Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Side 12
12
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988.
Spumingin
Hefurðu ferðast með Flug-
leiðum?
Asdís Valdimarsdóttir: Já, út um allt
og mér fannst ég fá fina þjónustu.
Valdimar Árnason: Nei.
\
Drífa Magnúsdóttir: Já, ég fór með
þeim til Lúxemborgar.
Hjalti Bjarnason: Já, til Danmerkur
og Bandaríkjanna. Ég fékk ágæta
þjónustu.
Jóhanna Kristjánsdóttir: Já, til ísa-
íjarðar fyrir löngu og þjónustan var
ágæt.
Kristjana Ragnarsdóttir: Já, til
ýmissa staða og seinast þegar ég
flaug fékk ég lélega þjónustu.
Lesendur
Góðar greinar hjá Gunnari
Kristinn Einarsson hringdi:
Ég er einn þeirra sem les blað ykk-
ar með mikilli áfergju, ásamt raunar
öðrum blöðum. Þar sem mér flnnst
fróðlegt að fylgjast meö erlendum
fréttum vil ég hafa þær stuttar og
helst í einni runu á sömu síðu og
þurfa ekki að leita þeirra um allt
blaö. - Mér finnst of lítið gert af því
að fjalla um einstaka erlenda stórvið-
burði, bæði þá sem eru stjórnmálegs
eölis og einstaka atburði eða uppá-
komur sem geta leitt til frekara um-
róts eftir á.
Stundum er þetta þó gert, en alltof
sjaldan. Einu sinni var allgóð úttekt
á þessu í Morgunblaðinu og eins í
Tímanum, en það er liðin tíð. Nú sé
ég að í DV er kominn fram á ritvöll-
inn framúrskarandi penni, sem hef-
ur látið til sín taka, og einmitt á þessu
sviði með vikulegri umflöllun um
einhvern þann atburð, sem hæst hef-
ur borið vikuna áður eða jafnvel síð-
ar. Þessar greinar sem ég hef lesið
hafa birst á föstudögum og ritaðar
af Gunnari Eyþórssyni fréttamanni.
Þær greinar sem hánn hefur skrif-
að eru um helstu viðburði á erlend-
um vettvangi eins og ég sagði, og eru
að mínu mati algjörlega ólitaðar af
stjómmálaskoðunum og öðm per-
sónulegu, sem sumir hafa tilhneig-
ingu til að láta koma fram, er þeir
fjaila um slík mál.
Ég er þess fullviss að margir fagna
þess konar úttekt á erlendum við-
burðum sem Gunnar framkvæmir.
Vil ég t.d. minnast á greinar sem
hann ritar í DV hinn 1. þ.m. undir
heitinu „Skinhelg vopnasala“ og
greinarnar „Prófsteinn á perestroj-
ku“ og „Grjótkast í steinhúsi" (16.
júní og 24. júní). - Vona að DV haldi
áfram á sömu braut, því þetta eru
góðar greinar hjá Gunnari. „Margir fagna þess konar úttekt á erlendum viðburðum sem Gunnar framkvæmir," segir hér m.a.
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1988.
kG^
tv-
Inir
Jti
h .H**er bZSt
brunn eða „ *
S2»*saS Urf
er í/ósr aA sé ofti,
?wl’Wíajute“' ve«a BuS,
^aóknu l 08 Bukakí /n
áKísSa&siSp
sSSig&SS
ó-
•,a-
cv1
séu beir^l0 a0 teir sem k?£?einber
««• aÆÍ’fe,8®*
.‘r-«fi55K,«'íar
*'ntustieumTS 10 tii u .
íSSSÉSSsr
n.
'f&SWCaners
VOTas,
I!i§i
gTirs‘<tkyal0rl
■~-~~LZ^^‘ZsuS: ■
UUUMJU> >
.u meiri endt
r íhaldssamir
< útnefndir á þ
rt endumýjun
Gorbatsjov, h»
íö ennþá ihal
hans nær
a reytingi
iú 'aldast.
er- 'ar frá
"í \ xsM0
oS> \ '8,<'
Lengi með turninn
Húsmóðir í austurbænum hringdi:
Framkvæmdir hafa nú staðið yfir
nokkra mánuði á Haflgrímskirkju-
tuminum og mér finnst leiöinlegt
aö þurfa að horfa upp á forljóta
vinnupalla utan um þennan fallega
tum. Hallgrímskirkjan er stolt
Reykvikinga og sú bygging sem
lengst sést að frá höfuðborginni.
Þvi ætti að leggja áherslu á að flýta
framkvæmdum þarna svo hægt sé
aö horfa á hann á ný. Eru skemmd-
imar kannski svo miklar að búast
megi við að vinnupallamir verði
megnið af árinu þama?
Leiöinlegt er að þurfa að horfa
lengi á vinnupalla utan um Hall-
grimskirkjuturninn.
Hringið í síma
2 7 0 2 2
milli ld. 13 og 15 eða skrifiö
Mikil ásókn í Mörkina
B.J. skrifar:
Mikill fjöldi fólks hefur flykkst í
Þórsmörkina í sumar og virðist sú
sókn aukast ár frá ári. Lætur nærri
að hátt í 500 manns séu hverja helgi
í Mörkinni. Það er erfitt fyrir gróður
í Þórsmörk að bera allan þennan
þunga en ég er þó þess álits að það
sé vel hægt ef fólkið er sér meðvit-
andi um skyldur sínar og eftirlit er
nægilegt.
Ég brá mér í Mörkina um síðustu
helgi og gisti í Húsadal. Ég varð aldr-
ei var við neitt eftirht fyrr en á
sunnudag þegar tjaldgjöldin voru
rukkuð en nógu vora þau dýr. Það
kostar 400 krónur á mann að gista
þama og ætti nú aö vera hægt að
halda uppi einhverju eftirliti fyrir
þann pening.
Ég varð vitni að ljótri sjón þarna
þegar ég kom að ungri stúlku sem
var að leika sér að því aö tilefnis-
lausu að snúa stóra trjágrein af birki-
tré. Þegar ég fann að þessu við hana
var hún bara með skæting. Þar sem
ég kem alltaf á hverju ári a.m.k. einu
sinni í Mörkina gefst mér ágætt tæki-
færi til að fylgjast með breytingum
þarna og ég verð að segja að Húsadal-
ur er farinn að láta á sjá nú síðustu
árin. Langidalur er mun skárri enda
er Ferðafélag íslands meö öfluga
gæslu þar.
Spurningin er sú hvort takmarka
eigi íjölda fólks í Þórsmörkina, eða
jafnvel loka einstaka helgar, til að
leyfa gróðri að jafna sig. Aukið eftir-
lit gæti jafnvel verið nóg en vemda
verður þetta svæöi sem er einn fall-
egasti staðurinn á íslandi.
Yfirburðir
ríkissjónvarpsins
K.J. skrifar:
Ég var einn af þeim sem fagnaði
mjög tilkomu Stöðvar 2 og vil reynd-
ar hafa hana áfram. Hún átti í nokkr-
um byrjunarerfiðleikum en náöi sér
svo vel á strik. Margir þættir eru
mjög góðir hjá þeim á Stöðinni, eins
og íþróttaþáttur, fréttaþáttur og
ýmislegt fleira. En skemmtiþættir
ýmiss konar og kvikmyndir hafa ver-
ið misjafnar.
Ég verö að segja þaö aö síöustu
mánuði hefur þessu efni hrakað mik-
ið og stundum líða heilu kvöldin án
þess að hægt sé aö horfa á eitthvað
af viti. Ríkissjónvarpiö er nú eins og
þaö er, stundum ömurlegt efni en
alltaf mjög gott á milli. í heildina
hefur veriö talsvert betra efni þar en
á Stöð 2 upp á síðkastiö. Ég horfi nú
ekkert mjög mikið á sjónvarp en sest
stundum niður heila kvöldstund og
vel og hafna.
Þriðjudaginn 12. júní var hreint út
sagt hræðileg dagskrá á Stöð 2 ef
íþróttaþátturinn er undanskilinn.
Framhaldsþættirnir Kona í karla-
veldi og Þorparar eru með því lélegra
sem sést hefur á skjánum. Það er
hreinlega mannskemmandi að horfa
á bíómyndina Blóðsugurnar. Á meö-
an var dagskrá ríkissjónvarpsins frá-
bær. Frábærir þættir voru Vagga
mannkyns eftir David Attenborough,
nýr framhaldsþáttur, Höfuð að veði,
og þáttur um morðið á Olof Palme.
Ég vil beina þeim tilmælum til
Stöðvar 2 aö taka sig á og sanna þar
með að samkeppni skapar gæði, eins
og þeir vilja meina sjálfir.
„Spurningin er sú hvort takmarka eigi fjölda fólks í Þórsmörkina, eða jafn-
vel loka einstaka helgar, til aö leyfa gróðri að jafna sig,“ segir bréfritari.
- Útsýni til Langadals i Þórsmörk.