Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988.
9
Hér er búið að ræsa mótor á Pershing II eldflaug í Texas í gær. Þetta er
fyrsta skrefið i eyðileggingu þessara flauga. Simamynd Reuter
Útlönd
Eldur i
farþegaferju
Björg Eva Eriendsdóttir. DV, Osló:
Eldur varð laus í farþegaferjunni
Holgeiri danska sem var á leið frá
Danmörku til Osló í nótt Um tvö
hundruö farþegar voru um borö í
fetjunni en engan mann sakaði.
Ferjunni tókst að komast að landi
við Horten við OslóQörð þar sem
allt tiltækt brunaliö og sjúkrabílar
og lögregla biðu hennar.
Klukkan var hálfsex um morgun
þegar Holgeir danski lagðist að
bryggju í Horten og um hálfáttaley-
tið var búið að koma öllum far-
þegunum í land. Siökkviðið var þá
vel á veg komið með að ráða niður-
lögum eldsins sem kom upp í mat-
sal fetjunnar.
Eyðing
kjarnorku-
flauga
hafin
Bandaríkjamenn eyðilögðu í gær
fyrstu kjamorkueldflaugamar í
samræmi við samninginn milli Sov-
étríkjanna og Bandaríkjanna um
eyöingu á meðaldrægum eldflaug-
um.
Eyðileggingin fór fram í Kamack í
Texas og viðstaddir vom, meðal ann-
arra, George Bush, varaforseti
Bandaríkjanna, og fulltrúar Sovét-
ríkjanna.
Fyrstu eldflaugamar, sem voru
eyðilagðar, voru af Pershing I og n
gerð og fór eyöileggingin þannig
fram að fyrst vom mótorar flaug-
anna settir í gang og því næst voru
þeir eyðilagðir í málmpressu.
í gær var einnig byrjað að flytja
eldflaugar, sem staðsettar hafa verið
í Bretlandi, til Bandaríkjanna, þar
sem þær verða eyðilagðar.
Þetta eru merkilegir atburðir fyrir
þær sakir að í fyrsta skipti í sögunni
hafa stórveldin haflð eyðileggingu
kjamorkuvopna samkvæmt gagn-
kvæmum samningum og undir gagn-
kvæmu eftirliti.
Reutcr
Grænfrið-
ungarokk
í Moskvu
Talsmenn grænfriöunga í Bret-
landi sögðu í gærkvöldi að samtökin
myndu gefa út rokkhljómplötu í
Moskvu á næsta ári. Sögðu þeir að
þetta yrði í fyrsta skipti sem vestræn
rokkhljómplata væri fyrst gefin út í
Sovétríkjunum.
Á hljómplötunni munu meðal ann-
arra The Pretenders, Simple Minds,
Talking Heads, Brian Ferry, Euryth-
mics og U2 flytja hljómlist sína. Hún
verðu gefm út samtímis á Vestur-
löndum.
Reuter
Churbanov
játar
Ymi Churbanov, tengdasonur
Brésnevs, sem nú er fyrir rétti í
Moskvu sakaður um mútuþægni og
spillingu í embætti sem aðstoðarinn-
anríkisráðherra, játaði í gær að hafa
misnotað aðstöðu sína sem háttsett-
ur embættismaður, en hann neitaði
meö öllu ásökunum um mútuþægni.
Aðrir sakbomingar við réttarhöld-
in játuðu flestir mútuþægni en ekki
í jafnmiklum mæli og haldið er fram
í ákæruskjalinu.
FRA KR. 517.000,-
mm
SUNNY ER FAANLEGU
SUNNY 3JA DYRA - SUNNY 4RA DYRA,
Ðl FRAMHJÓLA- OG FJÓRHJÓLADRIFIN
SUIfSIY 5 DYRA - SUNNY COUPÉ, SPORTBÍLL,
SUNNY SKÍTBÍLL, BÆÐI FRAMHJÓLA- OG FJÖRHJÓ
G
ADRIFINN
AFGREITT STRAX - JAFNVEL A MEÐAN ÞU
ÐUR
SSAN
SUNNY
3JA ÁRA ÁBYRGÐ
KOMDU OG ÍPJALLAÐU VIÐ OKKUR ÞVl KJÖRIN ERU HREINT I
BÍLASÝIN NG LAUGARDAG OG SUNNUDAC
ENDANLEG
KL. 2-5
Ingvar
| Helgason hf.
sýningarsalurinn,
Rauðagerði
Ö) 91-3 35 60
Reuter