Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988.
Fréttir
Þorvaldur Jónsson verður 104 ára á morgun:
Ekki lifað hollara
en hver annar
„Eg var nú oröinn fullorðinn þegar
ég heyrði fyrst talað um brennur.
Það var ekkert um slíkt í sveitinni
og heldur ekki flugeldar. Maður hef-
ur lifað tímana tvenna," sagði Þor-
valdur Jónsson sem verður 104 ára
á morgun.
Þorvaldur er fjórði elsti núlifandi
íslendingurinn og segir að sér líði
mjög vel þar sem hann býr með dótt-
ur sinni á Miklubrautinni. Hann er
sæmilega fótafær en fer ekki mikið
án aðstoðar.
Þorvaldur fæddist að Stapa í
Skagafirði. Hann lióf búskap rúm-
lega tvítugur og var bóndi til 1928.
Þá fluttist hann til Sauðárkróks og
vann sem verkamðaur, aðallega við
hina ýmsu vita landsins. Þannig hef-
ur Þorvaldur unnið við Gróttuvita,
Látrabjargsvita, Langanesvita og
marga fleiri. Hann fluttist til Reykja-
víkur 1928 og vann meðal annars sem
áhaldavörður á bílaverkstæði Kr.
Krisjánssonar við Suðurlandsbraut
og Verkamannabúðirnar svoköll-
uðu. Hann hætti að vinna áttræöur
og ætlaöi að hafa það gott síðustu
árin. Þau eru nú orðin 24 og að sögn
hans hefur hann hætt of snemma að
vinna.
- Hvernig er að verða svona gamall,
Þorvaldur?
„Það er nú allt í lagi svo framarlega
sem heilsan er góð. Ég hef sæmilega
heilsu"
- Geturðu þakkað langlífi þitt ein-
hverju sérstöku?
„Það er þá helst heilsan. Ég hef
ekki lifað neitt hollara lífi en hver
annar. Ég hef notað tóbak og drukk-
ið brennivín, en þó allt í hófi.“
- En það hefur margt breyst á þess-
um 104 árum.
„Já. Sumt til hins betra og annað
til hins verra. Eitt af því besta er
rafurmagnið og hitaveitan þar sem
hún er til staðar."
Þorvaldur fær fjölskyldumeðhmi í
heimsókn á gamlársdag samkvæmt
venju og verður væntanlega glatt á
hjalla hjá þessum aldraða heiðurs-
manni.
-hlh
Þorvaldur Jónsson verður 104 ára
gamall á morgun, gamlársdag.
Myndin var tekin á heimili hans í
gær. DV-mynd Brynjar Gauti
Atján Islendingar hundraö ára og eldri:
Sigurður Þorvaldsson
úr Skagafirði elstur
núlifandi íslendinga
Átján íslendingar eru 100 ára og
eldri um þessi áramót. Þaó eru 14
fleiri en í fyrra. Elsti núlifandi ís-
lendingurinn er Sigurður Þor-
valdsson frá Sleitustöðum í Skaga-
firði sem dvelst nú á sjúkrahúsinu
á Sauðárkróki. Sigurður verður 105
ára 23. janúar næstkomandi. Þrír
íslendingar eru 104 ára auk Sigurð-
ar. Það eru þau Ingileif Teitsdóttir
á Selfossi, Aldís Einarsdóttir,
Kristnesi, Eyjafirði, og Þorvaldur
Jónsson, sem verður 104 ára á
morgun, gamlársdag. Einn íslend-
ingur er 103 ára, 2102 ára, 1101 árs
og 10 eru 100 ára gamlir.
Ef litið er á kynskiptinguna í
þessutn hópi átján öldunga þá hef-
ur kvenfólkið mikla yflrburði. Að-
eins fj órir karlar eru í þessum hópi,
sá elsti, fjórði elsti og þeir tveir
yngstu.
Sá íslendingur sem lifaö hefur
lengst var Halldóra Bjarnadóttir
frá Blönduósi en hún var 108 ára
og 43 daga þegar hún dó í nóvemb-
er 1981. Þar á eftir koma fjórar
konur sem allar urðu 106 ára, þar
á meðal Helga Brynjólfsdóttir sem
dó í desember 1953. Samkvæmt
þjóöskrá verða yfir 10 íslendingar
100 ára á næsta ári.
Æ fleiri íslendingar ná því að
verða aldargamlir en árgangamir
stækkuðu töluvert upp úr aldamót-
um. Með þeim lífslíkum, sem eru í
dag, má leiða getur að því að 100
ára og eldri íslendingum fjölgi fram
að næstu aldamótum.
-hlh
1. Sigurður Þorvaldsson 23.1.1884 Sjúkrahúsi Sauðárkróks
2. Ingilaug Teitsdóttir 4.8. 1884 Sehossi
3. Aldís Einarsdóttir 4.11. 1884 Kristnesi, Eyjafirði
4. Þorvaldur Jónsson 31.12. 1884 Miklubraut64
5. Herdís Jónsdóttir 27.5 1885 Hafnarfirði
6. Sigurlaug Magnúsdóttir 24.2. 1886 Lönguhlíð3
7. Hansína Guðnadóttir 9.12. 1886 Skagfbraut 49, Sauðárkr.
8. Guðrún Jónina Eyjóhsdóttir 17.2. 1887 Reykjavík
9. Elísabet Jónsdóttir 19.6. 1888 Sólvallagötu 74
10. Þuriður Guðjónsdóttir 28.6. 1888 Sjúkrahúsinu Akranesi
11. Halldóra Jónsdóttir 17.8. 1888 Droplaugarst., Reykjavík
12. Kristín Hreiðarsdóttir 19.8. 1888 Hrafnistu
13. Magnús Ólafsson 20.8. 1888 Stórholti35
14. Þórey Einarsdóttir 18.9. 1888 Hjalteyri, Eyjafirði
15. Guðrún Hallvarðsdóttir 17.10. 1888 Vestmannaeyjum
16. Ingibjörg Albertsdóttir 6.11. 1888 Sundabúð, Vopnafirði
17. Guðmundur Ólafsson 20.12. 1888 Kaplaskjólsvegi37
18. Tryggvi Kristjánsson 22.12. 1888 Brekkugötu 15, Akureyri
Kona lést í
bílslysi
Fimmtíu og átta ára gömul
kona lést af völdum áverka sem
hún hlaut í hörðum árekstri á
Gufunesvegi í gær. Tveir bílar
skullu saman af miklu afli
skammt frá eldri aðkeyrslunni
að sorphaugunum í Gufúnesi
klukkan tæplega sex í gærdag.
Konan, sem var ein í bílnum,
missti strax meðvitund. Hún var
föst í bílnum og varö að fá tækja-
bíl slökkviliðsins til að skera bfl-
flakið svo unnt væri að ná kon-
unni úr bílnum. Skömmu eftir að
komið var með konuna á slysa-
deild var hún úrskurðuð látinn.
Ökumaður' hins bílsins, en
hann var einnig einn í bílnum,
slapp án teljandi meiðsla. Hann
fékk að fara heim að lokinni skoð-
un en var mjög miður sín.
Tildrög slyssins eru óviss - þar
sem yflrheyrslur yfir manninum
hafa ekki fariö fram. Talsverð
hálka var þar sem slysið varð. -sme
62 íslendingar
fórust á árinu
Á árinu sem er aö líöa hafa 62
íslendingar látið lífiö af slysfór-
um þar af 8 erlendis.
í fyrra létust 54 íslendingar af
slysförum eða átta færri en i ár.
í umferöarslysum hafa 33 látist
á árinu, þar af 5 erlendis. í fyrra
létust 26 íslendingar í umferðar-
slysum.
Mannskæðasta slys ársins var
þegar fjögur imgmenni létust í
árekstri tveggja bifreiða í Gnúp-
verjahreppi í haust.
Ellefu Islendingar hafa látist í
sjóslysum eða drukknað á árinu.
Það er einum fleiri en í fyrra.
Áfján íslendingar hafa látist af
öðrum slysfórum.
Enginn íslendingur lést í flug-
slysi á árinu en í fyrra létust 5 í
sh'kum slysum.
Flest banaslysin urðu í mars.
Næstflest banaslys urðu í janúar
og september.
Sjö erlendir menn fórust hér á
landi á árinu. -gse
Vinningshafar
í jólagetraun
DV 1988
Dregiö úr mörg þúsund lausnum í jólagetraun DV:
14 ára piltur fékk
myndbandstökuvélina
1. verðlaun, Sony myndbandstöku-
vél frá Japis: Hálfdán Einarsson,
Melbæ 35, Reykjavík.
2. verðlaun, Sony geislaspilari frá
Japis: Þórdís Arngrímsdóttir, Suður-
götu 40, Sandgeröi.
3. verðlaun, Samsung örbylgjuofn frá
Japis: Sigríður Guðmundsdóttir,
Efstasundi 62, Reykjavík.
4. verðlaun, Citizen ferðageilsaspil-
ari frá Radíóbuöinni: Þórunn Guð-
geirsdóttir, Teigaseh 2, Reykjavík.
5. -7. verðlaun, Bangsi bestaskinn frá
Radíóbúðinni: Soffía Þórðardóttir,
Strandaseli 6, Reykjavík; Páh Krist-
insson, Flyðrugranda 16, Reykjavík;
Anna Dögg Rúnarsdóttir, Álakvisl
17, Reykjavik.
8.-10. verðlaun, Lazer Tag geisla-
byssur frá Radióbúðinni: Steinunn
Kolbeinsdóttir, Esjubraut 23, Akra-
nesi; Ingibjörg Ehsdóttir, Melum,
Akureyri; Helgi Ehasson, Hraunstíg
I, Bakkafirði.
II. -20. verðlaun, Leader Wave ferða-
útvarp með heymartæki frá Radíó-
búöinni: Auður Stefánsdóttir, Ásvegi
28, Breiðdalsvík; Helena Rós Hrafn-
kelsdóttir, Ártröð 7, Egilsstöðum;
Sigrún Kristjánsdóttir, Bröttuhlíö 1,
Akureyri; Linda Björk Grétarsdóttir,
Strandaseh 9, Reykjavík; Valgerður
Jensen, Hraunbæ 88, Reykjavík; Ing-
ólfur Þ. Möller, Þykkvabæ 2, Reykja-
vík; Hjalti V. Sævaldsson, Grundar-
götu 74, Grundarfirði; Aldís Stefáns-
dóttir, Fossvegi 11, Siglufirði; Þor-
steinn Ragnarsson, Koltröð 17, Egils-
stööum; Egill Einarsson, Hraunbæ
92, Reykjavík.
Vinningar veröa sendir í pósti th
vinningshafa úti á landsbyggðinni en
vinningshafar á höfuðborgarsvæð-
inu fá vinninga sína senda heim th
sín. Ættu allir vinningar að berast
th hinna heppnu í fyrstu viku nýja
ársins.
DV þakkar hinum fjölmörgu les-
endum sínum þátttöku i jólagetraun-
inni og vonar að þeir verði með aftur
á næsta ári. Gleðhegt ár.
-hlh
„Það lá miði á eldhúsborðinu þegar
ég kom heim í gær og þar stóð að ég
hefði unniö véhna. Ég trúði því varla
í fyrstu og var mjög hissa því ég hef
aldrei unnið neitt svona áður,“ sagði
Hálfdán Einarsson, 14 ára piltur úr
Árbæjarhverfinu, við DV þegar hann
tók á móti fyrstu verðlaunum í jóla-
getraun DV, Sony myndbandstöku-
vél frá Japis í Brautarholti, aö verð-
mæti 82.500 krónur. Það var Pálmi
Guðmundsson, sölu- og markaðs-
stjóri Japis, sem afhenti Háhdáni
myndbandstökuvélina á ritstjórn
blaðsins seinnipartinn í gær.
Háhdán sagði að bróðir hans hefði
skilað inn lausnunum fyrir jól og því
má segja að hann hafi Ihotið sín laun
fyrir að vera fljótur að skha inn
lausnunum.
Háhdán sagöist ætla að taka mynd-
ir á gamlárskvöld og hafa mikinn
áhuga á svona græjum. Að afhend-
ingu lokinni tók Pálmi Guðmunds-
son Hálfdán með sér upp í Japis til
að kenna honum undirstöðuatriðin
við notkun vélarinnar sem hann
sagði að væri einfold eins og bama-
leikfang. Háhdán ætti því að geta
myndað fjölskyldu og vini á gamlárs-
kvöld.
Mörg þúsund lausnir bárust í jóla-
getraun DV þar sem spurt var um
nafn áa hér og þar á hnettinum. Að-
eins tuttugu voru dregnir úr hinum
myndarlega haug af umslögum á
Pálmi Guðmundsson sölu- og mark-
aðsstjóri Japis afhendir Hálfdáni Ein-
arssyni ,14 ára, myndbandstökuvélina
sem var aðalvinningur jólagetraunar
DV. Á innfelldu myndinni sést Hulda Pjetursdóttir draga úr þeim þúsunduf1
lausna sem bárust i jólagetrauninni. DV-myndir KAE og Ragðar
gólfi ritstjórnarinnar. Önnur verð-
laun, Sony geislasphara, hlaut Þór-
dís Amgrímsdóttir í Sandgerði.
Sagði hún aö dóttir sín fengi geisla-
spharann þar sem hún hefði svarað
spumingunum og sent lausnimar
inn. Þriðju verölaun, Samsung ör-
bylgjuofn, hlaut Sigríður GU®-
mundsdóttir, Reykjavík, en hún var
að heiman þegar DV reyndi að hafa
samband við hana.
.þlh