Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1988, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988.
Útlönd
Özal vill fá páfann
Turgut özal, forsætisráöherra Tyrklands, heilsar hér Francesco Cos-
siga, forseta italíu, i heimsókn sinni í forsetahöllina i Róm.
Simamynd Reuter
Forsætisráöherra Tyrklands, Turgut Özal, sagöi Jóhannesi Páli páfa í
gær að land hans myndi fagna annarri páfaheimsókn.
Özal, sem er í fyrstu opinberu heimsókn sem tyrkneskur forsætisráö-
herra hefur farið í til Ítaiíu í fimmtíu og sex ár, sagði þetta í lok tuttugu
mínútna fundar sem hann átti með páfa í Vatíkaninu.
„Mínar bestu kveðjur til forsetans og þjóðarinnar," sagöi páfi á ensku
við Özal fyrir framan blaöamenn.
Forsætisráöherrann sagöi á móti aö Tyrkir vildu fá hann aftur í heim-
sókn.
Árið 1979 fór páfi í þriggja daga heimsókn þangað en 98% íbúanna er
múhameðstrúar ems og Ózal.
Síöar í gær átti Özal fund með Cossiga, forseta Ítalíu.
Vidbúnaður í ísrae!
ísraelskur landamæravöröur athugar hér skilrfki arabisks skólastráks
sem er á leió í skóla í austurhluta Jerúsalem. Símamynd Reuter
Mikiil viðbúnaöur er nú í ísrael vegna þess aö skólar eru að byrja og
arabískir námsmenn fá nú í fyrsta skipti leyfi til aö sækja arabíska skóla
í austurhluta Jerúsalem. Leitaö er á nárasmönnura og ströng gæsla er á
svæðum þar sem arabar fá að fara í skóla.
Spánverjar taka vlð forsæti
Felipe Gonzalez, forsætisráö-
herra Spánar, átti í gær fundi meö
Jaques DeLors, framkvæmdastjóra
stjórnarnefndar Evrópubandalags-
ins, um formennsku Spánverja í
Evrópubandalaginu en rööin kem-
ur að Spánverjum þann 1. janúar
1989.
Þeir neyttu saman hádegisveröar
í einrúmi og ræddu um þau verk-
efni sem þarf aö leysa áður en
Spánvetjar komast í forsæti í Evr-
ópubandalaginu svo og þau vanda-
mál sem blasa viö eftir að þeir setj-
ast í forsæti.
DeLors átti einnig fund í gær með
Juan Carlos Spánarkonungi.
Spánveijar eru tiltölulega nýir i
Evrópubandalaginu og því þykir
mikið ríða á að þeir séu vel undir-
búnir áður en þeir taka viö forsæti
bandalagsins en bandalagsþjóðirn-
ar skiptast á um að eiga forseta
bandalagsins. Reuter
Jaques DeLors, framkvæmdastfóri
stjómarnefndar Evrópubanda-
lagsins, og Felipe Gonzalez, for-
sætisráöherra Spánar, ganga hér
saman I garðl forsætisráðherrabú-
staöaríns I Madrid í gær.
Símamynd Reuter
Mótmælendur í Santiago ögra hér lögreglumönnum sem eru með háþrýstivatnsbyssur og reyna aö halda uppi
lögum og reglu. Símamynd Reuter
Hafnaði afsögn-
um ráðherva
Augusto Pinochet, forseti Chile,
játaði sig í gær sigraðan í forseta-
kosningunum, sem fram fóru á mið-
vikudaginn, og sagðist hann sætta
sig við úrslitin.
„Ég sætti mig við og virði úrskurð
meirihlutans," sagði Pinochet í sjón-
varpsviðtali.
Hann var klæddur í einkennis-
búning sinn sem yfirmaöur herafl-
ans og sagði aö það eina sem kosið
hefði verið um í þessum kosningum
hefði verið nafnið á næsta forseta
landsins.
Hann aftók með öllu þann mögu-
leika að tímaáætlun hersins yrði
breytt eins og stjórnarandstaðan hef-
ur krafist.
Til átaka kom milli mótmælenda,
sem stormuðu að forsetahöllinni, og
lögreglu. Lögregla náði að stöðva
fólkið með því aö beita táragasi og
vatnsslöngum.
Þetta var alvarlegasta atvikið sem
komið hafði upp síðan úrslit kosn-
inganna urðu ljós.
Ríkisstjórnin hefur viðurkennt að
úrslitin hafi verið 43% gegn 55%
Pinochet í óhag. Ríkisstjórnin sagði •
af sér í gær til að auðvelda Pinochet
að gera þær ráðstafanir sem nauð-
synlegar eru undir þessum kringum-
stæðum.
Pinochet ákvað í gærkvöldi að
hafna öllum afsagnarbeiðnum ráð-
herra sinna og því situr hin sautján
manna ríkisstjórn Chile áfram.
Erlendis var úrslitum kosninganna
fagnað mjög. Talsmaður Bandaríkja-
stjórnar sagði aö með þessu hefðu
Chilebúar sýnt mátt kjörkassans. í
Róm var gert hlé á þingfundi þegar
úrslit lágu fyrir og þingmenn klöpp-
uðu Chilebúum lof í lófa.
Reuter
Schlúter hötaði stjórnarslitum
Sumarliði fsleifsson, DV, ÁxósuirL-
Það var heitt í kolunum í danska
þinginu í gær, fyrsta daginn sem
umræður fóru fram. Flokksform-
aður jafnaðarmanna, Sven Auken,
lagði fram tillögu þess efrús að rík-
isstjórninni væri ekki heimilt að
leggja á svokallað notendagjald fyr-
ir heilbrigðisþjónustu en stjórnin
hefur rætt þann möguleika.
Samkvæmt tillögum stjórnarinn-
ar er meðal annars gert ráð fyrir
að sjúklingar greiði hærra hlutfall
af lyfiakostnaði og farið verði að
taka gjald fyrir sumar læknisað-
gerðir.
Allt benti til þess að tillaga jafn-
aöarmanna yrði samþykkt. Sósíal-
iski þjóðarflokkurinn, miðdemó-
kratar og Kristilegi þjóðarflokkur-
inn lýstu þvi yfir að þeir væru sam-
mála tillögu jafnaðarmanna. Hið
sama gerðu ýmsir þingmenn Fram-
faraflokksins.
En forsætisráðherrann, Poul
Schlúter, var ekki á því aö láta
binda hendur stjórnarinnar á
þennan hátt. Fór hann í ræðustól
og lýsti því yfir að ef tillagan yrði
samþykkt liti hann svo á að stjórn-
in væri fallin. Eftir að sú yfirlýsing
kom fram fór fylgið við tillögu jafn-
aðarmanna ört minnkandi.
Þrátt fyrir að jafnaðarmenn hafi
átt frumkvæðiö að þessum deilum
telja stjórnmálaskýrendur hér að
meiri líkur séu á samvinnu þeirra
og stjórnarinnar en samvinnu við
Framfaraflokkinn.
Viðurkenna vitneskju
um samningaumleitanir
Steinunn Böövarsdóttir, DV, Washington;
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
George Shultz, viðurkenndi 1 gær að
ríkisstjóm Ronalds Reagan væri
kunnugt um tilraunir bandarískra
ríkisborgara til að semja við írans-
stjóm um lausn þeirra sextán vest-
rænu gísla sem enn eru í haldi mann-
ræningja í Líbanon.
Orðrómur um samningaumleitanir
fulltrúa írans og Bandaríkjanna hef-
ur verið á kreiki í um vikutíma, sér-
staklega eftir að Indveijanum Singh
var sleppt úr haldi fyrr í vikunni.
Talsmenn Bandaríkjaforseta, sem
og utanríkisráðherrans, ítrekuöu í
gær aö samningaviðræður í umboði
ríkisstjómarinnar við íran hefðu
ekki átt sér stað né stæðu yfir. Shultz
neitaði því staöfastlega að þeir sem
hefðu reynt að semja um gíslana í
Líbanon heíðu umboð eða leyfi
stjórnarinnar. Hann sagðist vonast
til að þeir sem gerðu slíkt myndu
hætta að skipta sér af.
Fyrrum forseti írans, Hassar Ban-
isadr, sagði nýlega að bandarískur
kaupsýslumaður hefði hafiö samn-
ingaumleitanir um lausn gislanna
við fulltrúa ríkisstjómar írans í
umboði George Bush, varaforseta og
forsetaframbjóðanda repúblikana.
Banisadr sagði að kaupsýslumaður-
inn hefði átt aðild aö lausn Singh úr
tuttugu mánaða prísund.
Talsmenn bandarísku ríkisstjórn-
arinnar sem og Bush hafa harðlega
neitaö þessum staðhæfmgum. Kaup-
sýslumaöurinn hefur og neitað aö
hafa átt aðild að lausn Singh.
Gislinn Singh við komuna til V-
Þýskalands fyrr i vikunni.
Simamynd Reuter