Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988.
5
____________________Fréttir
FJórða heim-
sókn Ólafs
Noregskonungs
Ólafur 5. Noregskonungur lenti á
Reykjavíkurflugvelli á mínútunni
ellefu í gfer eins og áætlaö hafði ver-
iö. Þar með hófst þriðja heimsókn
Ólafs konungs til Islands en áður
hafði hann heimsótt landið árin 1961
og 1974 en einnig kom Ólafur hingað
sem krónprins árið 1947 og afhjúpaði
þá meðal annars styttu af Snorra
Sturlusyni í Reykholti.
Þegar flugvélin var lent staðnæmd-
ist hún fyrir framan rauðan dregil
og Ólafur Noregskonungur sté á ís-
lenska grundu og heilsaöi forseta ís-
lands, frú Vigdísi Finnbogadóttur.
Því næst voru þjóösöngvar landanna
leiknir af Lúðrasveit Reykjavíkur og
að því búnu, eftir að hafa heilsað
öðrum í móttökusveitinni, sté Ólafur
upp í forsetabifreiðina og ók aö Hótel
Sögu þar sem hann dvelst meðan á
heimsókninni stendur.
Hádegisverð snæddi Ólafur á
Bessastöðum hjá Vigdísi Finnboga-
dóttur að Bessastöðum. Þar voru
bornar fram kaldar ijúpubringur í
forrétt en í aðalrétt var köld rauð-
spretta með sjávarréttafyllingu. Eft-
irrétturinn var blandaður og síðan
var drukkið kafíi.
Síðdegis, klukkan 16.00, tók kon-
ungur á móti Norðmönnum búsett-
um á íslandi. Um kvöldið snæddi
Ólafur hátíðarkvöldverð í boði for-
seta íslands að Bessastööum. -JFJ
Eftir að forseti íslands haföi boðið Noregskonung velkominn voru þjóðsöngv-
ar landanna leiknir. DV-mynd Brynjar Gauti
NOTAÐIR
BÍLAR
Til sölu notaðar bifreiðar
í eigu umboðsins
AMC Eagle 4x4, árg. 1982, aðeins Dodge Aries, árg. 1987, sem nýr
tveir eigendur frá upphafi. ytra og innra, ekinn aðeins 5000
km, aukadekkjagangur.
Kvöldverður til heiðurs Noregskonungi:
60 gestir snæddu lamba-
hiygg með lerkisveppasósu
í gærkvöldi snæddi Ólafur fimmti
Noregskonungur kvöldverð í boði
forseta íslands, frú Vigdísar Finn-
bogadóttur, að Bessastöðum. Kvöld-
verðurinn var sérstakur heiðurs-
kvöldverður og bar gestum að vera
í samkvæmisklæðnaði, þaö er að
segja karlmenn mættu klæddir í
smóking.
Á matseðlinum í gærkvöldi var
nautakjötsseyði með grænmetisten-
ingum í forrétt og einnig laxabúðing-
ur með blaðlaukssósu. I aðalrétt var
lambahryggur með lerkisveppasósu
en í eftirrétt drukku gestimir kaffi
og snæddu smákökur.
Gestimir vom tæplega 60, bæði úr
fylgdarliði Ólafs, svo og innlendir
forystumenn. Auk konungs mættu
þar: Gunnerius Flakstad hirðmarskálk-
ur, E. Amundsen hermálafuOtrúi, Per
Aasen, sendiherra Noregs, og kona hans,
Liv Aasen, Eystein Isaksen sendiráðsrit-
ari og kona hans, Aud Isaksen, Willum
Steen sendiráðinautur, Þorsteinn Páls-
son forsætisráðherra og kona hans, Ingi-
björg Rafnar, Steingrímur Hermannsson
utaiiríkisráðherra og kona hans, Guð-
laug Edda Guðmundsdóttir, Birgir Ísleif-
ur Gunnarsson menntamálaráðherra og
kona hans, Sonja Bachmann, Matthías
Á. Mathiesen, samstarfsráðherra Norð-
urlanda, og kona hans, Sigrún Þ. Mathi-
esen, frú Halldóra Eldjárn, fyrrverandi
forsetafrú, Hans Andreas Djurhuus,
sendiherra Danmerkur, og kona hans,
Lise Djurhuus, Davíð Oddsson borgar-
stjóri og kona hans, Ástríður Thorarens-
en, Magnús L. Sveinsson, forseti borgar-
stjómar, og kona hans, Hanna Karls-
dóttir, Níels P. Sigurðsson, sendiherra í
Noregi, og kona hans, Ólafía R. Sigurðs-
son, Othar Ellingsen aðalræðismaður og
kona hans, Sigríður Ellingsen, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, forseti sameinaðs
þings, og kona hans, Eliasabet Kvaran,
Guðmundur Benediktsson, ráðuneytis-
stjóri í forsætisráðuneytinu, og kona
hans, Kristín Claessen, Sveinn Bjömsson
prótókoUstjóri og kona hans, Sigrún
Dungal, Böðvar Bragason lögreglustjóri
og kona hans, Gígja Haraldsdóttir, Aðal-
steinn Maack forstöðumaður og frú Jar-
þrúður Maack, Knut Ödegaard, forstjóri
Norræna hússins, og kona hans, Þorgerð-
ur Ingólfsdóttir, Sigurður Blöndal skóg-
ræktarstjóri og koná hans, Guðrún Sig-
urðardóttir, Hrafnhildur Schram Ust-
fræðingur og maður hennar, Gunnar
Gunnarsson, KomeUus Sigmundsson
forsetaritari og kona hans, Inga Her-
steinsdóttir, Vigdís Bjarnadóttir deildar-
stjóri og maður hennar, Guðlaugur
Tryggvi Karlsson, Vilborg G. Kristjáns-
dóttir deildarstjóri og maður hennar,
Hrafn Pálsson, Gunnar Bergsteinsson,
forstjóri Landhelgisgæslunnar, og kona
hans, Brynja Þórarinsdóttir, Per Landrö,
formaður Nordmanslaget, og kona hans,
Anna María Pálsdóttir, Oskar Vistdal,
norskur sendikennari, Ólöf Bjamadóttir
sendiherrafrú og Sigrún Ögmundsdóttir
sendiherrafrú. it;> t
ÆFINGASTÖÐIN
EIMGIHJALLA 8, KÓPAVOGI. SÍMAR 46900, 46901 0G 46902.
Toyota Corolla Twin Cam, árg. Range Rover, árg. 1976, lallegur,
1986, með állelgum, grjótgrind og lítiö ekinn bíll, aukadekk áfelgum.
hágæðahljómflutningstækjum.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202
Teygjubanda-aerobic sem
gefur meiri og betri þjálf-
un.. Kvöldtímar. Tveir
kennarar í tíma, gefur
meira aðhald og öryggi.
Skógrækty
Annar dagur heimsóknar Ólafs
fimmta Noregskonungs hefst klukk-
an tíu með því að konungur heldur
að Skógræktarstöð ríkisins að Mó-
gilsá í Kollafirði. Þar mun Sigurður
Blöndal skógræktarstjóri ganga með
konungi um stöðina og sýna honum
starfsemina.
Frá Mógilsá hggur leiðin til Þing-
valla þar sem Þorsteinn Pálsson for-
sætisráðherra og Ingibjörg Rafnar,
eiginkona hans, taka á móti kon-
ungi. Séra Heimir Steinsson, Þing-
vallaprestur og þjóögarðsvörður,
segir konungi frá Þingvöllum og
•gerðum „feðranna frægu“ á þeim
stað. í hádeginu halda forsætisráð-
herrahjónin veislu til heiðurs Ólafi
Noregskonungi að Hótel Valhöll. Þar
verða bomar fram dýrindis krásir
en í forrétt fá matargestir mariner-
aða sjávarrétti í rjómasósu, borna
fram í melónu. í aðalrétt verður glóð-
aður Þingvahasilungur, veiddur af
Þingvellir og Reykholt
Jóhanni Jónssyni í Mjóanesi, en
þetta verður borið fram með ristuð-
um möndlum og drottningarsósu.
Þessu verður síðan skolað niður með
hvítvíni. í eftirrétt fær Ólafur rjóma-
pönnukökur, fyhtar með blábeijum,
og krækibeijalikjör. Guðjón Harðar-
son, matreiðslumeistari á Hótel Val-
höll á Þingvöhum, sagði að sér litist
vel á að elda fyrir Noregskonung.
„Ég er aUs ekkert stressaður að elda
fyrir konung. Ég var hér í fyrra þeg-
ar Svíakonungur kom og það má
segja að ég sé að komast í þjálfun,"
sagði Guðjón.
Frá Þingvöllum mun Ólafur fljúga
með þyrlu tfl Reykholts í Borgaríirði
þar sem Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra tekur á móti
konungi. Ólafi verður þar gerð grein
fyrir sö'gu staðarins og þeim fom-
minjauppgreftri sem þar hefur farið
fram í sumar. Forseti íslands mun
síðan leggja homstein að Snorra-
stofu sem þar er í byggingu og á að
verða bókhlaða með aðstöðu til
fræðiiðkanna. Frá Reykholti verður
síðan flogið til Reykjavíkur. Engin
dagskrá verður í kvöld. -JFJ
DAG- 0G KVÖLDTÍMAR
í einu besta og stærsta
tækjasal landsins. Þú lendir
sjaldan í biðröð eftir tækj-
unum hjá okkur. Við höfum
sérhæft okkur í þjálfun með
tækjum og í leikfimi sem
gefur árangur. Komdu á
staðinn og kynntu þér að-
stæður. Minnum á léttar og
góðar æfingar í hádeginu.
INNRITUN OG UPPLÝSINGAR Í SÍNIUM 46900,46901 OG 46902,
KL. 12-22 VIRKA DAGA, 11-18 LAUGARDAGA OG 13-16 SUNNUDAGA.