Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Blaðsíða 32
FRETT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, ' hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hveri viku greið- ast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Rítstíórn - Augtýsingar - Áskrift > Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUFS 9. SEPTEMBER 1988. Nauðungaruppboð á Hótel Örk í dag: Hollenskt fyrirtæki hefúr gert tilboð í 49 piosent kaupverðið 164 milljórar króna „HoUenskt stórfyrirtæki hefur gert tilboð í 49 prósent hlutafjár í Hótel Örk h/f. Tilboðinu fylgja ákveðnir skilmálar sem er okkar að leysa. Þeir eru tilbúnir aö kaupa og ég vonast til að okkur takist að uppfylla skilmálana/ Þeir eru komnir inn með tærnar og því er okkar að hleypa hælunum inn lika,“ sagði Helgi Þór Jónsson, eig- andi Hótel Arkar. í dag veröur annað nauðungar- uppboöið á Hótel Örk í uppboös- rétti Árnessýslu. Pari það fram hefur Helgi Þór fjórar vikur til að ganga að skilmálum Hollending- anna. Fjórum vikum eför aðra nauðungarsölu er þriðja og síðasta sala. Henni verður ekki frestað. „Fyrirtækið, sem heitir Handl- ings Company b/v, hefur verið með demantavinnslu í Suöur-Afríku. Þaö er mjög stórt og ræöur yfir miklu fjármagni. Það geröi mér til- hoð þegar ég hafði selt ferðaskrif- stofum í Vestur-Þýskalandi tuttugu og fimm herbergi samfellt í þrjátíu og sex mánuði. Þaö er í framhaldi af markaðssetningu okkar sem heilsuhótel. Tilboöiö er með þeim fyrirvara að stjórn hollenska fýrir- tækisins á eftir að samþykkja þaö. Framkvæmdastjórinn skrifaði undir meö þessum fyrirvara. Þetta er aðeins formsatriöi og ég tek fullt mark á þessu,“ sagði Helgi Þór Jónsson. Samkvæmt nýlegu mati á Hótel Örk er uppboðsverð þess 235 millj- ónir og mat á áhvílandi skuldum var305milljónirkróna. Samkvæmt tilboði Hollendinganna er söluverð Hótel Arkar 335 milljónir eða 100 milljónum hærra en uppboðsverö samikvæmtfyrrnefhdumati -sme Svefheyjamáliö: 'Dómsrann- sókn hafin - aðalvitmn erlendis Dómsrannsókn í svokölluðu Svefn- eyjamáli hófst hjá Sakadómi Hafnar- fjarðar í gær. Bæði ákærðu mættu fyrir réttinn. Aðalvitnin tvö eru er- lendis. Önnur stúlkan er flutt af landinu. Óvíst er hvaða áhrif það hefur í málinu. Líklegt er að að ein- hveijar taíir kunni að verða á með- ferð málsins. Mikið ber á mUli vitna og ákærðu ' Töllum veigamestu atriðum ákær- Tæplega ellefu mánuðir eru Uðnir frá því ákært var í máUnu. Dómari í Svefneyjamáhnu er Guðmundur L. Jóhannesson. -sme LOKI Er ekki rétt að „arka“ á þetta uppboð? Skákmótið í Sochi: Veðrið á morgun: Skýjað og víðaþoku- súld Á morgun verður austan- og norðaustangola víöast hvar á landinu, skýjað um allt land og víða þokusúld viö norður- og austurströndina. Sunnanlands verður rigning. Hitinn á landinu verður á bilinu 6-10 stig. SHi Harður árekstur varð kl. 9 í morgun á Vesturlandsvegi við Vog þegar tveir bílar rákust saman. Báðir bílarnir skemmdust mjög mikið en ökumennirnir voru einir í bílunum. Það þurfti að beita klippum til að ná öðrum manninum út úr bílnum en hann mun hafa verið eitthvað slasaður. Hinn ökumaðurinn slapp betur. DV-mynd S Jón L. efstur Jón L. Árnason stórmeistari hefur byijað mjög vel á skákmótinu í Sochi við Svartahaf en eftir 5 umferðir var hann efstur með 3 Vi vinning. Helgi Ólafsson stórmeistari var með 2'A vinning en hann var búinn að gera jafntefh í öllum sínum skákum. Hann mun þó hafa haft betri stöðu í tveimur skáka sinna. í 5. umferð gerði Jón L. jafntefli við Lev Polugaevsky sem er stigahæsti maður mótsins. Jón L. hefur unnið skákir sínar við sovéska stórmeistar- ann Vaiser og Júgóslavann Drasko. Hann hefur hins vegar gert jafntefli við sovésku stórmeistarana Psakhis og Holmov. Sovésk skákmót eru ákaflega hæg og þung í vöfum en 6. umferð verður tefld á morgun. Mótið hefur fariö rólega af stað en þó verið hart barist í flestum skákum. 11 stórmeistarar tefla á mótinu en þátttakendur eru 14. Mótið er í 12. styrkleikaflokki en má þó ekki miklu muna að það nái 13. flokki. Allir stórmeistararnir, fyr- ir utan einn, eru með yfir 2500 Elo- stig sem sýnir vel hve jafnt mótið er. Þess má geta að erlendum skák- mönnum gengur yfirleitt mjög illa á mótum í Sovétríkjunum þannig að frammistaða þeirra félaga lofar góöu. -SMJ Skákmótið í Tilburg: Jafntefli hjá Jóhanni Jóhann Hjartarson gerði jafntefli við Jan Timman frá Hollandi í 2. umferö Interpolis skákmótsins í gær. Jóhann hafði hvítt og tefldi Timman upp á jafntefli sem varð og raunin í 38. leik. Önnur úrslit urðu þannig að Karpov vann Van der Wiel, Short vann Portisch og jafntefli gerðu Hiibner og Nikolic. Tvöfóld umferð er tefld á mótinu en í 3. umferö teflir Jóhann við Portisch og hefur svart. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.