Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Side 23
LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988.
23
Bardotbjargar 110 dýrum
Brigitte Bardot hefur keypt 110
vannærð dýr úr dýragarði í Frakk-
landi. Dýragarðurinn, sem var í
einkaeigu, varð gjaldþrota fyrir
skömmu en ekkert var gert til að
tryggja framtíð dýranna sem þar
voru geymd.
Bardot stóð fyrir landssöfnun dýr-
unum til bjargar. Á einni viku söfn-
uðust um 40 milljónir króna og næg-
ir það til að forða málleysingjunum
frá hungurdauða næstu mánuðina.
Bardot hefur þó ekki í hyggju að
hefja rekstur dýragarðs því hún er
mjög á móti slíkum stofnunum. Því
er ætlunin að koma þeim 110 dýrum
sem hún keypti í sín réttu heim-
kynni. Og hún ætlar ekki að láta þar
við sitja því á döfinni er herferð gegn
dýragörðum.
Þetta hefur verið sérstakt áhuga1
mál Bardot á síðstu misserum og
hefur hún vakið verulega athygli í
heimalandi sínu fyrir að leggja dýr-
um, sem haldið er föngnum, lið.
Svo virðist því sem Bardot hafa um
sinn lagt á hilluna baráttuna fyrir
vemdun sela enda er það nú svo vin-
sæl iðja að stórstjörnur líta ekki við
henni.
Brigitte Bardot leggur nú til atlögu við dýragarða.
Opið 9-21
til jóla
Einnig allt efni
til jólaskreytinga
GARÐSHORN
við Fossvogskirkjugarð sími 40500
PLAKÖT
og rammar
Stórt
og smátt
nyform
REYKJAVÍKURVEGI66,220 HAFNARFIRÐI, SlMI 54100.
NÝJAR
SENDINGAR
af sófasettum og hornsófum
Hagstæð greiðslukjör.
Opið í dag til kl. 18,
sunnudag kl. 14-16.
NÝFORM
REYKJAVÍKURVEGI66,220HAFNARF1RÐI,SÍMI 54100.