Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988. 11 Utlönd Ekkja Allendes heimsækir Chile Ekkja Salvadors Allende, Hortens- ia Bussi, sagöi í gær að hún myndi snúa aftur til Chile fyrir lok þessa mánaðar til þess að aðstoða við að koma herstjóminni frá. í október fer fram þjóðaratkvæða- greiðsla í Chile um það hvort Au- gusto Pinochet, forseti Chile, verði áfram eitt kjörtímabil í viðbót, það er að segja níu ár. Bussi, sem verið hefur í útlegð frá því aö Pinochet tók völdin með að- stoð hersins árið 1973, er í Guadalqj- ara í Mexíkó þar sem hún tekur þátt Ekkja Allendes snýr aftur heim. Símamynd Reuter Tmm Kosningabarátta Pinochets í augum Luries. í umræðum um ástandið í Chile. Eiginmaður hennar lést eftir árás skriðdreka og herflugvéla á forseta- höllina. Deilt hefur verið um hvort AUende baröist þar til hann lést eða hvort hann stytti sér aldur. Stjóm Pinochets leyfði nýlega þeim sem flúið hafa land af stjómmálaleg- um ástæðum að snúa aftur til Chile fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Bussi kvaðst snúa aftur einhvern tíma eftir 11. september en þá em liðin fimmtán ár frá valdaráninu. Þann dag vill hún ekki vera í Chile. Búist er viö að heimkoma ekkjunn- ar verði stjómarandstæðingum mik- ill stuðningur. Reuter Keppa við PLO Hérskár hópur múhameðstrúar- hvers konar eftirgjöf við Jsraels- manna hefur boðað allsheijarverk- menn og hefur gágnrýnt PLO fyrir faU á herteknu svæðunum 1 dag. að styðja hugmyndina um aljijóö- Er litiö á verkfaUsboöunina sem lega ráðstefnu um friö í Miöaust- urlöndum. tilraun til að ögra veldi Frelsissam- taka Palestínumanna, PLO, á vest- urbakkanum og Gazasvæðinu. í dag er Uðnir níu mánuðir frá því aö uppreisnin á herteknu svæð- unum hófst og til að minnast þess efndu leiötogar uppreisnarmanna, sem hiiðhoUir eru PLO, til eigin allsherjarverkfalls i gær. Verslunareiganda í austurhluta Jerúsalem segist svo frá að fúlltrú- ar beggja samtakanna hafi gengið um borgina tU aö leita stuðnings við verkföUin. í síðastUðnum mán- uði kom til átaka miili hreyfing- anna þegar andspymuhreyfingin boðaöi sitt fyrsta verkfaU. við Hamas af verkfaUsþátttöku í dag. Frelsissamtök Palestinu- manna hafa hvatt fóUc til aö standa á bak viö hina sameinuðu leiðtoga uppreisnarinnar. TU óeirða kom á nokkrum stöð- um á herteknu svæðunum. ísrael- skir hermenn skutu tU bana Palest- inumann á vesturbakkanum og hafa nú að minnsta kosti tvö hundruö og sjötiu Palestinumenn látið lífiö í uppreisninni og fimm ísraelsmenn. Reuter Andspyrnuhreyfing múhameös- trúarmanna, Hamas, er andvíg HeimUdarmenn Palestínumanna segja að marka megi stuöninginn Sjónvarpskappræður geta ráðið úrslitum Michael Dukakis og George Bush hafa komið sér saman inn kappræð- ur í sjónvarpi fyrir forsetakosning- amar sem fram fara 8. nóvember. í þessum kappræðum verða einungis frambjóðendurnir tveir og er talið að þær geti haft mikið að segja um hvemig kosningarnar fara. Samkvæmt skoðanakönnunum er fylgi frambjóðendanna mjög sveUlu- kennt og virðist sem fimmtungur af þeim sem segjast styðja hvom fram- bjóðanda geti hugsað sér að greiöa hínum atkvæði. Talið er að kappræð- umar geti haft mikU áhrif á ákvörð- un þessa óvissa fylgis. Bush varaforseti rak í gær aöstoö- armann sinn sem sakaður hefur ver- ið um gyðingahatiu-. Mark Goodin, talsmaður Bush, sagði að Jerome Brentar, annar af formönnum nefnd- ar, sem á að reyna að afla Bush fylg- is meðal fólks af ólíkum þjóðarbrot- um, heföi verið tengdur samtökum sem styöja John Demjanjuk sem ný- lega var sakfeUdur í ísrael fyrir stríðsglæpi í fangabúðum þjóðverja í seinni heimsstyijöldinni. Bandalag ArabaríHja gagnrýndi í gær báða frambjóðendur fyrir andúð í garð araba og að styðja ísraela blint. Yfirlýsing bandalagsins var gefm út eftir að Bush og Dukakis ávörpuöu fund gyðingasamtaka. George Bush, sem hér sést á kosn- ingafundi, og Michael Dukakis hafa komið sér saman um tvær sjón- varpskappræður fyrir forsetakosn- ingarnar þann 8. nóvember næst- komandi. Simamynd Reuter Dukakis sagöi aö hann myndi aldr- ei viðurkenna einhliða stofnun Pal- estínuríkis og Bush sagðist ekki myndu styðja neins konar palest- ínskt ríki sem stofnaö gæti öryggi ísraels í hættu. Bush og Dukakis ihunu mætast tvisvar í sjónvarpi. Fyrra skiptið verður 25. september og síöara sltipt- ið veröur annað hvort 13. eða 14. október. Varaforsetaefnin Dan Quayle og Lloyd Bentsen munu eigast við í fyrstu vikunni í október. Kappræður forsetaframbjóðenda hafa iðulega ráðiö úrslitum um sigur í.kosningum og telja menn aö svo geti einnig orðið nú. Frambjóðend- urnir eru mjög jafnir og ef annar þeirra stendur sig mjög vel í sjón- varpinu getur það fært honum sigur. Einnig geta mistök orðið mönnum að falli. Er þess skemmst að minnast þegar Carter, fyrrum forseti, sagði í kappræðum sínum við Reagan, 1980, að hann ráðfærði sig við níu ára gamla dóttur sína um útbreiðslu kjamorkuvopna. Eftir þau ummæli breyttist jöfn kosningabarátta í stór- sigur fyrir Reagan. Reuter STAÐA FRAMKVÆMDASTJÓRA Sambands Sveitarfélaga á Suðurnesjum - S.S.S. - (og Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja) er laus til umsóknar. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri störf óskast sendar á skrifstofu S.S.S., Vesturbraut 10a, 230 Keflavík, í síð- asta lagi 23. september nk. Upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Alexandersson framkvæmdastjóri. Stjórn S.S.S. Nýr opnunartími Eftir 1. sept. verða verslanir HAGKAUPS opnar sem hér segir: Skeifan Mánud. -fimmtud. 900-1830 Föstud. 900-1900 Laugard. 900-1600 Krmglan sérvörudeild Mánud. -fimmtud. 1000-1900 Föstud. 1000-1900 Laugard. 1000-1600 Knnglan matvörudeild Mánud. -fimmtud. 1000-1900 Föstud. 1000-1930 Laugard. 1Ö00-1600 Kjörgarður Mánud. -fimmtud. 9°°-1800 Föstud. 900-1900 Laugard. 1000-1300 Seltjarnarnes Mánud. -fimmtud. 900-1830 Föstud. 900-1930 Laugard. 1000-1600 Njarðvík Mánud. -fimmtud. 1000-1830 Föstud. lOœ-2000 Laugard. 1000-1400 Akureyri Mánud. -miðvikud. goö-1800 Fimmtud. -föstud. 900-1900 Laugard. 10°°-1600 HAGKAUP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.