Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988.
Fréttir____________________________________________________________________
Halldór Ásgrímsson dómsmálaráðherra um skýrslu Lögreglufélagsins:
Ýmsar upplýsingar sem
áttu ekki að koma fram
- óheppilegt að flalla um þessi mál opinberlega
„Ég tel þetta mál vera mjög alvar-
legt. Ég tel einnig óheppilegt aö fjalla
um þessi mál á opinberum vettvangi
eins og þarna er gert. í skýrslunni
koma fram ýmsar upplýsingar sem
heföu að mínu mati ekki átt að koma
fram. En þar sem lögreglustjórinn í
Reykjavík er erlendis vil ég ekki
ræöa jnálið frekar fyrr en hann kem-
ur heim," sagði Halldór Ásgrímsson
dómsmálaráðherra er hann var innt-
ur álits á skýrslu Lögreglufélags
Reykjavíkur um ástand lögreglu-
mála i Reykjavík.
Halldór var spurður hvort hann
teldi að ástand lögreglumála væri
víðar á landinu jafnslæmt og það er
sagt vera i Reykjavík samkvæmt
skýrslunni?
„Ég vil ekkert um það fullyrða. Það
hefur væntalega ekki farið fram hjá
neinum að það eru aðhaldsaðgerðir
í gangi hjá hinu opinbera. Viö höfum
einfaldlega ekki það fjármagn sem
við vildum hafa. Það hefur hvar-
vetna verið dregið úr yílrvinnu og
reynt eftir fremsta magni að virða
þau fjárlög sem í gildi eru. Þess vegna
er það að við getum ekki endalaust
bætt \dð þá þjónustu sem veitt er í
samfélaginu á sama tíma og þjóðar-
tekjur eru að dragast saman og fyrir-
tæki eru að fara yfir um,“ sagöi Hall-
dór.
Hann sagðist viðurkenna að um-
ferð í landinu heföi aukist mikið og
sömuleiðis hefðu afbrot aukist. Þetta
skapaði vandamál í samfélaginu.
Lögreglan væri til þess að veita sam-
borgurunum sem mest öryggi þótt
ekkert væri til sem kalla mætti full-
komið í þeim efnum. Hann sagðist
vilja benda á að hver borgari þyrfti
að gæta að eigin öryggi eftir fremsta
megni en þyrfti eigi að síður að geta
treyst á það öryggi sem lögreglan
veitir.
-S.dór
FÆKKUN LÖGREGLUMANNA1REYKJAVÍK
Morgunvakt
Næturvakt
87 88 Nú
87 88 Nú
87 88 Nú
Formaður Lögreglufélags Reykjavlkur um skýrsluna:
„Þetta er ekki
áróðursrit“
Flugfélögin:
Samvinna
getur sparað
umtalsverðar
upphæðir
- segir Kristmn
Sigtryggsson
Fyrir tilstuðlan Steingríms J.
Sigfússonar samgönguráðherra
eru hafnar viöræður á milli flug-
félaganna Arnarflugs hf. og Flug-
leiða hf. um hugsanlega sam-
vinnu þeirra í milli í ákveðnum
þáttum flugrekstursins með
sparnað fyrir bæði félögin í huga.
Aö sögn Kristins Sigtryggssonar,
forstjóra Amarflugs, var fyrsti
fundurinn haldinn í vikunni. Þar
var fyrst og fremst verið að opna
málið, en efnislegar viðræður eru
ekki hafnar. Næsti fundur hefur
veriö boöaður í dag.
Kristinn sagöi aö sú samvinna
sem til greina kæmi væri að sam-
nýta ýmislegt, svo sem viðhald
og fleira í þeim dúr, sem væri til
hagræðingar fyrir báða aðila, án
þess að skerða samkeppnina.
Hann sagöi að sér hefði fundist
andrúmsloftið á fyrsta fundinum
vera jákvætt. Kristinn sagöi að
annaö hefði raunar verið óeðli-
legt fyrst báðir aðilar telja sig
hafa hag af ákveðinni samvinnu.
Hann var spuröur hvort það sem
hugsanlegá sparaðist við sam-
vinnu eða samnýtingu næmi
upphæðum sem máli skipta.
„Já, ég tel svo vera, það getur
hlaupið á háum upphæðum. En
samt sem áður tel ég of snemmt
að tala um hvað það gæti verið
há upphæð,“ sagði Kristinn.
Þrátt fyrir ítrekaöar tilraunir
tókst ekki að ná sambandi við
Sigurð Helgason, forstjóra Flug-
leiða hf.
-S.dór
„Þetta er ekki hugsað sem áróðurs-
rit heldur sem umræöugrundvöllur
fyrir íbúa þessa svæðis, um starfsemi
lögreglunnar. Við höfum velt þeirri
spumingu fyrir okkur hvort almenn-
ingur er ánægður með löggæsluna
eins og hún er - við sjádfir, sem lög-
reglumenn og borgarar, erum það
ekki,“ sagöi Jón Pétursson, formaður
Lögreglufélags Reykjavíkur.
Lögreglufélag Reykjavíkur hefur
tekið saman mikla skýrslu um lög-
gæslu á því svæði sem lögreglan í
Reykjavík annast. í skýrslunni er
deilt hart á yfirvöld, bæði hvað varð-
ar fjölda lögreglumanna og tækja-
kost lögreglunnar.
„Bifreiðafloti lögreglunnar er í
lamasessi, tækjabúnaöur er lélegur,
lögreglumenn í fíkniefnadeild vinna
á stundum í sjálfboðavinnu, umferð-
ardeild er að hverfa þrátt fyrir fjölg-
un bifreiða og fjölgun slysa, æ færri
eru teknir fyrir aö aka undir áhrifum
áfengis en drukknir ökumenn lenda
sífellt í fleiri og fleiri slysum, tíu pró-
sent félagsmanna eru.í málaferlum
vegna mála sem komið hafa upp í
starfi þeirra, lögreglumenn eru jafn-
margir nú og 1944, um þrjátíu pró-
sent eru reynslulaus eða reynslulítil,
þessi mdnnskapur sinnir 4500 útköll-
um á mánuði utan alls annars. Þrátt
fyrir stækkun löggæslusvæðisins og
fjölgun íbúa fjölgar lögreglumönnum
ekki.
Það má segja aö í skýrsluna vanti
gagnrýni á okkur sjálfa. Vonandi
verður fljótlega bætt úr þvi. Það má
geta þess að við höfum lagt drög að
því að koma á siðareglum fyrir lög-
reglumenn. Það verður afgreitt á
næsta landsþingi.
Ég persónulega get samþykkt nið-
urskurð lögreglunnar og best væri
ef við þyrftum ekki á lögreglu aö
halda. En því miður hafa hinir háu
herrar í ráðuneytinu skorið niöur á
röngum staö. Þeir hefðu átt að skera
niður slysin, ölvunaraksur, árásir og
fíkniefnaneyslu," sagði Jón Péturs-
fson, formaður Lögreglufélags
Reykjavíkur.
-sme
Fiskmiðlun í burðarliðnum
mun bæði stýra gámaútflutningi og leiðbeina um landanir innanlands
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra vinnur nú að því að
koma upp fiskmiölun í landinu.
Hún er bæði hugsuð sem stýritæki
í ferskfiskútflutningi, sem myndi
leysa af leyfisveitingar viðskipta-
deildar utanrikisráðuneytisins í
gámaútflutningi, og til aö leiöbeina
um landanir innanlands.
„Það hefur verið unnið aö undir-
búningi málsins hjá hagsmunaaðil-
um og ég á von á því að eftir helg-
ina verði haldinn formlegur fundur
þessara aðila. Sú hugmynd, sem
unnið er að, miðar að því að koma
upp fyrirtæki eða samstarfsvett-
vangi sem hefði það hlutverk aö
stuðla að aflamiölun innanlands og
jafnframt að stýra útflutningi á
ferskfiski. Þessari hugmynd, sem
ég setti fram, hefur verið vel tekið
hjá hagsmunaaðilum," sagði Hall-
dór Ásgrímsson sjávarútvegsráö-
herra í samtali við DV.
Sem stýring á ferskfiskútflutn-
ingi mun fiskmiðlunin gefa þeim,
er hyggjast selja til útlanda, upp-
lýsingar um ástand og horfur á
mörkuöum erlendis. Þeir aðilar
innanlands, sem vantar fisk, geta
þá einnig leitað til miðlunarinnar
eftir honum. Halldór sagði að ef
einhverjum yrði neitað um að flytja
út ferskan fisk ætti fiskmiðlunin
jafnframt að benda viökomandi á
hvar hægt er að losna við aflann.
„Við getum tekið sem dæmi tog-
ara sem hefur söluleyfi erlendis en
getur ekki siglt einhverra hluta
vegna. Þá er það hlutverk fiskmiöl-
unarinnar aö benda viökomandi á
hvar hann getur losnað viö aíl-
ann,“ sagði Halldór.
Samkvæmt þessu ætti fiskmiðl-
unin að geta verið komin á áður
en vetrarvertíð hefst eftir áramót-
in.
-S.dór
Armenum
sýnd
samúð
í gærmorgun kallaði forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
á sinn fund sovéska sendiherr-
ann og baö hann að koma samúð-
arkveðjum sínum og íslensku
þjóðarinnar til Mikhails Gor-
batsjovs, forseta Sovétríkjanna,
vegna náttúruhamfaranna í
Armeníu.
Biskupinn yfir íslandi, herra
Pétur Sigurgeirsson, sendi sam-
úðarskeyti til biskups armensku
kirkjunnar, Vasken, en mikiU
meirihluti Armena er kristinn.
Þá sendi Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra sam-
úðarkveðjur til Gorbatsjovs frá
Brússel í fyrradag og sömuleiðis
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
rikisráðherra hinum sovéska
starfsbróður sínum, Edvard Sé-
vardnadse.
Samgönguráðherra:
Ekki á dag-
skrá að færa
flugvöllinn
„Það er ekki á dagskránni á
næstunni að færa Reykjavíkur-
flugvöll og ég verð að segja eins
og er að það er ekki spennandi
að færa flugumferðina, sem þar
er, til Keflavíkur. íbúar úti á
landi eru ekki spenntir fyrir þvi,“
sagöi Steingrímur J. Sigfússon
samgönguráðherra á blaða-
mannafundi í gær þar sem hann
greindi frá nefnd sem skipuð hef-
ur verið til að gera áhættumat
fyrir Reykjavíkurflugvöll. Er það
meðal annars vegna flugslyss í
ágúst þegar kanadísk flugvél
fórst í aðflugi viö Reykjavíkur-
flugvöll.
í nefndinni eru Þórður Þ. Þor-
bjarnarson borgarverkfræöingur
og Guöjón Petersen, fram-
kvæmdarstjóri almannavama,
sem tilnefndir eru af borgarstjór-
anum í Reykjavík, Pétur Einars-
son flugmálastjóri og Jóhann H.
Jónsson framkvæmdarstjóri, til-
nefndir af flugráði, og Álfheiður
Ingadóttir Mffræðingur sem jafn-
framt er formaður nefhdarinnar.
í starfi sínu á nefndin ekki ein-
ungis að miða við slysahættu,
sem stafar af rekstri flugvallar-
ins, heldur einnig aðra þætti sem
geta haft áhrif á mannlíf og dýra-
líf í nágrenni flugvallarins, svo
sem loftmengun og hávaðamörk.
-SMJ
VaraflugvöUur:
Steingrímur
lætur skoda
fjóra kosti
Samgönguráðherra, Steingrím-
ur J. Sigfússon, segir aö ef utan-
ríkisráðherra vilji gera varaflug-
völl í samstarfi við erlenda aðila
á sviöi hemaðar þá veröi Jón
Baldvin aö leggja hann við Kefla-
víkurflugvöll því það sé eini flug-
völlurinn sem utanríkisráöherra
hafi með að gera.
Steingrimur tekur ekki í mál
að koma upp varaflugvelli á sömu
forsendum og Jón Baldvin hefur
nefnt. Þess í stað hefur hann ósk-
að eftir því við flugmálastjóra aö
unnið verði aö tillögum um upp-
byggingu flugvalla sem þjónað
geti sem varaflugvellir fyrir
millilandaflug íslendinga og al-
mennt farþegaflug.
Vill samgönguráðherra láta
kanna eftirfarandi kosti: Leng-
ingu og aðrar framkvæmdir á
Egilsstaðaflugvelli, Akureyrar-
flugvelh, Húsavíkurflugvelli og
Sauðárkróksflugvelli. -SMJ