Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988. 15 íslenskt kindakjöt: Misheppnuð matvælategund? „Mín skoðun er sú að hörmulega illa hafi verið staðið að málum hvað kynn- ingu á lambakjöti erlendis varðar.“ „Hvaö á aö gera viö strákaling? / Sting’onum ofan í kolabing / Lok’- ann út í landsynning / og lát’ann hlaupa aUt í kring“. - Þessi vísa kemur mér stundum í hug þegar veriö er aö ræða „vandamálið" ís- lenskt lamba- eða kindakjöt. Eins og flestir munu vita er þessi tegund íslenskra matvæla orðin aö einu stærsta bitbeini í umræðunni um landbúnað hér á landi. Þó er þetta sú kjöttegundin sem hér hef- ur lengst af haldið lífi í landsmönn- um en hefur farið halloka á seinni árum í samkeppninni við aðrar teg- undir matvæla, innlendar og er- lendar. Er sá tími skammt undan að ís- lenskt kindakjöt hverfi með öllu af markaðinum nema í formi fágæts gamals réttar sem boðinn er út- lendingum í kynnisferðum um landið - rétt til að sýna hvað lands- menn lögðu sér tíl munns hér áður fyrr? Líkt og hákarUnn, harðfisk- urinn eða sviðin sem senn hverfur aUt fyrr en varir. Lítum aðeins á máUð. Þrjú þúsund tonnin A aðalfundi Stéttarsambands bænda, en honum er nú nýlokið, var eitt af stærstu málunum vandi sauðfjárræktarinnar og hvemig bæri aö taka á vandamálum þeim sem að henni steðja. Á þessum fundi kom fram að ný stefnumörkun í sauðfjárrækt geti leitt til þess að fundnar verði leiðir til að minnka þær 3000 tonna birgð- ir af kindakjöti sem tU eru í landinu - eða jafnvel eyða þeim alveg. Ekki kemur fram í fréttum af þessum fundi á hvem hátt þetta eigi að framkvæma en manni skUst að ein leiðin sé að lækka verðið. Ef það takist muni neysla á því aukast verulega því margoft hafi komið í ljós samhengi neyslu og verðs á kindakjöti. Gott og vel. Ekki skaðar að stefna að verðlækkun á þessari matvæla- tegund og á verðið áreiðanlega sinn þátt í því hve sala á henni hefur dregist saman. En fleira þarf tU. Og ekki vantar að átak eða fremur átök hafi veriö gerð til að örva sölu á kindakjöti. Þau átök hafa kostað ómælda fjárupphæð. En aUtaf stendur tonnafjöldinn í birgðum í stað. Ég man ekki eftir að hafa séð eða lesið um birgðasöfnun kinda- kjöts af annarri stærðargráðu en 3000 tonn! Er þess sérstaklega gætt Kjallariim Geir R. Andersen blaðamaður að þessi tonnatala sé ávaUt fyrir hendi í birgðum? - Maður freistast til að halda að svo sé. Röng vinnsluaðferð Lengi vel var kindakjöt selt hér á landi til neyslu sem „súpukjöt” einungis og svo hangikjöt til há- tíðabrigða. Nú er af sú tíð sem b.et- ur fer. En þá tekur ekki betra við. Aö því frátöldu að matreiöslumenn ýmissa veitingahúsa hafa spreytt sig á að matreiða lambakjöt í takt við tímann og þó að mestu líkt eftir formúium sem notaðar eru við matreiðslu nautakjöts er það lamba- og kindakjöt sem verslanir bjóöa upp á í frystikistum sínum fyrir hinn breiða hóp neytenda, með sömu ummerkjum og tíðkast hefur áratugum saman. Pökkun hefur að vísu verið breytt. Prjónapokinn er horfinn og plast eða sellófan komið í staðinn. Vinnslan er óbreytt. Lærið er ýmist heilt eða úrbeinað, stundum krydd- að og er til hagræðis fyrir suma og hryggurinn er á sínum stað og fitan sömuleiðis. Þegar kemur að kótelettum (sem sumir vilja kalla rifjasteik, aðrir „skammbyssur”) og lærissneiðum, sem seldar eru úr kæliborðum, eru þær svo þunnt sneiddar að þær eru í eins konar oblátuformi. Slikar sneiðar henta engan veginn til matreiðslu á grilli, svo dæmi sé tekið, hvorki innanhúss né utan. Allir vita að þessi matreiðsluaðferð er mikið notuð og hefur verið lengi, ekki síst að sumri til. Fyrir stuttu var ég á ferð um landið og kom við í verslun í Varmahlíð í Skagafirði. Mér varö htið ofan í frystikistuna eins og ég geri gjarnan. Þar var ekki ein sneiö kjöts þykkari en sem svarar til nið- ursneiddrar rúgbráuðssneiöar. - Útlendingar, sem þarna hafa átt leið um í sumar, hafa varla ginið við slíkum bitum á útigrillið. En Varmahlíð í Skagafirði er ekki ein verslana með þessa vörutegund. Þaö er sama í öllum verslunum. - Á þetta hef ég drepið áður og í áheyrn ábyrgra aðila sem eiga hagsmuna að gæta. Þetta hefur mætt skilningi en heldur ekki meir. Kyndug kynning Og þá er kynningin sem nú er kölluð markaðsöflun. Enginn efast um að hún er einn mikilvægasti þátturinn. íslenskt lamba- og kindakjöt er einhver besta mat- vælategund sem við getum boðiö til sölu, að frátöldum fiski, eða sam- hliða honum. Mín skoðun er sú að hörmulega illa hafi verið staðið að málum hvaö kynningu á lambakjöti er- lendis varðar. Eitt er að kynna matvæli í veislum og opinberum móttökum þar sem boðið er sendi- ráðsfólki annarra ríkja og öðrum fyrirmönnum sem sjaldan eða aldr- ei versla sjálfir í stórmörkuðum eða á almennum mörkuöum. Ann- að er að kynna matvæh eins og ís- lenskt lambakjöt þar sem hinn breiöi hópur neytenda kemur á staðinn til þess að kaupa matvæhn. Þar er rétti staðurinn fyrir kynn- ingu af þessu tagi. I fyrra tilfehinu, sem við íslend- ingar höfum notast við að mestu, verða viðbrögðin í besta falh góð en enginn tekur með sér heilt læri eða kótelettur heim til matreiðslu. í síðara tilfehinu, þar sem mat- reiðslumaður eða klókur kjöt- vinnslumaður stendur við kynn- ingu á kjötinu, ýmist matreiðir eða sýnir viðskiptavinum hvemig best er að tilreiða viðkomandi hluta, er verið að vinna raunhæft markaðs- starf, selja vöruna. Auðvitað þarf sá hinn sami að geta útskýrt og svarað viðskiptavinunum væntan- legu á þeirra eigin máh, eftir því í hvaða landi kynningin fer fram. Þannig fer fram markaðsöflun á hvaða vörutegund sem er. Hún nægir ekki einn dag, t.d. í hverri borg, hún veröur að standa nokkra daga, t.d. 5-6 og að sjálfsögðu um helgi því þá eru oftast mestu versl- unardagarnir, a.m.k. laugardagur- inn. Eftir slíka kynningu og ef varan líkar fer ekki hjá því að neytandinn knýr á um að fá hana að staöaldri, eða viðkomandi verslunarstjóri eða forráöamaður verslunarsam- steypu sér sér hag í því að hafa hana á boðstólum. Þaö er ástæðulaust að gera ís- lenskt lamba- og kindakjöt að vand- ræðabarni íslenskra matvæla. Það þarf hins vegar að vanda til sölu- og markaðsöflunar, bæði hvað varðar tímasetningu, rétta staði og rétta menn sem framkvæma kynn- inguna. Ef þessa er gætt og alvara fylgir máh þarf ekki lengur að spyija „hvað eigi að gera við strákahng”. Geir R. Andersen „Ástæðulaust að gera íslenskt lambakjöt að vandræðabarni íslenskra matvæla," segir m.a. í greininni. Á að afnema niðurgreiðslurnar? „Neysluvörur, sem vega tiltölulega þungt 1 útgjöldum tekjulágs fólks, en eru hlutfallslega minni þáttur i heildar- neyslu tekjuhás fólks, eru því hentugar sem tekjujöfnunarleiö.“ Öðru hverju koma fram háværar raddir um að afnema beri niöur- greiðslur á innlendar landbúnað- arvörur með öhu. Niðurgreiðslum- ar séu styrkur við úreltan og óhag- kvæman landbúnað sem ástæðu- laust sé að dekra svo við. Vont er ef satt er, en er þetta svo í raun? Tilgangur niðurgreiðslna Fyrir nokkru minnti greinar- höfundur á þaö í blaðagrein að upphaf niðurgreiðslna mætti rekja til opinberra ráðstafana til þess að greiða fyrir kjarasamningum á vinnumarkaði. Þá voru reyndar fleiri vörutegundir niðurgreiddar en innlendar landbúnaðarvörur. Síðan komust menn á þá skoðun að það væri í fyrsta lagi þjóðhags- lega óhagkvæmt að niðurgreiða innfluttar vörur, svo og væri mun ömggara að greiða niður á fram- leiðslustigi til að minnka hættu á misferli. Á þessum tíma vom menn ekki í neinum vafa um tilgang niður- greiðslna. Þær vora sem sé fyrst og síðast tæki til þess að flytja pen- inga með skattlagningu. frá tekju- hærra fólki og fyrirtækjum til hinna tekjulægri. Neysluvörur, Kjallarmn Þorkell Guðbrandsson skrifstofumaður sem vega thtölulega þungt í út- gjöldum tekjulágs fólks, en eru hlutfallslega minni þáttur í hehd- arneyslu tekjuhás fólks, eru því hentugar sem tekjujöfnunarleið. Því er ekki að leyna að þegar tímarnir líða og breytast þá missa menn oft sjónar á upphaflegum markmiðum slíkra ráðstafana, enda breytast einnig aðstæður all- ar og viðhorf manna ekki síður. Niðurgreiðslurnar hafa einnig breytt um mynd í sjónum manna, og vafalaust hafa þær aflagað markaðsskyn framleiðenda. Breyt- ingar á niðurgreiðslum sem hlut- fah af hehdarverði og geðþóttaá- kvarðanir stjórnvalda á þessu sviði hafa einnig valdið óeðhlegum sölu- sveiflum, með thheyrandi óöryggi í afkomu framleiðenda. Menn skulu einnig vera þess minnugir, að framleiðendur, bændur lands- ins, voru aldrei spurðir hvort þeir vildu niðurgreiðslur eða ekki þegar þær voru teknar upp. Beinn gjaldeyrissparnaður En lítum nú í sjónhendingu á nið- urgreiðslur sem hagstjórnartæki og þjóðhagsleg áhrif þeirra. Það má öllum ljóst vera að þjóð, sem þarf jafnmikiö að byggja á gjaldeyrisöflun og utanríkisversl- un og viö, verður aö gæta þess vandlega í hvað hún ráðstafar gjaldeyri sínum. Á því hlýtur að þurfa að vera einhver opinber stýr- ing, svo ekki fari hla. Langvarandi óhagstæður greiðslujöfnuður við útlönd, með tilheyrandi skulda- myndun, er vísasta leiðin th þess að glata sjálfstæðinu. ÖU heimaöfl- un er því þjóðhagslega hagkvæm, og framleiðsla matvæla og annarr- ar neysluvöru og nauðþurfta af landsins gögnum og gæðum því beinn gjaldeyrissparnaður. Ef við beinum neyslunni með shkri tekju- tilfærslu að innlendu framleiösl- unni, þá erum viö um leið að spara okkur gjaldeyri. Ef niðurgreiðslur yrðu afnumdar eða lækkaðar verulega, þá myndi neyslan væntanlega færast yfir í aörar vörur en innlendu land- búnaðarvörurnar, vegna þess að þá myndu verðhlutfóll breytast. Innfluttar matvörar myndu auka hlutdeild sína á markaðnum, og þar með fylgdu jafnframt óhag- stæðari viðskipti við útlönd, lakari greiðslujöfnuður og auknar erlend- ar skuldir. Minnkandi landbúnað- arframleiðsla leiddi ekki af sjálfu sér th aukningar á gjaldeyrisöflun, síður en svo. Búast mætti jafnframt við vaxandi atvinnuleysi, með öll- um þeim afleiðingum, félagslegum og efnahagslegum, sem því fylgja. Útkoman yrði því stórauknir efna- hagsörðugleikar þjóöarbúsins, sem munu þó ærnir fyrir. Það er því fyhsta ástæða fyrir okkur að hugsa okkur vel og vand- lega um, áður en við tökum ákvörð- un um að hætta niðurgreiðslum á landbúnaöarvörum, ekki síst við þær aðstæður sem nú ríkja. Þorkell Guðbrandsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.