Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Side 17
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988.
•3
ækir að marki Fram, Ómar Torfason verst af krafti. Hlutverk liðanna voru áþekk
DV-mynd Óskar Örn
• •
romurum
■ áá
iingiu
ison, þjáSfari Vals, eftir 0-1 ósigur fyrir Fram
Lítið um opin færi
Opin marktækifæri voru ekki mörg í
leiknum, en á síðustu 20 mínútunum
fengu Valsmenn þó nægilega mörg til
að eitthvert þeirra hefði getað skila arði.
En eins og Atli Eðvaldsson, Valsmaður,
sagði við DV eftir leikinn: „Við höfum
þurft 20 færi til að skora 3-4 mörk í síð-
ustu leikjum og í kvöld voru tíu bara
ekki nóg.“ Þetta endurspeglar nokkuð
vandamálið hjá Val, þar er mikið af
góðum miðjumönnum en enginn nægi-
lega eitraður markaskorari.
Baráttan var gífurleg
Mikilvægi leiksins setti mark sitt á
hann. Baráttan var gífurleg af beggja
hálfu allan tímann og alhr seldu sig
dýrt, en það kom niður á gæðum knatt-
spymunnar sem slíkrar. Þó náðu Vals-
menn oft góðum köflum í seinni hálf-
leiknum, en það var aðeins á milh miðju
og vítateigs. Þeirra vandamál hefjast
alltaf þegar að teignum er komið. Það
var helst að Ath og Guðmundur Bald-
ursson, sem lék sinn fyrsta heila leik
með Val, væru ógnandi og með mark-
vissastar sendingar inn í vítateiginn.
Aftasta vörnin var skiljanlega í
stærsta hlutverkinu hjá Fram og þar
stóðu Viðar Þorkelsson, Jón Sveinsson
og Þorsteinn Þorsteinsson sig hver öðr-
um betur. Birkir Kristinsson var örugg-
ur í markinu fyrir aftan þá. Miðjumenn-
irnir voru mjög virkir í varnarhlutverki
en sóknarlega séð náðu þeir Utið að at-
hafna sig. Arnljótur Davíðsson vann
geysilega vel við erfiðar aðstæður
frammi og fékk góða aðstoð frá Fétri
Arnþórssyni. -VS
Tiyggvi og Hilmar
í bikarieikmim?
- Guðmundur Steinsson einnig að ná sér
Líkur eru á að bæði Hilmar Sig- mánuði en sagði í spjalU við DV í
hvatsson og Tryggvi Gunnarsson gærkvöldi að hann reiknaði meö
verði tilbúnir til að leika með Vals- að vera búinn að ná sér fyrir mið-
mönnum gegn Frömurum í 8 Uða vikudaginn.
úrsUtum mjólkurbikarsins á Hlíö- Guðmundur Steinsson, marka-
arenda á miðvikudagskvöldið kem- hæsti leikmaður 1. deildar, missti
ur. Þá fá Valsmenn færi á að hefna einnig af leiknum í gærkvöldi
ófaranna frá því í gærkvöldi. vegna meiðsla. Hann gerir sér von-
Hilmar meiddist á ökkla í leik ir um að geta leikið með Fram í
Vals viö KA á dögunum, Uöbönd bikarleiknum en um það kann þó
tognuðu, en hann er óðum aö ná að bregða til beggja vona.
sér.Tryggviveiktisteftirbikarleik- -VS
inn við Einherja fyn- í þessum
Iþróttij
Sturia á förum
frá Njarðvíkingum
bandanskan þjálfara í gærkvöldi
Ægir Már Káraaon, DV, Suðumesium:
Sturla Orlygsson, landsliösmað-
ur í körfuknattleik, er hættur hjá
íslandsmeisturum Njarðvíkur. i
spjalU við DV í gærkvöldi sagðist
hann taka ákvöröun fljótlega um
meö hvaöa Uði hann myndi leika
næsta vetur, 2-3 kæmu til greina.
Samkvæmt heimildum DV er lík-
legast aö hann gangi til Uðs við
Valsmenn en þar hefur hann leikið
áöur, vetuiinn 1986-87.
Það yröi mikiö áfall fyrir íslands-
og bikarmeistarana að sjá á bak
Sturlu sem lék geysilega þýðingar-
mikið hlutverk í Uðt þeirra sl. vet-
ur, ekki síst þar sem Valur Ingi-
mundarson er farinn til Tindastóls.
Snúa Ástþór
ogJóhannesheim
Ekki er útilokað að Njarðvfldng-
ar fái góöa leikmenn í staðinn því
Uklegt er tahð að Ástþór Ingason
og Jóhannes Kristbjömsson, bak-
veröimir snjöllu úr KR, snúi aflur
til heimahaganna. Ástþór lék með
Njarðvíkingum fyrir nokkrum
árum og Jóhannes síðast f fyrravet-
ur, en hann skipti yfir í KR um
mitt tíraabil.
Þjálfari ráðinn í gærkvöldi
Chris Fadness, 25 ára Banda-
ríkjamaður, skrifaði í gærkvöldi
ttndir samning við Njarðvíkinga og
mun þjálía Uö þeirra næsta vetur.
Þrátt fyrir ungan aldur er Fadness
reyndur þjálfari. hann er frá Iowa
og kemur í byrjun ágúst.
„Við höfum misst mjög góða
menn og þetta vetður erfitt hjá okk-
ur í vetur. Liöiö er mjög xmgt en
viö væntum þess að Fadness geri
góöa hluti. Viö höfum áður misst
góða menn en samt staöiö okkur
vel,“ sagöi Hilmar Hafsteinsson,
formaður körfúknattleiksdeildar
UMFN, 1 samtaU við DV í gær-
kvöldi.
• Geir Sveinsson í baráttu við Kínverja. Hér skorar hann eitt marka sinna.
Simamynd Reuter
Ursl'rt
og staða
Jón Kristján Sigurðsson, DV, HaDe:
ÚrsUt í leikjum austur-þýska hand
knattleiksmótsins í gærkvöldi urði
sem hér segir:
A-riðill: ^
ísland - Kína.............(22-8) 39-1!
A-Þýskaland - Pólland.....(13-9) 29-21
A-Þýskaland....3 3 0 0 83-59 i
ísland..........3 2 0 1 86-56 -
PóUand..........3 1 0 2 67-70 :
Kína............3 0 0 3 52-103 I
B-riðill:
Sovétríkin - V-Þýskal......(11-6) 18-lt
Kúba - A-Þýskal. b.......(11-14) 29—2<
Sovétrikin .....3 3 0 0 82-62 t
V-Þýskaland....3 2 0 1 63-60 ■
Kúba............3 1 0 2 77-88 :
A-Þýsk. b ......3 0 0 3 66-78 (
Markahæstir:
Fraatz, V-Þýskalandi..........25/6
An, Kína.......................21/13*'
Duranona, Kúbu.................18/4
Sigurður Sveinsson, íslandi...18/11
Szygula, Póllandi.............17/5
Borchardt, A-Þýskalandi.......17/7
Wahl, A-Þýskalandi............15/6
Gorin, A-Þýsk. b..............14/0
Delisle, Kúbu.................13/0
Tutchkin, Sovétríkjunum.......13/4
Tuttugu marka sigur hjá
hálfgerðu varaliði Islands
- ísland vann Kína 39-19 á austur-þýska mótinu í gær
Jón Kristján Sigurðsson, DV, HaJle:
„Ég er mjög ánægður með leikinn.
Liðið sýndi góöa hluti og við notuð-
um leikkerfi sem gáfu góða raun.
Leikurinn í dag gegn Rússum verður
mjög erfiöur og þá kemur almenni-
lega í Ijós hvar við stöndum,“ sagði
Bogdan Kowalczyck, þjálfari ís-
lenska landshðsins í handknattleik,
eftir að Uöiö hafði gjörsigrað Kín-
veija, 39-19, á handknattleiksmótinu
í Austur-Þýskalandi í gærkvöldi.
Staðan í hálfleik var 22-8.
Yfirburöir íslendinga voru miklir
í leiknum og má segja að þetta hafi
verið leikur kattarins að músinni.
Það er aúgljóst að Kínveijar eiga
margt eftir ólært í handboltanum til
þess að geta staðið í topphðunum
enda hafa þeir fengið slæma útreið í
öllum sínum leikjum á mótinu.
íslenska Uðið fór á kostum í gær-
kvöldi enda mótstaðan lítil sem eng-
in. Bogdan stfilti upp hálfgerðu vara-
Uði, þ.e. þeim leikmönnum sem Utið
hafa fengið að spreyta sig, en hvíldi
flesta bestu menn Uðsins undir átök-
in við Sovétmenn í dag.
Sigurður Sveinsson átti stórleik í
sókninni og skoraði hreint glæsileg
mörk langt utan af veUi. Júhus Jón-
asson átti einnig mjög góðan leik og
Hrafn Margeirsson lék sinn fyrsta
leik á mótinu og varði markið mjög
vel 1 seinni hálfleik, varði meðal ann-
ars vítakast í lokin.
íslenska Uðið hélt góðri einbeitingu
lengst af leiksins og lék af alvöru og
krafti þrátt fyrir Utla mótstöðu. Það
kom þó til smákæruleysis í lokin eins
og kannski skfijanlegt var þegar
munurinn var orðinn 20 mörk.
Mörk íslands í leiknum: Sigurður
Sveinsson 10 (5v), JúUus Jónasson
7, Sigurður Gunnarsson 4, Guð-
mundur Guðmundsson 4, Þorgils
Óttar Mathiesen 3, Bjarki Sigurðsson
2, Karl Þráinsson 2, PáU Ólafsson 2,
Geir Sveinsson 2, AtU Hilmarsson 2
og Alfreð Gíslason 1.
Þess má geta að allir leikmenn ís-
lenska Uösins nema markverðimir
náðu að skora í leiknum.
Dómararnir voru frá A-Þýskalandi
og dæmdu þeir auðveldan leik með.
prýði.