Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1988, Qupperneq 35
LAUGARDAQlItt 1Q. DEgEMRER 1988.
47
Bridge
„Vill einhver reyna
blekldspilamennsku?''
Alþjóöasamtök bridgeblaðamanna
veittu nýlega precisionverðlaunin
fyrir besta vamarspilið 1988. Það var
ítalinn Paolo Frendo sem kynnti spil-
ið í grein sem hann kaUaði: Vill ein-
hver reyna blekkispilamennsku?
„Blekkispilamennsku í vörn virð-
ast engin takmörk sett, ef marka má
hvert spilið öðru betra hjá hug-
myndaríkum varnarspilurum.
Þaö síðasta kemur frá Mílanó í
háum rúbertubridge í spilaklúbbi
þar í borg - Pakistaninn Zia Mah-
mood gæti vel haft eitt slíkt i fórum
sínum.
í sæti austurs situr Primo Levi,
mjög þekktur rúbertuspilari og tví-
menningsmeistari, sem um árabil
spilaði sem makker Mario Franco í
einvígjum gegn sterkum andstæð-
ingum á Ítalíu og Frönsku Rivier-
unm.
4
V
♦
4 1063
4 D84
4 ÁK752
+ GIO
N
V A
S
4
4
4
X
4 ÁK872
V ÁKG5
4 D8
+ 85
Sagnir gengur þannig:
Suður Norður
1S’ 1G2
2H 3S
4S pass
Brídge
Stefán Guðjohnsen
1) Fimmlitur
2) Krafa um umferð
Vestur spilar út laufkóng, austur
kallar með sjöunni og vestur spilar
meira laufi sem austur drepur með
ás. Þá kemur hjartasex, sem sagn-
hafi drepur heima, og tekur síðan
spaðaás. Vestur lætur litið og austur
drottninguna. Til þess að tryggja sig
fyrir G x x í vestur þá spilar sagn-
hafi eðlilega litlum spaða á tíuna.
Vestur drepur á gosann og óvænt
kemur fimmið frá austri! Síðan kem-
ur hjarta frá vestri, austur trompar
með spaðaníu og pottþétt geim er
allt í einu komið einn niöur.
Allt spilið var þannig:
4 1063
4 D84
4 ÁK752
X G10
4 G4
4 109732
4 93
+ KD93
4 D95
V 6
4 G1064
+ Á7642
4 ÁK872
¥ ÁKG5
4 D8
+ 85
Sannkallað verðlaunaspil!
Bridgesamband Vesturlands
Vesturlandsmót í tvímenningi.
Laugardaginn 26. nóv. sl. var haldið
Vesturlandsmót í tvímenningi í
Borgarnesi. 25 pör tóku þátt í mótinu
og varð röö efstu para þessi:
Karl Alfreðsson-
Jón Alfreösson, Akranesi 119
Þorsteinn Pétursson-
Þórir Leifsson, Borgarfirði 105
Gísli Ólafsson-
Guöni Hallgrímsson, Grundarf. 96
Ingi St. Gunnlaugsson-
Einar Guömundsson, Akran. 78
Jón Á. Guðmundsson-
Guðjón I. Stefáns., Borgarn. 58
Níels Guðmundsson-
Jón Þ. Björnsson, Borgarnesi 48
Þór Geirsson-
Jón St. Kristinsson, Grundarf. 48
Guðmundur Bjarnason-
Bent Jónsson, Akranesi 42
Bikarkeppni sveita
á Vesturlandi
Búiö er að draga í 1. og 2. umferð
bikarkeppni sveita á Vesturlandi og
eigast eftirtaldar sveitir við.
1. umf.:
Þórir Leifsson, Borgarflrði-
Magnús Magnússon, Akranesi.
Jón Á. Guðmundsson, Borgarnesi-
Guðmundur Ólafsson, Akranesi.
Ragnar Haraldsson, Grundarfirði-
Sjóvá, Akranesi.
Þórður Elíasson, Akranesi-
Ellert Kristinsson, Stykkishólmi og
Árni Bragason, Akranesi-
Leifur Jósteinsson, Grundarfirði.
Þessum leikjum á að vera lokiö fyrir
áramót.
2. umf.:
Jón Á./Guömundur-Eggert Sigurðs-
son, Stykkishólmi.
Árni/Leifur-Þórir/Magnús
Hreinn Björnsson, Akranesi-
Unnsteinn Arason, Borgarnesi og
Ragnar/Sjóvá-Þórður/Ellert.
Þessum leikjum á að vera lokið 1.
febrúar.
Núverandi bikarmeistari er sveit Ell-
erts Kristinssonar, Stykkishólmi.
Fyrsta kvöldi af þremur í hrað-
sveitakeppni félagsins er lokið og
taka 5 sveitir þátt í henni. Staðan að
loknu fyrsta kvöldinu:
1. Björn Sveinsson 553
2. Sigurður Skagfjörð 531
3. Ævar Jónasson 523
4. Þórður Reimarsson 490
5. Brynjar Olgeirsson 410
bent á að senda inn umsóknir til
Bridgesambandsins fyrir 20. jan. á
næsta ári. Ef fleiri en 7 pör sækja
um, verður valið eftir því hve mörg
meistarastig hafa áunnist síðustu 4
árin. (Sama regla og verður notuð
við val á pörum í tvímenninginn á
Bridgehátíð). Nánari upplýsingar hjá
Bridgesambandinu í síma 689360.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarö-
ar og Sparisjóðs Hafnarfjaröar verð-
ur haldið 27. des. næstkomandi. Þetta
er opið mót sem spilað verður í
Flensborgarskóla og hefst kl. 18.00.
Skráning er hafm og hægt að skrá
sig í símum 52941 (Einar Sigurðs-
son), 50275. (Kristján Hauksson) og
50189 (Ingvar Ingvarsson).
Evróputvímenningur
Philip Morris Evróputvímenning-
urinn verður haldinn í Salsomaggi-
ore á ítalíu dagana 17.-19. mars. Is-
lendingar eiga rétt á að senda 7 pör
á þetta mót, sem skipa þá landsliö
íslands í tvímenningi. Þeim sem hafa
áhuga á að taka þátt í þessu móti er
Bridgefélag Reyðarfjarðar og
Eskifjarðar
Lokið er 5 kvölda aöaltvímenningi
félagsins með þátttöku 14 para, og
urðu þessi pör efst.
1. Jóhann Þorsteinsson-
Kristján Kristjánsson 1192
2. Guðmundur Magnússon-
Jónas Jónsson 1161
3. Siguröur Freysson-
Einar Sigurðsson 1152
4. Aðalbjörn Jónsson-
Sölvi Sigurðsson 1104
5. Ásgeir Metúsalemsson-
Friðjón Vigfússon 1094
Síðustu tvö kvöldin á árinu veröur
spiluð hraðsveitakeppni.
IþróttapistiU
Frábært hjá
Guðna Bergs
Dvöl knattspyrnumannsins
Guðna Bergssonar hjá enska stór-
liðinu Tottenham Hotspur hefur
veriö mál málanna í heimi íþrótta-
manna á undanförnum dögum.
Vera Guðna hjá liðinu hefur nú
tekið á sig nýja mynd og þegar þetta
er skrifað eru allar líkur á því aö
hann skrifi undir samning hjá lið-
inu. Þetta er glæsilegur árangur
hjá íslenskum knattspyrnumanni
og sýnir raunar og sannar í enn
eitt skiptiö hversu snjalla knatt-
spyrnumenn viö eigum.
Guðni, sem er aðeins 23 ára gam-
all, hefur í sex ár verið viðloðandi
meistaraflokk Vals. Á þessum tíma
hafa gríðarmiklir hæfileikar hans
vakið athygh manna og raunar má
það teljast skrítið að ekkert Uð
skuli hafa sýnt honum áhuga fyrr
en nú aö Terry Venables og félagar
hjá Tottenham virðast hafa upp-
götvað þennan fjölhæfa knatt-
spyrnumann frá íslandi.
Það fór lítið
fyrir bjartsýninni
Þegar það kom frám í fjölmiðlum
að Guðni væri á leið til Tottenham
til reynslu voru menn ekki mjög
bjartsýnir á að Guðni myndi ná því
að komast á samning hjá liðinu.
Guðni hefur þó greinilega staðiö sig
það vel ytra að forráöamenn Tott-
enham hafa faUið fyrir honum. Og
það að Terry Venables vilji gera
við hann samning tíl þriggja eða
fjögurra ára segir raunar allt sem
segja þarf.
Á peningamálum
verður að
finna lausn
Það vekur jafnan forvitni manna
þegar íslenskur knattspyrnumað-
ur semur viö erlent félag hvert
kaupverðið er og hver verði hlutur
þeirra aðila sem máUð varðar.
Frétt DV síðasta mánudag þar sem
það var haft eftir heimildarmanni
blaösins að Valur myndi setja í það
minnsta 300 þúsund pund á Guðna
(24 milljónir króna), vakti mikla
athygU. Aðrir fjölmiðlar höfðu
samband við formann knatt-
spyrnudeildar Vals sem að sjálf-
sögðu neitaði öllu saman enda
hefði það komið mjög á óvart ef
formaðurinn hefði sagt já og amen.
Vitaö er að Valsmenn munu ekki
láta Guðna af hendi fyrir vasapen-
inga. Af ummælum Guöna í DV
má hins vegar ljóst vera aö hann
telur peningamálin sitt einkamál.
Vonandi finnst góð lausn á þessum
þætti málsins fyrir alla aðila.
Tveir íslendingar
í ensku
knattspyrnunni
Fari Guðni til Tottenham verða
tveir íslenskir knattspyrnumenn í
eldlínunni í ensku knattspyrnunni
en fyrir er Sigurður Jónsson hjá
Sheffield Wednesday. Guðni virðist
hafa staöiö sig mjög vel á reynslu-
tímanum hjá Tottenham. Hann
hefur nú þegar náð frábærum ár-
angri í íþrótt sinni og vonandi á
hann eftir að ná enn betri árangri
á White Hart Lane og öðrum knatt-
spyrnuvöllum í framtíðinni. Guöni
býr yfir einstökum hæfileikum
knattspyrnumanns sem honum
tekst örugglega að sýna stuðnings-
mönnum Tottenham og annarra
enskra knattspyrnuliða.
DV á Bylgjunni
og Stjörnunni
Eins og landsmenn vita eru ekki
fastir íþróttaþættir á tónlistar-
stöðvunum Bylgjunni og Stjörn-
unni. Á þeim bæjum er þó einatt
beðið með mikilli eftirvæntingu
eftir síðdegisblaði landsmanna.
Heyrist á annað borð íþróttafrétt á
þessum stöðvum, sem ekki tengjast
beint kappleikjum eða keppnum er
nær undantekningarlaust um frétt
að ræða sem birst hefur í DV þann
sama dag. Á þessum bæjum er beð-
ið eftir síðdegisblaðinu með mikilli
óþreyju og er það vel. Á útvarps-
stöðvunum tveimur eru menn
kannski ekki alveg eins vel inni í
íþróttunum sem á öðrum fjölmiöl-
um enda enginn íþróttafréttamað-
ur til staðar. Því vilja skondin atvik
skjóta upp kolli sem á dögunum.
Frétt DV um 300 þúsund pundin
varðandi Val og Guðna Bergsson
vakti athygli Stjörnumanna. Þeir
höfðu samband viö formann knatt-
spyrnudeildar Vals og spurðu hann
hvort rétt væri að Tottenham hefði
boðið Val 300 þúsund pund fyrir
Guöna. Kannski hefur DV borist
mjög skömmu fyrir fréttalestur og
því hafa fréttamenn Stjörnunnar
ekki haft tíma til lesa frétt DV
vandlegar yfir. Og gjarnan þegar
útvarpsmennirnir hafa séð eitt-
hvað bitastætt á íþróttasíðum síð-
degisblaðsins og hlustendur stöðv-
anna tveggja hafa hlýtt á upplest-
urinn er þess hvergi getið hvaðan
viðkomandi frétt kemur. Auðvitaö
get ég ekki fullyrt það 100% að þeir
á Bylgjunni og Stjörnunni lesi frétt-
ir beint upp úr íþróttasíðum DV og
þá oftast skömmu eftir hádegið.
Það hefur hins vegar vakið athygli
að aldrei heyrist góð íþróttafrétt á
þessum stöðvum nema að í DV
sama dag hafi birst frétt sem teljast
verði í betri kantinum.
íþróttamaður
ársins
Sem endranær munu lesendur
velja íþróttamann ársins 1988. í DV
á mánudaginn munu birtast á
íþróttasíðu nánari upplýsingar um
kjör þetta ásamt atkvæðaseðli sem
síðan verður á íþróttasíðum blaös-
ins dagana fram að áramótum.
Mikil þátttaka var í þessari kosn-
ingu í fyrra og þá var mjög mjótt á
munum. Kristján Arason hand-
knattleiksmaður var þá útnefndur
íþróttamaður ársins. Lesendur áttu
þó mjög erfitt að gera upp á milli
hans og knattspyrnumannsins Ar-
nórs Guðjohnsen. Kristján sigraði
með eins atkvæðis mun. í fyrsta
blaði DV eftir áramótin verða úr-
slitin í kjörinu kynnt lesendum DV
og íþróttamaður ársins hjá lesend-
um DV heiðraður.
Stefán Kristjánsson
. ■ ■■ ■ ■- ■
sa*ss*T^!
• Guðni Bergsson hefur náð að sýna sínar bestu hliðar i herbúðum Tottenham undanfarna daga og svo til
öruggt er að hann komist á smning hjá þessu heimsfræga liði.