Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Síða 10
10
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988.
Útlönd dv
riki Bandarikjanna?
51.
Gamla slagorðið úr sjálfstæðis-
baráttu Ameríkana, „Engin skatt-
heimta án fulltrúa á þingi“, er kom-
ið á kreik á nýjan leik.
Slagorðið, sem varð nýlendunum
hvatning til aö heíja uppreisn gegn
breska kónginum fyrir rúmum tvö
hundruð árum, þjappar nú saman
íbúum höfuðborgar Bandaríkj-
anna, Washington D.C., sem eru
ekki sáttir við að þurfa að borga
skatta til alríkisstjórnarinnar án
þess að eiga fulltrúa með atkvæðis-
rétt á þingi.
Markmið þeirra er einnig sjálf-
stæði, að breyta mestu af því sem
núna heitir Columbia umdæmi
(District of Columbia) í ríki sem
kaliað verður Nýja Columbia (New
Columbia) og hefði sömu réttindi
og hin ríkin flmmtíu.
„Þetta er ekki sanngjarnt. Við
erum eina lýðræðisríkiö í heimin-
um sem neitar íbúum höfuðborgar
sinnar um fulltrúa með atkvæðis-
rétt á landsþinginu," segir Walter
Fauntroy, sem er fulltrúi umdæm-
isins á þingi, án atkvæðisréttctr.
Demókratar vilja hjálpa
Demókratar segja að þeir muni
leggja málstað höfuðborgarinnar
gott lið ef frambjóðandi þeirra,
Michael Dukakis, sigrar í forseta-
kosningunum og áframhald verður
á meirihluta þeirra á þingi.
Hvert ríki Bandaríkjanna hefur
tvo öldungadeildarþingmenn og
fjöldi fulltrúadeildarþingmanna er
í samræmi við fólksfjölda í hverju
ríki.
Ef Nýja Columbia verður fimm-
tugasta og fyrsta ríkið munu demó-
kratar að líkindum hljóta báða öld-
ungadeildarþingmenn ríkisins, og
það gæti tryggt meirihluta þeirra í
öldungadeildinni til frambúðar.
Einn af þeim sem talinn er líkleg-
ur til aö verða annar af öldunga-
deildarþingmönnum hins nýja rík-
is er Jesse Jackson sem í vor varð
í öðru sæti á eftir Dukakis í for-
kosningum demókrata.
Um 70% af íbúum Washington-
borgar eru blökkumenn, þar sem
megnið af því hvíta fólki, sem starf-
ar í borginni, býr í nágrannaríkj-
unum, Maryland og Virginia.
Loforð um stuðning við óskir
höfuðborgarinnar í þessum efnum
var eitt af því sem Jackson kreisti
út úr Dukakis er þeir sömdu frið á
flokksþingi demókrata í júlí.
„Þetta var hluti af samkomulag-
inu,“ segir Sharon Pratt Dixon,
gjaldkeri Demókrataflokksins og
stuðnjngsmaður Jacksons.
„Þetta myndi stórléga bæta stööu
svartra í samfélaginu og með
stuðningi Dukakis forseta gætum
við náð að snúa nokkrum þijósk-
um atkvæðum okkur í hag,“ segir
Dixon, sem líklega býður sig fram
til borgarstjóra Washingtonborgar
éftir tvö ár.
Breyttar forsendur
Þegar Bandaríkjaþing valdi sér
þingstað fyrir tvö hundruð árum
hefði fáum komið til hugar að borg-
in ætti eftir að verða sautjánda
stærsta borg Bandaríkjanna með
fleiri en sjö hundruð þúsund íbúa,
sem er meiri íbúafjöldi en í ríkjun-
um Alaska, Delaware, Vermoní og
Wyoming.
„íbúar Columbia umdæmis
borga meira en einn milljarð
Bandaríkjadollara á ári í skatta til
alríkisstjórnarinnar, og það er
meira en níu ríki skila. Skattar á
hvern einstakling eru með þeim
hæstu í Bandaríkjunum og í Víet-
namstríðinu féllu hlutfallslega
flestir frá Washingtonborg, en samt
erum við ekki fullkomnir Banda-
ríkjamenn," segir Fauntroy.
Aukin réttindi í gegnum árin
í gegnum árin hafa réttindi íbúa
höfuðborgarinnar veriö aukin
verulega. Þeir mega nú kjósa í for-
setakosningum og fá að hafa sinn
eigin borgarstjóra og borgarstjórn,
þótt það sé þingið sem endanlega
tekur ákvarðanir um öll mál í borg-
inni.
Þingið samþykkti einnig breyt-
ingu á stjórnarskránni, sem fól í
sér að íbúar höfuðborgarinnar
fengju fulltrúa á þing eftir sömu
reglum og að um eiginlegt ríki
væri aö ræða, en sú breyting varö
til einskis þegar tilskilinn fjöldi
ríkja fékkst ekki til að staðfesta
hana.
Það sem einna helst kemur í veg
fyrir það að Columbia umdæmi fái
ríkisréttindi er það að íbúar þar
þykja of hallir undir demókrata og
vinstri stefnu.
Það er hins vegar mun einfaldara
að samþykkja að umdæmið verði
gert að nýju ríki, því að til þess
þarf einungis einfaidan meirihluta
í báðum deildum þingsins. Vanda-
máhð er hins vegar aö ekki er til
meirihluti fyrir slíkri samþykkt á
þingi eins og er.
Dukakis lausnin?
Forystumenn umdæmisins
hugsa sér gott til glóðarinnar ef
Michael Dukakis kemst til valda,
því að þá treysta þeir því að Ðukak-
is muni beita sér fyrir því aö fá
þingmenn til að ljá lagafrumvarpi
um hið nýja ríki atkvæði sín.
Þaö er þó óvíst aö það takist því
að andstaða við nýja ríkið er megn
á þingi. Meðal raka, sem notuð
hafa verið, eru þau að ríkið geti
ekki á nokkurn hátt staðið undir
sér fjárhagslega, að ekki sé til í
umdæminu grundvallaraðstaða,
sem hvert ríki þarf að hafa, og nefnt
því til stuðnings að um tvö þúsund
sakamenn frá umdæminu séu í
fangelsum annars staðar í ríkinu.
Einnig er það nefnt að Columbia
umdæmi standi á landsvæði sem á
sínum tíma var fengið að gjöf frá
Maryland og Virginia.
Reuter
íbúar í Washington, höfuðborg Bandarikjanna, vonast nu til að Michael Dukakis muni veita þeim fulltingi sitt
í baráttunni fyrir ríkisréttindum. ef hann nær kjöri sem forseti Bandaríkjanna. Dukakis féllst á að gera slíkt eftir
að Jesse Jackson fór fram á það á flokksþingi demókrata í júli síðastliðnum. Simamynd Reuter
Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð, á neðangreindum tíma: Baldursgata 7 A, hluti, .þingl. eig. Gunnar Heiðdal, mánud. 12. sept. ’88 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík. Karfavogur 44, aðalhæð, tald. eig. Gunnlaugur Kristjánss. og Huld Ingi- marsd, mánud. 12. sept. ’88 kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Laugavegur 24, 3. hæð, þingl. eig. menntamálaráðherra v.kvikmynda- sjóðs, mánud. 12. sept. ’88 kl. 14.45. Uppboðsbeiðandi er Eggert B. Ólafs- son hdl. Reykás 37, 3. hæð, þingl. eig. Bjöm Halldórsson og Ólöf Asgeirsdóttir, mánud. 12. sept. ’88 kl. 10.45. Uppboðs- beiðandi er Verslunarbanki íslands hf.
Beykihh'ð 25, þingl. eig. Jóna Sigr. Þorleiísdóttir, mánud. 12. sept. ’88 kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er Sigurður G. Guðjónsson hdl.
Kelduland 15, 1. hæð t.v„ talinn eig. Friðrik Stefánsson, mánud. 12. sept. ’88 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Meðalholt 14, hluti, þingl. eig. Þórir Magnússon og María Jóhannsdóttir, mánud. 12. sept. ’88 kl. 15.00. Uppboðs- beiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Rjúpufell 27, 4. hæð t.v., þingl. eig. Sigurbjöm Bjamason, mánud. 12. sept. ’88 kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er Klemens Eggertsson hdl.
Deildarás 15, þingl. eig. Ólafúr Vignir Sigurðsson, mánud. 12. sept. ’88 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru Páll Ar- nór Pálsson hrl., Steingnmur Eiríks- son hdl„ Búnaðarbanki íslands, Veð- deild Landsbanka íslands, Lands- banki íslands, Verslunarbanki íslands hf„ Tryggingastofhun ríkisins, Magn- ús Fr. Amason hrl., Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl., Sveinn H. Valdi- marsson hrl„ Ámi Einarsson hdl., Sig- urður A. Þóroddsson hdl, Guðjón Ármann Jónsson hdl., Sigríður Thorlacius hdl., Guðmundur Jónsson hdl. og Gjaldheimtan í Reykjavík. Espigerði 14, 3. hæð t.h., þingl. eig. Gunnar Malmquist, mánud. 12. sept. ’88 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Fumgerði 21, 3. hæð t.v., þingl. eig. Helga Kemp Stefánsdóttir, mánud. 12. sept. ’88 kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík.
Kleifarsel 6,1. hæð, þingl. eig. Baldur Baldursson og Guðrún Baldursd., mánud. 12. sept. ’88 kl. 14.45. Uppboðs- beiðendur em Gjaldheimtan í Reykja- vík, Veðdeild Landsbanka íslands, Innheimtustofnun sveitarfélaga, Guð- mundur Kristjánsson hdl., Lands- banki íslands, Verslunarbanki íslands hf. og Þórunn Guðmundsdóttir hrl. Spóahólar 20, 3. hasð merkt A, talinn eig. Guðjón Garðarsson, mánud. 12. sept. ’88 kl. 11.00. Uppboðsbeiðendur em Búnaðarbanki Islands, Gjald- heimtan í Reykjavík,.Veðdeild Lands- banka Islands, Tryggingastofnun rík- isins og Verslunarbanki íslands hf.
Mímisvegur 4, þingl. eig. Kristín Kjartansd, mánud. 12. sept. ’88 kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur em Gjald- heimtan í Reykjavík, og Þórunn Guð- mundsdóttir hrl.
Neðstaberg 5, þingl. eig. Finnbogi G. Kristjánsson, mánud. 12. sept. ’88 kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur em Eggert B. Ólafsson hdl., Lögmenn Hamra- borg 12, Gjaldheimtan í Reykjavík og Veðdeild Landsbanka íslands. Öldugi-andi 3, íb. 01-04, þingl. eig. Ámi Sævar Gunnlaugsson, mánud. 12. sept. ’88 kl. 11.30. Uppboðsbeiðendur em Guðni Haraldsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Veðdeild Landsbanka íslands, Landsbanki íslands, Inn- heimtustofiiun sveitarfélaga, Sigurm- ar Albertsson hrl., Ásgeir Þór Ama- son hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl. og Skiptaréttur Reykjavíkur. BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK
Grettisgata 61, hl., þingl. eig. Ólafúr Lárus Baldursson, mánud. 12. sept. ’88 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík. Krummahólar 6, 1. hæð DE, þingl. eig. Elsa Bjamadóttir og Magnús Loftsson, mánud. 12. sept. ’88 kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er Ólafúr Axelsson hrl.
Álftahólar 4, 2. hæð C, þingl. eig. Anna María Baldvinsdóttir, mánud. 12. sept. ’88 kl. 11.00. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Háteigsvegur 10, 1. hseð, þingl. eig. Þórir H. Öskarsson, mánud. 12. sept. ’88 kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Langholtsvegur 180,1. hæð, þingl. eig. Guðbjörg Þórðardóttir, mánud. 12. sept. ’88 kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er Guðjón Ármann Jónsson hdl. Nönnugata 14,3.t.h„ þingl. eig. Þórð- ur Vigfússon, mánud. 12. sept. ’88 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimtan í Reykjavík.