Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988.
Útlönd
Deng Xiaoplng sagöi í raorgun að
samskipti Kínverja og Bandaríkja-
manna heiöu batnað verulega und-
ir stjóm Reagans Bandaríkjafor-
seta og Shultz, utanríkisráöherra
Bandaríkjanna.
Shuitz, sera er á átján daga feröa-
lagi í Asíu, fullvissaöi Deng um að
enn yrði reynt að bæta samskipti
landanna, hver svo sem yrði eftir-
maöur Reagans.
Búist var við að Bush myndi
vekja máls á sölu Kínveija á eld-
flaugum til Mið-Austurlanda, frið-
artilraunum í Kampútseu, spenn-
unni milli Noröur- og Suöur-Kóreu
og sölu á bandarískum tæknivör-
um til Kína.
George Shuttz, utanríkisráðherra
Bandarikjanna, og Deng Xiaoping,
leiðtogi Kínverja, í Peking i gœr.
Slmamynd Reuter
SJö ára þrælkunarvinna
Hvítur kaupsýslumaöur frá
5iimbabwe, Rory Maguire, var í gær
dæmdur í sjö ára þrælkunarvinnu
fyrir að hafa aöstoöaö Suður-Aír-
íkumenn sem sakaðir eru um
sprengjuárásir í Zimbabwe og ekki
greint frá gerðum þeirra.
Mennirnir munu veröa leiddir Rory Maguire, kaupsýstumaður
fyrir rétt fyrir að hafa sprengt frá Zimbabwe, sem í gaer var
byggingar þar sem Afríská þjóðar- dæmdur í sjö ára þrælkunarvínnu.
ráðið haföi aðsetur. Símamynd Reuter
Einróma fordæming
Aðstandendur þeirra sem fallið hafa fyrir hendi kontraskæruliöa i Nic-
aragua mótmæltu i gær fyrir framan skrifsfofur kardinála og hvöttu
hann tíi að fordæma árásirnar.
Simamynd Reuter
Bandaríkjaþing hefúr einróma fordæmt Nicaragua fyrir að bæla niöur
andstöðuöfl, Þingmenn deila þó enn ura hvort taka eigi upp aftur hemað-
arlega aöstoö við kontraskæruliða.
Reagan Bandaríkjaforseti styður fruravarp það sem stuðningsmenn
hans í öldungadeildinni hafa lagt fram ura að enn sé möguleiki á að
kontraskæruliöum verði veittur hemaðarlegur stuðningur. Fulltrúadeild-
in felidi frumvarpið í febrúar síðastliðnum.
Sendiherra Nicaragua í Bandaríkjunum, Carlos Tunnerman, gaf í skyn
í gær að hann myndi hafa að engu fyrirskipun bandarískra yfirvalda um
að hann færi frá Bandaríkjunum. Hann kvaðst myndu halda áfram að
starfa sem sendiherra hýá bandalagi Ameríkuríkja, jaftivel þótt hann
þyrfíi að hverfa frá Bandarikjunum. Hann á að vera farinn frá Bandaríkj-
unum síðdegis í dag.
Snörp orðaskipti urðu miUi Tunnermans og sendiherra Bandaríkjanna
hjá bandalaginu í gær vegna gagnkvæmrar brottvisunar sendiherra.
Hrifhír af Kinnock
Neil Kínnock, lelðtogi bresku
stjómarandstöðunnar, og Mang-
wende, upplýsingaráðherra
Zimbabwe, i Harare i gær.
Simamyrtd Reuter
Leiðtogar Zimbabwe hylitu Neil
Kinnock, leiðtoga bresku stjómar-
andstöðunnar, í gær og kváðu hann
vera einn af þeim. Forseti neðri
málstofti þingsins gekk svo langt
aö segjast vona að Kinnock yrði
fýrr en seinna forsætisráðherra
Bretlands. Kvaðst hann óska þess
því að yfirvöld í Suður-Afriku
myndu breyta öðmvísi ef Kinnock
væri við stjómvölinn.
Kinnock hefur farið fram á að
bresk stjómvöld veiti landamæra-
ríkjum Suður-Afríku meiri aöstoö.
Banna Mandelatónleika
Yfirvöld í Suður-Afríku hafa bannað útitónleika í landinu sem haida
átö til heiðurs blökkuraannaleiðtoganura Nelson Mandela sem verður
sjötugur á mánudaginn.
Neyðarástandslögin í Suöur-Afrlku, sem sett vom fyrir tveimur árum,
banna útisamkomur nema með sérstöku leyfi og fékkst þaö ekki í þetta
sinn.
Mandela hefur setiö í fangelsi í tuttugu og fjögur ár, sakaður um að
hafa ætlaö að koma stjóminni frá. Reuter
DV
Lettin enn
árangurslaus
Þrátt fyrir víötæka leit hefur lög-
reglunni í Grikklandi ekki tekist aö
ná neinum þeirra sem viöriðnir voru
skotárásina um borð í grísku far-
þegaferjunni. Lögreglan er nú þeirr-
ar skoöunar aö einn árásarmann-
anna geti hafa látið lífið í árásinni
þegar tvær öflugar sprengjur
sprungu.
Samkvæmt sjónvarpsfréttum hafa
rannsóknaraðilar komist aö því aö
tveimur sprengjum var komið fyrir
um borð í ferjunni og orsökuðu þær
miklar skemmdir á þilfari ferjunnar.
Áður hafði það verið hald manna að
árásarmennirnir hefðu aðeins notast
við handsprengjur og vélbyssur.
Reuter
Mohammed Rashid, Palestinumaðurinn sem taliö er að hafi verið ástæðan
fyrir árás byssumanna um borð í grískri farþegaferju og Zozab Mohammed
sem talinn er hafa átt aðild að árásinni i grísku farþegaferjunni og sjálfur
týnt lífi.
Simamynd Reuter
Eldflaugaárás á Kabúl
Samkvæmt upplýsingum so-
vésku fréttastofunnar Tass létust
a.m.k. 20 manns og rúmlega 30
særöust þegar skæruliðar skutu
meira en 20 eldflaugum að Kabúl,
höfuðborg Afganistan, í morgun.
Árásin kom í kjölfar sovéskra og
afganskra upplýsinga þess efnis aö
skærur hefðu aukist í austurhluta
Afganistan, í höfuðborginni Kabúl
og í nágrenni borgarinnar Kanda-
har sem er í suðurhluta landsins.
Tass-fréttastofan sagði að 25
manna hópur skæruliða hefði
komið inn í landið frá Pakistan 5.
júlí sl. Að sögn fréttastofunnar
hafði hópurinn í hyggju að ráðast
að Kabúl og ríkisstjórn landsins,
sem studd er af Sovétríkjunum.
Að sögn afganska útvarpsins lét-
ust 14 manns í höfuðborginni í síð-
ustu viku í kjölfar aukinna eld-
flaugaárása og bílasprengja. í frétt
Tass-fréttastofunnar sl. sunnudag
kom fram aö 150 almennir borgarar
heföu látið lífið síöastliðna tvo daga
í róstum í landinu. Ekki var minnst
á hugsanlega hlutdeild Sovét-
manna í róstunum.
Sovétmenn hófu brottflutning
herja sinna frá Afganistan 15. maí-
síðastliðinn. Reuter
Mikhail Gorbatsjov, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, og Jaruzelski, leiðtogi pólska kommúnistaflokksins,
undirrita hér sameiginlega yfirlýsingu leiðtoganna tveggja að lokinni opinberri heimsókn Sovétleiðtogans til Pól-
lands. Símamynd Reuter
Ræða tillögur
Gorbatsjovs
Æðstu ráðamenn Varsjárbanda-
lagsins munu koma saman til tveggja
daga fundar í Póllandi á morgun til
að ræða nýjar tillögur í afvopnunar-
málum aö sögn vestrænna og aust-
rænna embættismanna.
Ráðamennimir munu kynna sér
nánar tilboð þaö er Gorbatsjov
kynnti á mánudag, á fyrsta degi opin-
berrar heimsóknar sinnar til Pól-
lands. Þá bauö hann aö Sovétríkin
myndu fækka orrustuflaugum sín-
um í A-Evrópu gegn því aö Banda-
ríkjamenn drægju til baka áætlanir
sínar um aö flytja 72 F-16 flaugar frá
Spáni til Ítalíu árið 1991.
Að sögn vestrænna stjórnarerind-
reka munu ráðamennirnir einnig
ræða hugsanlegan brottflutning
65.000 sovéskra hermanna frá Ung-
verjalandi, sem hafa verið þar síðan
í uppreisninni árið 1956. Ekki er lík-
legt að tilkynning um brottflutning í
náinni framtíð komi á fundinum.
Ráðamenn Atlantshafsbandalagsins
fógnuöu þessum tillögum Gor-
batsjovs.
í ferö sinni um Pólland lýsti Gor-
batsjov yfir stuðningi stjómarinnar
í Moskvu við uppbyggingu kommún-
isma í Póllandi í samræmi við hefðir
landsins. Hann sagði einnig að eng-
inn „alger sannleikur" um kommún-
ima væri tii og að það hefðu verið
mistök að reyna að þröngva fyrir-
fram gerðum hugmyndum um
kommúnisma upp á aðrar þjóöir.
Reuter