Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Side 34
46
l.ÁUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988!
Kvikmyndir dv
Vetrarafurðir frá Wamerbræðrum
Frægir leikarar eiga að auka aðsókn
Haustíð og tíminn fram að jólum
er einn helsti uppskerutími stóru
fyrirtækjanna i Hollywood. Þá líta
dagsins ljós margar af þeim kvik-
myndum sem fyrirtækin binda mest-
ar vonir við og er hið gamalgróna
fyrirtæki Warner bræður engin und-
antekning í þeirri hörðu samkeppni
sem ríkir milli risafyrirtækjanna.
Hér á eftir fer listí yfir nokkrar
kvikmyndir sem Warner bindur
mestar vonir við í vetur. Má geta
myndahátíðinni í Cannes fyrr á ár-
inu.
Clara's Heart
Whoopi Goldberg telur að í Clara’s
Heart hafi hún fengið sitt besta hlut-
verk síðan The Color Purple. Hún
leikur vinnukonu frá Jamaica sem
hefur mikil áhrif á líf tólf ára drengs
sem gengur í gegnum erfitt tímabil í
lífi sínu þegar foreldrar hans skilja.
sómasamlegu lífl. Aðrir leikarar eru
Sylvia Miles, Jeoren Krabbe og Peter
Rigert.
Everybody's
All American
Everybody’s AU American íjallar
um þrjár persónur sem hafa verið
vinir í langan tíma. Fótboltahetjuna
úr háskóla, kærustu hans i skólanum
og frænda sem leit aðdáunaraugum
upp til fótboltahetjunnar.
Dennis Quaid leikur fótboltahetj-
una Gavin Gray sem neitar að viður-
kenna að hans tími i iþróttinni er
útrunninn þar til hann er neyddur
til að hætta.
Jessica Lange leikur Babs Roger
er giftist hetjunni sinni og heldur sig
hafa náð draumaprinsinum, en eftír
því sem ferli Gavins hnignar finnur
hún hvöt hjá sér að gera eitthvað
sjálf.
Sá sem fylgist með parinu í íjarska
er Donnie og er hann leikinn af Tim-
othy Hutton. Hann hefur alltaf elsk-
að Babs og eftir því sem árin líða fer
þessi ástríða hans að hafa áhrif á
dómgreind hans.
Leikstjóri er Taylor Hackford sem
á að baki myndir eins og An Officer
and a Gentleman, Against All Odds,
White Nights og Chuck Berry, Hail
Hail Rock’n’Roll.
Tom Selleck leikur vinsælan sakamálarithöfund sem trúir á sakleysi fallegr-
ar konu sem ákærð er fyrir morð í Her Alibi.
þess að þær munu verða sýndar í
Bíóborginni og Bíóhöllinni á næstu
mánuðum.
The Accidental
Tourist
William Hurt, Kathleen Turner og
Geena Davis leika aðalhiutverkin í
The Accidental Tourist sem er lýst
sem gamanmynd meö alvarlegum
undirtóni og er leikstýrð af Lawrence
Kasdan.
Hurt leikur rithöfund sem missir
fótfestuna þegar sonur hans deyr og
konan hans fer frá honum, auk þess
sem hann á í sambandi við óvenju-
legan hundatemjara.
Kashdan hóf sinn leikstjórnarferil
með Body Heat og í Accidental Tour-
ist leikstýrir hann aftur Wilham
Hurt og Kathleen Tumer, en það var
einmitt Body Heat er gerði þau að
stjömum. Geena Davis er aftur á
mótí nýtt nafn í Hollywood. Hún lék
þó í tveimur vinsælum kvikmyndum
á þessu ári, The Fly og Beetiejuice.
The Accidential Tourist er fjórða
kvikmynd Lawrence Kashdan. Áður
er nefnd Body Heat. Hinar tvær eru
The Big Chill og Silverado. Hann er
einnig handritshöfundur Raiders Of
The Lost Ark og skrifaði ásamt öör-
um handritin að The Empire Strikes
Back og Return Of The Jedi.
Bird
Áður hefur verið fjallað um Bird á
þessari síðu og er óþarfi að endur-
taka þær lýsingar. Bird er byggð á
ævi djasskóngsins CharUe Parker og
er leikstýrð af CUnt Eastwood. Forr-
est Whitaker, er leikur Parker, fékk
verðlaun sem bestí leikarinn á kvik-
Clara’s Heart er leikstýrt af Robert
MuUigan sem á að baki myndir á
borö við To Kill a Mockingbird,
Summer of ’42 og Same Time Next
Year, svo einhverjar séu nefndar.
Clean and Sober
Michael Keaton hefur nær ein-
göngu fengist við gamanhlutverk. í
Clean and Sober fær hann tækifæri
tfi að sýna hvort hann ráöi við alvar-
leg hlutverk. Leikur hann Daryl Po-
ynter sem tekur að láni 92.000 þús-
und doUara og getur ekki endur-
greitt þá.
Ekki bætir það úr hjá honum þegar
lögreglan handtekur hann tíl að
spyrjast fyrir um sambýliskonu hans
sem ekki hefur vaknað upp eftir að
hafa tekið of mikið af eiturlyfjum.
Sjálfur er hann eiturlyfjaneytandi
þótt hann viðurkenni það ekki fyrir
sjálfum sér.
Leikstjóri Clean and Sober er
Glenn Gordon Caron sem er sjálfsagt
þekktastur fyrir að hafa skrifaö
handrit að sjónvarpsþáttunum vin-
sælu MoonUghtíng.
Crossing Delancey
Crossing Delancey er leikstýrt af
Joan Mickhn Silver sem er sjálfsagt
einn þekktasti kvenleikstjóri vestan
hafs. Er myndin gerð eftir leikrití
eftír Susan Sandler og skrifar hún
handritið.
Irving leikur Isabelle Grossmann,
einhleypa konu er býr í New York í
kringum 1930. Grossman er sjálfstæð
kona og metnaðargjörn sem gengið
hefur vel í harðri lífsbaráttu. Tíðar-
andinn er samt ekki alveg á hennar
bandi og ættingjar reyna að finna
henni eiginmann svo hún geti lifað
Kathleen Turner, William Hurt og Geena Davis leika aðalhlutverkin í The
Accidental Tourist, gamanmynd með alvarlegum undirtóni.
Isabelle Grossman (Amy Irving) litur full grunsemdar á Sam Posner (Peter
Riegert) sem amma hennar vill að hún giftist í Crossing Delancey.
Dennis Quaid og Jessica Lange leika fótboltahetjuna Gavin Grey, sem
uppnefnd er Grái draugurinn, og magnoliudrottninguna Babs Rogers i
Everybody’s All American.
Mel Gibson leikur fyrrverandi eitur-
lyfjasala, Kurt Russell vin hans,
löggu, og Michele Pfeiffer konuna
sem þeir báðir eru hrifnir af í Tequ-
ila Sunrise.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Her Alibi
Tom Selleck sló í gegn í kvikmynd-
inni Three Men and a Baby. Hans
fyrsta mynd síðan er Her Alibi þar
sem hann leikur vinsælan sakamála-
rithöfund sem hittir fyrir dularfulla
og glæsilega konu sem er ákærð fyr-
ir morð.
Hann fer yfir staðreyndir í máh
hennar og kemst að þeirri niðurstöðu
aö hún sé saklaus. Hann segir lög-
reglunni að hún sé ástkona hans og
segir þau hafa verið saman þegar
morðið var framið.
Rómantíkin blómstrar, en rithöf-
undinn fer að gruna að ekki sé allt
með felldu þegar ýmsir óskýranlegir
atburðir fara að henda hann og alltaf
þegar sú ákærða er með honum.
Meðleikari Selleck er Paulina
Porizkove sem um nokkurt skeiö
hefur verið hæst launaða fyrirsæta
í heimi en er nú að fikra sig áfram í
kvikmy ndabransanum.
Ástralski leikstjórinn Bruce Beres-
ford leikstýrir myndinni en hann á
að baki úrvalsmyndir á borð við
Breaker Morant, Tender Mercies og
Cfimes Of Heart.
Tequila Sunrise
Mel Gibson, Michele Pfeiffer, Kurt
Russell og Raul Julia leika aðalhlut-
verkin í Tequila Sunrise sem er skrif-
uð og leikstýrt af Robert Towne.
Kvikmyndin íjaUar um samband
tveggja vina sem voru saman í skóla
en hafa farið í sitt hvora áttina síðan.
Annar þeirra McKussic, er Mel Gib-
son leikur, hefur haft það að atvinnu
að selja eiturlyf. Hann er að reyna
að komast frá þeirri iðju sinni.
Vinur hans Fresica (Russel) er
lögga sem fær það verkefni að koma
vini sínum í fangelsi. Á mifii þeirra
tveggja er Vallenari (Pfeiffer) sem á
erfitt með að gera upp tilfinningar
sínar til þeirra. -HK