sér ekki til félagsins,"
sagði Pétur Maack, framkvæmda-
stjóri Verslunarmannafélags
Reykjavíkur.
Tilefni fyrirspurnarinnar var sím-
hringing sem DV fékk þar sem versl-
unarmaður í Kringlunni sagði að
margt verslunarfólk væri neytt til
að vinna á laugardögum þrátt fyrir
að það væri því þvert um geð.
Pétur sagði að fólk væri ekki skyld-
ugt til að vinna yfirvinnu frekar en
það vildi. Ef það væri þvingaö til
þess á einhvern hátt ætti það að snúa
sér til Verslunarmannafélagsins sem
myndi taka á málinu á faglegan
máta. JFJ
ARKITEKnJR
OG SKIPUIAG
Tímarit fyrir alla
sem hafa áhuga á
byggingarlist og
umhverfismálum.
FÆST í NÆSTU
BÓKABÚÐ
..■;>v-í,:■£
ɮ1|
mm
ÉmMiMíí
Sn
IPiaillÉ
wm
i
mmlmm
ÍSmKÍBIÍS?' ’-AA-
ll Ki.'
WÍ&SÍi
'éWÍm
mmMxfsim
í&ÍaHijðÍj
. í ■Ær,-- m •'SÆ i m m , bh i. BMBs..»> kSII
Æ ■ ,■■ ■ m
fm . isr **.'■ ■u
Iffl m