Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988. 7 dv______________________________________________________________________________________________________Stjómmál Tillögur stjómarflokkanna ganga sitt á hvað: Þorsteinn vill ekkert fiysta nema launin en kratamir alH verði einnig fryst þennan tíma.' Millifærsla Alþýðuflokksins felst í því að frystideild Verðjöfnunarsjóös sjávarútvegsins verði veitt heimild tii að taka 550 milljón króna lán til þess að bæta frystihúsum veröfall á erlendum mörkuðum. Samkvæmt útreikningum Þjóðhagsstofnunar jafngildir það sex mánaða tapi fryst- ingarinnar miðað við núverandi tap- rekstur. Jón Baldvin ætlar að lækka raunvexti um 3 prósent Alþýðuflokkurinn vill að Seðla- bankinn ákvarði vaxtamun. Seðla- bankanum verði falið að ná samningi við bankana um aöra 10 til 12 pró- sent lækkun nafnvaxta. Dráttarvext- ir verði gerðir að dagvöxtum. Seðla- bankanum verði falið aö reikna árs- ávöxtun á nýjum útlánum bankanna og birta þá útreikninga í Lögbirtinga- blaðinu. Fjármálaráðherra beiti sér fyrir nýju samkomulagi við bankana um lækkun vaxta á spariskírteinum ríkissjóðs um 3 prósent. Seðlabank- anum verði síðan falið að fylgja þess- ari raunvaxtalækkun eftir. Ef hún verður ekki er bankanum heimilt að grípa beint inn í. Alþýðuflokkurinn vill tekjuafgang á næstu fjárlögum en í plaggi ráð- herranna er ekki tilgreint hversu mikifl hann eigi að verða. Lánsíjár- lög byggist á ströngu aðhaldi. Lög og reglur um erlenda lántöku veröi end- urskoðuð, meðal annars til að endur- meta ríkisábyrgð á lántökum opin- berra íjárfestingarlánasjóða. í lok tillagna ráðherra Alþýöu- flokks stendur: „Um sinn er óhjákvæmilégt að efnahagsaðgerðir mótist af stöðnun og jafnvel samdrætti í þjóðartékjum. Áfram er þó nauðsynlegt að vinna að endurskipulagningu og endurbót- um í íslenskum þjóðarbúskap. Tíma- bundnir erfiðleikar mega ekki drepa framfaraviðleitni í dróma." -gse ástandið og hversu brýnt sé að taka ákvarðanir til að minnka verðbólgu, lækka vexti og bæta afkomu útflutn- ings- og samkeppnisgreinanna. For- senda þess að stöðugleiki komist á og haldist næstu 12 til 18 mánuði er að fjárlög verði afgreidd hallalaus og aðhald sé gætt varöandi erlendar lántökur. Jafnvægi í fjárlögum og lánsíjárlögum eru höfuðmarkmið komandi aðgerða. Til þess að ná þessum markmiðum leggur Þorsteinn til að íjárlög næsta árs verði hallalaus. Þvi skuh náð með niðurskurði í útgjöldum. „Hins vegar kemur til greina að falla frá því tekjuafsali fyrir ríkissjóö sem upp- taka virðisaukaskatts á miðju ári 1989 fæli í sér. Til greina kæmi að fresta framkvæmd þessarar skatt- kerflsbreytingar." Samkvæmt upplýsingum fjármála- ráðuneytisins gæfu frestun á upp- töku söluskatts um 1 milljarð í ríkis- sjóð. Eftir standa rúmir 3 milljarðar sem sjálfstæðismenn vilja mæta með niðurskurði. Tiflögur Þorsteins í lánsfjármálum íjalla almennum orðum um að nauð- synlegt sé „að draga verulega saman erlendar lántökur á næsta ári og hins vegar að skapa heilbrigða umgjörð með almennum reglum á þessu sviði. Þar á meðal eru ákvarðanir um ábyrgð ríkisins á lántökum lána- stofnana, ríkisbanka og opinberra flárfestingarlánasjóða." Launin fryst en verðlagið ekki Þorsteinn lagði til að laun yrðu fryst en tiltók ekki hversu lengi. Hann lagði hins vegar ekki til áfram- haldandi verðstöðvun. í plagginu segir aö verðstöðvunin, sem í gildi er til 1. okóber, hafi lán- m mssnam Innritun frá kl. 13 til 20 kennsla hefst 19. september Takmarkaður fjöldi nemenda í hverjum tíma HAFNARFJÖRÐUR kennum í nýju húsnaeði að Reykjavíkurvegi 72 sími 52996 REYKJAVlK Kennum í Ármúla 17a sími 38830 Greiðsluskilmálar: raðgreiðslurMSA/EURO Bamadanskennsla Gömludansakennsla Samkvæmisdanskennsla Standard Latin Kennarar í vetur: Niels Einarsson Rakel Guðmundsdóttir Rúnar Hauksson Aðalsteinn Ásgrímsson Herborg Bemtsen Gerður Harpa Kjartansdóttir Logi Vígþórsson Anna Berglind Júlídóttir NYTT /J íslandsmeistarar kenna Rokk/Tjútt i NÝTT NÝTT Bjóðum einkatíma eftir samkomulagi. Lokaðir tímar fyrir félagasamtök og aðra hópa. Stemgrimur lagði niðurfærsluna til bókunar Það var glatt yfir mönnum í upphafi rikisstjórnarfundarins i gær þar sem Þorsteinn Pálsson kynnti hugmyndir sínar um aðgerðir í efnahagsmálum. Eftir fundinn var heldur þyngra yfir mönnum. Steingrimur Hermannsson kallaði tillögur Þorsteins vangaveltur og sagði mikið verk framundan. DV-mynd GVA í hugmyndum Þorsteins Pálssonar forsætisráðherra að lausn efnahags- vandans, sem lögð var fyrir ríkis- stjómarfund í gær, er gert ráð fyrir áframhaldandi frystingu launa en að veröstöövun verði aflétt eftir 1. okt- óber. Þá'er gerð tillaga um milli- færslu til frystingarinnar í gegnum Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins og endurgreiðslu söluskatts. í ríkisfjár- málum er stefnt að hallalausum fjár- lögum með niðurskurði. Þó skuli rík- issjóði bættur sá tekjumissir sem hann verður fyrir á næsta ári vegna upptöku virðisaukaskatts og afnáms gjaíds á erlendar lántökur. I greinar- gerð Þorsteins er einnig drepiö á fleiri atriði en engar frekari tillögur er þar að finna. Steingrímur Hermannsson utan- ríkisráðherra lagði fram gjöróhkar tillögur. Þær voru um niðurfærslu með fullu handafli. Sjáhur sagði Steingrímur eftir fundinn að hann gerði sér grein fyrir að niðurfærslu- leiðin væri dauð vegna andstöðu sjálfstæðismanna..Hann lagði tillög- umar hins vegar til bókunar í ríkis- stjóminni. Tillögur alþýðuflokksráðherranna fjölluðu um tafarlausar aðgerðir í efnahagsmálum. Þar var gert ráö fyrir frystingu launa, verðlags og fiskverðs til áramóta. Alþýðuflokk- urinn lagði til tekjuafgang á næstu fjárlög í stað hallalausra fjárlaga eins og hinir stjómarfíokkamir. Milli- færsla Alþýðuflokksins felst í því að frystideild Verðjöfnunarsjóðs verði heimilað að taka 550 milljón króna lán og greiða verðbætur út til frysti- húsanna. Þá lagði flokkurinn til margar tillögur í peningamálum, meðal annars að vextir á ríkisskulda- bréfum verði lækkaðir um 3 prósent. Kemur til grelna að fresta virðisaukanum ‘ Plaggið, sem Þorsteinn lagði fyrir ríkisstjómina, kallaði hann „Að- gerðir í efnahagsmálum". Inngangur þess fiaflar almennum orðum um ast vel en jafnframt er tekið fram að hún leyfi ekki hækkanir vegna hækkaðs innflutningsverös eða breytinga á erlendum gjaldeyris- mörkuðum. „Hætta er því á að framlenging verðstöðvunar yrði ómarkviss að- gerð vegna þess hve óraunhæf hún væri og græfi því undan tiltrú á að- haldsstefnu ríkisstjórnarinnar í verðlagsmálum." í stað áframhald- andi verðstöðvunar leggur Þorsteinn til ákvarðanir um „strangt verðlags- aðhald". Með þessum aðgerðum, bæði launafrystingu og hallalausum ríkis- rekstri, segir Þorsteinn aö verðbólga muni halda áfram að hjaðna sem leiðir aftur til lækkunar nafnvaxta og bættrar greiðsluafkomu fyrir- tækja. Nafnvaxtalækkunin leiði síð- an aftur til grundvallarlækkunar á vöxtum á skuldabréfum rikissjóðs og almennri raunvaxtalækkun í kjöl- far þess. Millifærslan í athugun Þó Þorsteinn leggi ekki til útfærða millifærslu greinir hann frá því að fram fari í Seðlabánka og Þjóðhags- stofnun könnun á slíkum aðgerðum. Þær felast í því að Seðlabankinn láni frystideild Verðjöfnunarsjóðs sjáv- arútvegsins sem síðan greiði aftur veröbætur til frystihúsanna. Ef grip- ið verður til slíkra aðgerða vill Þor- steinn láta fylgja „samsvarandi að- haldsaðgerö til að koma í veg fyrir peningaþenslu". Þá bendir Þorsteinn á að Þjóðhagsstofnun sé að kanna möguleika á endurgreiðslu sölu- skatts í sjávarútvegi. „í framhaldi af þessum athugunum og með hliðsjón af horfum um fiskafla á næsta ári þarf að taka ákvarðanir um aðgerðir til að treysta rekstrar- stöðu* útflutnings- og samkeppnis- greina. Þar á meðal þarf að taka ákvörðun um hvort og hvemig heim- ild Seðlabankans til 3 prósent breyt- ingar á gengi krónunnar verði nýtt.“ Þetta eru lokaorðin í plaggi forsæt- isráðherra. Niðurfærsla Steingríms Steingrímur Hermannsson lagði til bókunar á fundinum tillögur sínar um niðurfærslu sem gilda skyldi í sex mánuði. í tillögunum kemur fram að Fram- sóknarflokkurinn vildi lækka laun um 9 prósent með lögum. Samtímis ætti að lækka vöruverð, gjaldskrár og verðlag allrar opinberrar þjón- ustu með lögum. Bæði nafnvextir og raunvextir skyldu lækkaðir meö til- skipun Seðlabankans, „til dæmis þannig að hámarksávöxtun innláns- fiár verði ákveðin 1 eða 2 af hundr- aði og vaxtamunur verði ákveðinn. Ef heimildir í 9. grein Seðlabanka- laga eru ekki taldar nægja verði aflað viðbótarheimilda með lögum.“ Steingrímur vildi afnema láns- kjaravísitölu einum mánuði eftir að niðurfærslan hæfist eða þegar verð- bólga færi undir 10 prósent. Fjár- magnstekjur umfram þá ávöxtun sem Seðlabankinn ákveöur skyldu skattlagðar. Til að framfylgja þessu yrði innlánsstofnunum gert skylt aö veita skattayfirvöldum upplýsingar. Verðbréf yrðu gerð skráningarskyld svo hægt yrði að fylgjast með eig- endaskiptum á þeim. Samhliöa niðurfærslunni vildi Steingrímur aðgerðir til þess aö slá á þenslu. Hann setti fram kröfu um hallalaus fiárlög á næsta ári, sam- drátt í opinberum framkvæmdum, bæði hjá ríki og sveitarfélögum, tak- mörkun á erlendum lántökum og frestun húsnæðislána eins og frekast væri unnt. Þá vildi Steingrímur lög sem heimiluðu aö leggja skatt á nýjar framkvæmdir. Alþýöuflokkurinn vill frysta allt til áramóta Ráðherrar Alþýðuflokksins lögðu fram á fundinum tfllögur um „tafar- lausar ráðstafanir í efnahagsmál- um“. Með tillögunum fylgdu drög að nýjum bráðabirgðalögum og sam- þykktum ríkisstjómarinnar um verðstöövun og vexti. Alþýðuflokkurinn vill að yfir- standandi verðstöðvun gildi til loka ársins. Laun, búvöruverð og fiskverð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.