Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1988, Side 33
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 1988.
33
LífsstOl
Verðstöðvun:
Verðgæslumenn eru í viðbragðsstöðu
- DV athugar verðlagseftirlit í verðstöðvunarmánuði
Það hefur væntanlega ekki farið
framhjá neinum að alger verðstöðv-
un er í gangi núna og stendur hún
út september. Geysilegur viðbúnað-
ur hefur verið hjá Verðlagsstofnun
sem hefur fengið verkalýðsféíög í lið
með sér. Þá hafa neytendasamtök að
sjálfsögðu lagt lið í baráttunni við
hið sírísandi verðlag sem hér hefur
verið landlægt en á nú að gera til-
raun til <að stöðva í september.
Verðlagsstofnun hefur ráðiö átta
nýja starfsmenn til sín og opnaö sér-
stakan kvörtunarsíma, 91-622101.
Þessi sími hefur varla þagnað enda
er hann beinn tengill við bestu verð-
lagseftirlitsmennina, neytendur
sjálfa. Það er rétt að taka það fram
að síminn er opinn frá kl. 8 til 17 alla
virka daga vikunnar og er néytend-
um bent á að hafa samband ef þeir
hafa eitthvað við verð að athuga. Þá
er auðvitað hægt að hringja í Verð-
lagsstofnun, sími 91-27422, og koma
kvörtunum á framfæri.
„Rauðglóandi símalínur“
„Fyrsta daginn sem síminn var
opinn þá sátum við þrjú allan daginn
við að taka við ábendingum og
reyndar var síminn rauðglóandi til
klukkan níu um kvöldið. Síminn hef-
ur varla þagnað síðan,“ sagði Stein-
unn Friöriksdóttir sem vinnur við
kvörtunarsímann hjá Verðlagsstofn-
un.
Steinunn sagði að hlutfallslega
kæmi jafnmikiö af ábendingum utan
af landi og úr Reykjavík. Kvartanir
snúa sem gefur að skilja helst að
hækkunum síðustu daga en oft kem-
ur fyrir að margir hringi út af sama
umkvörtunarefninu. Reynt er eð
bregðast við kvörtunum með hraöa
og senda út fólk til að athuga málið.
Hefur Verðlagsstofnun um 30 manns
til þeirra starfa.
Þá sagði Steinunn að ætlunin væri
að leigja sjálfvirkan símsvara þannig
að hægt verði að hringja inn kvart-
anir allan sólarhringinn.
Landsbyggðin er dálítið vandamál
vegna þess að miðstöð verðlagsmála
er hér í Reykjavík en starfsmenn eru
þó staðsettir á Eskifirði, ísafirði,
Sauðárkróki og á Akureyri eru tveir
menn, annar í hálfu starfi.
Daglega fer starfsfólk Verðlags-
stofnunar út til að fylgjast með verði.
Hér má sjá Steinunni Friðriksdóttur
að störfum. DV-mynd JAK
Dagsbrúnarþáttur
„Við höfum að sjálfsögöu fullan
hug á að reyna að tryggja framgang
þessarar verðstöðvunar enda er
grunnurinn að því sem framundan
er byggður á því að verðstöðvunin
gangi,“ sagði Halldór Björnsson hjá
Dagsbrún. Hann sagði að ekki hefði
verið farið út í það að vera með sér-
staka símaþjónustu hjá Dagsbrún
eins og staðið hefði til í upphafi held-
ur hefðu þeir vísað á símann hjá
Verðlagsstofnun. Hann taldi þó ör-
uggt að verkalýðsfélög um land allt
myndu reyna að halda vöku sinni
enda brýnna úti á landsbyggðinni
fyrir verkalýðsfélögin að láta þessi
mál til sín taka. Sést það vel í tengsl-
um við verðkönnunarlista ASÍ.
Átak ASÍ og
Verðlagsstofnunar
„Verðlagsstofnun óskaði eftir því
við ASÍ og aðildarfélög þess að komiö
verði á samvinnu um verðlagseftir-
lit. Því er í undirbúningi hjá okkúr
að senda út eyðublöð til allra verka-
lýðsfélaga á landinu þar sem þau
geta fyllt út vöruverð hjá sér. Það er
síðan ætlunin aö gera aðra svona
könnun síðar í september en þessari
könnun er ætlað að tryggja að verð
hækki ekki á þessum tiltekna tíma,“
sagði Lára V. Júlíusdóttir hjá Al-
þýðusambandi íslands.
Þetta er mjög umfangsmikil verð-
könnun sem verður komiö af stað
með þessu móti og verður algerlega
í höndum verkalýðsfélaga á hverjum
stað fyrir sig. Á eyðublaðinu veröur
staðlað form með nöfnum flestra al-
gengustu matvörutegunda. Eins og
áður segir sjá verkalýðsfélögin um
að fylla þetta út og sjá því sjálf um
framkvæmd málsins. Eyðublöðin
ættu nú að vera farin að berast til
verkalýösfélaga enda brýnt aö hefj-
ast handa sem fyrst.
Verðlagseftirlit á
Fljótsdalshéraði
„Við ætlum að fylgjast vel með því
að verð breytist ekki hér fyrir aust-
an. Verðlagsstofnun gerði verðkönn-
un í sumar og aftur um miöjan ágúst
um leið og veröstöðvunarumræðan
var að fara af stað. Við getum byggt
á þeim könnunum,“ sagði Oddrún
Sigurðardóttir, formaður Neytenda-
samtaka Fljótsdalshéraðs, þegar haft
var samband við hana til að forvitn-
ast um stöðu mála þar.
Oddrún sagði að nú væri verið að
skipuleggja starf félagsins til að geta
fylgst meö verðlagi. Þó að öll vinna
við það sé unnin í sjálíboðavinnu þá
er ætlunin að fylgjast vandlega með
verðhækkunum. „Við verðum alveg
á fullu enda veitir ekki af. Það hefur
ansi mikið verið hringt til okkar og
bent á verðmun í verslunum."
Þetta er eina neytendafélagið á
Austíjörðum og því nær starfsemin
yfir stórt svæði.
Dalasýsla
„Ég hef verið í verðkönnunum að
undanfórnu og athugað þá verö á
algengustu vörum,“ sagði Guðrún
Þaó er mikið að gerast hjá Verðlagsstofnun þessa daganna. Hér má sjá þegar starfið framundan er skipulagt á
morgunfundi meðal starfsmanna. Þó erilsamt sé höfðu starfsmenn tima til að líta upp. DV-mynd GVA
Neytendur
K. Pálmadóttir formaður Neytenda-
félags Dalasýslu. Hún sagði aö kann-
anir hennar beindust fyrst og fremst
að tveim búðum, Kaupfélagi
Hvammsfjarðar í Búöardal og Kaup-
félagi Saurbæinga.
„Það hafa vissulega komið upp
spurningar sem ég hef orðið að
kanna nánar hjá Verðlagsstofnun.
Það lýtur að vörum sem voru keypt-
ar inn á gömlu verði en hafa hækkað
síðan. Verð þeirra hefur nú verið
lækkað.“
Allt starf Guðrúnar er unnið í sjálf-
boðavinnu og játaði hún að þetta
tæki geysilegan tíma-. „Ég vonast þó
til að fá aðstoð enda nauðsynlegt að
fleiri komi til.“ Guðrún bætti þvi við
að greinilegt væri aö fólk fylgdist vel
með og mikið væri um það að fólk
hringdi inn og gæfi ábendingar.
Neytendastarf á Akureyri
„Við höfum verið með verðkann-
anir einu sinni til tvisvar í mánuði
og munum halda því áfram á meðan
á veröstöðvuninni stendur. Það er
jafnvel hugsanlegt að þeim verði
fjölgað," sagði Anna Soffía Þorsteins-
dóttir, starfsmaður Neytendafélags
Akureyrar og nágrennis. Hún er eini
starfsmaður félagsins en hugsanlegt
er að starfsmanni í hálfu starfi verði
bætt við á meöan á veröstöövuninni
stendur.
„Við höfum fundið afskaplega
sterk viðbrögð hjá fólki og til okkar
hringir fólk mikið til aö tilkynna
hækkanir. Það er þvi ekki hægt að
segja annað en að fólk virðist vera
mjög meðvitað. Við tökum á móti til-
kynningum og komum þeim beint til
V erðlagseftirhtsins. ‘ ‘ Neytendafélag-
ið á Akureyri er kostað af verkalýðs-
félögum á svæðinu.
-SMJ
|>u
VI
ABpO
- aíTG
Vinningstölurnar 3. sept. 1988
Heildarvinningsupphæð: kr. 4.189.572,-
1. vinningur var kr. 2.098.936,- og skiptist hann á milli 2 vinnings-
hafa, kr. 1.049.468,- á mann.
2. vinningur var kr. 628.230,- og skiptist hann á 215 vinningshafa,
kr. 2.922 á mann.
Kvörtunarsími Verðlagsstofnunar: 91-622101
3. vinningur var kr. 1.462.406,- og skiptist á 6.043 vinningshafa
sem fá 242,- krónur hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá
Að aðlaga sig markaðnum:
Ora lækkar verð á maí s
Oramaís hefur lækkað í veröi og einnig greint frá ódýrari innflutt- frá framleiöanda og er gleðilegt til
það verulega. Meðalverð á Oramaís um maís. þess að vita að innlendur framleið-
er nú kr. 69,75. andi skuli reyna aö keppa við verö
í DV-könnun frá því í júlímánuði Veröið hefur lækkað í öllum á innfluttri vöru.
síðastliönum reyndist Oramals verslunum sem könnunin náöi til. -PLP
kosta kr. 102 að meöaltali. Þar var Hér er því greinilega verðlækkun
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111