Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Page 3
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988.
3
dv Fréttir
GeKungar
nema land
- komnir til aö vera
„Þeir hafa plagað Reykvíkinga frá
því í seinni hluta ágústmánaðar.
Geitungamir eiga það til að stinga.
Stungurnar valda bólgu, kláða og
sviða. Það er víst að geitungamir eru
komnir til að vera. Þeir eru búnir
að nema hér land,“ sagði Erling Ól-
afsson dýrafræðingur.
Geitungum hefur fjölgað mikið hér
á landi. Þeir hafa fundist víöa um
land þó mest beri á þeim í Reykjavík.
Erhng sagðist telja að þeir hefðu að-
allega borist hingað með skipum og
vamingi. Geitunga varð fyrst vart
hér fyrii; um tíu árum. Erling sagði
að þrátt fyrir að meira væri um geit-
unga nú en áður gengi þeim ekki vel
að fjölga sér. Ljóst er að þeir verða
hér til frambúðar.
Ásmundur Reykdal hjá hreinsun-
ardeild borgarinnar sagði að mikið
væri um að fólk kvartaði vegna geit-
unga og að þeirra hefði orðið vart
víða um borgina.
-sme
Hundar fyrir
fógetarétti
- úrskurður eftir helgi
Einstætt mál er nú fyrir fógetarétti
í Reykjavík. Snýst það um afnot af
hvolpi af English Springer Spaniel
kyni fyrir tík af sama kyni. Má búast
við úrskurði í næstu viku.
Forsaga þessa sérstæða máls er sú
að eigandi Springer Spaniel tíkur-
innar seldi 10 hvolpa undan henni
fyrir nokkru. Þeir em nú tíu mánaða
gamhr. Einn kaupenda skuldbatt sig
til að lána hvolpinn til tíkurinnar,
þ.e. móður hans, þegar hún ætti að
verða hvolpafull aftur.
Þegar seljandi vildi nú fá hvolpinn
til tíkurinnar neitaöi eigandi hans
því. Taldi hann hvolpinn of ungan,
auk þess sem skyldleikaræktunin
gæti orðið of mikil. Er nú svo komið
að seljandi hefur lagt fram innsetn-
ingarbeiðni í fógetarétti Reykjavíkur
þar sem hann fer fram á að fá hvolp-
inn afhentan. Er til mikils að vinna
fyrir hann þar sem einungis eru th
12 hundar af Enghsh Springer Spani-
el kyni á landinu, þ.e. umræddu
hvolparnir tíu og foreldrar þeirra.
Hafa hvolpar af þessu kyni verið
seldir á 40.000 krónur stykkið.
-JS
Eldur í þak-
einangrun
Júlía Imsland, DV, Homafirði:
Síðasthðinn þriðjudag var slökkvi-
hðið á Höfn kallað út vegna elds á
þaki húss við Kirkjubraut. Hafði eld-
ur komist í urethan-einangrun sem
verið var að sprauta á þakið. Varð
það með þeim hætti að starfsmenn
sem að verkinu unnu notuðu gasloga
til þess að þurrka raka sem var á
þakinu með þeim afleiðingum að eld-
ur komst í urethanið og varð af bál
og mikill kolsvartur reykjarmökkur.
Þegar slökkvihðið kom á staðinn
haíði eiganda hússins og syni hans
tekist að slökkva eldinn með hand-
slökkvitækjum og urðu litlar
skemmdir á húsinu.
Nú bregðum við á betri leik
með fleiri og Qölbreyttari möguleikum Lottó 5/38
Þú velur eins og áður 5 tölur, en nú
af 38 mögulegum. Eðli leiksins er
hið sama og áður og vinningamir
ganga allir til þátttakenda.
Það er nýjung sem segir sex.
í hverjum útdrætti verður dregin
út sjötta talan, svokölluð bónus-
tala. Þeir sem hafa hana og að
auki fjórar réttar tölur fá
sérstakan bónusvinning.
Ekki bara milljónir heldur líka
hundruð þúsunda í Lottóbónus!
Leikandi og létt!
/j/tt/r/mark
5 Ford Bronco -
Dreaið 12. september,
Heildarveromœti vinnmga 21,5 milljón.
íuslan/SlA