Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988.
21
Isabel Peron er snúin aftur úr
langri útlegð.
Isabel Peron
er komin heim
Isabel Peron segist ætla að búa í
Argentínu næstu árin. Hún sneri
óvænt til heimalandsins í síðasta
mánuði í fyrsta sinn eftir að hún fór
þaðan árið 1984.
Útlegðarárin bjó hún á Spáni. „Mér
leið vel á Spáni en ég á heima í Arg-
entínu og vil hvergi annars staðar
vera,“ var haft eftir Isabel þegar hún
gaf út yfirlýsinguna um að hún hygð-
ist setjast að á ný í Argentínu.
Isabel Peron er ekkja hins sérstæða
þjóðarleiðtoga Juans Peron sem um
árabil stjórnaði Argentínu, hraktist
í útlegð og sneri síðan aftur við
skammvinnan fógnuð landsmanna.
Hann lést í embætti árið 1974 og þá
tók Isabel við.
Hún ríkti í Argentínu tvö storma-
söm ár áður en herinn gerði uppreisn
árið 1976 og hneppti hana í varðhald.
Hún var í haldi hersins fram til árs-
ins 1981 þegar hún fékk leyfi til að
hverfa úr landi. Þá settist hún að á
Spáni.
Isabel hefur látið á sér skilja að hún
ætli að skipta sér af stjórnmálum á
næstu árum enda hafa yfirmenn
hersins orðið að hverfa úr valdastól-
um. í maí á næsta ári veröa forseta-
kosningar í Argentínu og velta menn
nú vöngum yfir hvort hún verður
þá meöal frambjóðenda.
er° ki
■’v-QOC
PHILIPS býður þessa fullkomnu samstæðu á sérstæðu verði allt til
jóla. - Geislaspilari, plötuspilari, tvöfalt snældutæki, útvarpsvið-
tæki, magnari og tveir hátalarar. - PHILIPS er brautryðjandinn í
gerð geislaspilara; gæði, frágangur og útlit í sérflokki.
• Geislaspilari. 20 laga minnl, fullkominn lagaleitari ásamt
fínstillingu, stafrænn gluggi. Tekur bæði 5 og 3ja tommu diska.
• Plötuspilari. Hálfsjálfvirkur, 2ja hraða, 45 og 33 snúninga.
• Útvarpstæki. Stafrænt með 10 stöðva minni. FM sterio/mono.
Sjálfvirkur leitari og fínstilling á hverri bylgju.
• Tvöfalt snældutæki. Hámarks hljómgæði. Sjálfvirk stöðvun viö
enda á snældu. Teljari. Pása. sjálfvirk upptökustilling.
• Magnari. 2x40 músik-Wött. Grafískurtónjafnari. Hljómstilling
á sleða. Steríójafnvægi á sleðastillingu. Stungur fyrir
hljóðnema og heymartól.
• Hátalarar. Stafrænir, 40músík-Wött.
Láttu jólin hijóma
með PHILIPS.
s'Sr
' s'r"
Heimilistækl hf
SætúniS • Hafnarstræti 3 • Kringlunni
SfMI: 69 15 15 SÍMI:691525 SlMI:691520
{/óá ebUHcStfeáfefOrtSegiri í samm^íwv
Wt
BARATTUFUNDURINN ER I HASK0LABI0I
í dag kl. 15.00.
ASÍ BHMR BSRB FBM KÍ SÍB
JOUGJAFAITOL
VLIHDIAAXSLVS
Þröstur Elliðason áritar
veiðibók sína ,,Hann er á!“
millí kl. 13 og 18. Hverrí bók
íy-lgir nýjasta fluga Engíl-
berts Jenssonar LINDA
Verslunin
eiðivi
Langholtsvegi 111
104 Reykjavík 0) 6870'90