Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1988, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988.
13
Lesendur
Samvinnuhreyfing í
hlutafélagsformi?
H.S. hringdi:
Stjórnarformaöur Sambandsins
lýsti hinum miklu skuldum fyrirtæk-
isins fyrir okkur nýlega í sjónvarps-
viötali. Eftir þær upplýsingar er
manni spurn: Hvers vegna er þessi
stóra samsteypa ekki hreinlega lögð
niður?
Allt er rekiö með stórtapi og var
helst að heyra á formanninum að
eina úrræðið væri aö taka upp þá
stefnu aö reka samvinnuhreyfing-
una í hlutafélagaformi! - Það heíði
nú einhvem tíma þótt saga til næsta
bæjar.
Þessi hreyfing, sem átti að vera
lyftistöng fyrir bændur og dreifbýli,
er að leggja allt í auön. Og það er
alveg dæmigert fyrir ástandið að á
meðan „Róm brennur“ og bændur
eru að veslast upp hreiðra foringjar
þeirra og helsti stuðningsflokkurinn
um sig á Hótel Sögu, langdýrasta
húsnæði í landinu, og lifa þar í „sús
og dús“. - Stjómarformaður Sam-
bandsins, sá er gaf yfirlit í sjónvarpi
yfir skuldir Sambandsins, verður svo
bankastjóri Landsbankans!
Formaöur Sjómannafélags Reykjavíkur:
Fer með sigur af hólmi
Fyrrv. sjómaður skrifar:
Ég get ekki orða bundist vegna
ummæla ýmissa atvinnurekenda í
millilanda-„businessinum“ í tilefni
hörku Guðmundar Hallvarðssonar í
þeirra garð í tengslum við áform um
að ráða „þræla" á millilandaskip ís-
lendinga.
Sem fyrrverandi sjómaður get ég
ekki annað en hneigt mig fyrir for-
manni Sjómannafélags Reykjavíkur.
Hann hefur sýnt að hann er raun-
veralega þess verðugur að vera for-
ystumaöur fyrir sjómenn. - Þá er ég
ekki bara að tala um þetta atvik,
heldur er hægt að vitna í mörg önn-
ur. Það er alveg ótrúlegt hvað sumir
menn halda að við séum heimskir í
þessu landi.
En hér hefur einn maður farið með
sigur af hólmi og það er Guðmundur
Hallvarðsson, formaöur Sjómanna-
félagsins. Ég sá í blöðunum um dag-
inn að hann væri einnig borgarfull-
trúi sjálfstæðismanna í Reykjavík;
Ég, sem var svo heimskur að kjósa
Kvennalistann í síðustu kosningum
til að refsa forystu sjálfstæðismanna
í landsmálunum, mun nú ekki hika
viö að kjósa „rétt“ í næstu kosning-
um.
Að lokum þetta; Ef Davíð Oddsson
léti af störfum sem borgarstjóri í
Reykjavík, og tæki e.t.v. við forystu
flokksins í landsmálum, þá ætti ekki
að vera erfitt fyrir sjálfstæðismenn
að velja nýtt borgarstjóraefni. Mann
sem hefur sama heiðarleikann og
Davíð, mann sem hefur sömu
ákveðnina og Davíð. - Nefnilega
Guðmund Hallvarðsson.
Guðmundur Hallvarðsson, formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur. -
„Ekki erfitt fyrir sjálfstæðismenn að
velja nýtt borgarstjóraefni," segir
hér m.a.
Hann heitir ekki
Jónur Baldvinur
áskilursér rétttil
að stytta bréf og
símtöl sembirt-
ast á lesendasíð-
um blaðsins
Kynning á
Samtökunum
78 í Árseli
Frá Unglingaráði Ársels:
Þriðjudaginn 22. þ.m. birtust til-
skrif „reiðrar móður“ hér á lesenda-
síðunni um kynningarfund Samtak-
anna 78 í félagsmiðstöðinni Árseli.
Við viljum vekja athygli á þeirri stað-
reynd að kynning þessi var haldin
samkv. beiðni fjölda unglinga, en i
skólum landsins er ekki veitt fræðsla
af þessu tagi.
Félagsmiðstöðvamar' em fyrir
unglingana sjálfa og starfsfólkið
reynir að veita okkur þjónustu sem
við sjálf förum fram á. Það átti við
um umræddan fund. Þess má geta
að um 140 unglingar sóttu fundinn
sem var hinn áhugaverðasti og
margar athyglisverðar spumingar
komu fram og ýmsir fordómar voru
kveðnir niður, fordómar sem hinir
eldri ættu líka að leiða hugann að.
í umræddu bréfi spurði móðirin,
hvort Samtökin 78 myndu halda
fleiri slíka fundi. Svarið við því er
nei. Hins vegar hvetjum við aðrar
félagsmiðstöðvar til að gera slíkt hið
sama og Ársel og vinna þar með gegn
fordómum gegn samkynhneigöu
fólki. - Að lokum viljum við þakka
fyrir frábæra kynningu.
S. skrifar:
Ég var eitt kvöldið á leiðinni heim
að hlusta á fólk hringja í Hallgrím á
Bylgjunni. Hallgrímur virðist ágæt-
lega máli farinn og hafa munninn
fyrir neðan nefið, en í þetta skipti lét
hann konu út í bæ snúa heldur en
ekki á sig.
Þetta kvöld var mikið fjargviðrast
yfir Jóni Baldvini, og Hallgrímur
hafði nafn hans réttilega þannig í
þágufalli. En konan hringdi til þess
að gagnrýna þetta, með einkennileg-
um hætti. Hún sagði: „Þú segir alltaf
frá Jónbaldvini, Jónbaldvini," tvítók
hún, með þannig áherslu að það var
eins og nöfn utanríkisráðherra væru
ekki tvö heldur eitt samhangandi.
Svo hélt hún áfram: „En þetta er
ekki rétt. Hann heitir ekki Jón Bald-
Sæmundur Óskarsson hringdi:
Af hreinni tilviljun horfði ég í gær-
kvöldi (22. nóv.) á ríkissjónvarpið kl.
19.25, á unglingaþátt sem gengur
undir heitinu „Ekkert sem heitir" og
var hann endursýndur (hafði veriö
sýndur áður hinn 18. þ.m.)
vin ur!“
Hallgrími vafðist greinilega tunga
um tönn ogkyngdi þessu eiginlega,
meö talsverðu munnvatni. Hann hef-
ur eflaust hugsað það um kvöldið
þegar heim var komið hvernig hann
hefði átt að svara þessu. Auðvitað
heitir maðurinn ekki Baldvin ur.
Engu að síður er rétt að segja „frá
Baldvini" í þágufalli. Rétt eins og það
er rétt að segja „frá kyni til kyns"
eða „með gapandi gini“ þótt engum
detti í hug að orðið kyn sé „kynur"
í nefnifalli eða orðið gin sé „ginur"
í nefnifalli.
Þess vegna er það laukrétt hjá Hall-
grími og öllum öðrum að segja „frá
Jóni Baldvini," en ekki „Jónbald-
vin", þó að blessaður maðurinn heiti
ekki „Jónur Baldvinur".
Mér finnst þetta sjónvarpsefni vera
svo út í hött að engu tah tekur. Ég
ræddi við tvo unglinga sem samtímis
mér horföu á þáttinn og sögðu báðir
að þessi þáttur ofbyði dómgreind
unglinga gjörsamlega. - Og svo held
ég aö hþóti að vera um fleiri.
Asgeir og „aronskan“
Magnús hringdi:
Ég vil þakka Ásgeiri Hannesi Ei-
ríkssyni fyrir að veRja umræðu á
Alþingi um hina svokölluðu „ar-
onsku" og Aron Guðmundsson. -
Aron rak Kauphöllina í Lækjar-
götu í marga áratugi og leiðbeindi
fjölda fólks í fjármálum. - Aron rak
sitt fyrirtæki af stakri prýði og
reglusemi.
A meöan stjómvöld færa þjóöina
stööugt nær þjóðargjaldþroti (sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
forsætisráðherra) er fólki óhætt að
leggja við hlustir þegar Aron Guð-
mundsson og aronsku hans ber á
góma.
Aron Guömundsson vissi hvað
hann söng, þegar hann setti fram
skoðanir sínar um Varnarliðið hér
á landi.
Ungllngaþáttur í Sjónvarpi:
Ofbýður dómgreind unglinga
Nauðungaruppboð
á eftirtalinni fasteign fer fram i dómsal embættisins, Skógarhlíð 6, 3. hæð
á neðangreindum tíma: Hagasel 21, þingl. eigandi Gunnar Gunnarsson,
mánud. 28. nóv. '88 kl. 10.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykja-
vík og Tollstjórinn í Reykjavík.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Þrefaldur fyrsti
vinningur á laugardag!
Láttu ekki
þrefalt happ úr hendi
sleppa!