Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Page 17
16
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988.
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988.
33
Iþróttir
Enn unnu
þær frönsku
- þriðja og síðasta leikinn 17-14
íslenska kvennalandsliðiö í hand-
knattleik tapaði þriðja og síðasta
leiknum gegn Frökkum sem háður
var aö Varmá í Mosfellssveit í gær-
kvöldi Frönsku stúlkurnar unnu
17-14 eftir aö hafa haft 12-9 yfir í
hálfleik.
■ íslenska liðið byrjaði mjög vel og
komst í 6-2. Þá kom slæmur kafli,
það skoraði ekki í 11 minútur og stað-
an breyttist í 6-7, Frökkum í vil. ís-
lensku stúlkurnar náðu sér aöeins á
strik og skoruðu næstu þrjú mörk
en það dugði skammt því þær
frönsku gerðu fimm síðustu mörk
hálfleiksins.
Liðunum gekk illa að skora í seinni
hálfleik. Frakkland var alltaf yfir og
íslensku stúlkurnar höfðu því á
brattann að sækja. Með góðum kafla
um miðjan hálfleikinn minnkuðu
þær muninn í eitt mark, 15-14, en
herslumuninn vantaði og Frakkland
gerði tvö síðustu mörk leiksins.
Vörn íslenska liðsins.var ágæt oft
á tíðum en átti í vandræðum með
snögg hraðaupphlaup Frakka. Sókn-
in var frekar bitlaus og þar þarf
margt að laga. Halla Geirsdóttir
varði markið í seinni hálfleik og stóð
sig vel, varði alls 9 skot. Guðríður
var góð í fyrri hálfleik en allan kraft
vantaði í hana í þeim síðari. Annars
var liðið allt jafnt.
Mörk íslands: Margrét Theodórs-
dóttir 5/3, Guðríður Guðjónsdóttir 4,
Inga Lára Þórisdóttir 2/1, Ósk Víðis-
dóttir 1, Guðný Gunnsteinsdóttir 1,
Kristín Pétursdóttir 1.
í næstu viku verður alþjóðlegt mót
hér á landi með þátttöku Spánar,
Portúgals og a- og b-liða íslands en
þetta eru allt þjóðir sem búa sig und-
ir C-keppnina i Frakklandi í október.
-ÁS
Nafn: Brynjar Kvaran.
Fæðingardagur/ár:
16. januar 1958.
Hæð: 1,86 m.
Þyngd: 84 kg.
Félag: Stjarnan.
DV kynnir
íslensku
ÓL-farana
Erfiðleikar
vegna meiðsla
Brynjar Kvaran er einn þriggja
markvarða íslenska liðsins sem
heldur utan til Seoul á sunnu-
dag. Hann er mjög leikreyndur
og á að baki 126 landsleiki.
Brynjar hefur þjálfaö og leikið
með KA á Akureyri síðustu tvö
keppnistímabil en ver mark
Stjömunnar á ný næsta vetur.
„Við markverðimir þrír
hugsum lítið um innbyrðis-
samkeppni. Það er vitanlega
þjálfarans að meta hveijir okk-
ar eru í besta leikforminu
hverju sinni og á sama hátt
hveijir em best fallnir til að
leysa það verkefni sem er á döf-
inni hverju sinni. Það hefur
vissulega áhrif á ákvörðun
þjálfarans hveijir mótheijamir
em.“
Þetta sagði Brynjar Kvaran í
samtah við DV í gær en hann
stóð þá í marki Islands gegn
Dönum.
„Sjálfur hef ég átt í erfiðleik-
um síðustu dagana vegna
þeirra meiösla sem ég hlaut á
Spáni fyrir nokkm. Ég vona
bara að þau verði að baki er við
spilum fyrsta leikinn í Seoul,“
sagði Brynjar.
Aðspurður sagði Bjami kröf-
ur íslensku þjóðarinnar htil
áhrif hafa á einbeitingu liðsins:
„Við erum vanir því að leika
undir álagi og þeim kröfum sem
til okkar em geröar. íslenska
liðið er ipjög leikreynt og ég
ætla að sá þáttur kunni að ráða
miklu þegar á hólminn er kom-
ið.“
Og Brynjar bætir við: „Hvað
verðlaunasætin varðar held ég
að ahar kröfur í því efni séu.
ansi langsóttar. Menn verða að
taka það með í reikninginn að
við þurfum að skjóta einni stór-
þjóð ref fyrir rass til þess eins
að halda okkur í hópi sex efstu
þjóða. Eigi verðlaun hins vegar
að vinnast þá þurfum við að
gera mun betur. Til að hreppa
bronsið þurfum við að leggja
tvær af þeim þremur stórþjóð-
um sem leika með okkur í riðli.
Og þá er björninn hreint ekki
unninn því þegar þar er komið
eigum við eftir að mæta einni
stórþjóðinni enn í sjálfum úr-
shtunum. Það er af þessum sök-
um sem ég tel allar hugleiðing-
ar um verðlaunasæti ansi lang-
sóttar," sagði Brynjar Kvaran.
JÖG
- pyt
• Sigursteinn Gislason, Skaga-
maður, hefur betur i baráttu við
Ungverjann Laszlo Szelpal á Akra-
nesvelli í gærkvöldi. Sigursteinn lék
þarna sinn fyrsta Evrópuleik eins
og margir félagar hans í liði ÍA.
DV-mynd Brynjar Gauti
I
.
fv/ .
; ■
■
■■
■
W &
Reynslulitlir
Skagamenn stóðu
sig með sóma
- nálægt sigri gegn Uipest Dozsa í UEFA-bikamum
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
Hið unga og reynsluhtla hð Skaga-
manna getur borið höfuðið hátt eftir
viðureign sína við Ujpest Dozsa frá
Ungverjalandi í UEFA-bikarnum hér
á Akranesi í gærkvöldi. Leikurinn
endaði með markalausu jafntefli en
bæði hð fengu nóg af tækifærum til
aö skora mörk, Skagamenn ekki
síðri, og meö örlítilh heppni hefðu
þeir getað sent þetta kunna ung-
verska félag í langa heimferð með
ósigur á bakinu. En það er ljóst að
róðurinn veröur erfiður hjá þeim í
Ungveijalandi eftir fjórar vikur -
pressan verður þó öll á ungverska
liðinu í þeim leik fyrst því tókst ekki
að skora mark á Skaganum í gær-
kvöldi.
Mikil barátta
Fyrri hálfleikur einkenndist af
mikihi baráttu en oft sáust þó góðir
leikkaflar. Ungveijar voru mun
meira með boltann og í upphafi náðu
þeir að pressa mjög á hina óreyndu
UEFA-bikarinn
lA-Ujpest Dozsa 0-6
„ Lið ÍA: Olafur Gottskálksson,
Öm Gunnarsson, Heimir Guö-
mundsson, Alexander Högnason,
Sigurður B. Jónsson, Mark Duffl-
eld, Sigursteinn Gíslason, Ólafur
Þórðarson, Karl Þórðarson, Har-
aldur Ingólfsson, Aöalsteinn Víg-
lundsson.
Liö Ujpest: Istvan Brockhauser,
Istvan Schneider, Josef Varga,
Andreas Szabo, Istvan Kozma,
Csaba Vojtekovszki (Mikos Teme-
svari 88. mín.), Lajos Schroth (Zolt-
an Klink 86. mín.), Laszlo Szelpal,
Istvan Baloch, Gyorgy Katona,
Ervin Kovacs.
Dómari: Michael Caulfield (ír-
landi).
Gult spjald: Heimir Guðmunds-
son.
Áhorfendur: 851 (rúmlega 1000
með boösmiðum).
þarna leikmenn ÍA en margir þeirra
voru að leika sinn fyrsta Evrópuleik.
Þeir Alexander Högnason, Mark
Duffield og Ólafur Gottskálksson
áttu stórleik í vörn og marki þó þetta
væri þeirra frumraun í Evrópu-
keppni. Þá vpru Haraldur Ingólfsson,
Karl Þórðarson og Ólafur Þóröarson
mjög góðir.
Á 12. mínútu fékk Haraldur Ing-
ólfsson boltann rétt utan vitateigs
Ujpest eftir góða sókn en skot hans
fór rétt framhjá eftir að markvörður-
inn hafði komið mjög vel út á móti
og lokað markinu. A 20. mín. átti
Karl Þórðarson mikla og góða rispu,
komst alveg aö markteigshorni og
ætlaði að gefa út á Aðalstein Víg-
lundsson sem var einn framan við
markið en Brockhauser markvörður
bjargaði meistarálega.
Frábær markvarsla Ólafs
Stuttu síðar pressuðu Ungverjarnir
mjög stíft og því lauk með því að
Mark Duffield skallaði yfir mark ÍA,
nánast af marklínu. Síðan varði Ólaf-
ur .Gottskálksson meistaralega í tví-
gang frá Baloch sem komst í bæði
skiptin á auðan sjó í vítateig ÍA. Á
lokamínútu hálfleiksins gaf Karl á
Aðalstein sem var í dauðafæri en
misheppnað skot hans fór víðsfjarri
markinu.
Skemmtilegri seinni hálfleikur
Síðari hálfleikur var mun
skemmthegri og náðu Skagamenn oft
að sækja stíft aö hinum leikreyndu
Ungveijum og oft skall hurð nærri
hælum við mark þeirra síðarnefndu.
Á 50. mín. vildu Skagamenn fá víta-
spymu þegar Karl þrumaði á mark
Ujpest en boltinn stöðvaðist á hönd
eins varnarmanna og barst þaðan í
burtu. Mínútu síðar varði Brock-
hauser af snihd frá Haraldi sem var
í góðu færi í vítateignum.
Á 53. mín. fengu Ungverjar auka-
spymu úti við hliðarlínu og Katona
fékk boltann á markteig en skallaði
rétt yfir mark ÍA. Stuttu síðar tók
Baloch boltann af Sigursteini Gísla-
syni og náði að skjóta í þröngu færi
af vítateig en Ólafur varði mjög vel.
Mínútu síðar varði sá ungverski frá
Karli sem haíði leikið á þrjá varnar-
menn í röð.
Ólafur varöi glæsilega skot frá
Kozma á 74. mínútu. Á 78. mín. tók
Heimir Guömundsson aukaspyrnu,
sendi beint á Karl sem þrumaði við-
stöðulaust en Brockhauser varði af
snilld rétt einu sinni. Tveimur mín-
útum fyrir leikslok tók Haraldur
hornspyrnu, beint á höfuö Sigurðar
B. Jónssonar sem skallaði yfir í
þokkalegu færi.
Sigurður Lárusson
„Eg er mjög stoltur af strákunum.
Þeir léku mjög vel og gerðu allt eins
og fyrir þá var lagt. Við vildum ekki
sækja stífar en við gerðum því þá
hefði vömin opnast. Ungverjar voru
með marga fljóta leikmenn og því
mátti ekki taka of mikla áhættu,“
sagði Sigurður Lárusson, þjálfari ÍA,
í samtah við DV eftir leikinn.
J. Göröcs, þjálfari Ujpest
„Ég er mjög óánægður með leikinn
í heild, en sem þjálfari er ég sáttur
við úrslitin sem slík eins og leikurinn
spilaðist. Mér kom frammistaða liðs
ÍA mjög á óvart og er sérstaklega
hrifinn af Ólafi Þórðarsyni og Karli
Þórðarsyni sem eru mjög góðir leik-
menn. Ég tel að Skagamenn eigi
möguleika á að ná hagstæðum úrslit-
um gegn okkur í Ungverjalandi en
þess verður að gæta að í kvöld gat
ég aðeins teflt fram helmingnum af
mínu sterkasta liði. Ég býst við að
allir fastamennirnir geti verið með í
seinni leiknum. Aöstæðurnar í Ung-
veijalandi verða hði ÍA ekki mjög
framandi því okkar vöhur er svipað-
ur á stærð og sá sem við lékum á í
kvöld,“ sagði J. Göröcs í samtali við
DV.
Danir lagðir að velli
- íslendingar sigruðu Dani 21-20 í Seljaskóla í gærkvöldi
„Markvarslan og vörnin var
slök lengst af í fyrri háifleik. Þeg-
ar Einar fór að veija í markinu
fóru hlutirnir að gerast og við
tókum við stjóminni. Við erum
orðnir langþreyttir eftir stífar
æfingar. Það var slæmt að missa
niður fjögurra marka forskotið
undir lok leiksins en sigur vannst
engu að síðursagði Kristján
Arason.
„Nú stefhir hugurinn til Seoul.
Ég er viss um að þar eiga þjóðim-
ar eftir að beijast um stigin.
Keppnin á eftir aö verða hníftöfn
í báðum riðlunum.' Ég vona að-
eins aö hðið springi út á ólympíu-
leiktmum/' sagöi Krislján.
Guðjón Guðmundsson
„Ég er ánægður með sigurinn.
Við vissum aö þetta yrði erfitt.
Þetta er aht á réttri ieið og hðiö
verður í toppformiá ólympiuleik-
unum,“ sagöi Guöjón Guðmunds-
son, hösstjóri íslenska hðsins.
-JKS
„Eftir að Flugleiðamótinu lauk
hafa strákamir farið í gegnum mjög
erflðar æfingar og það er því óneitan-
lega þreyta í þeim. Það komu fram
bæði góðir og slæmir leikkaflar. Sér-
staklega lék hðið vel í síðari hálfleik.
Ég hef trú á að Bandaríkjamenn, sem
við mætum á ólympíuleikunum, séu
svipaðir að styrkleika og Danir þann-
ig að við getum lært ýmislegt af þess-
um leik. Eftir leikinn í kvöld þarfn-
ast hðið góðrar hvíldar. Eftir hvíld-
ina er ég viss um strákarnir standa
sig en liðið hefur aha burði til þess,“
sagði Bogdan Kowalcyk landshðs-
þjálfari í samtali við DV eftir að ís-
lendingar sigruðu Dani, 21-20, í
landsleik í handknattleik í íþrótta-
húsi Seljaskóla í gærkvöldi.
Leikurinn var liður í undirbúningi
landshðsins fyrir ólympíuleikana en
hðið heldur áleiðis til Seoul á sunnu-
daginn kemur. í leiknum gegn Dön-
um í gærkvöldi gætti töluverðrar
taugaspennu hjá íslenska liðinu
langt fram eftír fyrri hálfleik. Liðið
gerði mikil mistök, markvarslan var
nánast engin og óöryggið var upp-
málað. Þetta nýttu frískir Danir sér
th fulls. Eftir aðeins tíu mínútna leik
var staðan orðin 4-1 fyrir Dani. Is-
lendingar skoruðu fyrsta markið sitt
efir sex mínútna leik og var Kristján
Arason þar að verki úr vítakasti.
Smám saman batnaði leikur íslend-
inga til muna. Liðið keyrði upp hrað-
ann í leiknum, góð barátta náðist upp
í vörninni og forskot Dana minnkaði
óðfluga. Guðmundur Guðmundsson
minnkaði muninn í 5-6 með glæsi-
legu marki úr horninu. Danir höfðu
samt sem áður forystu allan hálfleik-
inn en í hálfleik var staðan 10-12.
íslendingar mættu tvíefldir til leiks
í síðari hálfleik og um miðja hálfleik
náði íslenska liðið að jafna, 14-14.
Einar Þorvarðarson fór loksins að
verja og við það hrökk leikur íslend-
inga í gang. Eftir þetta var íslenska
liðið ekki stöðvað. Að vísu kom upp
kæruleysi undir lokin og þá tókst
Dönum að laga stöðuna.
íslendingar geta gert miklu betur
en þeir sýndu í þessum leik. Liðið
stendur nú á tímamótum. Erfiðar
æfingar að undanfómu sitja í leik-
mönnum en þegar th Seoul er komið
tekur við nokkurra daga hvhd og á
henni þurfa strákarnir greinhega að
halda. Gaman var að sjá til Kristjáns
Arasonar í leiknum. Hann nálgast
óðum sitt gamla form, langskotin,
sem hann er frægur fyrir, yljuðu oft
áhorfendum í gærkvöldi. Hins vegar
vakti athygli að Alfreð Gíslaon skor-
aði ekki eitt einasta mark éftir að
hafa verið iðinn við kolann 1 undanf-
ömum landsleikjum. Alfreð bætti
það upp með sterkum vamarleik.
Danir hafa frísku liði á að skipa,
þó vantaði nokkra gamla jaxla í hð-
ið. Greinhegt er þó að Danir eru að
byggja upp hð með nýjum og ungum
leikmönnum sem eiga framtíðina
fyrir sér.
Mörk íslands: Kristján Arason 9/4,
Þorghs Óttar 3, Bjarki Sigurðsson 3,
Guðmundur Guðmundsson 2, Sig-
urður Gunnarsson 2, Ath Hhmars-
son 1, Geir Sveinsson 1.
Mörk Dana: Kim Jakobsen 4,
Flemming Hansen 4, Niels Kildelund
4, David Nilsen 3, Frank Jörgensen
3, Jens Erik Roepstorff 2, Kim Jensen
1.
• Stefan Serban og Marin Marin
frá Rúmeníu dæmdu leikinn sérlega
vel.
-JKS
• Kristján Arason átti mjög góðan leik gegn
Dönum í gærkvöldi.
Kúbumaður sló
Sjöberg við
- stökk fyrstur yfir 2,43 m í hástökki
Kúbumaðurinn Javier Sotomayor
sló Svíanum Patrick Sjöberg við í
gærkvöldi þegar hann setti nýtt
heimsmet í hástökki á móti í Sala-
manca á Spáni. Sotomayor stökk
fyrstur manna yfir 2,43 metra en met
Sjöbergs var einum sentímetra
lægra.
Ahorfendur í Salamanca skynjuðu
að heimsmet var í uppsighngu þegar
Sotomayor flaug yfir 2,40 metra í
fyrstu tilraun. Hann lét hækka rána
beint í 2,43 og fór yfir í annarri til-
raun. Sotomayor hafði fyrr í sumar
gefið th kynna að hann gæti náð
langt en þá vann hann tvívegis sigur
á Sjöberg. Hann verður 21 árs í okt-
óber en verður ekki meðal keppenda
á ólympíuleikunum í Seoul þar sem
Kúba tekur ekki þátt í þeim af póh-
tískum ástæðum.
-VS
Góð kóst hjá Guðna
Guðni Sigurjónsson úr Breiðabliki
náði frábærum árangri á meistara-
móti Reykjavíkur í frjálsum íþrótt-
um sem hófst á Valbjarnarvehi í
gærkvöldi. Hann stórbætti árangur
sinn í sleggjukasti, sigraði með 53,76
metra kasti sem er níundi besti ár-
angur íslendings í greininni frá upp-
hafi.
Guðni bætti sig líka í kúluvarpi,
kastaði 15,02 metra. Andrés Guð-
mundsson, HSK, náði einnig sínum
besta árangri, 15,25 m, en bróðir
hans, ólympíufarinn Pétur Guð-
mundsson, sigraði með 18,53 m kasti
sem er nokkuð frá hans besta.
-ÓU
íþróttir
Ótympíu-
stúfar
Bann vegna skuldar
Borötennishð Afrikuríkisins
Sierra Leone var í gær úthokað
frá keppni á ólympíuleikunum í
Seoul. Alþjóða borðtennissam-
bandið tók þessa ákvöröun á
þeim forsendum aö þaö hefur
ekki fengið árgjald frá Sierra
Leone í heh 25 ár!
Becker veröur meö
Vestur-þýska tennisstjaman
Boris Becker mun keppa í Seoul
en undanfarið hefur leikið vafi á
því vegna meiðsla á fæti. Becker
hefur verið i meöferð hjá lækni
knattspyrnuliösins Bayern
Munchen og sá hefur nú komið
honum í keppnishæft form.
Keppendur i minnihluta
Ríflega 200 manna sveit lagöi i
gær af stað frá Nígeríu áleiðis til
Seoul. Þetta er stærsti hópur sem
Afríkuríkið hefur sent á ólympíu-
leika en ekki er aht sem sýnist.
Keppendur eru nefnhega í minni-
hluta í hópnum, aðeins 80 talsins. , 3 -
Þjálfarar eru 35 en fararstjórar
samtals um 90!
Hvirfilbylur á leiðinni
Veðurfræðingar hafa spáð því að
hvirfhbylur muni fara hjá strönd
Pusan í Suður-Kóreu um svipað
leyti og keppni í siglingum á að
hefjast þar. Einn shkur myndi
ekki setja stórt strik í reikninginn
en fylgi fleiri í kjölfarið er hætta
á að keppnin raskist verulega.
Fréttastúfar
Dregið i deildabikar
í gær var dregið th 2. umferðar
enska dehdabikarsins í knatt-
spyrnu en þar er leikið heima og
heiman. Leikir, sem lið 1. deildar
eiga aðhd að, eru sem hér segir:
Noíts County - Tottenham, Lu-
ton - Burnley, Rotherham - Man.
Utd., Everton-Bury, Liver-
pool - Walsall, Lincoln - Sout-
hampton, Nott. Forest-Chester,
Blackpool - Sheff. Wed., Hull-
Arsenal, Derby - Southend,
Birmingham - Aston Viha, Sheíf.
Utd. - Newcastle, Sunderland -
West Ham, Norwich - Preston,
Mhlwah - Ghlingham, Middles-
boro-Tranmere, Barnsley-
Wimbledon, Bournemouth - Co-
ventry, QPR - Cardiff eða
Swansea, Northampton-Charl-
ton.
'<e
Fimm í bann
Fimm leikmenn 1. deildarinnar í
knattspyrnu taka út leikbann í
16. umferð hennar sem leikin
veröurr á morgun, laugardag.
Þaö merkilega er aö allir eru úr
KA og Leiftri sem einmitt mætast
á Akureyri. KA veröur án bræð-
ranna Jóns og Erlings Kristjáns-
sona og þjálfarans Guðjóns Þórð-
arsonar og hjá Leiftri eru í banni
þeir Steinar Ingimundarson og
Hörður Benónýsson. Keppnis-
tímabilið er búið hjá Jóni því
hann fékk þriggja leikja bann og
það era einmitt þijár umferðir
eftir í 1. deildinni.
KR-dagurinn
KR-dagurinn 1988 er á morgun,
laugardagiim 10. september. Á
félagssvæði KR er boðið upp á
fjölbreytta íþróttadagskrá sem
hefst kl. 13.00 og lýkur á sjötta
tímanum. Knattspyrna yngri
flokka verður í gangi ahan tím-
ann utanhúss og í íþróttasölun-
um veröur handknattleikur, fim-
leikar, borðtennis, badminton,
körfuboltí og síðast en ekki síst
pokahlaup milli dehdastjóma. Þá
verður glíma sýnd utanhúss.