Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1988. 17 Lesendur Húsnæðismál MR: Viðhafið réttlæti Rut skrifar: Mikið hefur borið á skrífum um húsnæðismál Menntaskólans í Reykjavík og er ekki nema gott eitt um þau að segja. En eitt er það sem óvefengjanlega tengist þvi vanda- máli og er það ekki minna. Vil ég nú ræða það nokkuð frá mínu sjón- arhomí. Sjíólaárið 1988-89 voru teknir inn í skólann u.þ.b. 280 nýnemar sem þýðir um 11 bekkjardeildir. Það gefur augaleið að Menntaskólinn í Reykjavík rúmar ekki 11 nýjar bekkjardeildir. Samt voru sam- þykktir 280 nýnemar. Fimmtíu af þessum 280 eru nemar frá stöðum sem hafa menntaskóla til að taka við nemendum og voru skólayfir- völd Menntaskólans ekki skyldug til að taka við þessum tveimur bekkjardeildum. Til þess að leysa húsnæðisskort- inn sem af þessu leiðir hafa skóla- yfirvöld greinilega tekiö þann pól í hæðina að fella bara 2-3 bekki. - Þetta er skakkur póll, því hann er mjög ósanngjarn. Hann eyðileggur heilt ár fyrir mörgum nýnemum eða u.þ.b. 50-75 manns, sem eru2-3 bekkir. - Þessi ákvörðun varð einn- ig til þess að fella 195 nýnema i nýafstöðnum jólaprófum og eru það hvorki meira né minna en 70% 3ju bekkinga og féllu 70% bæði i stærðfræði og stafsetningu. Af ofangreindum tölum má sjá að íflestum.tilvikum hafa jólapróf- in í þessum greinum ekki verið sambærileg skyndiprófum og fyrri æfingum sem nemendur fengu til æfinga og fróðleiks. - Eru þessar aðgerðir skólayfirvalda Mennta- skólans að einhverju leyti sann- gjarnar? Er ekki alröng aðferð að taka inn allt of marga nemendur (að meö- töldum þeim sem eiga eigin svæöis- skóia) og leysa þann vanda með þvi að láta margt ungt fólk sitja í skó- lanum í heilt ár, aðeins til þess að fá ósanngjörn próf og sitja undir því aö u.þ.b. 3 bekkir eigi að falla? Er ekki manneskjulegra að t-aka heldur inn þá sem rétt hafa til setu í skólanum, svo að einhverjir möguleikar séu fyrir hendi að ná upp úr 3ja bekk - og halda fiöldan- um í hæfxlegu jafnvægi? Skólayfir- völd skólans hljóta að sjá sóma sinn í því að láta þessi 70% vita hvort vorpróf verði eins erfiö og nýaf- staðin próf og eins ósanngjöm og raun bar vitni. Þá geta kannski ein- hverjh' bjargað sér frá heils árs eyðileggingu innan þeirra veggja sem rúma virðulegustu stofhun landsins. Það er augljóst að ekki er borin virðing fyrir æsku landsins sem reynir að hefia sig upp til æðri mennta, þjóðfélaginu til góða. Ef eðlilegt þykir að 196 nemendur fái undir 4 í einkunn við að stafselja sitt eigið móðurmál - hvers vegna er þá ekki eðlilegt að ljósastaurar dansi eða stígvél tali? Vandamálin innan veggja MR þarf að leysa en ekki leysa þau á hlut nema sem vilja bara læra til þess að vera betur undir lífið og tilverana búnir. - „í nafniréttlætis og mannréttinda". Spuming dagsins í DV og svör: Hvar á að spara í ríkisrekstri? Grétar Guðmundsson hringdi: Sum dagblöðin hér taka fólk tali á fórnum vegi og spyrja það einnar spurningar á degi hveijum. Þetta er vinsælt lesefni allajafna og speglar viöhorf margra, jafnvel þjóöfélagsins stundum, til þess sem spurt er um. í DV 27. des. var spurningin þessi: „Hvar finnst þér að ætti að vera hægt að spara í ríkisútgjöldum?" Fjórir af sex nefndu niðurskurð á ferðakostnaði opinberra starfs- manna eða betri nýtingu mannafla hjá hinu opinbera, ásamt minni fríðindum hjá þeim sem þeirra njóta. Dæmigert svar hins almenna borgara hvar sem er í heiminum, að slegið sé á strengi þess sem sýni- legt er og oft haft í flimtingum, svo sem ferðalög opinberra starfs- manna. í Bandaríkjunum er t.d. sama uppi á teningnum þegar spurt er svipaðrar spurningar, nema þar eru það hermálin sem koma fyrst upp í huga fólks þegar spurt er hvar helst eigi að skera niður eða spara. Sannleikurinn er hins vegar sá aö hvorki ferðalög opinberra starfsmanna á íslandi né hermál í Bandaríkjunum eru stórir eða fyr- irferðarmiklir útgjaldaliðir hjá hinu opinbera - miðaö við útgjöld ríkisins til menntamála og heilsu- gæslu svo alstærstu útgjaldaliðirn- ir séu nefndir. Þessir tveir þættir eru þó þeir sem helst eru aö sliga íslenskt þjóö- félag og þeir sem við höfum síst efni á að halda úti í jafnríkum mæli og krafist er. Þess vegna finnst mér það skjóta skökku viö að fáir skuli nefna þá til sögunnar þegar spurt er um hvar megi helst spara í þjóöfélaginu. Sennilegasta skýringin á þessum viðbrögöum fólks er líklega aö félagslegu þætt- irnir eru ekki sýnilegir í fljótu bragöi og þar eru allir jafnkröfu- harðir. Ferðalög opinberra aöila eru hins vegar mjög áberandi og sýnileg hverjum samferðamanni og því auðvelt að skírskota til þeirra í önn dagsins. O & BJOÐUM VK> AFALLRI m OG KOPERINGU FLUGELDASALA VIKINGS í Félagsheimilinu v/Hæðargarð á Sprengisandi v/Austurver - Háaleitisbraut v/biðskýlið Bústaðavegi (neðan Bústaðakirkju) v/biðskýlið, Sogavegi 1 - Kringlunni KREDITKORT NÓG AF PÚÐRI TIL AÐ FAGNA NÝJU ÁRI í GÓÐU ÚRVALI Á BESTA VERÐI OPIÐ: Föstudag kl. 11-22 Gamlársdag kl. 9-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.