Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988.
Persónuleikapróf.___________________x>v
Átt þú auðvelt með að
umgangast annað fólk?
Foröast þu umgengni viö annað fólk?
Þetta próf fjallar um þaö hvernig
þér gengur aö umgangast annað fólk.
Þetta er atriði sem veltur mikið á því
hvort þú tekur þá sem þú umgengst
eins og þeir eru. Hér á eftir fylgja 28
fuliyrðingar og gefinn er kostur á
fimm svörum við hverri þeirra.
Möguleikarnir eru þessir:
1 = Á alls ekki við um mig
2 = Á stöku sinnum við um
mig .
3 = Á nokkuð oft við um mig
4 = Á mjög oft við um mig
5 = Áalltafviðummig
í þessum efnum eru engin svör með
öllu rétt eða alröng. Þú verður því
að velja það svar sem þér finnst eiga
best við um þig. Þú gefur þér stig í
samræmi við svörin sem þú velur
og leggur þau saman að lokum.
1. Ég á auðvelt með að umgangast
allt fólk, óháö stétt þess og stöðu.
(...)
2. Ég er svo upptekin(n) af vinnunni
að ég hef engar áhyggjur af því þótt
ég eigi enga nána vini.
(...)
3. Ég er á móti því aö eyða miklum
tíma í vinnu fyrir aðra. Ég held að
það sé best að hver sjái um sig.
(...)
4. Mér er illa við að gera öðrum
greiöa því þá er hætta á að viðkom-
andi gangi á lagiö og noti sér góð-
mennskuna.
(...)
5. Ég tel rangt að taka tillit til tilfmn-
ingamála þegar mikilvægar ákvarð-
anir eru í húfi.
(...)
6. Málamiðlanir eru yflrleitt slæmar.
Ef fólk er ekki sama sinnis og ég þá
vil ég sem minnst hafa af því aö segja.
(...)
7. Þótt maki ntinn sé auðvitað ekki
fullkominn þá fmnst mér að hann
eða hún geti bætt sig í einstökum
atriðum.
(...)
8. Það er ekkert við það að athuga
þótt lítillega sé gengið á rétt annarra
ef það bætir stöðu mína.
(...)
9. Ég reyni yfirleitt að fá fólk til að
gera það sem ég vil að það geri.
(...)
10. Ég gef öðrum oft ráð þegar ég
veit að það. á erfltt með að taka
ákvörðun.
(...)
11. Ég nýt mín best þegar ég er einn
og fjarri öðrum.
(...)
12. Mér finnst ég standa jafnfætis
flestu fólki sem ég hitti.
(...)
13. Það kemur fyrir að fólk-misskilur
mig þegar ég reyni að ráða því frá
aö gera afdrifarík mistök.
(...)
14. Það kemur sjaldan fyrir að ég
hæli fólki fyrir það sem mér finnst
að þaö hafi gert vel.
(...)
15. Mér finnst gaman að gera fólki
smágreiða, jafnvel þótt ég þekki það
ekki
(...)
16. Ég vil frekar vera einn en í nánu
sambandi við það fólk sem ég um-
gengst.
(...)
17. Ég hef sjaldan áhyggjur af öðru
fólki. í sannleika sagt hugsa ég mest
um sjálfan mig.
(...)
18. Það á að hæla fólki fyrir það sem
vel er unnið en ég verð sjaldan
var/vör við vinnu sem veröskuldar
lof.
(...)
19. Þegar ég er beðin(n) um ráð í
persónulegum málum segi ég yfir-
leitt: ,,Þetta er þinn höfuðverkur."
(...)
20. Ég tel að hver og einn verði að
koma sér sjálfur áfram í lífinu, jafn-
vel þótt það komi niður á öðrum.
(...)
21. Mér finnst yfirleitt sem ég standi
ýmist framar eða að baki því fólki
sem ég þekki.
(...)
22. Mér finnst rétt að hvetja fólk til
að gera sömu kröfur til lífsins og ég
geri.
(...)
23. Ég get auðveldlega umgengist fólk
sem mér líkar þó ekki vel við.
(...)
24. Ég hika ekki við að ganga á hlut
fólks sem ég tel að standi sig illa.
Hver og einn verður að vera sterkur
til að ná markmiðum sinum.
(...)
25. Fólk sem deihr við mig fer í taug-
arnar á mér.
(...)
26. Ég ætlast yfirleitt til að fólk sem
er yilgra en ég fari að ráðum mínum.
(...)
27. Mér finnst tilgangslaust að hjálpa
öðrum nema þeir geti endurgoldið
það síðar.
(...)
28. Ef ég veit að einhver á í erfiðleik-
um reyni ég yfirleitt að hjálpa við-
komandi.
(.:.)
Stigin
Áður en þú leggur saman stigin
þarf að snúa við stigagjöfinni fyrir
fullyrðingar númer 1; 12; 15; 19 og 23.
Um þessar fimm fullyrðingar gildir
að ef þú gafst þér:
svar 5 þá færð þú 1 stig
svar 4 þá færð þú 2 stig
svar 2 þá færð þú 4 stig
svar 1 þá færð þú 5 stig
Þegar þú hefur gert þessar breyting-
ar þá leggur þú stigin saman og berð
þau saman við greininguna.
Greining
Eftir því sem stig þín eru færri því
auðveldar átt þú með aö umgangast
annað fólk. Þú stendur þar af leið-
andi þeim mun verr að vígi eftir því
sem stigum fjölgar.
Ef stigin eru 46 eða færri
Þetta er hagstæð niðurstaða fyrir
þig. Þú átt auðvelt með að umgang-
ast aðra.
Ef stign eru 47 til 70
Þú þarft engar áhyggjur að hafa.
Umgengni þín við annað fólk er
vandræðalaus.
Ef stigin eru 71 til 97
Þú átt auðvelt með aö umgangast
annað fólk við flestar aðstæður en
ekki allar. Þú ættir að athuga betur
þau atriði þar sem þú fékkst mörg
stig.
Ef stigin eru 98 til 121
Þetta er ekki nógu góð niðurstaða.
Þú átt fremur erfitt með að umgang-
ast aðra og ættir að gera eitthvað í
málinu.
Ef stigin eru 122 eða fleiri
Þetta er mjög slæm niöurstaða. Þú
virðist eiga í miklu erfiöleikum með
að umgangast aðra og foröast það
jafnvel. Þetta krefst róttækra að-
gerða af þinni hálfu.
ER ÞAÐ 1 EÐA X EÐA 2 32
A -Sárt bítur soltin lús,“ sagöi þingmaður í umræöum á
Alþingi nú í vikunni. Hann heitir:
1: Jóhann Einvarðsson
X: Þorvaldur Garðar Kristj ánsson
2: Guðrún Helgadóttir
P Þeir Margeir Pétursson og Jón L. Árnason tefla nú á sterku
skákmóti. Borgin sem teflt er í heitir:
1: Þessalonika
X: Budapest
2: Belgrad
B Skipasmíðastöðin Stálvík leitar víða að verkefnum. Nú síð-
ast kom upp hugmynd um skipasmíðar fyrir:
1: Egypta
X: Grænlendinga
2: Færeyinga
Verslun í Reykjavík notar þetta merki.
Hún selur:
1: hljóðfæri
X: hljómtæki
2: tónsmíðar
D Enn eru uppi deilur um skólastjórnina í Ölduselsskóla.
Skólastjórinn heitir:
1: Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
X: SturlaKristjánsson
2: Áslaug Brynjólfsdóttir
E Knattspyrnumaðurinn Guðni Bergsson hef
ur undanfarið iðkað íþrótt sína á Englandi.
Félagið sem hann hefur verið með heitir:
1: Liverpool
X: Arsenal
2: Tottenham
G Þetta merki er notað til að auðkenna íþrótt nokkra. íþrótt-
in er:
1: hnútukast
X: handknattleikur
2: kúluvarp
H Málsháttur hljóðar svo: Hver er sinnar gæfu...
1: smiður
X: maður
2: höfundur
I 7--------------'
Sendandi ________________________________________
Heimili ________________________________________________________
I Rétt svar: A □ B □ C □ D □
E □ F □ G □ H □
Hér eru átta spurningar og
hverri þeirra fylgja þrír mögu-
leikar á réttu svari. Þó er aðeins
eitt svar rétt við hverri spurn-
ingu. Skráið réttar lausnir og
sendið okkur þær á svarseðlin-
um. Skilafrestur er 10 dagar.
Að þeim tíma liðnum drögum
við úr réttum lausnum og veit-
um þrenn verðlaun, öll frá póst-
versluninni Primu í Hafnar-
firði.
Þau eru:
1. Fjölskylduteppi að verðmæti
kr. 5.430,-
2. Fjölskyldutrimmtæki að
verðmæti kr. 2.750,-
3. Skærasettað verðmæti 1.560,-
í öðru helgarblaði héðan í frá
birtast nöfn hinna heppnu en
nýjar spurningar koma í næsta
helgarblaði.
Merkið umslagið 1 eða X eða 2,
c/o DV, pósthólf5380,125
Reykjavík.
Vinningshafar fyrir 1 eða X eða
2 í þrítugustu getraun reyndust
vera: Dóra Tryggvadóttir,
Hamrahlíð 30,690 Vopnafjörður
(hitateppi); Jóna Böðvarsdóttir,
Strandgötu 17A, 450 Patreks-
íjörður (trimmtæki); Jóhanna
Oskarsdóttir, Knarrarbergi 1,
815 Þorlákshöfn (skærasett).
Vinningarnir verða sendir
heim.
Rétt lausn var X-1-1-X-2-1-X-2