Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Blaðsíða 8
8- FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988. WJRARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS ÚTBOÐ Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar- andi: RARIK 88012. Ræsting á skrifstofuhúsnæði á Lauga- vegi 118. Opnunardagur: Þriðjudagur 27. september 1988 kl. 14.00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis- ins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuó á sama stað aó viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með mánudeginum 12 sept. 1988 og kosta kr. 300 hvert eintak. ♦ Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík AUGLÝSING um endurgreiðslu söluskatts af ábyrgðartryggingu ökutækja í eigu fatlaðra Samkvæmt heimild í lögum um söluskatt hefur ráðu- neytið gefið út reglugerð um endurgreiðslu sölu- skatts af iðgjöldum ábyrgðartryggingar bifreiða í eigu fatlaðra. Rétt til endurgreiðslu eiga þessir: 1. Örorkulífeyrisþegar (75% örorkumat eða meira). 2. Örorkustyrkþegar lífeyristrygginga og slysatrygg- inga (50-74% örorkumat). 3. Foreldrar barna sem njóta barnaörorkustyrkja samkvæmt lögum. 4. Foreldrar barna sem njóta greiðslna samkvæmt lögum um málefni fatlaðra. Umsóknir um endurgreiðslu skulu skráðar á eyðu- blöð sem Tryggingastofnun ríkisins lætur í té. Með umsókn skulu fylgja kvittanir tryggingarfélags fyrir greiðslu iðgjalds ábyrgðartryggingar. Nánari upplýsingar og eintak reglugerðar má fá hjá Tryggingastofnun ríkisins og umboðum hennar. Reykjavík, 6. september 1988. Fjármálaráðuneytið ni RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR STARFSFÓLK ÓSKAST Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar að ráða starfsmenn í eftirtalin störf: Loftlínulagnir/götuljós. Óskað er eftir rafvirkjum eða línumönnum. Gagnavinnsla. Óskað er eftir starfsmanni með reynslu við tölvuvinnslu. Bókhald. Óskað er eftir starfsmanni í bókhald með bókhaldsþekkingu. Aðstoðargjaldkeri. Óskað er eftir starfsmanni með reynslu i skrifstofustörfum. • Birgðavörður. Óskað er eftir starfsmanni með raf- virkjamenntun. Rafmagnseftirlit. Krafist er menntunar rafiðnfræð- inga. Rafmagnsveita Reykjavíkur býður upp á gott starfs- umhverfi í tæknivæddu fyrirtæki. Mötuneyti á staðn- um. Umsóknarfestur um ofangreind störf er til 19. sept. nk. og ber að skila umsóknum til starfsmannastjóra á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofu Rafmagnsveitunnar að Suðurlandsbraut 34. Upplýsingar um störfin veitir starfsmannastjóri í síma 686222 kl. 10-12 alla daga. Starfsmannastjóri Utlönd Bráðabivgða- stjóm í Burma Á meðan hálf milljón manna safnaðist saman í Rangoon i Burma í gær efndu landar þeirra í Bangok í Thailandi til mótmæla fyrir utan sendiráð Bgrma þar í landi. Simamynd Reuter Leiðtogar stjórnarandstöðunnar í Burma hafa myndað bráðabirgða- stjórn og hersveitir hafa gert upp- reisn gegn sósíalistaflokknum að því er stjórnarerindrekar í Rangoon sögðu í morgun. Fyrrum forsætisráðherra landsins, U Nu, tilkynnti um myndun bráða- birgðastjórnarinnar og boðaði til kosninga þann 9. október. Haft er eftir íbúum í Rangoon að rúmlega hundrað vopnaðir hermenn úr flughernum hafi gengið til liðs við mótmælendur gegn stjórninni og að þeir væru með þeim á háskólalóð í borginni. Nokkrir úr sjóhernum eru sagðir hafa tekið þátt í fjöldagöngunni í gær þegar um hálf milljón manna flykkt- ist út á götur höfuðborgarinnar og stjómarerindrekar segja að íjöldi hermanna hafi gengið til hðs við mótmælendur í Mandalay, næst- stærstu borg Burma. Tvö hundruð starfsmenn flughers- íns sáust á leið til félaga sinna á há- skólalóðinni í Rangoon en þeir voru stöðvaðir af vopnuðum hermönnum. Hefur herinn hótað að skjóta starfs- mennina ef þeir fara inn fyrir visst svæði. Að sögn stjórnarerindreka voru borgarar að biðja hermennina um að hleypa ekki af skotum. Snemma í morgun hafði engum skotum verið hleypt af en mikil spenna lá í loftinu. U Nu, sem nú er forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar, var steypt af stóh árið 1962. Kvaðst hann enn vera löglegur forsætisráðherra landsins samkvæmt stjómarskránni og að hann myndi bjóða sig fram til kosninga. Mótmælaalda hefur risið hátt í Burma undanfarna mánuði og hafa tveir leiðtogar farið frá vegna henn- ar. Hinn einráði sósíahstaflokkur með síðasta leiðtoga hans, Maung Maung, í broddi fylkingar hefur þó reynt að halda í völdin th hins síð- asta. U Nu hvatti aðra frambjóðendur th að senda nöfn sín th dagblaða og að setja upp kosningaauglýsingar víðs vegar um landið. Almenningur var hvattur til að halda fjöldafundi og velja sér fulltrúa. Útvarpið í Rangoon, sem er síðasta opinbera stofnunin sem stjórn sós- íahstaflokksins hefur yfirráð yfir, minntist í fréttatíma sínum í morgun ekkert á fjöldagönguna í gær og alls- herjarverkfallið. Bráðabirgðastjórnin segir að mót- mælendur muni koma saman á mánudaginn til þess að reyna að koma í veg fyrir neyðarráðstefnu. sósíalistaflokksins. Fjöldagöngur hafa verið bannaðar meðan á ráð- stefnunni stendur. Reuter Yfirheyrslur vegna blóðbaðs Ættingjar meðlima Irska lýðveldishersins sem skotnir voru til bana á Gí- braltar í mars síðastliðnum. Yfirheyrslur fara nú vegna aðgerðar bresku hermannanna. Símamynd Reuter Rannsókn réttarlæknis hefur leitt í ljós aö breskir, óeinkennisklæddir hermenn hafi skotið á óvopnaða meðhmi írska lýöveldishersins eftir að þeir höfðu fallið deyjandi til jarð- ar. Atvikið átti sér stað á Gíbraltar í mars síðastliðnum. Rannsókn fer nú fram á því hvort aðgerð bresku hermannanna hafi verið lögleg og fyrir réttinum í gær var aðallega fjallað um sundurskotin líkin, dauðateygjur skæruliöanna og blóði drifinn fatnað þeirra. Að sögn vitna reyndi einn skæru- liðanna að flýja eftir að hafa orðið var við hermennina en hann var skotinn á stuttu færi. Hermennimir segjast hafa verið þeirrar trúar að meðhmir írska lýð- veldishersins hafi verið vopnaðir og þeim hafi verið tahn trú um að þeir hefðu komið fyrir sprengju í bíl á Gíbraltar. Reuter Tugir farast í flugslysi Fiugvél frá Víetnam hrapaði í ir. hefðu verið um borö en samkvæmt þrumuveöri rétt fyrir lendingu á Flugvéhn, sem var smíðuð í Sov- frásögn starfcmanns víetnamsks fiugvellinum í Bangkok í morgun. étríkjunum og var af gerðinni TU- flugfélags er rými fyrir áttatíu far- Aö minnsta kosti sjötiu og fjórir 134, var á leið frá Hanoi. Brotnaði þega um borö í slikum vélum og biðu bana, aö því er talsmaður fiug- véhn í þrennt og brak og lík voru sex manna áhöfn. vailarins greindi frá. á víð og dreif á slysstaðnum. Fiugvéiin hrapaöi á akur um sex Sex manns komust iifs af úr fiug- í fyrstu fréttum af slysinu var kílómetrafyrirnorðanflugvöllinn. slysinu en eru þó alvarlega slasað- ekki greint frá því hversu margir Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.