Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Síða 20
20
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988.
íþróttir
Stúfar úr
1. deild
100. leikur Þorsteins
Þorsteinn Þorsteinsson, varnar-
maðurinn öflugi, hélt upp á sinn
100. ieik í 1. deildar keppninni
með því að tryggja sér Islands-
meistaratitilinn ásamt félögum
sínum í Fram. Honum tókst þó
ekki að skora i leiknum við KA
frekar en í hinum 99 leikjum sín-
um í deildinni!
Tveir í 50 leiki
Tveir leikmenn léku sinn 50. leik
í 1. deild á laugardaginn, Mark
Dufíield með ÍA og Gauti Laxdal
með KA. Mark hefur dreift sínum
leikjum á þijú félög, 17 með KA,
18 með Víði og 15 með ÍA, en
Gauti hefur leikið 17 með Fram
og 33 með KA.
100. sigur Þórs
Sigur Þórsara á Völsungi var
þeirra 100. í deildakeppninni frá
upphafl. Þór hefur nú unnið 47
leiki í 1. deild, 44 í 2. deild og 9 í
3. deild. Þá gerði KR sitt 150. jafxi-
tefli í 1. deild frá upphafi, gegn
Leiftri á Ólafsfirði.
Þrír nýliðar
Þrír leikmenn hófu 1. deildar fer-
il sinn á laugardaginn, léku þá í
fyrsta skipti í deildinni. Það voru
Ingólfur Gissurarson, KR, Þröst-
ur Ástráðsson, ÍBK, og Skúli
Hallgrímsson, Völsungi.
Badmintonfélag Ísaíjarðar tap-
aði sinum fyrstu stigum á sumr-
inu í 4. deild á laugardaginn, gerði
þá jafntefli, 1-1, við Skotfélag
Reykjavíkur í úrslitakeppninni á
ísafirði. Snorri Már Skúlason
kom Skotfélaginu yfir en á síð-
ustu mínútu leiksins jafnaði Guð-
mundur Gíslason fyrir BÍ.
BÍ mætir Hvergerðingum í
Hveragerði í kvöld. Heimaliðið
þarf að vinna með minnst fjórum
mörkmn til að tryggja sér 3. deild-
arsæti en það liðanna, sem verð-
ur í öðru sæti, þarf að bíða eftir
endanlegri niðurstöðu í 2. deild.
Annaöhvort fer það beint upp í
3. deild eða þarf aukaleik við
Leikni í Reykjavík um 3. deildar-
sæti.
• Kormákur vann Austra frá
Eskifirði, 2-0, á Hvammstanga
með mörkum Ragnars Ingasonar
og Bjarlia Gunnarssonar. Austri
vann fyrri leik liðanna &-0 og
leikur því til úrslita um sigurinn
í 4. deild við BÍ eöa Hveragerði.
• Einheiji innsiglaði sigur
sinn í NA-riöli 3. deildar á laugar-
dag með 4-2 sigri á Reyni frá
Árskógsströnd. Viðar Siguijóns-
son, Stefán Guðmundsson, Hall-
grímur Guömundsson og Njáll
Eiösson skoruðu fyrir Einheija
en Grétar Karlsson og Kristján
Ásmundsson fyrír Reyni.
-M.J/VS
Staöan
Fram.......15 14 1 0 32-5 43
Valur......15 10 2 3 29-12 32
ÍA.........15 9 3 3 27-19 30
KR.........15 7 2 6 22-19 23
KA.........15 7 2 6 27-25 23
Þór........1S 5 5 5 20-22 20
ÍBK........15 3 5 7 16-26 14
Víkingur....l5 3 3 9 11-25 12
Leiftur..15 1 5 9 10-20 8
Völsungur.15 1 2 12 9-30 5
Markahæstir:
GuðmundurSteinsson.Fram...11
Sigurjón Kristjánsson, Val...10
Aðalsteinn Víglundsson, ÍA.. 7
PéturOrmslev.Fram.............7
HalldórÁskelsson.Þór..........6
Þorvaldur Örlygsson, KA...'...6
JúlíusTryggvason.Þór..........6
DV kynnir
íslensku
ÓL-farana
Nafn: Einar
Þorvarðarson
Aldur: 31 árs
Hæð: 1,93 m
Þyngd: 95 kg
Félag: Valur
Við gerum
okkar besta
„Það er toppur fyrir hvern ein-
asta íþróttamann að fá að keppa
fyrir hönd þjóöar sinnar á
ólympíuleikum. Þetta er mikil
upplifun en þetta er í annað
skiptið sem ég keppi á ólympíu-
leikum. Ég varði einnig ís-
lenska markið í handknattleik-
skeppninni á ólympíuleikunum
í Los Angeles 1984. Þar náði ís-
lenska liðið frábærum árangri
með því að ná sjötta sætinu,"
sagöi Einar Þorvaröarson,
landliðsmarkmaður í hand-
knattleik, í samtali við DV.
Einar fær það erfiða verkefni
að verja íslenska markið á
ólympíuleikunum í Seoul en
ekki er nema hálfur mánuður
þangað til handknattleik-
skeppnin hefst. Einar á að baki
195 landsleiki og er meðal
leikjahæstu markvarða í heim-
inum í dag. Einar hefur sýnt
það og sannað á ferli sínum að
á góðum degi sýnir hann mark-
vörslu á heimsmælikvarða. Er
vonandi að Einar verði sem oft-
ast í þannig stuði þegar stóra
stundin rennur upp á ólympíu-
leikunum.
„Undirbúningurinn fyrir
ólympíuleikana hefur verið
geysilega spennandi en að sama
skapi mjög erfiður. En ég hefði
samt ekki viljað missa af þessu
einstaka tækifæri. Það er alveg
ljóst að allir hlutir veröa að
ganga upp svo að við náum
þeim árangri sem nánast er
krafist af okkur. Ég er hæfilega
bjartsýnn. Það þarf lítið að bera
út af til að allt hrynji eins og
spilaborg. Ef við náum hins
vegar okkar rétta takti ætti allt
að geta gengið upp,“ sagði Einar
Þorvarðarson.
„Við komum vel undirbúnir
til keppninnar en það gera
reyndar hinar þjóðirnar einnig.
Ég vil samt meina að við stönd-
um jafnfætis sterkustu þjóðun-
um. Þetta er aðeins spurning
um dagsformiö hverju sinni.
Eins og ég sagði áðan hefur
undirbúningurinn verið erfið-
ur. Þetta hefur verið hrein
vinna hjá öllum í liðinu í allt
sumar. Það gefur því augaleið
að þetta reynir ekki síður á
andlegu hliðina en þá líkam-
legu.
Við munum gera okkar besta
á leikunum. Ég tel að Rússar
og Júgóslavar séu með sterk-
ustu liðin í okkar riðli,“ sagði
Einar Þorvarðarson.
-JKS
OL88
# Leikmenn Monaco, sem mæta Valsmönnum í Evrópukeppni meistaraliða i kns
kvöid, gáfu ekkert eftir á æfingu liðsins í gær.
Valur og Monaco leika í Evrópukeppni mc
Leikurinn ge
leggst vel i
- segir Glenn Hoddle, ein skærasta stja
„Eg hef einu sinni áður komið hingað
til íslands. í fyrra skiptið lék ég með
enska landsliðinu gegn íslendingum í
leik sem endaði með jafntefli, 1-1. Leik-
urinn í kvöld gegn Val leggst vel í mig
og ég á von á góöum leik,“ sagöi enski
landsliðsmaðurinn Glenn Hoddle, ein
skærasta stjarna franska liðsins
Monaco, í samtali við DV í gærkvöldi
en þá höíöu leikmenn nýlokið æfingu á
Laugardalsvelli. í kvöld rennur stóra
stundin upp er Valur leikur gegn
frönsku meisturunum Monaco í Evrópu-
keppni meistaraliða í knattspymu á
Laugardalsvelli kl. 18.15.
„Ég veit ekki mikiö um styrkleika Vals-
liðsins, ég hef þó séö leik meö liðinu á
myndbandi og verð að viðurkenna að
styrkleiki hðsins kom mér á óvart. Ég
hef aftur á móti fengið meiri spurnir af
íslenska landsliöinu. Árangur þess á
undanfornum árum hefur svo sannar-
lega verið frábær. Á dögunum geröi svo
liðið jafntefli við Sovétmenn sem undir-
strikar enn frekar hvað íslendingar eru
komnir langt í íþróttinni,“ sagði Glenn
Hoddle.
„Laugardalsvöllurinn er frekar lítill
af knattspyrnuvelli að vera og ef eitt-
hvað verður að veðri kemur það Vals-
mönnum til góöa því þeir eru vanari aö
leika undir þeim kringumstæðum. Samt
er veðrið mun betra hér nú en þegar ég
var hér á ferð fyrir nokkmm árum.
Valsmenn koma til með að kynnast mun
stærri leikvangi í Monaco í seinni leikn-
um.“
„Við stefnum að sjálfsögðu að sigri á
morgun. Við munum leika okkar knatt-
spymu sem reyndist vel á síðasta keppn-
istímabili þegar við tryggðum okkur
franska meistaratitilinn," sagði Glenn
Hoddle.
Arsene Wenger
„Leikurinn í kvöld verður án efa
hörkuleikur. Ég veit aö hann verður
okkur erfiður eftir að ég sá Valsliðið á
myndbandi. Liðið kom mér mjög á óvart,
þar eru leikmenn sem hafa yfir góöri
tækni að ráða,“ sagði Arsene Wenger,
þjálfari Monaco, í samtali við DV í gær.
„Við komum hingað til lands með okk-
ar sterkasta hö að undanskildum Mark
Hateley sem á við meiðsli að stríða. Þau
eru það alvarleg að hann getur ekki leik-
ið með okkur næstu tvo mánuðina. Hann
þarf að gangast undir uppskurð á næstu
dögum. Við höfum átt erfitt uppdráttar
í leikjum okkar á yfirstandandi keppnis-
tímabili. Leikmenn liösins hafa ekki náö
að sýna sitt rétta andlit og svo hafa
meiðsli einnig sett strik í reikningin,"
sagði Wenger.
„Völlurinn er lítill en það á ekki að
koma að sök. Ásigkomulag hans er ann-
ars gott. Ég þekki vel til íslensku knatt-
spyrnumannanna sem leika víðs vegar
um Evrópu. Best þekki ég þó til Ásgeirs
Sigurvinssonar hjá Stuttgart og Arnórs
Guðjohnsen hjá Anderlecht. Þar fara