Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1988, Síða 25
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988.
41
Afmæli
Steinunn Bjarman
Steinunn Bjarman stjórnarráös-
fulltrúi, Smiðjuvegi 15 í Kópavogi,
er sextug í dag. Steinunn er fædd
og uppalin á Akureyri. Hún varð
stúdent frá MA1949 og var bæjar-
stjóraritari á Akureyri 1950-1963.
Steinunn var í Kanada með fjöl-
skyldu sinni 1963 og vann á borgar-
skjalasafni Reykjavikur 1964-1971.
Hún vann hjá Tækniskóla íslands
1978- 1979 og Fiskifélagi íslands
1979- 1984. Steinunn var í Færeyjum
með manni sínum 1984 og hefur
unnið hjá viöskiptaráðuneytinu frá
1985 og er þar nú stjórnarráðsfull-
trúi. '
Steinunn giftist 21. apríl 1962 Hirti
Pálssyni, f. 5. júní 1941, rithöfundi.
Foreldrar hans eru Páll Ólafsson,
b. á Sörlastöðum í Fnjóskadal, og
kona hans, Hulda Guönadóttir. Áð-
ur en Steinunn giftist eignaðist hún
Kristínu Pálsdóttur, f. 11. nóvember
1950, starfsmannastjóra á Hótel
Sögu. Kristín er gift Ragnari Lár
myndhstarmanni. Þau eiga eina
dóttur. Börn Steinunnar og Hjartar
eru Hulda, f. 30. júlí 1962, læknir,
gift Eggert Péturssyni myndlistar-
manni, eiga tvo syni; Guðbjörg, f.
18. október 1963, myndhstarmaður
við nám í London; Þórunn, f. 28. fe-
brúar 1965, myndhstarmaður, gift
Herði Bragasyni myndhstarmanni,
eigaeinadóttur.
Systkini Steinunnar eru Björn, f.
23. september 1923, lögfræðingur og
kennari, kvæntur Sveinbjörgu Stef-
ánsdóttur, Björn á tvö börn frá fyrra
hjónabandi; Anna Pála, f. 20. októb-
er 1925, húsmóöir, var gift Vigni
Guðmundssonar blaðamanni, á sex
börn; Ragnheiður, f. 26. maí 1927,
gift Marteini Friðrikssyni, forstjóra
á Sauðárkróki, eiga 7 börn; Sigur-
laug, f. 26. desember 1929, gift
Snorra Sigurðssyni skógfræðingi,
eiga sex börn; Jón, f. 13. janúar 1933,
sjúkrahúsprestur, kvæntur Hönnu
Pálsdóttur, aðalgjaldkera Búnaðar-
bankans, eiga einn son; Árni, f. 7.
janúar 1934, bifvélavirki á Akur-
eyri, kvæntur Karolínu Bernharðs-
dóttur, eiga flmm börn; Guðbjörg,
f. 6. júlí 1936, gift Þór Þorvaldssyni
húsasmíðameistara, eiga sex börn.
Foreldrar Steinunnar voru Sveinn
Bjarman, f. 5. júní 1890, d. 1952, aðal-
bókari KEA á Akureyri, og kona
hans, Guðbjörg Björnsdóttir, f. 13.
maí 1895, býr í Kópavogi. Sveinn var
sonur Árna, bankagjaldkera á Ak-
ureyri, Eiríkssonar, b. á Skatastöð-
um í Austurdal, Eiríkssonar. Móðir
Árna var Hólmfríður Guðmunds-
dóttir, systir Eiríks, afa Eiríks
Hreins Finnbogasonar. Móðir
Sveins var Steinunn, systir Eggerts,
langafa Pálma Jónssonar í Hag-
kaupi. Steinunn var dóttir Jóns,
prests á Mælifelli, Sveinssonar,
læknis og náttúrufræðings í Vík í
Mýrdal, Pálssonar. Móðir Jóns var
Þórunn Bjarnadóttir landlæknis
Pálssonar og konu hans, Rannveig-
ar Skúladóttir landfógeta Magnús-
sonar. Móðir Steinunnar var Hólm-
f^íður Jónsdóttir, prests í Reykja-
hiíö, Þorsteinssonar, ættfóður
Reykjahlíðarættarinnar.
Meðal móðursystra Steinunnar
eru Gunnhildur, móðir Björns Jóns-
sonar, prests á Akranesi, Jensína,
móðir Ragnars Fjalars Lárussonar,
prests í Rvík, og Guðrún, móðir Stef-
áns Lárussonar, prests í Odda. Guð-
björg er dóttir Björns, prófasts á
Miklabæ, Jónssonar, b. í Brodda-
nesi, Magnússonar. Móðir Björns
var Guðbjörg Björnsdóttir, b. á
Stóra-Fjarðarhorni í Kollaflrði,
Guðmundssonar og konu hans, Sig-
ríðar Jónsdóttur, b. á Þórustöðum í
Bitru, Guömundssonar. Móðir Sig-
ríðar var Valgerður Jónsdóttir,
systir Einars, langafa Ragnheiðar,
móður Torfa, fyrrv. tollstjóra, og
Snorra Hjartarsonar skálds. Móðir
Guðbjargar, ömmu Steinunnar, var
Guðfmna Jensdóttir, b. á Innri-
Steinunn Bjarman.
Veðrará í Önundarfirði, Jónssonar.
Móðir Guðfmnu var Sigríöur Jónat-
ansdóttir, b. á Vöðlum í Önundar;
firði, Jónssonar og konu hans,
Helgu, systur Ólafs, föður Bergs
Thorbergs, landshöðingja og lang-
afa Einars Guðfmnssonar í Bolung-
arvík, og Ólafar, móður Jóhannesar
Nordals. Helga var dóttir Hjalta,
prests á Kirkjubóli, Þorbergssonar
Thorberg og konu hans, Guðrúnar
Ólafsdóttur, ættforeldra Thorþergs-
ættarinnar.
Emelía Guðmundsdóttir,
Álftamýri 28, Reykjavík.
Valgerður Guðlaugsdóttir,
Austurvegi 23, Vík Mýrdal.
50 ára___________________
Sjöfn Ólafsdóttir,
Hólagötu 2, Vestmannaeyjum.
fíólmfríður Jóhannsdóttir,
Ytri-Melrakkadal, Þorkelshóls-
hreppi.
Lárus Guðmundsson,
Sæbóli 3, Grundarfirði.
Björgúlfur Þorvarðarson,
Faxatúni 20, Garðabæ.
með daginn
Ingólfur Flygenring,
Fagrahvammi 10, Hafnarfirði.
Páll F. Leósson,
Steinahhð 2c, Akureyri.
Kristín Magnúsardóttir,
Hhðarvegi 20, Kópavogi.
Páll Þorsteinsson,
40 ára
Kristín Árnadóttir,
Laxakvísl 25, Reykjavík.
Indriði Geirsson,
Laugatúni 13, Svalbarðsströnd.
Reykjasíðu 18, Akureyri.
Elsa Aðalsteinsdóttir,
Erluhólum 4, Reykjavík.
Aðalheiður Jakobsdóttir,
Hafranesi, Fáskrúðsfiröi.
Skúli Gunnar Böðvarsson,
Hæðarbyggð 19, Garöabæ.
Þorkeh Stefánsson,
Sólvallagötu 27, Reykjavík.
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og að-
standendur þeirra til að senda því
myndir og upplýsingar um frænd-
garð og starfssögu þeirra. Þessar
upplýsingar þurfa að berast í síðasta
lagi þremur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Andlát
Ulfur Gunnarsson
Ulfur Gunnarsson, fyrrv. yfir-
læknir Fjórðungssjúkrahússins á
ísafirði og heiðursborgari ísafjarð-
arkaupstaöar, lést 29. september.
Úlfur fæddist 12. nóvember 1919 í
Kaupmannahöfn og tók próf í lækn-
isfræði frá HÍ1947. Hann tók dokt-
orspróf í háskólanum í Lyon í
Frakklandi 1949 og varð sérfræðing-
ur í handlækningum 1954. Úlfur
varð sjúkrahúslæknir í Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á ísafirði 1954 og yfir-
læknir 1976. Úlfur varð vararæðis-
maður Sambandslýðveldisins
Þýskalands á ísafirði 1961, í Inter-
national College of Surgeons frá
1973 og heiðursborgari ísafjarðar
1984. Ulfur kvæntist 12. febrúar 1943
Benedictu Katharinu Irene, f. 17.
desember 1915, hjúkrunarkonu,
dóttur Martins Mielck, búfræðings
í Rostock, og konu hans, Irene Ernst
Mielck. Börn Úlfs og Benedictu eru
Katharina Ranson, f. 5. maí 1944, býr
í Englandi; Birgir, f. 25. apríl 1947,
sölustjóri hjá Pólstækni hf. í Rvík,
kvæntur Brynju Jörundsdóttur;
Gunnar Martin, f. 19. ágúst 1954,
auglýsingateiknari í Rvík, kvæntur
Helgu Kolbrúnu Svavarsdóttur, og
Kristín, f. 21. maí 1957, skíðakennari
á Siglufirði, gift Agli Rögnvaldssyni
símsmiði. Bræður Úlfs eru Gunnar,
f. 28. maí 1914, d. 13. maí 1977, hst-
málari í Rvík, kvæntur Signýju
Sveinsdóttur, og sonur Gunnars
skálds og Rut Lange, Grímur, f. 1929,
ritstjóri Sondags Aktuelt í Kaup-
mannahöfn.
Foreldrar Úlfs voru Gunnar
Gunnarsson skáld og kona hans,
Franzisca Antonía Josefine, systir
Önnu, konu Einars Jónssonar
myndhöggvara. Franzisca var dóttir
Ernst Carls Olafs Jörgensens, vél-
smiðs í Kaupmannahöfn, og konu
hans, Mathilde von Weenck. Gunn-
ar var sonur Gunnars, b. á Ljóts-
stöðum í Vopnafirði, bróður Sigurð-
ar, prófasts og alþingismanns í
Stykkishólmi, langafa Haralds
Sveinssonar, framkvæmdastjóra
Morgunblaðsins. Gunnar var sonur
Gunnars, b. á Brekku í Fljótsdal,
bróður Sigurðar, prófasts og al-
þingismanns á Hallormsstað, lang-
afa Hjörleifs Guttormssonar alþing-
ismanns. Annar bróðir Gunnars var
Stefán, langafi Vilhjálms Hjálmars-
sonar, fyrrv. ráðherra. Systir Gunn-
ars var Margrét, langamma Aðal-
steins Ingólfssonar. Gunnar var
sonur Gunnars, b. á Hallgilsstöðum
á Langanesi, Gunnarssonar, b. á
Ærlæk (Skíða-Gunnars), Þorsteins-
sonar, prests á Skinnastöðum, Jóns-
sonar. Móðir Gunnars á Ljótsstöð-
um var Guðrún Hallgrímsdóttir, b.
á StóraSandlæk, Ásmundssonar,
bróður Indriða, afa skáldanna Jóns
og Páls Ólafsspna. Móðir Guðrúnar
var Bergþóra ísleifsdóttir, b. á Geir-
úlfsstöðum, Finnbogasonar, b. á
Hofsborg, Ólasonar, bróöur Ragn-
hildar, langömmu Málfríðar, ömmu
Jóns Þórarinssonar tónskálds.
Móðir Gunnars skálds var Katrín
Þórarinsdóttir, b. á Bakka á Langa-
nesströnd, Hálfdanarsonar, b. á
Oddsstöðum á Sléttu, Einarssonar,
bróður Stefáns, langafa Einars
Benediktssonar skálds. Móðir Hálf-
danar var Margrét Lárusdóttir
Schevings, systir Jórunnar, ömmu
Jónasar Hallgrímssonar skálds.
í virðingar- ogþakklætisskyni við
Úlf Gunnarsson hefur bæjarstjórn
ísafiarðar óskað eftir aö fá að sjá
Ullur Gunnarsson.
um útfór hans, sem fer fram í dag í
kapellu ísafiarðarsafnaðar i
Menntaskólanum á ísafirði og hefst
kl. 14.00.
Sigríður Ebenezersdóttir
Sigríður Ebenezersdóttir, hús-
móðir lést á Akranesi 21. september.
Sigríður var fædd í Rvík 16. septem-
ber 1899 og vann á yngri árum við
sveitastörf og síldarsöltun á Norð-
urlandi. Sigríður varþrígift, Sigríð-
ur giftist 1. nóvember 1919, Haraldi
Sigurðssyni, f. 9. október 1896, d. 3.
júh 1921, trésmiður. Foreldrar hans
voru, sigurður Björnsson lausamað-
ur í anadakílshreppi og Kristín
þórðardóttir. Sigríður giftist 26.
apríl 1924, Jóhanni Valdimarssyni,
f. 3. október 1900, d. 8. febrúar 1970,
vélstjóra í Rvík. Foreldrar hans
voru, Valdimar Brynjólfsson b. á
sóleyjarbakka í Hrunamannahreppi
og kona hans Helga Pásdóttir. Þau
skhdu. Börn sigríðar og Jóhanns
voru, dóttir, f. 17. október 1924, dó
næsta dag og Haraldur, f. 7. júlí 1926,
hagfræðingur í Rvík. Sigríður, gift-
ist 3. desember 1932, er Magnús Ás-
mundsson, f. 29. september 1896, sjó-
maður og verkamaður á Akranesi.
Foreldrar hans voru, Ásmundur
Þorláksson b. á Heggsstöðum í and-
akílshreppi og kona hans Kristbjörg
Þórðardóttir. Böm Sigríðar og
Magnúsar eru, Ebba Ingibjörg, f. 8.
mars 1938, gift Högna Ingimundar-
syni stýrimanni á Akranesi og eiga
þau tvö börn og Gylfi, f. 23. septem-
ber 1940, bókbindari og verkamaður
á akranesi var giftur Jóhönnu Aðal-
steinsdóttur og áttu þau tvær dætur
en skyldu. Systkini Sigríðar voru,
Helgi, f. 24. júh 1891, d. 20. janúar
1933, sjómaður á Akranesi, kvæntur
Agöthu Sigurðardóttur, Sigurhna,
f. 6. maí 1893, d. 19. febrúar 1981,
gift Magnúsi H Jónssyni prentara í
Rvík ogformanni HÍP, Gunnfríður
Agatha, f. 23. febrúar 1896, d. 25. ja-
náur 1979, verslunarmaður í rvík
ogsveindís, f. 16. janáur 1897, d. 14.
maí 1917.
Foreldrar Sigríðar voru, Ebenezer
Helgason sjómaður og verkamaður
í Rvík og kona hans Ingibjörg Gunn-
arsdóttir. Ebenezer var sonur Helga
sjómanns í Ólafsvík Einarssonar.
Móðir Helga var Sigríður Pálsdóttir
b. í Flatey Pálssonar og konu hans
Sigríðar, systir Ástríðar ömmu
skáldanna Matthíasar Jochumsson-
ar Theódóru Thoroddsen, Ólínu og
Herdísar Andrésdætra og
langömmu Muggs. Móðir Sigríðar
var Guðrún Eggertsdóttir b. í Heg-
ilsey Ólafssonar, en Játvarður Jök-
ull Júlíusson ritaði ævisögu hans,
Umleikinn öldu földum. Ingibjörg
var dóttir Gunnars b. á Gullbera-
staðaseli í Lundarreykjadal Gunn-
arssonar b. á Þverfehi í Lundar-
reykjadal Guðmundssonar b. á
Neðri-Háls í Kjós Þórðarsonar, föð-
ur Lofts langafa Bjarna Jónssonar
vígslubiskups. Annar sonur Guð-
mundar var Þorsteinn langafi Sol-
veigar móður Einars Olgeirssonar.
Móðir Ingibjargar var Agatha
Magnúsdóttir b. á Dagverðarnesi í
Skorradal Bjömssonar b. á Hóh í
Skorradal Sæmundssonar, Jóhann
Sigriður Ebenezersdóttir.
Eiríksson hefur ritaði niðjatal
Björns í Ættarþáttum.