Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Side 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988.
Utlönd
Fágaður stalínlsmi
Dan Quayle, varaforsetaefni repú-
blikana. Símamynd Reuter
Varaforsetaefhi repúblikana í
BandariHjunum, Dan Quayle, segir
í viötali sem birtist í Washington
Post í dag að Mikhail Gorbatsjov
sé ekkert frábrugðinn fyrri leið-
togum Sovétríkjanna og að stefna
hans sé einungis fágaður stalín-
ismi.
Quayle, sem aldrei segist hafa
komið til Sovétríkjanna, segist hafa
fengið upplýsingar um sovéska
kerfiö hjá embættismönnum og
öðrum sérfræðingum.
Þrátt fyrir fyrrnefhdar yfirlýs-
ingar sagöi Quayle aö brottfor Sov-
étmanna frá Afganistan væri tákn
um hvarf frá kenningu Lenins um
áframhaldandi útbreiðslu komm-
únisma.
Carluccí í Kína
Kínverskir erabættisraenn vörðu
umdeilda vopnasölu Kinverja
stuttu fyrir viðræður við Frank
Carlucci, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, í morgun.
Varnarmáiaráðherra Kínverja,
Qin Jiwei, sem mun ræða við
Carlucci, kvað vopnasölu Kínvetja
hafa vakið of mikia athygli en vera
langtum minni en vopnasala
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.
Kínvetjar selja talsvert af vopn-
um til Mið-Austurlanda og er búist
við að vopnasala þeirra verði eitt
aðalumraeðuefni Carluccis við kín-
verska ráðamenn.
Kínverskir herforingjar taka á móti
Frank Cariucci, varnarmálaráð-
herra Bandarikjanna, og konu
hans, McMillan Myers.
Simomynd Reuter
Banna fjöldafundi
Fjöldafundir i miðborg Santiago hata nú verið bannaðifiimamynd Reuter
Borgarstjórinn í Santiago i Chile bannaði í gær alla stjómmálafundi í
miðborg höfuöborgarinnar eftir víðtækustu mótmæli sera þar hefur verið
efnt til síðastliðin fimmtán ár. Mótmælin enduðu með átökum milli fund-
armanna og óeirðalögreglu.
Að sögn embættismanna voru rúmlega þrjú hundruð manns hand-
teknir og sautján meiddust í átökunum, þar á meðal tveir lögreglumenn,
þegar tugþúsundir gengu að forsetahöllinni á sunnudaginn til að mót-
mæla áformum Pinochets um að bjóða sig fram.
Mótmæli í Moskvu
Hundruð meðlima nýrra sveita
óeirðalögreglu í Moskvu dreifðu i
gær mótmælendum á Pushkin
torgi.
Mótmælendurnir eru meðlimir í
saratökum sem stofnuð voru i maí
gegn sovéska kommúnistaflokkn-
um.
Að sögn sovésku fréttastofunnar
Tass voru sautján manns hand-
teknir og munu þeir þurfa aö koma
fyrir rétt.
{ágúst síðastliönum voru níutíu
og sex manns handteknir, margir
augsýnilega áhorfendur, þegar
samtökin efndu til fjöldafundar í
tilefni þess að tuttugu ár voru liðin
reglumenn bera mótmælanda fráárásSovétríkjannainníTékkó-
burt Sfmamynd Reuter slóvakíu.
Ráðherra segir af sér
Forsætisráðherra írans, Mir-Hossein Mousavi, hefur afhent forseta
landsin9, Ali Khamenei, afsagnarbeiðni sína. Þetta kom fram í fréttum
írönsku fréttastofunnar Ima í morgun.
Mousavi kveðst vera þeirrar skoðunar að átta af ráðherrum hans muni
ekki hljóta traustsyfirlýsingu þegar þingiö kemur saman í dag til að ræða
sljómina.
Mousavi hefur boðist til að gegna embætti þar til efdrmaður hans hefur
verið skipaöur.
Mousavi, sem verið hefúr forsætisráöherra síðan 1981, nýtur trausts
þingmanna en hiö sama heftir ekki verið hægt að segjaum ráðherra hans.
Fresta lendingu
Sovóskt geimfar með tveggja manna áhöfn um borð hefur losað sig frá
Mir geimstöðínni en lenti ekki samkvæmt áætlun í morgun af tæknilegum
ástæðum.
Er nú búist við að geimfarið lendi í fyrramálið en ekki hafa verið gefn-
ar nánari upplýsingar.
Um borö í geimfarinu em Vladimir Lyakhov og afganski geimfarinn
Abdul Ahad Mohmand. Komu þeir til geimstöðvarinnar á miðvikudaginn
en þar hafa tveir sovéskir geimfarar verið frá því í desember.
Rcutcr
Óeinkennisklæddir sovéskfr lög-
Pólsk húsmóóir reynir að versla i Varsjá. Að undanförnu hefur vöruskortur aukist mjög í Póllandi.
Simamynd Reuter
Hafha Samstöðu
Yfirstjórn pólska kommúnista-
flokksins segist ekki ætla að gera
Samstöðu, hin ólöglegu verkalýðs-
samtök, löglega á nýjan leik. Segja
yfirvöld aö samtökin þurfi aö breyt-
ast og að Lech Walesa þurfi að breyta
afstöðu sinni.
Háttsettur pólskur embættismaöur
sagði í gær að innan kommúnista-
flokksins væri að magnast upp and-
staða gegn Walesa. „Sumir segja nú:
fjandinn, aftur þetta heimska fífl,
Walesa," sagði embættismaðurinn.
Yfirvöld stóðu í síðasta mánuði
framnú fyrir verstu verkfóllum í
Póllandi í sjö ár og leiddi sú staða til
þess að stjómvöld ræddu við Walesa
þann 31. ágúst. Það voru fyrstu við-
ræður af þessu tagi síðan 1982.
Walesa aðstoðaði við að binda enda
á verkfollin, eftir að stjórnin lofaði
að íhuga að leyfa Samstöðu á nýjan
leik eftir viðræður síðar í þessum
mánuði.
Embættismenn segja að ekki komi
til greina að leyfa Samstöðu óbreytta.
Samtökin voru bönnuð ári eftir að
herlög höfðu brotið mótmæli þeirra
á bak aftur áriö 1981.
Walesa telur lagalega stöðu Sam-
stöðu vera aðalmálið í þeim viðræð-
um sem fram undan eru, en stjóm-
völd segja efnahagsástandið í
landinu svo bágborið að það hafi
ekki efni á þeim munaöi að hafa frjáls
verkalýðssamtök til aö mótmæla
stefnu stjórnarinnar.
Reuter
Norskur kvennalisti
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Kvennafrumkvæðið heita ný-
stofnuð samtök norskra kvenna.
Ætlun samtakanna er að safna
konum í öllum stjómmálaflokkum
til þess að berjast fyrir lýðræöi á
eigin forsendum. Talskonur hinna
nýstofnuðu samtaka útiloka ekki
að þær bjóði fram eigin lista við
norsku Stórþingskosningarnar
næsta haust.
„Þetta er þó ekki markmiö
Kvennafrumkvæöisins. Áöur en sú
leið verður farin viljum viö reyna
að koma á samstarfi milli kvenna
í öllum flokkum,“ segja talskonur
samtakanna.
Ástæðan fyrir frumkvæöinu er
sú aö konumar telja norska þjóð-
félagið fiandsamlegt konum, fjand-
samlegt öllum þeim sem minna
mega sín og hreinlega öllu lífi og
öllu samféláginu. „Við viljum
stööva þessa þróun áður en þaö
verður of seint,“ segja Bente
Miiller og Wenche Aamodd, tals-
konur frumkvæðisins.
Aöalandstæðingar kvennanna í
stjórnmálum er Carl I. Hagen og
Framfaraflokkurinn, sem konurn-
ar telja aö höfði fyrst og fremst til
sjálfselsku og alls hins versta og
lágkúrulegasta í fólki. Aukiö fylgi
Hagens veldur þeim sérstökum
áhyggjum.
Norska Kvennafrumkvæðið á sér
augljósa fyrirmynd í íslenska
Kvennalistanum þó svo aö stefnu-
skrá samtakanna hggi ekki fyrir
enn. Konurnar ætla að halda opinn
fund í lok mánaðarins, þar sem
gengið verður frá endanlegri
stefnuskrá samtakanna.
Dauðarefsing hugsanleg
ríkjunum þegar um stórfellda fjár-
málaglæpi er að ræða en ólíklegt er
talið að Churbanov verði dæmdur til
dauða.
Auk Churbanovs eru sjö embættis-
menn frá Uzbekistan ákærðir við
þessi réttarhöld. Búist er viö að rétt-
arhöldin standi í tvo mánuöi og er
talið að Gorbatsjov ætli sér að nota
þau til að sýna það að hann sé ákveð-
inn í að beijast gegn hvers konar
spillingu sem enn eimir eftir af frá
Brésnev-tímanúm.
Veijandi Churbanovs sagði í gær
að fjölmiðlarnir í landinu væru þegar
búnir aö dæma skjólstæöing sinn í
þessu máli. Sagöi veijandinn að
Churbanov væri afurð sovéska kerf-
isins en hann hefði ekki skapað það.
Erlendum blaðamönnum var leyft
aö vera viðstaddir réttarhöldin í gær
og þeir munu fá að fylgjast með þeim
fyrstu fjóra dagana. í gær stóðu rétt-
arhöld ekki lengi vegna þess að þaö
leið yfir einn af sakborningunum.
Churbanov komst til metorða í so-
véska innanríkisráðuneytinu eftir að
hann skildi við fyrri konu sína og
giftist dóttur Brésnevs 1971.
Árið 1984, tveimur árum eftir frá-
fall Brésnevs, var hann lækkaður í
tign og í janúar á síðasta ári var hann
handtekinn.
Reuter
Tengdasonur Brésnevs, fyrrum
Sovétleiðtoga, kom fyrir rétt í gær,
sakaður um að hafa þegið mútur að
upphæð tæplega fimmtíu mifijónir
króna. Almennt er áhtiö að með rétt-
arhöldum þessum sé verið að for-
dæma valdaferil Brésnevs.
Yuri Churbanov, fimmtíu og eins
árs, fyrrum aðstoðarinnanríkisráð-
herra, var sakaður um að hafa þegið
mútur í meira en fimmtán hundruð
tilvikum á árabilinu frá 1976 til 1982.
í ákæruskjalinu er talað um að hann
hafi misnotað aðstöðu sína í innan-
ríkisráðuneytinu og hvað eftir annað
þegið mútur frá háttsettum mönnum
í Uzbekistan.
Dauðarefsing er enn leyfö í Sovét-
Yuri Churbanov, fyrrum aðstoðarinnanríkisráðherra Sovétrikjanna og
tengdasonur Brésnevs, I sakborningastúku Hæstaréttar Sovétrikjanna i gær.
Simamynd Reuter