Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Page 14
14
LAUGARDAGUR-10. DESEMBER 1988.
Frjálst.óháÖ dagblaö
Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórarf PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SÍMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuöi 800 kr.
Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr.
Kreppa dynur yfir
Útlitið í efnahagsmálum versnar, því fleiri spár sér-
fræðinga sem birtast. Vinnuveitendasambandið spáir
miklu verra ástandi en Þjóðhagsstofnun gerir. Vinnu-
veitendasambandið byggir einnig á nýrri tölum. Sam-
kvæmt spá vinnuveitenda munu tekjur þjóðarinnar
minnka um 5 prósent á næsta ári. Sagt er, að innflutn-
ingur hafi þegar minnkað um 20 prósent á síðustu mán-
uðum miðað við sömu mánuði í fyrra. Þrátt fyrir minni
innflutning er reiknað með um 14 milljarða halla á við-
skiptum við útlönd nú í ár. Viðskiptahalli af þessari
stærðargráðu er talinn munu halda áfram á næsta ári.
Þetta hefur gefið ýmsum vinnuveitendum tilefni til að
ræða, að kaupmáttur tekna þurfi að minnka enn meira
en stefni í nú. Samdrátturinn veldur minnkun kaup-
máttar. Fyrirhugaðar skattahækkanir munu svo auðvit-
að valda, að ráðstöfunartekjur heimilanna eftir skatta
munu dragast saman enn meira en þetta. En þrátt fyrir
allan samdráttinn er enn búizt við viðskiptahalla, sem
þýðir, að við höldum áfram að lifa um efni fram. Við
höldum áfram að safna skuldum erlendis.
Fjölmörg fyrirtæki nálgast gjaldþrot. Gert er ráð fyr-
ir miklu atvinnuleysi, meira en við höfum þekkt í 20
ár. Erfitt er að gera spá um slíkt, en sumir sérfræðingar
telja, að fimm þúsund manns eða fleiri verði atvinnu-
lausir næsta haust. Ríkisstjórn, hver sem hún verður,
mun fá lítið að gert. En grundvallaratriði hlýtur að vera,
að sæmilega reknum fyrirtækjum verði sköpuð eðlileg
starfsaðstaða. Með því yrði stefnt gegn atvinnuleysi og
frekari kjaraskerðingu. Þetta gildir til dæmis um fisk-
vinnsluna. Nú er rætt, að farið verði að loka fiskvinnslu-
stöðvum yfirleitt. Við styðjum ekki kröfur fiskvinnslu
um, að hvers konar slæm fyrirtæki í þeirri grein fái að
ganga. En menn hljóta að sjá, að gengið er rangt skráð.
Það veldur margs konar bölvun.
Þegar gengi krónunnar er of hátt skráð, skekkist
grundvöllur atvinnustarfsemi. Innflutningur hagnast á
kostnað útflutnings, þegar erlendur gjaldeyrir er á út-
sölu. Slík skekkja eykur á viðskiptahalla og skuldasöfn-
un. Forsætisráðherra sagði fyrir skömmu við DV, að
það gæti reynzt útilokað annað en að leiðrétta gengið.
Raunar er staðreynd, að ríkisstjórn getur einungis taf-
ið, að gengið verði lækkað. Sú töf er kostnaðarsöm.
Töfm er einkum slæm, þegar hún veldur atvinnuskerð-
ingu í greinum eins og fiskvinnslu og iðnaði. Við kom-
umst ekki upp með að hafa gengi krónunnar jafnhátt
og það er, þegar svo, mikill munur hefur verið síðasta
ár á kostnaðarhækkunum hér og erlendis. Menn búast
ekki við gengislækkúnfyrir jól. En hún gæti orðið fljót-
lega eftir þau, af þvi'að hún er óhjákvæmileg.
Vissulega munu menn segja, að gengislækkun ein
gildi takmarkað. Með gengislækkun hækka skuldirnar.
Mörg fyrirtæki standa því fljótt í sömu sporum og fyrir
gengislækkun. En það leiðir hugann að launaþróun-
inni. Óhjákvæmilegt er að lækka gengið, þegar það er
of hátt skráð. En á hinn bóginn verður ekki séð, að nú
sé neinn grundvöllur til nefnanlegra launahækkana,
þegar launastöðvun lýkur. Staða efnahagsmála nú þýð-
ir, að launahækkanir ganga bara út í verðlagið og gera
málin verri. Þær munu því flýta næstu gengislækkun.
Næsta ár verður því miður ekki ár til aukningar
kaupmáttar - þvert á móti mun hann mikið minnka.
Mikilvægt er, að launþegasamtökin rasi nú ekki um ráð
fram. Ella stefnir í enn verri vanda.
Haukur Helgason
Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi (t.v.) og George Bush, forsetaefni í Bandarikjunum, takast í hendur en Ron-
ald Reagan, fráfarandi forseti, horfir á með velþóknun.
Atlaga að herkostnaði er
báðum risaveldum í hag
Sameiginlegir hagsmunir alls
mannkyns veröa aö ganga fyrir
hagsmunum einstakra hagkerfa
eöa velda. Viö veröum að læra aö
lifa af kjarnorkuógnina, umhverf-
isvandann og hungurpláguna á
samhentan hátt. Þetta var kjarninn
í jólafósturæðu Mikhails Gor-
batsjovs Sovétléiðtoga á þingi Sam-
einuðu þjóðanna.
Og eins og til að sýna hagnýtt
gildi boðskaparins á líðandi stund
komu fyrstu afleiöingar af tilkynn-
ingu hans um fækkun í Sovéthern-
um um tíunda hluta og heimkvaön-
ingu herdeilda frá Austur-Evrópu
og Mongólíu fram á vestrænum
gjaldeyrismarkaði. Verðgildi
Bandaríkjadollars tók stórt stökk
upp á við. Á markaðnum í London
eíldist dollarinn um þrjú sent gagn-
vart sterlingspundi, íjóra pfenn-
inga gagnvart marki og tíu sentím-
ur móti frönskum franka.
Skýrari sönnun er vart fáanleg
fyrir samtengingu hagsmuna
stjórna risaveldanna um þessar
mundir. Frá því George Bush,
frambjóðandi meginhluta banda-
rísku kaupsýslustéttarinnar, sigr-
aði í forsetakosningum fyrir rúm-
um mánuði hefur dollarinn átt í
vök að verjast á markaðnum. Meg-
inástæðan er að engin leið var eygj-
anleg fyrir stjórn hans að ná skjót-
um og fóstum tökum á því höfuð-
verkefni að ná niður hallanum á
ríkisbúskap Bandaríkjanna.
Einhliða fækkun i Sovéthernum,
skerðing þungs vopnabúnaðar og
heimkvaöning setuliðs úr erlend-
umr íkjum ryður brautina fyrir
breytt viðhorf til fjárlagagerðar í
Bandaríkjunum. Niðurskurður
sligandi hernaðarútgjalda er báð-
um risaveldum í hag. Gorbatsjov
reynist bjargvættur dollarsins með
orðum sínum einum.
Og eins og vant er reynist tíma-
setningin hjá Sovétleiðtoganum
frábær. Hann kemur með boöskap
sinn í þann mund sem ráð Atlants-
hafsbandalagsins er að setjast á
rökstóla í Brussel. Á undan þeim
fundi hefur farið af hálfu Banda-
ríkjamanna og framkvæmda-
stjórnar bandalagsins undirbún-
ingur, sem i meginatriðum hefur
snúist um yfirburöi Sovétríkjanna
í herstyrk og hefðbundnum vopna-
búnaði og kostnaðinn af veru
365.000 manna bandarísks herliös í
löndum Vestur-Evrópu, fyrst og
fremst Vestur-Þýskalandi.
Bandaríkjamenn halda því fram
aö þeir beri 60 af hundraði af kostn-
aöi varna Vestur-Evrópu. Banda-
rískir þingmenn og embættismenn
hafa upp á síðkastið gengið maöur
undir manns hönd að brýna fyrir
ríkjum Vestur-Evrópu aö annað-
hvort verði þau að taka á sig stór-
aukinn hluta af kostnaði viö banda-
rísku hersetuna eða taka því aö
sparnaðarráðstafanir felist í
heimkvaðningu verulegs hluta
bandaríska liðsins frá Evrópu.
Á fundi landvarnarráðherra
NATÓ í síðustu viku var meginá-
hersla lögð á að hvetja ríki Vestur-
Evrópu til aukinna fjárframlaga til
Erlendtídindi
Magnús Torfi Ólafsson
hermála. Líkurnar á árangri af
slíkum brýningum má marka af
því að sömu dagana var kunngerð-
ur í Vestur-Þýskalandi helmings
niðurskurður heræfinga frá og
með 1990.
Loks birti framkvæmdastjórn
NATÓ nýverið eftir miklar þrautir
samanburð á herafla og vopnabún-
aði hernaðarbandalaganna í Evr-
ópu. Þar eru tölulegir yfirburðir
Sovétmanna og bandamanna
þeirra taldir þrír á móti einum í
skriðdrekafjölda og tveir á móti
einum í mannafla undir vopnum.
í ljósi alls þessa reyna utanríkis-
ráðherrarnir á fundinum í Brussel
að koma endanlega saman tillögu
af hálfu NATÓ að leggja fyrir ráð-
stefnu í Vín. Þar á að fjalla um leið-
ir til að draga úr hefðbúndnum
vopnabúnaöi í Evrópu, og standa
vonir til að ráöstefnan geti hafist
snemma á nýja árinu.
í Brussel hafa menn búið sig und-
ir áralanga togstreitu í Vínarborg
áður en árangur kæmi í ljós. Gor-
batsjov má ekki vera að því að bíða
eftir slíku. Honum liggur á að
virkja í þágu efnahagslegrar end-
urreisnar eitthvað af þeim íjár-
munum og mannafla sem verið
hefur bundið í sovéskum hernaðar-
viðbúnaði.
Og hann ætlar sér ekki aðeins aö
spara fé og fólk. Þar á ofan hyggst
hann nú sýna svart á hvítu að Sov-
étstjórninni sé alvara að breyta
stööu og vopnabúnaði herafla síns,
á þann veg að ljóst megi vera að
hann sé ekki í árásarstellingum
heldur fyrst og fremst búinn til
varnar. Þessi herskipan er kjarn-
inn í tillögum Gotbatsjovs um stöð-
ugleika og gagnkvæmt öryggi, sér
i lagi á mörkum hernaðarbanda-
laganna í Evrópu.
Fram til þessa hefur búnaður og
staða Sovéthersins einkennst af því
ástandi sem ríkti meðan Bandarík-
in höfðu yfirburði í kjarnorku-
vopnabúnaði og gátu náð meö hon-
um til Sovétríkjanna, án þess aö
Sovétherinn gæti svarað í sömu
mynt með árásum á Bandaríkin
sjálf. Svar sovésku forustunnar var
á þeim árum að koma sér upp yfir-
burðastyrk á landi meöfram
markalínunni i Evrópu, svo ljóst
væri að sókn til Atlantshafs gæti
orðiö afleiðing fnðslita.
í þessa stöðu biefur sovéska her-
stjórnin haldiö, þrátt fyrir ger-
breyttar aðstæöur. Nú standa risa-
veldin svo jafnt aö vígi í kjarnorku-
vígbúnaði til gereyðingarárása um
langar vegalengdir, að hernaðarleg
rök fyrir sóknaraðstööu sovéska
landhersins í Evrópu eru fyrir
löngu úr sögunni. Við bætist að
hefðbundinn vígbúnaður íjöl-
mennra herja er þyngsti kostnað-
arbagginn í herbúnaöinum öllum.
Fækkun í Sovéthernum um hálfa
milljón manna kemur að verulegu
leyti með því að flytja brott setuliö
frá Mongólíu við landamæri Kína
í austri og frá Póllandi, Tékkó-
slóvakíu og Ungverjalandi í vestri.
Frá Austur-Evrópu verða fluttar
sex skriðdrekaherdeildir að sögn
Gorbatsjovs og alls teknir úr notk-
un í Evrópu 10.000 sovéskir skrið-
drekar, 8.500 stórskotakerfi og 800
orrustuflugvélar.
Jafnframt fækkuninni verður
liðið, sem eftir veröur í löndum
Austur-Evrópu, endurskipulagt
þannig að bersýnilegt verði að það
sé í varnarstöðu. Jafnframt fækk-
un vopna og hermanna boðar Gor-
batsjov endurskipulagningu her-
gagnaiðnaðarins, með það fyrir
augum að verksmiðjur sem nú
vinna fyrir herinn taki upp fram-
leiðslu til friðsamlegra nota.
Þessi niðurskurður er einhliöa
og skilyröisiaus og án tengsla við
samningaumleitanir í Vín innan
tíðar um gagnkvæman niðurskurð
herafla og búnaðar hernaðar-
bandalaganna í Evrópu, en langt
er síðan Sovétmenn féllust á að
ræða það mál á grundvelli jafnræð-
is, þannig að niðurskurður miöi að
því að eyða ójafnvægi með því að
svipta þann sem meira hefur því
sem muninum nemur.
Síðan býöur Gorbatsjov fram við
Bush forsetaefni „samningaum-
leitanir í hreinskilni og góðvild"
um að ganga frá því sem á skortir
samkomulag um skerðingu lang-
drægra kjarnavopna risaveldanna
um helming. Jafnframt veröi leitað
samkomulags um bann við sýkla-
vopnum og efnavopnum og algera
útrýmingu þeirra úr vopnabúrum
þjóðanna. Bush hefur látið í ljós
sérstakan áhuga á að árangur náist
í þeim þætti afvopnunar.