Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1988, Qupperneq 26
42
Jarðarfarir
Þórey A.J. Guðmundsdóttir lést 8.
júlí sl. Hún var fædd á Amarstapa í
Tálknafirði 16. ágúst 1904. Foreldrar
hennar voru Guðrún Oddsdóttir og
Guðmundur Sturluson. Þórey giftist
Sveini Kristni Jónssyni en hann lést
árið 1981. Þau hjónin eignuðust þijú
böm. Útfór hennar verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Sigurður Gunnlaugsson lést 6. júlí sl.
Hann var fæddur 8. maí 1912 í Hofs-
árkoti í Svarfaðardal, sonur Önnu
Stefánsdóttur og Gunnlaugs Sigurð-
arsonar. Sigurður útskrifaðist frá
Hólaskóla 1933. Hann var starfsmað-
ur Olíufélagsins Esso í fjöldamörg
ár. Eftirlifandi eiginkona hans er
Ráðhiidur Jónsdóttir. Þau hjónin
eignuðust tvö böm. Útfor Sigurðar
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 13.30.
Jónína Sigurbjörndóttir, húsfreyja í
Byggðarhomi, Sandvíkurhreppi, Ár-
nessýslu, lést 10. júlí sl. Hún var fædd
á Kringlu í Grímsnesi 20. október
1911. Foreldrar hennar voru Jódís
Sigmundsdóttir og S.igurjón Gísla-
son. Eftirlifandi eiginmaður hennar
er Geir Gissurarson. Þau eignuðust
fimm böm. Útfór hennar fer fram
laugardaginn 16. júlí kl. 13.30. Jarð-
sett verður að Laugardæliun.
Benedikt J. Benediktsson, Daibraut
21, Reykjavík, lést þann 11. júlí sl.
Hann verður jarðsungjnn frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 19. júií kl.
13.30.
Óskar Ólafsson,Iðjumörk 1, Hvera-
geröi, verður jarðsunginn frá Hvera-
gerðiskirkju laugardaginn 16. júlí nk.
kl. 14.
Guðríður Sigurðardóttir, Nýjabæ,
Garði, verður jarðsett frá Útskála-
kirkju laugardaginn 16. júlí kl. 14.
Áslaug Magnúsdóttir, Hrísateigi 35,
lést af slysförum 13. júlí.
FÖSTUDAGUR 15. JÚLÍ 1988.
Merming_______ i>v
Orgelsnilld í
Fríkirkjunni
Susan Landale leikur Bach og Messiaen
Susan Landale er skoskur orgel-
leikari sem starfar í Frakklandi.
Hún lék í Fríkirkjunni í gærkvöldi
verk eftir Bach, Vierne og Messia-
en. Það var sannarlega góð tilbreyt-
ing.
Landale leikur í franska stílnum
sem er mjúkur og fullur munúðar
um leið og allt sem máli skiptir er
gáfulega mótað og skýrt. Risavaxin
prelúdía og fúga í Es dúr eftir Bach
var fyrsta verkið, margslungið og
mikilvægt og náði strax á manni
sterkum tökum án þess að vera
yfirþyrmandi. Allar línur vom
skýrar og eðlilega mótaðar, hógvær
tilfinning í hveijum frasa. Það
heföi verið gott að heyra meira af
slíku. Þó ber ekki að vanþakka þrjú
lög úr „Pieses de Fantaisie“ eftir
Louis Vierne, fallega síðrómantíkí
anda Francks og þeirra bræðra.
Og enginn skyldi fúlsa \ið Messia-
en, þeim mikla töframanni sí-
breytilegrar „þrástefjunar" (ostin-
ato). Einlægur barnaskapur eða
Tónlist
Leifur Þórarinsson
djúpviturt sakleysið, sem birtist í
„La Nativité du Siegneur“ er upp-
hafmn skáldskapur sem fr. Lan-
dale kann sannarlega á lagið og
ílytur af innlifaðri nákvæmni.
Lokamúsíkin, tveir kaflar úr nýj-
asta verki Messiaens, „Le livre du
Saint Sacrament" (Bók hinna hei-
lögu leyndardóma), var þá ekkert
smávegis, hún var blátt áfram stór-
kostleg. Adore Te, með undurblíð-
um hljómklösum, sem mögnuðust
í tilbeiðslu og innilegri sorg, gáfu
heilagt samband. Sömuleiðis var
eitthvað stríðandi djúpt í „Les dex
Murailles d’eau“, þó síbreytileg
endurtekning nálgaðist þráhyggju
og þumbaraskap. Þetta er músík
sem mark er takandi á og hún var
snilldarlega leikin.
LÞ
Fríkirkjan í Reykjavík.
Fréttir
Barátta skilvíss greiðanda við kerffið
Þurfti að fara fyrir uppboðsrétt
- vegna sambandsleysis stofnana kerfisins
„Fasteignamatið neitaði að
hringja í skráningadeildina og
gjaldheimtuna, gjaldheimtan neit-
aði að tala við fasteignamatið og
skráningadeildina og skráninga-
deildin neitaði að hringja í fast-
eignamatið og gjaldheimtuna.
Þessir aðilar neituðu alfariö að
hafa samband hver við annan. Það
er eins og með ráöum gert að láta
vitleysurnar vera sem lengst í kerf-
inu,“ sagði maður einn, sem ekki
vill láta nafns síns getið, í samtali
við DV.
Þetta tilheyrir ekki nútíma út-
færslu af sígildu ævintýri, heldur
sögu af manni sem greiddi rétt fast-
eignagjald á réttum tíma, en endaði
í uppboðsrétti Reykjavíkur vegna
sambandsleysis ofannefndra stofn-
ana.
Og enn er C-gíróseðillinn í
brennideph.
Vitlaust fasteignamat
„Það kom upp sú vitleysa í fast-
eignamatinu á húsinu mínu að mér
var eignað mun stærra húsnæði en
ég í raun átti vegna mistaka í teikn-
ingum. Þessi vitleysa fór í gegnum
skráningadeildina til gjaldheimt-
unnar, sem þar af leiðandi rukkaði
mig um allt of háan fasteignaskatt.
Fasteignamatið viðurkenndi að um
mistök í teikningum væri að ræða
og ætluðu aö leiðrétta þetta. Það
dróst bara í fleiri mánuði. Ég talaði
við aha þessa aðila og þeir neituðu
allir að tala við hvern annan til að
leiðrétta vitleysuna. Síðan eru inn-
heimtir dráttarvextir og það koma
alls konar hótanir um uppboð til
að ná inn þessum vitlausu gjöldum.
Vitleysan er búin að ganga í mörg
ár, en skuld frá fyrra ári er draug-
ur sem erfitt er að kveða niður á
A-gíróseðlinum sem ég hef fengið í
upphafi hvers árs. Vextir og kostn-
aöur eru látin ganga fyrir þegar
greitt er og því voru alltaf eftir-
stöðvar. Ég greiddi á eindaga með
C-gíróseðli þá upphæö sem mér
bar. Ég var þannig með hreina
samvisku."
10. maí í ár kom mál mannsins
fyrir uppboðsrétt í Reykjavík. Því
var frestað í hálfan mánuð og þá
varö gjaldheimtan að viðurkenna
að skuldin hafði verið greidd og
málið féh niður.
Skýring greiðslu ekki lesin?
Þarna er á ferðinni sams konar
mál og sagt var frá í DV á mánu-
dag, þar sem vörubílstjóri greiddi
leiðréttan þungaskatt með C-gíró-
seðU og fékk dráttarvexti, þar sem
greiðslan var tvo mánuði á leið-
inni. í því tilfelli lá græna blað gíró-
seðilsins hjá móttakanda greiðsl-
unnar, sem er tollstjóri, í tvo mán-
uði í stað þess að berast ríkisbók-
haldi. Ríkissjóður á greiösluna og
sér ríkisbókhald um bókhald hans
og útsendingu gíróseðla í samræmi
við greiðslustöðu hvers greiðanda.
Ríkisbókhaldi þarf því að berast
þessi grænu blöð, til að vita hver á
greiðsluna og geta sent út réttan
gíróseðil fyrir næstu greiðslu.
„Er ekki nægilegt að móttakandi
greiöslu, gjaldheimtan, tollstjóri
eða hvaða opinbera stofnun sem
er, finni út hver eigi greiðsluna.
Starfsfólk virðist ekki gefa sér tíma
til að lesa í reitinn „Skýring
greiðslu". Svo eru þessi grænu blöð
ekki send nema einu sinni eða tvi-
svar í mánuði til raunverulegs eig-
anda greiðslnanna. Það stendur til
dæmis hvergi á A-gíróseðlunum að
ríkisféhirðir eigi féð og þvi stílar
fólk greiðslu með C-gíróseðli á inn-
heimtuaðilann. Græna blaðið er
greiðslutilkynning. Viðkomandi er
búinn að borga og hefur til þess
keypt gíróseðil þar sem póstburð-
argjald er innifaUð."
Veruleg upphæð
í ríkiskassanum
„Það er ein athyglisverð hhð á
þessu máli. Hve margir standa í
þessu stappi eins og ég og hve
margir borga dráttarvexti þegjandi
og hljóðalaust? Þeir þurfa ekki að
vera háir hjá hveijum og einum til
að verða veruleg upphæð í ríkis-
kassanum. Ég efast um aö ofreikn-
aðir eða misreiknaðir dráttarvextir
skiU sér aftur til greiðanda af sjálfu
sér. Þá erum við komnir að öðru
atriði og það er þegar opinber aöfii
innheimtir eða tekur við gjöldum
sem gjaldandi skuldar ekki. Það
varðar refsingu samkvæmt 129.
grein hegningarlaganna. Ég hef
snúið mér til Rannsóknarlögreglu
ríkisins vegna þessa, en þeir virð-
ast ekki sinna slíkum kærum þótt
lögin séu í gildi. Kæran fór til sak-
sóknara og þar var litið á máhð sem
tæknUeg mistök og því ekki gert
neitt í því.“ -hlh
Við eigum
elstu sundlaug
landsins
- segir Helga Þórsdóttir, húsmóðir á Dalvík
Andlát
Olgeir Sigurvinsson lést 12. júlí sl.
Elías Sveinsson frá Varmadai, Vest-
mannaeyjum, andaðist 13. júU í St.
Jósefsspítala, Hafnarfirði.
Tapad fimdið
Jakki og taska tapaðist
Laugardaginn 2. júlí sl. tapaðist bleikur
jakki og brún taska fyrir utan Casa-
blanca. I töskunni voru myndir og fiimur
sem eru eigandanum mjög mikilvægar.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma
72942.
Tilkyimingar
Nýr skóli í Hafnarfirði
Það var sól og sumar í Hafnarfirði þegar
fyrsta skóflustungan var tekin þar fyrir
nýjum grunnskóla, Setbergsskóla. Það
gerðu þau Jóna Kristin Heimisdóttir og
Hjalti Harðarson, sem m.a. eiga það sam-
eiginlegt að eiga heima í Setbergshverfi,
vera fædd árið 1983 og koma til með að
hefja skólagöngu sína í þessum nýja
skóla í 6 ára bekk eftir rúmlega eitt ár,
haustið 1989. Við þetta tækifæri var sam-
an kominn á skólalóðinni nokkur hópur
manna, þar á meðal ýmsir af skóla- og
forráðamönnum bæjarins. Áöur en
skóflustungan var tekin tók Guðmundur
Ámi Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnar-
firði, til máls og sagði frá skólanum sem
þama er fyrirhugað að byggja.
GÖNGULEIÐIR
Á ÍSLANDI
1. Suðvesturhornid
eftir Einar l>. Guöjohnsen
Gönguleiðir, sportveiði og
íslandssaga á ensku
Almenna bókafélagið hefur sent frá sér
þrjár bækur sem tengjast sumrinu. Em
það: Gönguleiðir á Íslandi 1. Suðvestur-
hornið eftir Einar Þ. Guðjohnsen, Sil-
unga- og laxaílugur eftir John Buckland
í þýðingu Bjöms Jónssonar og A Short
History of Iceland eftir Jón R. Hjálmars-
son.
„Við hér á Davík eigum 59 ára
gamla sundlaug. Hún er því sex árum
eldri en sundlaug Suðureyrarhrepps
sem tilgreind var elsta sundlaug
landsins," sagði Helga Þórsdóttir,
húsmóðir á Dalvík, í samtali við DV.
„Hins vegar er rétt að sundlaugin
á Suðureyri er samkvæmt bókum
elsta útisundlaug landsins og sund-
skáh Svarfdæhnga elsta sérbyggða
innilaug landins.“
Sundlaugin á Davík var vígð árið
1929, á sumardaginn fyrsta, og það
eina sem breytt hefur verið er bún-
ingsaðstaðan en hún var tekin í notk-
un á síðasthðnu hausti.
Helga sagðist hafa lesið sér til um
að eina fyrirmyndin sem Svarfdæl-
ingar höföu á þessum árum hefði
veriö sundlaug í kjallara skólans á
Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu.
Bæði Dalvíkurskóh og Húsabakka-
skóli í Svarfaðardal hafa afnot af
sundlauginni og að sögn Helgu er
sundlaugin mikið notuð af Dalvík-
ingum sem og nærsveitungum og
hún sagði að einnig heföu Dalvíking-
ar afnot af nýlegri sænskri plast-
sundlaug.
-GKr