Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1988, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1988.
27
Afmæli
Magnea Hjálmarsdóttir
Magnea Hjálmarsdóttir kennari,
Sigtúni 27, Reykjavík, er áttræð í
dag. Magnea er fædd á Syðra-Seli í
Hrunamannahreppi og ólst upp í
Gröf í Hrunamannahreppi. Hún
lauk kennaraprófi frá KÍ1929 og var
í framhaldsnámi í London og Bristol
í Englandi 1930-1931. Magnea fór í
námsferð um Norðurlönd 1931-1932
og síðar og var í framhaldsnámi í
Edinborgarháskóla 1938-1939. Hún
var kennari í Reykjaskóla í Hrúta-
firði 1932-1933 og í Miðbæjarskólan-
um í Rvík 1933-1936. Magnea tók
sundkennarapróf 1937 og var kenn-
ari í Skildinganesskóla 1936-1946 og
í Melaskóla 1946-1978. Hún var
handavinnukennari á Elliheimilinu
Grund 1962-1984 og vann ásamt
manni sínum, Friðriki Jónassyni, á
sumardvalarheimili lamaðra og
fatlaðra í Reykjadal, fyrst tvö sumur
sem fóstra og fóndurkennari, síðan
sex sumur sem forstöðumaður.
Magnea giftist 29. desember 1966
Friðriki Jónassyni, f. 23. júlí 1907,
kennara. Foreldrar hans voru Jónas
Eiríksson, skólastjóri Búnaðarskól-
ans á Eiðum, og Helga Baldvins-
dóttir. Dóttir Magneu var Hellen, f.
11. september 1937. Hún lést af slys-
förum sextán ára. Dætur Friðriks
eru Jóhanna Arnljót, menntaskóla-
kennari í Kópavogi, og Björk Helgaj
húsmóöir og fyrrv. flugfreyja í Rvík.
Bróðir Magneu var Jón, f. 1912, d.
1913.
Foreldrar Magneu voru Hjálmar
Jónsson, f. 25. maí 1878, d. 2. janúar
1915, b. á Syðra-Seli í Hrunamanna-
hreppi, og kona hans, Guðrún Guð-
jónsdóttir, f. 5. júlí 1883, d. 9. septem-
ber 1916. Föðurbróöir Magneu var
Guðjón, afl Brynju Benediktsdóttur
leikstjóra og Kristjáns Sigurjóns-
sonar læknis. Hjálmar var sonur
Jóns, b. á Syðra-Seli, Jónssonar, b.
á Syðra-Seli, Jónssonarb. á Syðra-
Seli, Sigmundssonar, b. á Laugum,
Auðunssonar, b. á Birnustöðum,
Guðbrandssonar, bróður Þórðar,
langafa Þórðar, ættfoður Thorodd-
senættarinnar, föður Jóns sýslu-
manns og skálds. Móðir Jóns, amma
Hjálmars, var Guðrún, systir Jóns
afa Ingimars Jónssonar prests, fóð-
ur Jóns, skrifstofustjóra í heilbrigð-
isráðuneytinu. Jón var einnig lang-
afl Þorkels Jóhannessonar prófess-
ors. Guðrún var dóttir Jóns, b. og
hreppstjóra í Hörgsholti í Ytri-
hreppi, Magnússonar, b. í Steins-
holti, Jónssonar. Móðir Magnúsar
var Ólöf Einarsdóttir, systir Narfa,
afa Magnúsar Andréssonar, ætt-
fóður Langholtsættarinnar, langafa
Ásmundar Guðmundssonar bisk-
ups og Sigríðar, móður Ólafs Skúla-
sonar vígslubiskups. Móðir Jóns
var Guðbjörg Jónsdóttir, b. í Láta-
læti, Jónssonar og konu hans, Guð-
ríðar Gísladóttur, systir Ólafs, bisk-
ups í Skálholti, langafa Þorkels, afa
Oscars Clausens rithöfundar. Móðir
Guðrúnar var Kristín Jónsdóttir, b.
á Úlfsstöðum í Landeyjum, Sigurðs-
sonar, bróður Jórunnar, ömmu
Tómasar Sæmundssonar „Fjölnis-
manns“. Móðir Hjálmars var Ses-
selja Guðnadóttir, b. í Syðri-Gróf í
Flóa, Jónssonar, b. í Seljatungu í
Flóa, Guðnasonar. Móðir Jóns var
Valgerður Guðmundsdóttir, systir
Brynjólfs, langafa Þuríðar, móður
Þorsteins Erlingssonar.
Guðrún var dóttir Guðjóns, b. á
Reykjanesi í Grímsnesi, bróður
Ástríðar, langömmu Vigdísar Finn-
bogadóttur. Guðjón var sonur
Finns, b. á Kaldárhöfða í Gríms-
nesi, Finnssonar, b. á Langárfossi í
Álftaneshreppi á Mýrum, Jónsson-
ar, b. á Langárfossi, Nikulássonar.
Móðir Jóns var Sigríður Guð-
mundsdóttir, systir Þórunnar, móð-
ur Sigríðar, konu Ólafs Stefánsson-
ar stiftamtmanns, ættforeldra
Stephensenættarinnar. Móðir Guð-
rúnar var Guðlaug Sigvaldadóttir,
b. á Björk í Grímsnesi, Ingimundar-
sonar, b. í Vorsabæ á Skeiðum, Sig-
valdasonar. Móðir Sigvalda var
Guðrún Grímsdóttir, b. á Kotferju í
Flóa, Hálfdanarsonar, bróður Ein-
Magnea Hjálmarsdóttir
ars, langafa Hálfdanar, fóður Helga
lektors og skálds og Guðjóns, afa
Helga Hálfdanarsonar, lyfjafræð-
ings og skálds, og langafa Hannesar
Péturssonar skálds. Magnea tekur á
móti gestum á heimili sínu frá kl.
15-18.
Ólafur E. Guðmundsson
Ólafur E. Guðmundsson frá Mos-
völlum, Stórholti 32, Reykjavík, er
áttræður í dag. Ólafur Eggert er
fæddur á Mosvöllum í Önundarfirði
ög ólst þar upp. Hann var i námi í
Alþýðuskólanum á Núpi í Dýraflrði
1926-1928 og var lengst af framan
af ævi sjómaður. Ólafur reri fyrst
frá Kálfeyri fermingarvorið sitt,
1923, og var á mótorbátum og togur-
um til 1936. Hann réðstþá kyndari
á Kötlu gömlu og var m.a. í sigling-
um milli Englands og Spánar í borg-
arastyrjöldinni og milli Evrópu og
Ameríku á fyrstu árum heimsstyrj-
aldarinnar. Ólafur kom í land 1941
og vann um skeiö hjá sveitunga sín-
um, Skúla á Laxalóni, og hjá Bygg-
ingafélagi verkamanna. Hann fór
að vinna við smíðar í Trésmiðjunni
hf. 1943 þar sem hann starfaöi rúm
þrjátíu ár. Ólafur lauk prófi í hús-
gagnasmíði frá Iðnskólanum í Rvík
1949 og var í mörg ár gjaldkeri
Sveinafélags húsgagnasmiða og er
nú heiðursfélagi þess. Hann og kona
hans hafa verið virk í Félagi eldri
borgara og syngja bæði í kór félags-
ins. Ólafur kvæntist 15. október 1938
Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, f. 13.
ágúst 1913. Foreldrar hennar voru
Þorvaldur Þorvaldsson, b. á Kropps-
stöðum í Önundarfirði, og kona
hans, Kristín H. Halldórsdóttir. Þor-
valdur var sonur Þorvalds Snjólfs-
sonar frá Bakkaseli í Langadal sem
var ættaður úr Gufudalssveit. Móð-
ir Þorvalds var Efemía Þorleifsdótt-
ir, prests í Árnesi og Gufudal, Jóns-
sonar, stúdents á Laugabóli, Jóns-
sonar, prófasts á Stað í Steingríms-
firði, Sveinssonar. Móðir Þorbjarg-
ar var Kristín Halldórsdóttir, b. í
Ytri-Hjarðardal, Jónssonar ogkonu
hans, Guðrúnar Jónsdóttur. Móðir
Guðrúnar var Kristín Einarsdóttir,
b. í Tungu í Skutulsfirði, Ásgríms-
sonar, b. í Arnardal, Bárðarsonar,
b. í Arnardal, Illugasonar, ættföður
Arnardalsættarinnar. Börn Ólafs og
Þorbjargar eru Guðmundur, f. 1938,
verkfræðingur, kvæntur Sigurrós
Þorgrímsdóttur háskólanema; Þor-
valdur, f. 1944, eðlisfræðingur,
kvæntur Brynju Jóhannsdóttur
meinatækni; Kristín Ágústa, f. 1949,
borgarfulltrúi, gift Óskari Guð-
mundssyniritstjóra; Eggert, f. 1952,
tæknifræðingur, kvæntur Sigrúnu
Þorvarðardóttur háskólanema, og
Snjólfur, f. 1954, stærðfræðingur,
kvæntur Guðrúnu Eyjólfsdóttur
lyíjafræðingi. Barnaböm Ólafs og
Þorbjargar eru ellefu. Systur Ólafs
eru Ragnheiður, f. 1902, átti Ólaf
Hjálmarsson birgðavörð; Halldóra,
f. 1906, var lengi formaður Nótar,
félags netagerðarmanna; Ingileif, f.
1907, átti Óskar Gíslason, ökukenn-
ara í Rvík, og Margrét, f. 1913, gift
Jóni Jónatanssyni, fyrrv. b. á Hóli
í Önundarfirði.
Foreldrar Ólafs voru Guðmundur
Bjarnason, b. á Mosvöllum, og kona
hans, Guðrún J. Guömundsdóttir.
Guðmundur var sonur Bjarna, b.
Olafur E. Guómundsson
og hreppstjóra í Tröð í Álftafirði,
sonar „Glaða-Jóns“ Sigurðssonar
sem ættaöur var af Hornströndum.
Móðir Guðmundar var Guðrún
Jónsdóttir, b. í Hattardalskoti, Ól-
afssonar, b. á Svarfhóli, Ásgríms-
sonar, bróður Einars í Tungu. Móð-
ir Ólafs var Guðrún Guðmunds-
dóttir, systir Kristjáns, föður Ólafs
Þ., Guðmundar Inga, Jóhönnu og
Halldórs. Guðrún var dóttir Guð-
mundar, b. á Kirkjubóli, Pálssonar.
Móðir Guðmundar var Kristín, syst-
ir Soffíu, ömmúSigurjóns Péturs-
sonar borgarfulltrúa. Kristín var
dóttir Hákonar, b. í Tungu, Hákon-
arsonar, bróður Brynjólfs, langafa
Guðnýjar, móður Guðmundar G.
Hagalín. Ólafur og Þorbjörg taka á
móti gestum í dag kl. 17-20 í Risinu,
Hverfisgötu 105.
Til hamingju með daginn
85 ára Rósa Þorsteinsdóttir, Höföavegi 3, Hafnarhreppi.
Guðbjörg Jónsdóttir, Kirkjuvegi 14, Selfossi.
60 ára
80 ára Sigurður Benediktsson,
Málfríður Sigurðardóttir,
Kleppsvegi 52, Reykjavík. Ólafur E. Guðmundsson, 50 ára
Stórholti 32, Reykjavík. Rósiín Tómasdóttir,
75 ára Drangshlíð 1, Akureyri.
Hiimar Árnason, Brekku við Vatnsenda. Ingibjörg Danivalsdóttir, Borgarvegi 2, Njarðvík. 40 ára
Helgi S. Guðmundsson, Dísarási 14, Reykjavík. Kinhnrd .1 O Briem,
70 ára Dalseli 21, Reykjavík. Ágúst Már Ármann,
Magnús Ágústsson, Aðalbraut 48', Raufarhöfh. Sigurdís Guðjónsdóttir, Gilsárstekk 8, Reykjavik. Ásbjörn Magnússon, Kvíabala 1, Kaldrananeshreppi.
i miic&ii iii diíTWiibUcirnd
Blaðið hveturafmælisbörn og aðstand-
endur þeirra til að senda því myndir og
upplýsingar um frændgarð og starfssögu
þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast
í síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
»»-al
'&f ÍSI LAI N D - DAl m ilÖ R
í kvöld
KL. 20.30 í LAUGARDALSHÖLL
STYÐJUM STRÁKANA!
Forsala aðgöngumíða hefst kl. 18
í Laugardalshöll.