Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 30: DESKMBKR löRS. 19 Sigurður Ringsted: Skipin smíðuð erlendis „Þaö sem mér er efst í huga nú um áramótin og snertir starf mitt er hversu illa okkur gengur að halda verkefnum hér innanlands, hér er sama og engin nýsmíöi í gangi en verið að smíða skip fyrir islendinga um allan heim,“ segir Sigurður G. Ringsted, yfirverkfræðingur Slippstöðvarinn- ar á Akureyri, sem um áramótin tek- ur ijeyndar við starfi forstjóra stöðv- arinnar. „Hvað mig snertir persónulega er mér efst í huga að taka við nýju starfi um áramótin. Það leggst vel í mig en ég held þó að áfram verði sami barningurinn því við getum ekki keppt við ríkisstyrktan skipa- smíðaiðnað erlendis." Guirnar Ragnars: Skólasystkini hittust „Það sem mér er minnisstæðast frá árinu eru helst persónuleg málefni," segir Gunnar Ragnars sem nú um ára- mótin lætur af störfum sem for- stjóri Slippstöðv- arinnar á Akureyri. „Það verður mér minnisstætt að við hittumst eina helgi í Borgarfirði skólasystkini frá Siglufirði sem öll urðum fimmtug á árinu og áttum góöan tíma saman. Einnig er mér minnisstæð ferð sem ég fór til Noregs í haust en þar ferðaðist ég um dalina og vesturlandið í vikutíma. Og að sjálfsögðu er mér ofarlega í huga að ég læt nú af störfum við Slippstöðina eftir 20 ára starf þar.“ Jón Hjaltalín Magnússon: Ólympíuleikarnir í Seoul „Ólympíuleik- arnir í Seoul eru mér minnisstæð- asti atburðurinn á síðasta ári,“ sagði Jón Hjaltal- ín Magnússon, formaður HSÍ. „Von um batn- andiefnahagslífá íslandi,“ var svar Jóns við spurningu um hvað nýja árið bæri í skauti sér. -HK Ingunn St. Svavarsdóttir Gjaldþrot og ný atvinnutækifæri „Minnisstæð- ast er mér er ég tók við embætti oddvita í lok júlí og þau umskipti sem því fylgdu,“ sagði Ingunn St. Svavarsdóttir, sálfræðingur og oddviti Prest- hólahrepps. „Hér var líka sérlega góð berja- og sveppa- spretta í ár, ein sú mesta í áraraðir. Haldið var hér reiðnámskeið sem ég dreif mig á ásamt um það bil 50 öðr- um og endaði það með hópreið í Kelduhverfi. Leiðinlegasti atburðurinn hér var gjaldþrot rækjuvinnslunnar og greiðslustöðvun kaupfélagsins, atvik sem snerta alla í svo smáu sveitafé- lagi. Jákvætt á árinu, sem er að líða, er uppbygging laxeldis hjá tveimur fyrirtækjum sem lofar góðu. Hér hef- ur líka fundist gnægð af heitu vatni sem nægir til upphitunar þúsund húsa. Það er ákaflega erfitt að spá hvað nýtt ár ber í skauti sér. Ég óska okk- ur alls góðs og vona að erfiðleikarnir hér verði til að auka samheldni fólks og þjappa því enn frekar saman. Von mín og trú er sú að úr rætist hjá okkur á nýju ári.“ -JJ Guðrún Ágústsdóttir: Norræna kvenna- ráðstefnan „Minnisstæð- asti atburðurinn á árinu sem er að líða er tvímæla- laust norræna kvennaráðstefn- an í Osló,“ sagði Guðrún Ágústs- dóttir, aðstoðar- maður mennta- málaráðherra. Guðrún var í forsvari fyrir íslensku undirbúningsnefndinni fyrir kvenn- aráðstefnuna. „Á nýju ári vona ég að sú sam- staða, sem myndaðist meðal kvenn- anna í Osló, skili sér í bættum kjör- um þeirra. Ég óska þess líka að spá- dómar um erfiða efnhagsstöðu hér á Hvaðerþér minnisstæðast frá árinu 1988? landi á næsta ári rætist ekki. Má nefna að fískverð fer nú hækkandi svo við getum vonað það besta. Við búum við gott stjórnarfar sem getur stutt landið okkar og stuðlað að velferð þjóðarinnar. Á nýju ári er óskandi að veðrið verði gott því þá verður fólk hamingjusamara. Síðan ættum við að vera góð hvert við ann- að á nýju ári.“ -JJ Jón Baldursson: Norðurlanda- meistaratitillinn ánægjulegastur „Norðurlanda- meistaratitill ís- lensku bridge- sveitarinnar finnst mér bera hæst á líðandi ári,“ segir Jón Baldursson bridgespilari, „það var mjög ánægjulegt. Annars fmnst mér fjöl- miðlafárið í kringum ríkisstjórnar- skiptin bera hátt yfir liðna atburði. Auk þess sitja í manni þessar spreng- ingar í flugvélum í útlöndum. Nýja árið verður svo bara rólegt og þægilegt - hvers vegna ekki?“ -ÓTT Jóhann Hjartarson: Einvígið við Kortsnoj er minnisstæðast „Það er þannig meö mig að mér er jafnan minnis- stæðast það sem ég var síðast að gera. Mér eru raunar margir atburðir minnis- stæðir frá árinu en samt hlýtur ein- vígið við Viktor Kortsnoj í Kanada að vera mér minnisstæðast frá árinu sem er að líða. Ég er ósköp lítið farinn að hugsa til næsta árs og get eiginlega ekkert sagt um hvers ég vænti af því,“ sagði Jóhann Hjartarson, stórmeistari í skák. -S.dór Sigrún Waage: Umferðarátak félags „Mér er efstj huga frá árinu að hafa leikið í Ves- alingunum. En sú uppfærsla stóð allan veturinn og fram á vor. Einn- ig er mér mjög minnisstætt það umferðarátak sem félag leikara stóð fyrir svo fækka megi þeinn ömurlegu slysum sem hafa átt sér s*tað,“ sagði Sigrún Wa- age leikkona. „Ég vona að á næsta ári eigi þetta átak eftir að bera árang- ur og slysum fækki til muna. Af erlendum vettvangi eru manni efst í huga þær hörmungar sem hafa orðið upp á síðkastið, í Armeníu, járnbrautarslysið í London og nú síð- ast flugslysið í Skotlandi. Engu að síður lít ég björtum augum til næsta árs og vonast til að slysum almennt fækki og að efnahags- ástandið eigi eftir að fara batnandi á næsta ári.“ -GKr leikara lítrilUTI (1 | • ^ p «g. Á I M

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.