Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1988, Blaðsíða 31
FQS.TUR$(5/UR.30. DESEMBER 1988.
Matthías Á. Mathiesen:
Friðarvilji
og ósamlyndi
„Af alþjóða-
vettvangi er mér
minnisstæðastur
sá mikli friðar-
vilji sem hefur
fylgt þróun af-
vopnunarmála.
Umhverfismálin
settu einnig svip sinn á þetta ár og
kalla á vakningu þjóöa í millum á
sama hátt og afvopnunarmálin.
Hér innanlands v?r slæmt árferði
þetta ár. Stjórnarskiptin og ósam-
lyndið í fyrri ríkisstjórn settu svip á
árið.
Það var mikil upplifun fyrir mig
og konu mína að vera við setningu
ólympíuleikanna í Seoul. Hafnar-
íjörður hélt upp á 80 ára afmæli sitt
á árinu og bar þar hæst opnun Hafn-
arborgar, menningar- og listamiö-
stöðvar, en það var höfðingleg gjöf
Sverris Magnússonar lyfsala og konu
hans,“ sagði Matthías Á Mathiesen,
fyrrverandi samgönguráðherra.
„Á komandi ári getum við vonast
eftir framhaldi á þeirri þróun sem
verið hefur í alþjóðamálum. Innan-
lands getum við vonast til þess að
vinna okkur leið út úr öldudalnum
og yrði það best gert með breyttri
stjómarforystu."
-gse
Sigrún Þorsteinsdóttir:
Framboðið og þeir
möguleikar
sem það opnaði
„Mér er minn-
isstæðast fram-
boð mitt til emb-
ættis forseta og
þeir möguleikar
sem það opnaði
til að þróa lýð-
ræði eins og
stjórnarskráin
býður upp á til að
forsetinn geti komið fram sem ábyrg-
ur fulltrúi fólksins í landinu. Mér er
einnig minnisstæður sá grátkór sem
stjórnmálamenn hafa komið á hér.
Það yrði eftirminnilegt ef þeim tæ-
kist að væla inn heimatilbúna
kreppu. Þetta er ekki vandamál held-
ur verkefni sem þeir eru kjörnir til
að leysa,“ sagði Sigrún Þorsteins-
dóttir, húsmóðir í Vestmannaeyjum
og fyrrum frambjóðandi til embættis
forseta íslands.
„Ég vona að á næstunni fari þjóðin
að beina kröftunum að hinum raun-
verulegu þörfum sínum en sinni ekki
bara emhverjum löngunum. Við
verðum að standa sameinuð vegna
þess sem gerist í Evrópu 1992. Það
þarf að gerast á næsta ári því að það
verður of seint 1992. Einnig vænti ég
mikils af þeim mikla viöburði sem
verður í Flórens 7. janúar þegar al-
heimssamtök manngildissinna koma
saman. Það fer héðan um 100 manna
hópur. Þessi atburður mun væntan-
lega hafa áhrif um alian heim. Eins
vænti ég þess að Flokkur mannsins
fari í samstarf viö einhvern af
stærstu flokkum landsins. Viö mun-
um hafa hugsjónakraftinn og stór
flokkur yrði sá bakhjarl sem við
þurfum."
-sme
Guörún Helgadóttir:
íslendingum er
engin vorkunn
„Frá liðnu ári
er mér minnis-
stæðast það sem
hefur verið að
gerast í afvopn-
unarmálum í
heiminum.. Sú
þíða, sem þar hef-
ur orðið, vekur nýjar vonir,“ sagði
Guðrún Helgadóttir, forseti samein-
aðs Alþingis.
„Af innlendum vettvangi verður
eftirminnilegust tilurð nýrrar ríkis-
stjórnar og þær hræringar sem urðu
í tengslum við hana.
51U
Hvað er þér miimisstæðast frá árinu 1988?
Annars hefur þetta ár verið gott.
Árferði hefur verið með besta móti
og aflabrögð meö eindæmum góð. Því
horfi ég með bjartsýni til nýja árs-
ins. íslendingum er engin vorkunn
því þeir hafa það alveg í hendi sér
hvernig fer.“
-Pá
Ólaíúr Jóhann Ólafsson:
Heimsmyndin
raskaðist
„Þaö sem mér
er langminni-
stæðast úr mínu
prívatlífi frá síð-
asta ári er að fað-
ir minn, Ólafur
Jóhann Sigurðs-
son, lést síðsum-
ars í júlí. Við það
raskaðist heims-
mynd manns ansi mikiö,“ sagði Ólaf-
ur Jóhann Ólafsson rithöfundur. „í
kjölfar þessa hef ég komið oftar heim
og staðið stutt viö í einu. En séð
meira af íslandi en ég geri yfirleitt.
Þar af leiðandi er mér minnisstæður
þessi leiðinda barlómur í stjórnend-
um landins sem stjórnað hafa þessu
gróðabúi síðustu árin.
Af efnahagslífi annars staðar er
mér minmstæður sá skjálfti sem hef-
ur verið í bandarísku efnahagslífi,
sem nú er skuldugasta þjóð í heimi.
Menn tala um að heimskreppa sé í
nánd og eru mjög uggandi vegna
þess. En vonandi skýrist það á næsta
ári.
Úr hörmungageiranum eru manni
minmsstæðust þessi tilbúnu flugslys
og jaröskjálftarnir í Armeníu.
Það verður spennandi að fylgjast
með stjórnarskiptunum í Bandaríkj-
unum og forvitnilegt að sjá hvernig
hinum nýja forseta muni semja við
Rússana. Og ég vona að efnahags-
kreppan hér verði ekki í hugum
skapandi manna. En það hefur sem
betur fer sýnt sig að lista- og skemmt-
analíf bómstrar á krepputímum.“
-GKr
Haraldur Henrýsson:
Sextíu ára afmæli
Slysavarnafélagsins
„Þegar ég lít til
baka yfir árið
1988 er hugur
minn helst bund-
inn við þann fé-
lagslega vettvang
sem ég er mest
tengdur, það er
Slysavarnafélag
íslands. Þetta
hefur verið sextíu ára afmælisár fé-
lagsins og þess hefur verið minnst á
ýmsan hátt. Þar ber hæst mikið af-
mælisþing síðastliöið vor sem bar
þess órækan vott að enn býr mikill
þróttur í félaginu. Það sannar líka
mikið starf þúsunda karla og kvenna
um allt land. Ég minnist meðal ann-
ars með ánægju heimsóknar til ísa-
fjarðar í sumar þegar slysavarna- og
björgunarsveitir þar tóku á móti nýj-
um og glæsilegum björgunarbáti sem
gegnir þýðingarmiklu öryggishlut-
verki fyrir ísafiarðardjúp. Einnig er
mér ofarlega í huga áframhaldandi
uppbygging Slysavarnaskóla sjó-
manna. En ég tel það starf afar þýð-
ingarmikið. Eg vildi gjarna að fiár-
veitingavaldið yrði örlátara á fé til
þess starfs. Mikil slysatíðrii í um-
ferðinni er mér mikið áhyggjuefni.
Tala látinna í ár er orðin hærri en
undanfarin ár. Tölur um alvarleg
meiðsli sýna aö almenn notkun bíl-
belta í framhaldi af gildistöku nýrra
umferðarlaga í mars hefur haft áhrif
til góðs.
Að því er varðar næsta ár er ljóst
að þjóðin býr nú við erfiðari hag en
verið hefur um hríð. Engin ástæða
er til að ætla annað en úr rætist -
enda leggi hver sitt af mörkum. Á
vettvangi míns félags eru menn fullir
áhuga til átaka í áframhaldandi
slysavarna- og björgunarmálum. Hjá
sjálfum mér verða þau tímamót-að
frá áramótum verð ég skipaður í
nýtt starf sem ég hlakka að takast á
við og vona að mér auðnist að rækja
í þágu réttlætis," sagði Haraldur
Henrýsson, forseti Slysavarnafélags-
ins og hæstaréttardómari. -sme
Reykjavík Akureyri Njarovík