Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1988, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988.
5
Fréttir
Harður dómur um Þjóðhagssto&iun:
Leggur ekki fram gögn
sem koma ríkisstjórn illa
- segir PáU HaUdórsson, formaður BHMR
„Þjóðhagsstofijun er undirstofnun
forsætisráðuneytisins og leggur fram
gögn fyrir það. Ef maður orðar þetta
varlega má segja að hún leggi ekki
fram gögn sem koma því illa,“ sagði
Páll Halldórsson, formaður Banda-
lags háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna, í samtali við DV.
,í Kjarabréfi, sem BHMR sendi frá
sér í gær, kemur fram afar hörð
gagnrýni á vinnubrögð og spár Þjóð-
hagsstofnunar. Sýnt er fram á að við
upphaf kjarasamninga hverju sinni
eru spár stofnunarinnar svartar en
um leið og kjarasamningar eru af-
staðnir gerbreytist spáin til hins
betra.
Bent er á að í janúar 1984, rétt fyr-
ir kjarasamninga, spáði Þjóðhags-
stofnun 3,6 prósent samdrætti á ár-
inu. í júlíspá að gerðum kjarasamn-
ingum var enn spáð samdrætti en
aðeins þriðjungi af upphafsspá árs-
ins eða 1,3 prósent sem síðan varð
að 3,6 prósent hagvexti í árslok.
Fyrsta spá fyrir árið 1985 var 1,3
til 1,4 prósent aukning landsfram-
leiðslu. Um mitt árið voru gerðir
hógværir kjarasamningar. Strax á
eftir kom spá um 3,1 prósent vöxt
landsframleiðslu sem síðan reyndist
verða 3,4 prósent.
Fyrsta spá Þjóðhagsstofnunar fyrir
árið 1986 var um 1,9 prósent aukn-
ingu landsframleiðslu. Kjarasamn-
ingum lauk í febrúar 1986 en BHMR
átti í baráttu fram á sumar. Þegar
henni var lokið kom ný spá frá Þjóð-
hagsstofnun um 3,5 prósent aukn-
ingu landsframleiðslu.
I desember 1986 var gerð hin fræga
þjóðarsátt Alþýðusambandsins og
Vinnuveitendasambandsins en mik-
ið var samt skiliö eftir af samninga-
gerð alveg til vors 1987. Þessi samn-
ingagerð byggöi á 3,5 prósent aukn-
ingu landsframleiðslu á árinu 1987
en hún varð 6,6 prósent þegar upp
var staöið.
Síðan segir aö nú hafi Þjóðhags-
stofnun sent frá sér spá fyrir næsta
ár um aö landsframleiðsla 1989 verði
1,6 prósent minni en á þessu ári.
Samkvæmt reynslu fyrri ára og þeim
skekkjum, sem í spánum hafa verið,
má gera ráð fyrir 3 prósent aukningu
landsframleiðslu á næsta ári.
Vegna þessa hefur BHMR gert eig-
in þjóðhagsspá fyrir næsta ár og þar
er því spáð að hagvöxtur aukist um
0,3 prósent á næsta ári en Þjóðhags-
stofnun spáir 1,6 prósent minnkun
hagvaxtar.
Páll Halldórsson sagði að nauðsyn
bæri til fyrir verkalýðshreyfinguna
að gera sína eigin spá þegar kemur
að samningum, en BHMR er nú aö
undirbúa kjarakröfur sínar fyrir
næstaár. -S.dór
Lukkutríó:
Gallaðir miðar
í umferð
Nokkuð hefur borið á því að und-
anförnu að fólk hefur haft samband
við Lukkutríó björgunarsveitanna
og tahð sig hafa hlotið geislaspilara
í vinning en síðan fengið að heyra
að það hafi engan vinning hlotið. DV
hafði samband við skrifstofu Lukku-
tríós og var tjáð að galli hefði orðið
í prentun 500 miða. Sá galli kemur
þannig út að fólk heldur sig hafa
fjarka í teningaspilinu en hefur í
raun fimmu. Er einhver blettur á
miðanum sem villir fólki sýn. Að
sögn björgunarsveitarmanna hefur
fólki verið boðið að koma á skrifstof-
una og sjá hvernig tveir fjarkar eiga
að líta út og öryggisnúmer til að taka
af allan vafa. Allir niiðarnir séu með
Stöðvar tvö númeri og því útilokað
að um vinning sé að ræða. Prent-
smiðja miðanna erlendis mun lag-
færaþennangalla. -hlh
Nonni og Manni í
þýska sjónvarpinu
- og heimildarmynd um ísland á undan
Gizur Helgason, DV, Danmörku:
Sýningar á myndaflokknum
Nonna og Manna hófust í þýska sjón-
varpinu á rás 2 annan dag jóla. Eins
og hér verða þættirnir sex sýndir
daglega og er þeim valinn tími í byij-
un kvölddagskrár kl. 18.00.
Á aðfangadag jóla kl. 16.15 sýndi
þýska sjónvarpiö á sömu rás 45 mín-
útna heimildamynd um ísland. Þátt-
urinn nefndist Milli íss og elds og er
tekinn af manni sem fór á skelli-
nöðru umhverfis landið og var sér-
staklega vel sýnt frá Suður- og Suð-
vesturlandi. Var þátturinn, sem var
vel heppnaður, nokkurs konar und-
anfari Nonna og Manna.
Húsin fyrir aldraða á ísafirði.
Mikið hitamál á ísafírði:
DV-mynd BB, ísafirði
Samþykkt að greiða 40 millj-
ónir í íbúðir aldraðra
Vflborg Daviðsdóttir, DV, ísafirði:
Bæjarstjóm ísafjarðar hélt lokað-
an fund um stöðuna í Hlífarmálinu
svokallaða en það snýst um hvort
bæjarsjóður eigi að taka á sig millj-
ónakostnað við byggingu íbúða aldr-
aðra þar sem svo virðist að ekki hafi
verið samþykkt að greiöa meira en
3-4 milljónir af kostnaði við bygging-
una. Byggingarsamvinnufélagið fer
hins vegar fram á að bæjarsjóður
taki á sig 64 milljónir. Fjármagns-
kostnaður við hana er nú orðinn 47
milljónir.
Á fundinum kom fram að lögmað-
ur, sem leitað var til, Andri Arnason
í Reykjavík, álítur að bærinn hafi
skuldbundið sig til að greiða tengi-
byggingu Hlífar og þann hluta af
kjallara sem kallast föndurrými og
hefði tekið á móti þessari eign þegar
húsið var afhent fyrir rúmu ári.
„Bæjarstjórn féllst á þetta álit en
hafnaði þeirri beiðni stjórnar bygg-
ingarsamvinnufélagsins að greiða
einnig þann hluta af kjallaranum
sem kallast tómstundarými. Einnig
var fallist á að greiða ijármagns-
kostnað í samræmi við skuldastöðu
og eignaraðild," sagði Smári Har-
aldsson bæjarstjórnarmaður í sam-
tali við DV.
Kostnaðurinn við tengibygginguna
er 24,5 milljónir og kostnaður við
kjallara aö viðbættum fjármagns-
kostnaði verður líklega um 10-15
milljónir, samtals um 40 milljónir.
Ekki hefur þó verið gengið endanlega
frá því hve mikið bærinn greiðir af
vaxtakostnaðinum.
Samþykkt var að greiða 20 milljón-
ir með um 10 milljóna króna fram-
lagi úr Framkvæmdasjóði aldraðra
og fella niður gatnagerðargjöld að
upphæð um 10 milljónir. Óákveðið
er hvenær og hvernig 20 milljónir til
viðbótar verða greiddar.
HiGIiJH'IAIÍILVfHK
/a
SKHH.VM (.Di.\T IIA(.líAm
Mikíð úrval af ódÝrum og góðum
flugeldum, kökum, gosum o.fl.
góðgætí fyrir áramótín.
Opið þriðjudai* - iostudíig irá Id. 10-22.
Gamlársdag irá ld. 10-16.